Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2000, Blaðsíða 49
57
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000
DV Tilvera
Afmælisbörn
Pútín 48 ára
Vladimir Pútín, forseti Rússlands,
fæddist í St. Pétursborg á þessum degi
fyrir 48 árum. Pútín, sem starfaði í
fimmtán ár fyrir leyniþjónustu KGB,
tók við forsætisráðherraembætti í Rúss-
landi i ágúst árið 1999. í mars á þessu
ári var Pútín kjörinn forseti landsins.
Damon 25 ára
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Matt
Damon blæs að líkindum i veislulúðrana
í dag enda kappinn þrítugur. Matt sló í
gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting
þar sem hann lék á móti æskuvini sín-
um, Ben Affieck. Alls hefur Matt leikið í
21 kvikmynd og má þar frægar telja Sav-
ing Private Ryan og The Talented Mr.
Ripley.
Stjörnuspn
Glldir fyrir sunnudaginn 8. október og mánudaginn 9. október
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.):
pSinntu mikilvægum
verkefiium fyrst þar
sem ekki er séð hve
mikinn tíma þú hefur. Þrýstingur
á fólk við vinnu skilar sér ekki.
Spá mánudagsins:
Ef þú gætir þess að gera enga vit-
leysu mun þessi dagur verða mjög
góður. Sinntu öldruðum ættingja,
það myndi gleðja hann mjög.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
"Gættu þess að gleyma
engu mikilvægu þótt þú
hafir í mörg horn að
líta. Gamall vinur leitar ráða hjá
þér. Happatölur þínar eru 3, 8 og 32.
Spá mánudagsins:
Þetta mun verða ótrúlega hefðbundinn
og venjulegur dagur. Ef þú hefur ein-
hver tök á þá ættir þú að reyna að gera
eitthvað til að krydda hann aðeins.
Tvíburamir (21. maí-21. iúní);
Spá sunnudagsins:
Fjármálin þarfhast at-
hugunar og ef þú ætlar
__ að gera stórinnkaup eða
jafnvel kaupa fasteign væri réttara
að leita aðstoðar sérfræðinga.
Spá mánudagsins:
Dagurinn verður rólegur en kvöldið
fiörugt. Þú ættir að passa þig á að
taka ekki of mikið út úr gleðibankan-
um. Happatölur þínar eru 4,11 og 16.
Liónið (23. iúlí- 22. ágústi:
I
1 f sunnucíags*ns:
'— • /
s 0 íá
/Dagurinn byrjar rólega
en síðar færist Qör í
leikinn. Þú þarft á allri
þolinmæði þinni að halda. Við-
skipti ganga vel.
Gáleysislegt tal getur leitt af sér tor-
tryggni og jafnvel misskilning.
Varðveittu leyndarmál sem þér er trúað
fyrir. Happatölur þínar eru 12,17 og 23.
Vogin (23. sept.-23. okt.i:
Gengi þitt í vinnunni fer
óðum batnandi og það er
engu líkara en lánið leiki
við þig þar. í einkalífinu gæti orðið um
einhvers konar árekstra að ræða.
Gerðu eitthvað frækUegt í dag og
láttu taka efitir þér. Ekki hlusta á
það sem þú trúir ekki á og ekki
láta aðra segja þér fyrir verkum.
Bogamaður (22. nðv.-21. des.l:
Spa sunnudagsins:
'Ástvinir eiga saman nota-
lega sfimd og eru jafnvel
aö gera áætlanir um
framtíðina og er ekki annað að sjá en
að nú sé hagstæður tími til þess.
EMIiiHil'fipMlil-U
Vandaöu val á vöru sem þú ert að
hugsa um að kaupa. Margir vilja
reyna aö svindla á þeim sem ekki
gæta sín. Ástarmálin ganga vel.
Fiskarnlr (19, febr.-20. marsl:
Spá sunnudagsins:
Eert talsvert gefinn
fyrir að gagnrýna aðra
og gæti það komið þér
í koU ef þú gætir þín ekki. Kvöld-
ið verður skemmtUegt.
Spá manudagsins:
Ekki gera mikið úr Utlu máfi í
dag, morgundagurinn kemur með
ný ráð. Taktu ákvarðanir með
mikilU varkámi í dag.
Nautið (20. apríl-20. maí.l:
Spa sunnudagsíns:
mm
jjmssregt Þú hugar að framtíðar-
n' áformum og er þar
sannarlega úr mörgu að
velja. Þótt ýmsir vUji ráðleggja þér
verður þú að treysta á sjálfan þig.
Spá mánudagsins:
Karlar í þessu stjömumerki ættu
að hugsa sinn gang varðandi kon-
umar og konumar hugsa sig enn
meira mn varðandi karlpeninginn.
Kfabblnn (22. iúni-22. iúlíl:
Spá sunnudagsins:
Jræddur er geymdur
‘ eyrir, þér hefur gengið
vel í spamaðarátaki
þínu og getur leyft þér smámun-
að. Njóttu kvöldsins.
Spá mánudagsins:
Ungt fólk í þessu merki hefur mik-
ið að gera í dag. Eldra fólk ætti að
taka það rólega þar sem stjömum-
ar era þvi ekki eins hagstæðar.
Mevlan (23. áeúst-22. seot.i:
Spá sunnudagsins:
j Þú ert fremur niðurdreg-
i fyrri hluta dags en
það bráir af þér ef þú
hefur nóg fyrir stafiú. Þú kynnist
mikilvægri manneskju á næstunni.
Spá mánudagsins:
Þó að fólk sýnist vera leiðinlegt í dag
snýst þó allt til betri vegar í kvöld og
nóttin verður ánægjuleg, að minnsta
kosti hjá þeim sem eru ástfangnir.
Sporðdreki (24. okt.-21, nóv.l:
Spá sunnudagsins:
Gáleysislegt tal getur leitt
f sér tortryggni og jafnvel
E misskilning. Varðveittu
leyndarmál sem þér er trúað fyrir. Góö-
ur vinur leitar til þin eftir aðstoð.
Spá mánudagsins:
Á morgun verður mikið að gera og
fólk ætti ekki að ana út í það sem ekki
virðist ráðlegt. Farðu eftir innsæi þinu
ef þú þarft að gera upp á milli manna.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.l:
HM£H|
Spá sunnudagsins:
Mikilla breytinga er
að vænta í lífi þínu i
nm margvíslegu tilliti. Þú
færð upplýsingar sem reynast þér
verulega gagnlegar.
Spá mánudagsins:
í dag verður mikill viðburður i lifi
þínu. Atburðurinn tekur verulega á
en ef vel tekst til mun þetta hafa
verulega jákvæð áhrif á líf þitt.
Taflfélag Reykjavíkur 100 ára
Veganestið hefur‘
verið sótt til TR
Heil öld, skáköld. Vagga skák-
listarinnar á íslandi, Taflfélag
Reykjavíkur, varð 100 ára í gær 6.
október. Á 19. öld var það áhugi
Daniels W. Fiske á íslenskum þjóð-
háttum og taflmennsku Grímsey-
inga sem mótaði íslenska skáklist.
Það var svo árið 1900 sem TR var
stofnað. Ég efa að þeir menn sem
stofnuðu TR með Pétur Zophaníus-
son í broddi fylkingar hafi haft
hinn minnsta grun um hverju þeir
voru í raun að hrinda af stað.
Núna 100 árum seinna er margs að
minnast, margt að gleðjast yfir og
margir sigrar hafa unnist. Allir ís-
lenskir skákmenn sem hafa náð
góðum árangri hafa sótt veganesti
í TR á einn eða annan hátt. Stór-
meistararnir mörgu sem við eig-
um sem og allir skákáhugamenn
hafa sótt i þann mikla viskubrunn
skáklistarinnar sem TR hefur
alltaf verið. Undir merki félagsins
hafa verið tefldar úrslitaskákir
sem hafa skipt miklu máli fyrir
viðkomandi skákmenn og félagið
og skáklistina í landinu. Einnig,
og þær eru miklu fieiri eins og
vera ber, æfingaskákir, hraðskák-
ir og skákrannsóknir sem hafa
mótað þúsundir íslendinga á skák-
sviðinu og sú mikla vinna hefur
skilað sér vel í lífi margra, já mjög
margra.
Við íslendingar eigum 9 stór-
meistara sem hafa gert harða hríð
að heimsmeistaratitlinum. Friðrik
Ólafsson reið á vaðið, Jóhann
Hjartarson náði einnig langt og nú
er Hannes Hlífar Stefánsson búinn
að vinna sér rétt til að taka þátt í
útsláttarkeppni sem fram fer á
Indlandi seinna á þessu ári og
lokaeinvígið verður háð í íran.
Eins og úrslitin á síðasta heims-
meistaramóti sönnuðu gæti Hann-
es alveg eins og hver annar af
þeim sem þarna taka þátt náð að
komast í úrslitaeinvígið og jafnvel
sigra. Hinir 6 hafa einnig náð
langt í heimsmeistarakeppninni
og hafa örugglega ekki sagt sitt
síðasta orð á þeim vettvangi.
Saga Tafifélagsins er glæsileg og
löng, of löng til að hægt sé að rekja
hana hér í þessu litla greinar-
korni.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast örfáum orðum á ung-
lingastarf félagsins. Æfingar eru á
laugardögum kl. 14 og allir að
sjálfsögðu velkomnir. Það dylst
engum að skáklistin er vel til þess
fallin að þroska og móta unga
huga og vinnubrögð sem flestir
ungir skákmenn tileinka sér er
þeim gott veganesti út í lífið. Und-
anfarin 25 ár hefur Ólafur H.
Ólafsson haft veg og vanda af ung-
lingastarfinu og unnið þar gott
starf sem hann hefur einnig fengið
að sjá umtalsverðan árangur af.
Formaður Taflfélags Reykjavíkur
hefur verið nokkur undanfarin ár
Ríkharður Sveinsson.
En það verður ekki hjá því kom-
ist aö birta 2 skákir úr mótum sem
TR hefur haft veg og vanda af. Ég
ákvað að finna 2 gamlar skákir
sem ekki voru tefldar af titilhöf-
undum heldur af mönnum sem
voru í fremstu röð svona ára-
tugum áður en þeir sem núna eru
á toppnum.
Hvítt: Arinbjörn Guðmundsson
Svart: Jón Kristinsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rfi6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
e3 0-0 5. Rge2 b6 6. a3 Bxc3 7.
Rxc3. Skák þessi var tefld á 1.
alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótinu 1964. Síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Arin-
bjöm Guðmundsson er eini ís-
lendingurinn fyrir utan Friðrik
sem hefur náð að marka aðeins
á Bobby Fischer. Arinbjöm hef-
ur verið búsettur í Brisbane í
Ástralíu síðan um 1969 og mát-
ar þar minni spámenn þegar
honum dettur það í hug. Jón
Kristinsson var þarna ungur
maður og skákstílinn að mótast
og varð að lokum að þessum
fína stíl sem Arinbjörn teflir
hér. Jón hefur unnið íslands-
meistaratitfiinn a.m.k. þrisvar,
alla aðra titla sem hægt var að
ná hér innanlands og áfanga að
alþjóölegum meistaratitli a.m.k.
einu sinni. Hann fluttist til
Hólmavíkur upp úr miðjiun átt-
unda áratugnum og er útibús-
stjóri Búnaðarbankans á staðn-
um. Þeir koma víða við skák-
mennirnir og báðir þessir
herramenn tefldu oft í Ólymp-
íuliði Islands. Já, næsti leikur
svarts er mislukkaður, betra er
7. -d5 7.-Bb7 8. d5 exd5 9. cxd5 d6
10. Be2 De7 11. 0-0 a5 12. f3 Rbd7 13.
e4 Re5 14. Rb5 Had8 15. Bg5 c6.
Svartur verður að taka á sig
bakstætt peð sem síðar verður
hans banabiti. 16. dxc6 Rxc6 17.
Rc3 Ðe6 18. Rd5 Re7 .
Næsti leikur Arinbjarnar sýnir
vel hvað hann hefur verið búinn
að þróa með sér góðan stöðubar-
áttustíl. Margur hefði leikið hér
19. Rxb6 en þá hefði svartur náð
sprikli með 19. -d5. Allur er varinn
góður, svarta peðastaðan splundr-
ast hvort eð er. 19. Rxe7 Dxe7 20.
Dd4! De5 21. BxfB gxfB 22. Hfdl
Hc8. Nú lokar hvitur c-línunni,
eina mótspili svarts. 23. Bc4 Hc7
24. Bb3 Dc5 25. h3 b5 26. a4 b4
27. Khl f5 28. exf5 Dxf5. Nú fefi-
ur bakstæða peðið. 29. Dxd6 Hfc8
30. Hd4 Kh8 31. Hf4 Dg6 32. De5
Dg7 33. Hel Hg8.
Svörtum hefur tekist að gera b-
peðið að sínum fremsta liðsmanni.
En það eru önnur peð veik og svo
er allt krossleppað! 34. Hxf7! Hxf7
35. Bxf7 Dxe5 36. Hxe5 Hf8 37.
He7 Bc6 38. b3 Hd8 39. Hc7 Hdl
40. Kh2 Bd5 41. Bxd5 Hxd5 42.
Ha7 1:0. Þarna í gamla daga fóru
margar skákir í bið og menn gátu
síðan hringt í skákstjórann og gef-
ist upp. Það var líka mun þægi-
legra. Og hér alls ekki átt við Jón
Kristinsson!
Hvítt: Emo Böök
Svart: Guðmundur Pálmason ... _
Hollensk vörn
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 d6 4.
Rf3 g6 5. 0-0 Bg7 6. c4 0-0 7. Rc3
c6 8. b3 Dc7 9. Bb2 Ra6 10. Hcl
Bd7 11. e3 Had8 12. De2 Hfe8 13.
Hfdl Db8 14. h4 e5 15. dxe5 dxe5
16. Ba3 Bf8 17. BxfB Hxf8. Guð-
mundur Pálmason tefldi ávallt
mjög vandað og keppti á nokkrum
Ólympíumótum. Hann þykir ákaf-
lega traustur skákmaður og gaf sig
ekki þótt andstæðingamir hétu
Boris Spassky eða Benóný Bene-
diktsson! Hér teflir hann við
fremsta skákmann Finna
1950-1965 eða áður en Heikki
Westerinen kom fram á sjónar-
sviðið. Skákin var tefld á öðru
Reykjavikurskákmótinu, 1961?»
Finninn misskilur stöðuna og
verður sér úti um slæman biskup
á g2. 18. e4 f4 19. c5 Kg7 20. b4.
Vafasöm peösfóm, eftir 20. -fxg3
21. fxg3 Rxb4 hefur hvítur ekki
merkileg færi. En Guðmundur tefl-
ir eftir því mottói að bæta stöðuna
fyrst og síðan að hirða það sem til
fellur. 20. -Rh5 21. Rg5 h6. Hvít-
ur hefur nú mikla flugeldasýningu
en hann hefur greinilega ekki átt-
að sig á íslensku veðurfari því að
allt rýkur út í veður og vind. 22.
Hxd7 Hxd7 23. Re6 Kh7 24. RxfB
DxfB 25. g4 Rg7 26. a3 Re6 27. g5
hxg5 28. Dg4 Rac7 29. Rd5. t_.
Nú fær hvítur allt moldviörið á
sig aftur, Guðmundur skiptir upp í
auðunnið endatafl. 29. -cxd5 30.
exd5 Df5! 31. Dxf5 gxf5 32. dxe6
Rxe6 33. hxg5 Rd4 34. Kfl f3 35.
Bh3 Kg6 36. Kel Kxg5 37. Bfl a6
38. a4 e4 39. b5 axb5 40. axb5
Kf6 41. b6. 0:1 Og eins og með
fyrri skákina, hér fór hún væntan-
lega i bið og síðan var hringt í
skákstjórann og gefið. Það voru
mörg stílbrögð við þetta, sumir
skrifuðu mjög ranga biðleiki, þeir
týndust og fóru í vasann óvart í
unnum stöðum. Þá töpuðu menn
með unnið ef þeir léku eða skrif-
uðu rangan biðleik. Séra Lombar-
dy lenti i því að andstæðingur_
hans skrifaði miður skemmtilég
skilaboð til hans í biðleik. Það var
í Ameríku en svoleiöis datt engum
í hug að gera í TR.
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000'
I