Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 7 Fréttir Verkalýðsfélag Húsavíkur: Launaliðnum verði sagt upp Bílveltur í Eyjafirði DV, AKUREYRI: Tvær bílveltur urðu í Eyjafirði í fyrradag og má rekja ástæður þeirra beggja til hálku á vegum og e.t.v. þess að ekki var ekið í sam- ræmi við aðstæður. Bifreið valt út af veginum við Þrastarhól í Arnarneshreppi. Öku- maður og farþegi voru fluttir á slysadeild FSA til skoðunar en reyndust lítið slasaðir. Þá valt bíll neðarlega í Víkur- skarði, Eyjafjarðarmegin. Ökumað- ur sem var einn í jeppanum var einnig fluttur á slysadeild en talið að hann væri ekki mikið slasaður. -gk Vestfirðir: Nýr fram- kvæmdastjóri Ingimar Hall- dórsson á ísafirði hefur verið ráð- inn framkvæmda- stjóri Fjórðungs- sambands Vest- firðinga og tekur hann við starfinu um áramót af Ás- geiri Þór Jóns- syni. Mun Ásgeir Þór starfa við hlið hins nýráðna framkvæmdastjóra fyrstu vikurnar i janúar, að beiðni stjórnar sam- bandsins. Umsækjendur um stöð- una voru níu: Elísabet María Ást- valdsdóttir, ísafirði, Guðmar E. Magnússon, Kópavogi, Gylfi Þór Gíslason, ísafirði, Hjálmar Kjartans- son, Reykjavík, Ingimar Halldórs- son, ísaflrði, Jón Egill Unndórsson, Reykjavík, Jónas Ingi Pétursson, Isafirði, Magnús Reynir Guðmunds- son, ísafirði, og Tómas Ibsen, Isa- firði. Stöðuna hlaut Ingimar Halldórs- son eins og áður sagði en hann hef- ur starfað hjá Hraðfrystihúsinu hf. Hnífsdal og síðan Hraðfrystihúsinu- Gunnvöru hf. Hann var á sínum tíma framkvæmdastjóri Frosta hf. í Súðavík þar til Frosti sameininaðist Hraðfrystihúsinu hf. árið 1997. -HKr. Garöabær: Vill hátækni- sjúkrahús í landi Vífilsstaða Bæjarstjóm Garðabæjar hvetur ríkisstjómina og heilbrigðisyfirvöld til að kanna hvort ekki sé fýsilegt aö byggja nýtt hátæknisjúkrahús í landi Vífilsstaða. Ályktun þess efnis var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar fyrir helgi. I ályktun- inni segir enn fremur: „Fjölmörg rök hníga að því að um sé að ræða fýsilegan kost. Umtalsvert rými er á því landsvæði, umferðarleiðir að því eru greiðar og þróun á skipulagi höfuðborgarsvæðisins er sú að Víf- ilsstaðasvæðið verður æ meira mið- svæðis." -DVÓ Dilkar talsvert vænni en í fyrra DV, SKAGAFIRDI: Alls var slátrað 32.686 dilkum hjá Kaupfélagi Skagflrðinga í haust og er það 100 færra en árið á undan. Fallþungi jókst um 600 grömm frá árinu á undan og varð 15,7 kíló- grömm. Flokkun kjötsins varð mun betri nú í haust en áður. I E-flokk fóru 0,67% en 0,94% árið áður. I U- flokk fóru 14,14% en 9,44% árið 1999. I R-flokki lentu 55,30% en 44,72% árið á undan. I O-flokk fóru 28,15% gegn 38,20% áður og í P, lakasta og verðminnsta flokkinn fóru aðeins 1,74% en voru 6,70% árið 1999. Alls nam verðmæti dilka- kjötsins i þessari sláturtíð tæpum 135 milljónum króna. -ÖÞ DV, AKUREVRI:____________________ Verkalýðsfélag Húsavíkur krefst þess að launalið gildandi kjarasamnings verði sagt upp í febrúar, grípi stjórnvöld ekki þeg- ar í stað til aðgerða til að verja kaupmátt launa. Félagið heitir á stjómvöld að taka þátt í því að verja lífskjör launafólks og for- sendur kjarasamninganna í stað þess að grafa undan hvoru tveggja. Þar sé mikilvægast að stjórnvöld grip ekki til neinna aðgerða sem auka verðbólgu eða skerði kaup- mátt launafólks með öðram hætti. I samþykkt Verkalýðsfélags Húsavíkur eru borin fram harðorð mótmæli við hækkun útsvars án samsvarandi lækkunar tekju- skattshlutfalls sem hafi í for með sér auknar skattaálögur á launa- fólk og þar með kjaraskerðingu. Boðaðar breytingar á útsvari og tekjuskatti þýði einnig raunlækk- un skattleysismarka sem gangi þvert gegn yflrlýsingu ríkisstjóm- arinnar sem gefin hafi verið í tengslmn við gerð síðustu kjara- samninga. „Verkalýðsfélag Húsavíkur bendir stjómvöldum á að allar að- gerðir sem hafa í for með sér kjaraskerðingar fyrir launafólk eru til þess fallnar að grafa undan forsendum gildandi kjarasamn- inga. Verkalýðsfélag Húsavíkur taldi að víðtæk sátt hefði náðst um kjarasamninga sem stuðluðu að áframhaldandi stöðugleika, tryggðu undirstöður kaupmáttar og bættu sérstaklega stöðu þeirra sem lakast stóðu fyrir. Það er því ábyrgðarhluti af hálfu stjómvalda að gripa til kjaraskerðinga gagn- vart launafólki nú, ekki síst í ljósi þess að gangi nýjustu spár um verðlagsþróun eftir, mun stór hluti launafólks verða fyrir kaup- máttarskerðingu á næstu misser- um“ segir í ályktun Verkalýðsfé- lags Húsavíkur. -gk ★ ★★★★ HLJÓMTÆKI ÁRSINS Awards Issue 2000 einfaidlega betri! NAD C370 magnari ársins 2 x 120 W RMS 8 ohm Verð 79.900,- Beina leiðin á toppinn er að kaupa NAD hljómtæki Ingimar Halldórsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.