Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2000, Blaðsíða 28
Nýtt og spennandi
Rafdrifinn buggybíll
fyrir börnin
Guömundur Bjamason:
Steingrímur
vildi hætta
Guömundur
Bjarnason.
„Ég var samstarfs-
I maður þeirra beggja
á þessum tíma og
mér er ekki kunnugt
um neitt baktjalda-
makk Halldórs gagn-
vart Steingrími. Ég
hafna því líka alfarið
| að einhvequm bola-
brögðum hafi verið
beitt í þá veru að
koma Steingrími
frá,“ segir Guðmundur Bjamason, fyrr-
verandi ráðherra Framsóknarflokks-
ins, um þau ummæli Steingríms Her-
mannssonar í þriðja bindi ævisögu
sinnar að Halldór Ásgrímsson hafi
unnið gegn sér og nánast bolað sér úr
formannssætinu í Framsóknarílokkn-
H * um. Guðmundur var ritari flokksins á
þessum tima og í rikisstjóm með þeim
Halldóri og Steingrími.
„Þegar Steingrímur kom inn á þing
sem óbreyttur stjómarandstöðuþing-
maðrn-, varð að mínu mati viðhorfs-
breyting hjá honum. Ég hafði það
miklu fremur á tilfmningunni að hann
væri að velta fyrir sér hvað framtíðin
bæri í skauti sér og hugsanlega skoða
hvort ekki væri útgönguleið tyrir hann
úr stjómmálunum," segir Guömundur.
Hann segir að vissulega hafi áhersl-
ur Halldórs og Steingríms í ýmsum
• málum verið misvisandi, s.s. í Évrópu-
og sjávarútvegsmálum og þeir hafi
ekki alltaf verið samstiga. „Þessi
áherslumunur gæti hafa haft áhrif á al-
mennt samstarf þeirra."
„Ég hef ekki séð þessa bók og hef
ekki í huga að tjá mig neitt um þetta
fyrr en ég hef séð bókina," sagði Hall-
dór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, í morgun. -gk
Leitin aö Einari Erni:
Ekkert útilokað
Einar Orn
Blrgisson.
Skipulagðri leit
björgunarsveita að
Einari Emi Birgis-
syni hefur verið
hætt í bili þar til
frekari vísbendingar
berast. Hins vegar
leita vinir og ætt-
ingjar hans enn og
era að kemba höfuð-
borgarsvæðið.
Aðstandandi Ein-
ars Amar sagði við DV að enn væri
verið að leita þótt færri tækju þátt í
leitinni. Einnig er verið að opna vef-
síðu, www.einarom.is, þar sem mynd
af Einari Erni er birt ásamt upplýsing-
um um hann og annað sem tengist leit-
inni.
Rannsóknarlögreglan í Kópavogi
rannsakar hvarf Einars Amar. Að
sögn hennar er ekkert útilokað þegar
að mannshvörfum kemur, þar með
talið manndráp, sjálfsvíg eða utan-
landsferð.
-SMK
GRET(ARI)
6IGURINN!
Sími 567 4151 &
567 4280
Heildverslun meö
leikföng og gjafavörur
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NOVEMBER 2000
a *
■J
#':
4£5jKi
DVJitYND E.ÓL.
Heitt þinghald
Mikil spenna ríkir á ASl-þingi eftir að Ijóst varð aö tveir myndu berjast um forsetastólinn, þeir Grétar Þorsteinsson,
núverandi forseti, ogAri Skúlason, framkvæmdastjóri sambandsins. Meö þeim á myndinni er Bill Jordan,
framkvæmdastjóri Alþjóðasambands frjálsra verkalýösfélaga.
Shell í Garðabæ:
Bensín
á útsölu
Stafsmenn
Skeljungs í Garða-
bæ hafa þurft að
selja 98 oktana
bensín á 99,99
krónur vegna þess
að tæknibúnaður í
bensíndælunum
ræður ekki við
þriggja stafa tölur.
Nýlega hækkaði 98
oktana bensín upp
í 104 krónur lítr-
inn en starfsfólki á
bensínstöð Shell
Lágt verö
Gamaii búnaöur á
bensíndælum
ræöur ekki viö
þriggja stafa tölur.
við Garðatorg hefur ekki getað selt
bensínið á réttu verði af fyrrgreindum
ástæðum.
„Ég veit ekki hvað þetta á að ganga
lengi en dælumar ráða ekki við útgef-
ið verð á 98 oktana bensíni," sagði
Lilja bensínafgreiðslukona við Garða-
torg. „Við komumst ekki hærra en
99,99 krónur.“
Margrét Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Skeljungi, viður-
kennir að 98 oktana bensínið sé ekki
selt á réttu verði á nokkrum útsölu-
stöðum á landinu:
„Þetta vandamál kemur upp þar
sem eldri dælubúnaður er enn i notk-
un og þetta breytist með nýrri og betri
búnaði þegar hann verður settur upp,“
sagði Margrét síðdegis í gær en þang-
að til verður lítrinn af 98 oktana bens-
ín seldur á 99,99 krónur í Garðabæ og
víðar í stað 104 króna. -EIR
Gífurleg spenna vegna forsetaslags á ASÍ-þinginu:
Kjornefnd klofnar
- ef hvorugur dregur framboð sitt til baka
Gífurleg spenna ríkir á yfirstand-
andi þingi Álþýðusambands íslands
eftir að Ari Skúlason, framkvæmda-
stjóri sambandsins, tilkynnti í gær
að hann myndi gefa kost á sér til
starfs forseta. Núverandi forseti
Grétar Þorsteinsson hefur einnig
lýst því yfir að hann muni gefa kost
á sér áfram. Væntanleg forsetakosn-
ing setur mikið mark á þinghaldið.
Það kemur 1 hlut kjörnefndar að
gera tillögu um forseta, varaforseta,
miðstjóm og varamenn í miðstjóm.
Hlutverk nefndarinnar er að ná
breiðri samstöðu um sína tillögu. Ef
Ari og Grétar halda báðir framboð-
um sinum til streitu þykir ljóst að
kjömefndin muni klofna þar sem
báðir frambjóðendurnir eiga stuðn-
ingsmenn innan hennar. Muni
nefndin skila inn tveimur tillögum
um forseta.
Þá vinnur
kjömefnd að því
að stilla upp
miðstjórn. í gær-
kvöld voru menn
nokkur bjartsýn-
ir á að það tæk-
ist. Gert er ráð
fyrir að fulltrúar
stærstu félag-
anna og formenn
allra landssam-
banda muni eiga
sæti í miðstjóminni.
Þing ASÍ
Rúmlega 500 fulltrúar eru mættir
hluti Flóabanda-
lagsins styður
Ara. Grétar er
talinn hafa
breiðari stuðn-
ing fulltrúa úr
fleiri starfs-
greinum.
Leitað hefur
verið með log-
andi ljósi að
varaforsetaefni
á þinginu. Sum-
Á þinginu sitja rúmlega 500 full-
trúar. í máli þeirra mörgu þingfull-
trúa sem DV ræddi við í gær kom
glögglega fram að mjög skiptar
skoöanir era um frambjóðenduma.
Hvomgur þeirra er með yfirgnæf-
andi stuðning en báðir eru með
sterkar fylkingar sér að baki. Stór
ir viðmælendur DV gengu svo langt
að segja að það gæti skipt sköpum í
kosningu forseta hvort hann hefði
með sér varaforseta, sem hefði
breiðan stuðning meðal þingfull-
trúa. Varaforsetar Alþýðusam-
bandsins eru nú tveir, Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir og Hervar Gunn-
arsson. Nái lagabreyting fram að
ganga verður aðeins einn varafor-
seti. Nöfn þeirra tveggja ofan-
greindu hafa lítið heyrst nefnd í því
samhengi. Báðar fylkingar hafa lagt
mjög hart að Hjördísi Þóm Stein-
þórsdóttur, formanni Vökuls í
Homafirði, aö gefa kost á sér. Hún
hefur hafnað því hingað til.
Eins og fram hefur komið liggja
m.a. fyrir þinginu breytingar þess
efnis að fækka i miðstjóm úr 21 í 15.
Lítur út fyrir að sátt hafi náðst um
skiptingu fjölda fulltrúa milli lands-
sambandanna.
Fyrstu umræðu um ný lög Al-
þýðusambandsins lauk í gær. Útlit
var fyrir, að breytingamar yrðu í
öllum meginatriðum þær sömu og
lagt var upp með. Málið fer í nefnd
og verður afgreitt þaðan eftir hádegi
á morgun.
-JSS
HIV-sigur á ísafirði:
Æðislegt og peppar okkur upp
- segir framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna
„Þetta er æðislegt og peppar okkur
upp,“ sagði Amdís Andrésdóttir, fram-
kvæmdastjóri Alnæmissamtakanna,
eftir að Héraðsdómur Vestflarða úr-
skurðaði HlV-smituðum vélstjóra í vil
eftir aö hann höfðaði mál vegna brott-
vikningar úr skipsrúmi. „Við hvöttum
Guðjón Kristinsson til að fara alla leið
og hann er sá fyrsti sem höfðar mál
vegna þessa og vinnur. Þetta er ómet-
anlegur stuðningur fyrir allt það fólk
sem er í svipuðum sporum og þarf
vonandi ekki lengur að vera í felum
með ástand sitt á vinnustöðum," sagði
Arndís
Andrésdóttir.
Guöjón
Kristinsson.
framkvæmdastjóri
Eurna.
Alnæmissamtak-
Héraðsdómur Vestflarða dæmdi
þrotabú Vesturskips ehf. til að greiða
Guðjóni vélstjóra rúma eina milljón
króna í skaðabætur vegna brottvikning-
ar úr skipsrúmi Geysis BA svo og til
greiðslu málskostnaðar upp á 250 þús-
und krónur. Ýtrustu kröfur Guðjóns
námu rúmlega 1600 þúsund krónum.
„Við erum mjög ánægðir," sagði
Friðrik Á. Hermannsson, lögmaður
Guðjóns og Vélstjórafélags íslands, síð-
degis í gær þegar Erlingur Sigtryggs-
son héraðsdómari hafði kveðið upp
dóm sinn vestur á ísafirði. -EIR
brother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagiö
10 leturgerðir
margar leturstærð
16 leturstillingar
írentar 110 linur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport_______
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i