Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
Fréttir I>V
Skoðanakannanir DV og kosningaúrslit:
Ótrúlega nálægt
kosningaúrslitum
7%
6
Frávik skoðanakannana frá
kosningaúrslitum
5,5
1,1 „„1,1 mm m
111 II
1,3 1,3
DV
j Félagsvísindastofnun
Hagvangur
1 Skáís
jGallup
iMarkaössamskipti
2,2
i .i iil iii iii
Borgstjkosn. Þingkosn. Borgstjkosn.
1990 1991 1994
Þingkosn.
1995
Borgstjkosn. Þingkosn.
1998
i itrwjoi i. . ■
1999 ll
Sveitastjórnakosningar í Reykjavík 1998 53
- meðaKrávik skoðanakannana ^ 75
1,6
1,4
1,2
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
0
0,15
DV
0= Úrsllt kosninga
Félagsvísinda- GALLUP
stofnun
Markaös-
samskipti
Skoðanakannanir DV má rekja til
forvera blaðsins, DB og Vísis. DV
hefur alla tíð lagt mikla áherslu á
skoðanakannanir. Öðru hverju hef-
ur verið slegið fram sleggjudómum
um óáreiðanleika kannanna DV
sem þó eiga alls ekki við rök aö
styðjast. Algengast er að stjórnmála-
menn sem ganga í gegnum niður-
sveiflu leiti skjóls í því aö lýsa
könnunum marklitlum.
Fyrstu skoðanakannanir á Vísi
voru gerðar árið 1967 en áður voru
skoðanakannanir í þjóðfélaginu
mjög stopular. Frá árinu 1968 voru
kannanir á Vísi í höndum Hauks
Helgasonar hagfræðings. Hann tók
upp þráðinn er hann fluttist yfir á
DB sem stofnað var árið 1975. Við
sameiningu blaðanna undir nafni
DV var haldið áfram á sömu braut.
Frá upphafi var sú leið farin við
gerð skoðanakannana á DB að taka
slembiúrtak úr símaskrá - hafa jöfn
skipti á milli kynja og landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðisins. Þessi að-
ferð var gagnrýnd í gegnum tíðina
af samkeppnisaðilum. Þrátt fyrir
alla gagnrýni töluðu staðreyndimar
sínu máli.
Skoðanakannanir DV hafa iðulega
reynst nákvæmari öðrum könnunum
og næst raunveruleikanum.
Lítil skekkja
Skoðanakönnun sem Dagblaðið,
DB, gerði þremur dögum fyrir for-
setakosningarnar 29. júní 1980 fór
ótrúlega nálægt úrslitunum sjálfum.
Aðeins skeikaði að meðaltali 0,4
prósentustigum. Vigdis Finnboga-
dóttir sigraði, sem kunnugt er, með
33,7 prósenta fylgi, var með 34 pró-
sent í könnun DB 26. júní það ár.
Guðlaugur Þorvaldsson kom næstur
með 32,3 prósent atkvæða í kosning-
unum, var með 32,4 prósent í síð-
ustu könnun DB fyrir kosningar.
Albert Guðmundsson hafnaði í 3.
sæti, með 19,9 prósent, 0,3 prósentu-
stigum minna en í könnun DB. Pét-
ur Thorsteinsson varö neðstur með
14,1 prósents fylgi í kosningunum,
mældist með 13,4 prósenta fylgi í
DB-könnuninni.
Af þeim aðilum sem gerðu skoð-
anakannanir fyrir forsetakosning-
arnar 1980 komst Dagblaðið næst
niðurstöðunum. Vísir gerði nokkrar
kannanir. Sú síðasta fór þó ekki
eins nálægt úrslitunum og DB eða
með 2,3 prósenta meðaltalsskekkju.
Úrslltin í Reykjavík
Skoöanakönnun DV, sem gerð
var 2. maí 1998 vegna sveitarstjóm-
arkosninganna 23. maí, var lýsti
nánast sjálfum úrslitunum. í
Reykjavík mældist Reykjavíkurlist-
inn með 53,4%, Sjálfstæðisflokkur
með 45,1% og önnur framboð með
1,5% atkvæða. Niðurstaðan varð sú
að R-listi fékk 54% atkvæða og Sjálf-
stæðisflokkur 45%, svo öllu nær var
varla komist, meðalfrávikið aðeins
0,15 prósent.
I skoðanakönnunum vegna þess-
ara kosninga hafði DV vinninginn
og næst DV komst Félagsvísinda-
stofnun sem gerði könnun fyrir
Hörður Kristjánsson
blaðamaður
Morgunblaðið en þar var meðal-
frávikið 0,8% frá úrslitunum en
1,45% ef einungis er miðað við R-
og D-lista. Gallup gerði könnun
fyrir fréttastofur Sjónvarpsins og
Ríkisútvarpsins. Meðalfrávik
Gallups var 1% og 1,85% ef aðeins
er litið til útkomu R- og D-lista.
Markaðssamskipti gerðu könnun
fyrir Stöð tvö og þar var meðalfrá-
vikið 1,75% en heil 3% ef einungis
er miðað við áðurnefnda flokka.
Enn nálægt úrslitum
Fyrir þingkosningar 1999 sýndi
skoðanakönnun, sem DV gerði 6. maí,
fylgi flokkanna sem ekki varð fjarri
úrslitum kosninganna þrem dögum
seinna. Þetta gerðist þrátt fyrir mikla
óvissu sem m.a. skapaðist af tilkomu
Frjálslynda flokksins og Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs.
í könnuninni var Framsóknar-
flokkur með 21% atkvæða og 14 þing-
menn, Sjálfstæðisflokkur með 42% og
28 þingmenn, Frjálslyndi flokkurinn
með 2,9% og tvo þingmenn, Samfylk-
ingin með 25,2% og 16 þingmenn og
Vinstrihreyfmgin - grænt framboð
með 7,5% atkvæða og 5 þingmenn.
Niðurstaðan varð sú að Framsókn-
arflokkur fékk 12 þingmenn, Sjálf-
stæðisflokkur fékk 26 þingmenn,
Frjálslyndi flokkurinn fékk 2 þing-
menn, Samfylkingin fékk 17 þing-
menn og Vinstrihreyfingin - grænt
framboð fékk 6 þingmenn.
Meira þarf í raun ekki að segja um
áreiðanleika skoðanakannana DV.
Svona er hægt að rekja áfram en stað-
reyndirnar sýna ótvírætt að skoðana-
kannanir DV endurspegla mjög vel
allar hræringar í þjóðfélaginu.
-HKr.
Trillusjómaður í Þórshöfn í Færeyjum:
Öfunda ekki íslenska starfsbræður
- selur húsmæðrum aflann
Vlgtaö
Aflinn veginn og metinn á markað fyrir húsmæður í Þórshöfn.
DV, TÓRSHAVN:
„Þetta var ágætt í dag, ég er með um
200 pund af þorski sem ég sel hér á
bryggjunni. Það skiptast á skin og
skúrir, stundum fiskast vel og stund-
um ekki. Hann er mjög tregur inn á
Regin Oisen trillusjómaöur.
milli. Það fæst bara svo lítið fyrir þetta
að þetta er varla gerlegt," segir Regin
Olsen, trillusjómaður í Þórshöfn í Fær-
eyjum.
Hann hefur verið sjómaður í liðlega
40 ár og segist ekki kunna neitt annað.
Fiskimiðin hans eru um klukkutíma
fjarlægð frá höfninni. Regin rær með
handfæri og selur aflann sinn við borð-
stokkinn og það eru helst húsmæður
sem koma og kaupa sér í soðið nýjan
og spriklandi flsk. Hann segist ekki
stunda neina stórútgerð þannig að
hann er laus við allar hömlur kvóta-
kerfis. „Ég öfunda ekki þá íslensku
starfsbræður mína sem búa við kvóta-
kerfi,“ segir hann.
Mikill fjöldi smábáta er gerður út
frá Þórshöfh en nokkur hluti hans er
einungis til tómstunda og skemmtun-
ar.
„Það er ekki lengur gott að gera úr
frá Þórshöfn og varla að hægt sé að lifa
af þessu en ég hef verið sjómaður svo
lengi að ég kann ekki neitt annað og
mun halda þessu áffam þrátt fyrir laka
afkomu. Það er þó alltaf gaman að
hitta konumar þegar þær koma að fá
sér soðningu,“ segir Regin flskimaður.
-GS
Sandkorn
_____ Uriss.on:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.Is
Fögur fyrirheit
Lögreglumenn
undrast mjög að
samkvæmt nýja fjár-
lagafrumvarpinu
eigi að skera enn
meira niður í lög-
gæslunni en orðið
er. Minnast lög-
reglumenn fagurra
fyrirheita Sólveigar
Pétursdóttur dómsmálaráðherra
og stjómvalda sem mjög hafa gum-
að af aukinni gæslu. Sólveig lagði
t.d. heilt flugskýli undir blaða-
mannafund um stórátak í vegaeftir-
liti sem áður var nýlega búið að
skera niður. Eftir Kristnihátíð sást
hins vegar vart lögreglubíll á
sveimi á götunum vegna fjárskorts.
Þá hafa lögreglumenn lýst því að
ekki þurfi að búast við að lögreglu-
menn þvælist fyrir í umferðinni
það sem eftir liiir árs, hvað þá að
þeir sinni fikniefnarannsóknum.
Peningaleysi sjái til þess...
Flókið Mekkanó
Markaðsfyrirtækið sem varð til
úr GSP-almannatengslum og Gæða-
miðlun heitir Mekkanó. Listinn
yfir viðskiptavini
fyrirtækisins þykir
merkileg samsuða
og minna á ýmis
furðuverkin sem
ungir drengir
bjuggu til úr
mekkanói á árum
áður. Þama eru
t.d. bæði Samskip
og Eimskip tilgreind sem viðskipta-
vinir. Þykir óvenjulegt að fyrirtæki
í hörkusamkeppni njóti ráðgjafar
frá sama aðilanum. Kaupþing og ís-
lensk erfðagreining eru einnig á
viðskiptavinalistanum. Þau slógust
af heift á sínum tíma þegar Kaup-
þing taldi hlutabréf ÍE ofmetin.
Gánmgar telja þetta sýná einstaka
markaðssnilli hjá Gunnari Steini
Pálssyni markaðsráðgjafa. Nú geti
hann gefið Kára Stefánssyni og Sig-
urði Einarssyni góð ráð sitt í hvort
símtólið...
Fyrrum sýsli kátur
Sigurður Gizurarson, áður sýslu-
maður á Akranesi, er kampakátur
þessa dagana. Á
sinum tíma
hrökklaðist hann
úr embætti vegna
framúrkeyrslu I
fjárframlögum
sem embættinu
voru ætluð til að
halda þjónustunni
gangandi. í refs-
ingarskyni var jafnvel rætt um að
flytja Sigurð nauðugan til að gegna
embætti sýslumanns á Hólmavík.
Ástæðan fyrir kátínu Sigurðar nú
er að framúrkeyrsla embættisins
hefur ekkert minnkað siðan hann
hvarf á braut og nýframlagt íjár-
lagafrumvarp viðurkennir vandann
og þar segir að óhjákvæmilegt sé
að taka á honum með þvi að auka
framlög til embættisins ef viðhalda
eigi núverandi þjónustustigi...
Heiðra skaltu
Aldraðir mótmæltu fyrir framan
Alþingishúsið við þingsetningu á
mánudaginn. Telja þeir sig lítt hafa
orðið vara við góð-
æri Davíðs sem
fram kemur í áætl-
uðum 30 milljarða
tekjuafgcmgi hjá
ríkissjóði. Séra
Halldór Gröndal,
fyrrum sóknar-
prestur í Grensás-
sókn, stóð á með-
al aldraðra þeim tii
halds og trausts. Þegar þingmenn
gengu frá kirkju til þinghúss
heyrðist kallaði upp eitt af boðorð-
unum tíu og sagt er að mörgum
þingmanninum hafi orðið illilega
hverft við. Virtust sumir þeirra
vita upp á sig skömmina þegar
þeir heyrðu þama boðorðið heiðra
skaltu föður þinn og móður. Urðu
þeir svo enn skömmustulegri þegar
þeir ráku augun í sr. Halldór í
hópi mótmælenda...