Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 Menning 15 Kría hrifsar andarunga úr klóm veiðibjöllu: Frækileg björgun - við Tjörnina í Reykjavík Andarunginn Hnoðri hefur verið merkilega lítið í fréttunum mióað við þaó að hann komst lifandi úr klónum á veiöi- bjöllunni, þökk sé frœkilegri framgöngu kríunnar. En þótt blaöamenn hafi ekki haft áhuga á málinu hefur Anna Vilborg Gunnarsdóttir skrifað og myndskreytt sögu Hnoðra af svo mikilli samúð að per- sónurnar stökkva alskapaóar upp af síð- um bókarinnar. DV-MYND HILMAR ÞÓR Anna Vilborg Gunnarsdóttir Snýr svolítið upp á raunveruleikann í Hnoðra litla. fjölmargar myndabækur um fugla. En eitthvað verður að gera ef and- arungar eiga ekki bara að vera til í bókum i framtíðinni. „Ef Reykvíkingar vilja viðhalda andastofninum á Tjörninni þarf að fækka mávum,“ segir hún. „Ég er hrædd um að ekki komist margir ungar á legg eins og er.“ Lífsháski á borð við þann sem Hnoðri lendir í er ekki algengur í nútíma- sögum fyrir minnstu hlustenduma en Anna sagði að börn fylgdust vel með þegar sagan væri lesin fyrir þau. - Fara þau ekki að gráta? „Nei nei, enda er sagan stutt og lausnin fljót að koma,“ segir Anna. „Ég held að vel megi vera svolítil spenna í bamasögum, jafnvel fyrir þau yngstu. Það held- ur þeim við efnið.“ Mál og menning gefur bókina út. Hnoðri er yngstur fimm systkina á Tjöminni í Reykjavík, svolítið klaufskur og seinheppinn. Hann gleymir sér and- artak við að horfa á tvær gæsir rífast um brauðbita en það andartak verður örlagaríkt því einmitt þá steypir veiði- bjallan sér niður og grípur hann í kjaft- inn. Hún hefur nefnilega ekki fengið neinn morgunmat þann daginn... Ungir hlustendur grípa andann á lofti þegar hér er komið Andastofn í hættu sögu, og þeim léttir ekki lítið þegar krían, lögregla Tjarnarinnar, kemur á vettvang, ræðst á mávinn og bjargar Hnoðra litla... „Svo heppnir eru ekki allir andarung- ar á Tjörninni," segir Anna Vilborg. „Hugmyndin að sögunni fæddist þegar ég fór með börn og barnabam niður að Tjörn í fyrravor til að gefa öndunum og dást að andarungunum og við urðum fyrir þeirri lífsreynshi að horfa á máva- na hirða upp hvern ungann á fætur öðr- um. Okkur var talsvert brugðið - og það varð kveikjan að þessari sögu. Ég vildi bæta úr málun- um og láta að minnsta kosti einn unga bjargast frá mávinum." - Kom krían sem sagt ekki á harðaflugi ung- unum til bjargar eins og í bókinni? „Nei, hún kom ekki. Hún var sjálfsagt upptek- in annars stað- Anna fór margar ferðir niður að Tjörn meðan hún vann myndirnar, skoðaði fuglana og umhverfi þeirra, tók ljós- myndir og skissaði. Svo skoðaði hún K •m oggleðjum Gjafakort Kringlunnar er réíta gjöfin. : SKÁ TAMIÐSTÖÐIN Sígræna Jólatréð -e/fa/f/'é á/' e/t//' á/1 Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili ► lOáraábyrgð ► Elátraust ^ ► 12 stœrðir, 90 - 500 cm ► Þarfekki að vökva ' , 'Sgðu ► Stálfóturjýlgir ► íslenskar leiðbeiningar ► Ekkert barr að ryksuga ► Traustur söluaðili ► Trufiar ekki stofublómin ► Skynsamlegjjárfestlng ARNARBAKKA FJARSTÝRÐUR PORSCHE 911 TURBO Magnað leikfang sem nær allt að 25 km hámarkshraða. Verð kr. 10.900 TAKMARKAÐ MAGN! hh ’tréj najók 'afréð aíBílabúðBa ***£•' - gjafavöruverslun bilaáhugafólks Gjafakortin fóst ó jajónustuborðinu ó 1. hæð við Nýkaup. Bílabúð Benna • Vagnhöfða 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.