Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2000, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2000, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 5 Fréttir DV Yfirgnæfandi líkur á sjómannaverkfalli 15. mars: Þeir ætla ekki að semja við okkur - segir varaforseti Sjómannasambands íslands DV, AKUREYRI:____________________ „Það hefur nákvæmlega ekkert gerst. Þó var haldinn samninga- fundur sl. föstudag sem sátta- semjari boðaði til eingöngu vegna lagaskyldu hans að boða til fund- ar hálfsmánaðarlega. Á þeim fundi tilkynntu viðsemjendur okkar að það væri misskilningur að þeir hefðu boðið okkur Flóa- bandalagssamninginn. Þeir hefðu einungis boðið launalið samn- ingsins. Þar með var þeim fundi lokið,“ segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyja- fjarðar og varaformaður Sjó- mannasambands íslands, um stöðuna í kjartasamningaviðræð- um sjómanna og útgerðarmanna. Jólaljósin sett upp DV, AKRANESI: Starfsmenn Akranesveitu hafa notað sér blíðuna undanfarna daga til að koma fyrir jólaskreyt- ingum víðs vegar um bæinn. Þeir þurfa að hafa hraðann á því að bæjarstjórinn lofaði kaupmönnum því að bærinn myndi klára sínar skreytingar 5 til 6 dögum eftir að kaupmenn skreyttu sinar verslan- ir. Sá tími er liðinn. Á myndinni er Símon Hreinsson, starfsmaður Akranesveitu, að koma fyrir einni af fjöldamörgum jólaljósastjörnum sem prýða munu ljósastaura bæj- arins. -DVÓ „Við erum nú að fara í at- kvæða- greiðslu um verkfall á næstu dögum og höfum sett stefnuna á verkfall 15. mars enda ekki líkur á að neitt gerist í samninga- málum okkar. I Flóabanda- lagssamningn- um voru líf- eyrissjóðsmál, starfsaldurstengd orlof og mörg önnur atriði sem við höfum verið að ræða um, at- riði sem almenni markaðurinn hefur samið um en útgerðarmenn eru ekki til viðtals við okkur um neitt af þessu. Framkvæmda- stjóiri LlÚ sagði það að þeir hefðu boðið okkur Flóabandalags- samninginn en síðan bar hann það til baka á síðasta fundi,“ seg- ir Konráð. Hann segist reikna með að at- kvæðagreiðsla um verkfallsheim- ild hjá Sjómannafélagi Eyjafjarð- ar hefjist um miðjan mánuðinn og standi í einn mánuð. „Við ætl- um ekki að taka póstatkvæða- greiðslu heldur treystum við þvi að menn séu það félagslega þroskaðir að menn komi og greiði atkvæði. Við þurfum ákveðinn fjölda félagsmanna á kjörstað til að fá þessa heimild og treystum á að menn komi og greiði atkvæði. Konráð segir að engar líkur séu á samningum á næstunni. „Ég er búinn að heyra þessa menn segja að þeir ætli sér ekki að semja við okkur um ýmis atriði sem aðrar stéttir hafa verið að semja um. Þetta eru þeirra beinu orð. Þama eru ýmis mál. Við erum t.d. enn með 7 daga uppsagnarfrest. Við höfum ekki gert kjarasamninga síðan 1985. Ég held það verði has- ar í þessu núna, það kemur ekki annað til greina," segir Konráð. -gk ^ Hvalf j aröargöng: Útvarpssendingar lágu niðri í þrjá daga - í síðustu viku Útvarpssendingar í Hvalijarðar- göngum lágu niðri í þrjá daga í síð- ustu viku. Að sögn Stefáns Reynis Kristinssonar, framkvæmdastjóra Spalar ehf. sem rekur Hvalfjaröar- göngin, eru fjórir útvarpssendar í göngunum og hefur einn þeirra ver- ið í ólagi að undanförnu en unnið er að því að koma honum í lag. Búið er að gera við bilunina sem varð í síðustu viku og segir Stefán Reynir að slíkar bilanir séu ekki tíðar I göngunum. Hann segir mjög mikilvægt að útvarpssendarnir séu í lagi því ef neyð skapast í göngum er það eina leiðin til að koma skila- boðum til vegfarenda. -MA Ók á 170 km hraða DV, AKUREYRI:____________ Tæplega þrítugur Húsvíkingur, sem í september sl. ók á 170 km hraða í Öxnadal, hefur verið dæmd- ur í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Maðurinn viðurkenndi brot sitt greiðlega fyrir dómi en hann hefur oft komist í kast við lögin áður og m.a. hlotið dóma fyrir líkamsárásir, umferðarlagabrot og tollalagabrot. Niðurstaða dómsins nú var að dæma manninn i 40 þúsund króna sekt, sviptingu ökuleyfis í 4 mánuði og til greiðslu alls sakarkostnaðar. -gk Kjarvalsstaðir: Styggur þjófur Innbrotstilraun var gerð á Kjar- valsstöðum á Miklatúni í fyrrinótt. Viðvörunarkerfi hússins fór í gang og fór lögregla strax á staðinn. í ljós kom að búið var að spenna upp hurð á húsinu og var hún opin. Lögreglan finkembdi húsið hins vegar í leit að óboðnum gesti eða gestum en fann engan. Þykir þvi fullvíst að styggð hafi komið að þeim sem þarna voru á ferð þegar viðvörunarkerfið fór í gang og þeir forðað sér. -gk Konráð Alfreðsson Ég held þaö veröi hasaríþessu ■ núna. HOFÐAHOLLIN BILASALA Við vinnum fyrir þig erum hér mmm HÚSGAGNAHömtj Löggild bíiasala • Opið mánudaga-laugardaga 10-19 • Simi 567 4840 Fax 567 4851 Honda Civic 1,4 Si, árg. 97/04, Cherokee Grand LTD 4.0 96 Galloper 2,5 TDi 98/10 Verð 1.050 þús. Tilboð 950 þús Verö 950 þús. Tílboð 650 þús Honda Accord 2,0 95/08 Plymouth Voyager 4x4 Grand LE, árg Plymouth Grand Voyager Verð 750 þús. Tílboð 550 þús Veró 2.200 þús. Tilboð 1.980 þús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.