Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 Fréttir Slökkviliðsstjóri ber ábyrgð á brunavörnum síns svæðis: Brunahólfun brást - brunavörnum í fleiri byggingum í Eyjum ábótavant, segir slökkviliösstjóri jl lags Vestmannaeyja 1 vant. Húsnæði ísfé- m-ÆL-M er meira eða minna Bergsteinn ónýtt eftir stórfelld- Gizurarson. an bruna sem kom upp þar á laugardagskvöldið. „Það er brunahólfunin sem bregst þarna, annars hefði þessi bruni aldrei orðið eins og hann varð,“ sagði Berg- steinn en þrír menn fóru frá Bruna- málastofnun ríkisins og skoðuðu vegs- ummerki. „Sveitarfélag ber ábyrgð á bruna- vörnum síns svæðis og slökkviliðs- stjóri ber ábyrgð á eldvarnaeftirlit- inu,“ sagði Elías Baldvinsson, slökkviliðsstjóri Vestmannaeyjabæj- ar, í samtali við DV í gær. „En þetta er ekki einfalt mál því það er nú þannig með þessi fiskvinnsluhús að það er nánast stöðugt verið að breyta þeim.“ ísfélag Vestmannaeyja var þar eng- in undantekning. Elsti hluti bygging- arinnar var byggður árið 1978 eftir þeim reglum sem þá giltu en síðan hefur hún verið bæði stækkuð og henni breytt, og breytti það kröfunum sem gerðar eru um brunavamir. Eld- urinn kom upp í nýjasta hluta hússins og breiddist svo yfir í aðra hluta þess. Bergsteinn útskýrði að með brunahólfun er byggingum skipt niður í einingar með eldvarnar- veggjum og -hurðum, þar sem eldur á ekki að geta borist á milli þegar slökkvilið er mætt á svæöið, heldur á að vera hægt að halda honum inn- an þeirrar einingar, jafnvel þótt hann sé of mikill til þess að hægt sé að slökkva hann auðveldlega. „Ekkert slökkvilið ræður við að stöðva eld sem hefur enga fyrirstöðu og getur stöðugt breiðst út,“ sagði Bergsteinn en þykkar álhurðir, sem áður voru útihurðir og ekki var búið að skipta út fyrir eldvarnarhurðir, bráðnuðu í hitanum sem myndaðist af eldinum. Einnig brugðust fleiri veggir og hurðir. Brunavörnum ábótavant Brunamálastjóri rikisins segir bruna- vörnum ísféiagsins hafa veriö ábóta- vant en mikill hluti húsnæöisins brann um síöustu helgi. Brunavörnum ábótavant Bergsteinn vitnaði i skýrslu sem gerð var árið 1996, áður en nýjasta byggingin þar sem eldurinn kom upp var byggð, þar sem brunavarnir voru sagðar óviðunandi. Elías og Berg- steinn sögðu báðir að ýmislegt hefði verið lagfært í kjölfar þeirrar skýrslu en ekki allt sem bent var á og má telja það að einhverju leyti ástæðu þess að svo illa fór sem raun bar vitni. „Það má líka segja að það sem búið var að gera var ástæða þess að svona vel fór því það má ekki gleyma því að hluta hússins var bjargað, aðallega fyrir það að veggimir þar héldu. Það var mjög verðmætur hluti hússins," sagði Elí- as. Hann útskýrði að hann og hans menn færu í fyrirtæki og skoðuðu eldvarnir hússins og gerðu yfir- mönnum svo viðvart hvaða breyting- ar þyrfti að gera. Ef neyðarútgöng- um og þess háttar er ábótavant er fyrirtækinu ekki gefinn frestur á því að láta breyta þvf en frestur er gef- inn á annað sem talið er ekki vera jafnmikilvægt. „Það eru fleiri hús í Vestmannaeyjum með svona athuga- semdir á sér,“ sagði Elías. Hann vildi þó ekki nefna einstök hús og sagði að yfirmenn þeirra fyrirtækja sem hafa fengið athugasemdir þekktu hvað um væri að ræða. Lögreglan í Vestmannaeyjum, ásamt tveimur mönnum frá tækni- deild lögreglunnar í Reykjavík, rann- sökuðu upptök eldsins í gær. -SMK Sérsveit lögreglunnar aðstoðaði Akraneslögreglu við handtöku manns: Reyndi að aka á lögreglu Sérsveit lögreglunnar, Víkingasveit- in, var kölluð til aðstoðar lögreglunni á Akranesi í gærmorgun til þess að yf- irbuga vopnaðan mann sem talinn var hættulegur og hafði reynt að aka yfir lögreglumenn og öryggisvörð. Öryggisvörður hjá Öryggisþjónustu Vesturlands var á reglulegri eftirlits- ferð um klukkan flmm í gærmorgun þegar hann sá til manns bak við Ráð- húsið sem var að reyna að bijótast inn í Harðarbakarí. Arinbjöm Kúld, framkvæmdastjóri öryggisþjónustu Vesturlands, sagði staifsmann sinn hafa bmgðist rétt við. „Maðurinn var með bílinn sinn þama svo öryggisvörðurinn læddist að honum og náði bílnúmerinu, árgerð- inni og litnum á bílnum. Svo hringdi hann í lögregluna," sagði Arinbjöm. Þegar lögreglan kom og króaði manninn af settist hann inn i bfl sinn og læsti að sér en verkfæri sem hann hafði notað við innbrotstilraun sína vom uppi á þaki bflsins. Hundur mannsins var í bflnum með honum og æstist mikið við afskipti lögreglunnar. Umsátur DV'MYND DVÓ Víkingasveitin var send tit Akraness í gærmorgun til þess aö aöstoöa lögregluna. í bflnum hafði maðurinn hníf en beitti honum ekki. Ók á lögreglubíl Maðurinn hafði í hótunum við lög- reglumenn og sigaði hundinum á þá og reyndi svo að aka yfir lögreglumenn- ina og öryggisvörðinn. „Hann gaf allt í botn og myndaðist við að keyra á lögregluna og minn mann. Þeir vora í stórhættu á tímabfli því hann ætlaði sér að keyra þá niður. Þeir gátu skotið sér á bak við einhvem kassa og forðað sér þannig," sagði Ar- inbjöm. „Hann tók svo annað tflhlaup og ók á lögreglubílinn og raddi honum úr vegi.“ Síðar um morguninn fann lögreglan bíl mannsins á Vesturgötu. Lögreglu- þjónar bönkuðu upp á heimili vinkonu mannsins nálægt bflnum en konan sagði manninn hafa komið þangað en vera farinn. „Lögreglumennimir vildu fá að tala við manninn en konan var ekki á því að hleypa þeim inn. Þeir þóttust nú vita af honum þama inni en þar sem ekki var um beina eftirfór að ræða var ekki hægt að ryðjast þama inn,“ sagði Svanur Geirdal, yfirlögregluþjónn á Akranesi. Þá var óskað eftir aðstoð sérsveitarinnar úr Reykjavík og ebmig var haft samband við Héraðsdóm Vest- urlands sem veitti leyfi fyrir inngöngu lögreglunnar i húsið. Þegar inn var komið gafst maðurinn upp án frekari vandkvæða og var hann fluttur í fangageymslur lögreglunnar. Öryggisvörður kom aö innbrotsþjófi Arinbjörn Kúld, framkvæmdastjóri Öryggisþjónustu Vesturiands, sagöi öryggisvörö, sem kom aö innbrots- þjóf í gærmorgun, hafa brugöist rétt og vel viö. Maðurinn er 32 ára gamall og hefúr ekki komið við sögu lögreglunnar á Akranesi áður. -SMK Verkalýðsfélag Akraness: Hervar fær mótframboð DV, AKRANESI:_____________ Eins og DV hef- ur greint frá hafa ýmsir félagar I Verkalýðsfélagi Akraness verið ósáttir við störf Hervars Gunnars- sonar, formanns fé- lagsins. Andófs- menn í félaginu ætluðu á fundi í október að lýsa yfir vantrausti á Hervar og fara fram á að hann segði af sér þegar reikn- ingar félagsins voru lagðir fram en þeir féllu frá þeirri ákvörðun. Á síðasta fundi stjómar Verka- lýðsfélags Akraness lýsti Georg Þorvaldsson, formaður sjómanna- deildar félagsins, þvi yfir að hann hygðist bjóða sig fram gegn Her- vari. Fundur í trúnaðarráði VLFA er 27. desember en strax eftir þann fund er búist við því að annað- hvort fái Hervar mótframboð eða trúnaðarráð muni ekki setja hann á lista yfir stjórnarmenn. Georg Þorvaldsson vildi ekkert láta hafa eftir sér fyrr en að loknum fundi trúnaðarráðs. Hann vildi heldur ekki ræða það hvort hann teldi að trúnaðarráð tefldi Hervari fram áfram til formennsku eða einhverj- um öðrum. -DVÓ Ey j af j arðarsveit: Rotaðist á hlöðuvegg DV, AKUREYRI:___________ Allfurðulegt umferðarslys varð viö Syðra-Laugaland í gærkvöldi. Ökumaður bifreiðar virðist hafa misst vald á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum, fram af háum kanti og hafnaði á hlöðuvegg. Svo virðist, að sögn lögreglu, sem ökumaður hafi rotast viö áreksturinn. Bifreiðin hélt hins vegar áfram ferðalaginu og fór nú fram af öör- um háum kanti áður en hún stöðvaðist. Þegar ökumaður rakn- aði úr rotinu gat hann komist að bænum að Syðra-Laugalandi illa til reika og látið vita af sér. Hann var fluttur á slysadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri og í ljós kom að hann var óbrotinn og slapp því með skrekkinn að þessu sinni. -gk Dregur úr vindi Dregur heldur úr vindi, 1yrst vestan til síðdegis. N-læg átt, 8-13 seinni part nætur. Snjókoma eða él norðan- og austanlands Annars skýjað með köflum. Sóiargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.31 14.48 Sólarupprás á morgun 11.15 11.26 Síðdegisflóö 19.53 00.26 Árdeglsflóó á morgun 08.15 12.48 ^’^-VINDSTT K) 4— Hm ?5l -10° > VINDSTYRKUR \CDftCT í metrum á sökúndu rKUl>i HEIDSKÍRT LÉTTSKÝiAD o HÁLF- SKÝJAÐ 03 SKÝJAÐ :o ALSKÝJAD Q ^iW- © Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA ■0 ÉUAGANGUR & ÞRUMtL VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Víöa slæmt feröaveður Á Vestfjörðum, Austurlandi og Noröurlandi er víða stórhríö, skafrenningur og mjög slæmt ferðaveður. Víöa er búiö aö hreinsa snjó af vegum. Á Suðurlandi er mjög hvasst á milli Hafnar og Djúpavogs, sandbylur er á Skeiðarársandi. Greiöfært er um Suðvestur- og Vesturland. iin®«i«!ijiít«d)»,jUitM4'!MswaraHi:iíi Kaldast inn til landsins Norðlæg átt, 8-13 en austan 5-10 síðdegis og dálítil él en annars skýjað með köflum. Frostlaust yfir daginn allra syðst og með austurströndinni en annars 0 til 8 stiga frost, kaldast inn til landsins. Föstuda m Vindur: ~x-n 18-23 m/» ’ Hiti 0° til -3" Laugardagur Vindur: 'S 5-10 „v/, ’ Hiti 3° til -1' SA 18-23 m/s og snjókoma efia slydda suðvestan- og vestanlands en mun hægari og skýjað með köflum norðan- og austanlands. SV-læg átt, 5-10 m/s, skúrlr eða slydduél og htti 1 til 3 stig sunnan- og vestanlands en SA-lægarl, él eða dálítll snjókoma og hitl vlð frostmark. SA-lægar áttlr. Skúrlr sunnanlands og hlti 1 tll 4 stlg en annars skýjað með köflum og hiti um eða rétt undlr frostmarki. Veöriö kl. 6 AKUREYRI snjóél -1 BERGSSTAÐIR snjókoma -2 BOLUNGARVÍK snjóél -4 EGILSSTAÐIR 0 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 0 KEFLAVlK hálfskýjaö -3 RAUFARHÖFN snjókoma -1 REYKJAVÍK úrkoma -3 STÓRHÖFÐI léttskýjaö —3 BERGEN rigning 9 HELSINKI alskýjaö 5 KAUPMANNAHÖFN rigning 9 ÓSLÓ rigning 9 STOKKHÓLMUR sandbylur 7 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 6 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 4 ALGARVE þokumóöa 13 AMSTERDAM léttskýjaö 11 BARCELONA hálfskýjaö 9 BERLÍN rigning 12 CHICAGO hálfskýjaö -19 DUBUN skúrir 6 HALIFAX léttskýjaö -1 FRANKFURT skýjað 13 HAMBORG alskýjaö 12 JAN MAYEN snjókoma -8-5 LONDON skýjaö 10 LÚXEMBORG rigning 10 MALLORCA þokuruöningur 5 MONTREAL heiöskírt -18 NARSSARSSUAQ snjókoma -4 NEW YORK heiðskírt -4 ORLANDO þokumóða 18 PARÍS heiðskírt 11 VÍN þokumóöa 5 WASHINGTON léttskýjaö —3 WINNIPEG lilíiflffiIíliii.VölMit'Jl heiöskfrt -30 TjvyB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.