Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2000, Page 36
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavörur
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum ailan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
Fýluferð
til Chile
DV, AkRANESI: ~
Ahöfnin sem átti að taka við Ing-
unni, nýju nóta- og togveiðiskipi
' Haraldar Böðvarssonar hf. sem er i
smíðum í Chile, kemur aftur heim á
morgun þar sem óhreinindi í
glussakerfi komu í ljós þegar spil-
kerfi var prufukeyrt.
Sturlaugur Haraldsson, sölustjóri
hjá Haraldi Böðvarssyni hf., stað-
festi þetta. „Það lítur út fyrir að
skipið verði ekki afhent fyrr en á
fyrstu dögum næsta árs þar sem
óhreinindi komu í ljós í glussakerfí.
Við tökum við skipinu þegar kerfið
er orðið hreint. Reiknað er með að
áhöfnin fari aftur til Chile eftir jól
til að sigla skipinu heim. Við von-
• umst þannig til að skipið verði kom-
ið til Akraness um mánaðamótin
janúar/febrúar." sagði Sturlaugur
við DV___________________-DVÓ
ísfélag Vestmannaeyja:
Lögreglurann-
sókn stendur
enn yfir
Rannsókn stendur enn yfir á upp-
tökum eldsins sem kom upp í ísfé-
lagi Vestmannaeyja á laugardags-
kvöldið.' Húsnæðið eyðilagðist að
miklum hluta í eldinum. Lögreglan
í Vestmannaeyjum hefur sér til að-
stoðar tvo menn úr tæknideild lög-
reglunnar í Reykjavík við rann-
sóknina, sem er viðamikil, enda var
húsnæðið stórt og illa farið eftir log-
ana. -SMK
Piparkökuhús í Kringiunni dv-mynd hari
Jólin eru á næsta leiti og fólk í óðaönn að kaupa jólagjafir og skreyta fyrir jólin. Mörgum þykja piparkökur ómissandi
hluti jólanna og sumir leggja á sig mikla vinnu við að búa til piparkökuhús. Þessir áhugasömu viðskiptavinir Kringlunn-
ar eru að skoða sýningu á piparkökuhúsum sem Katla stóð fyrir.
Steingrímur
J. Sigfússon.
Sameining nán-
ast i upplausn
Steingrímur J.
| Sigfússon, þing-
maður Vinstri-
grænna, sagðist í
utandagskrárum-
ræðu sem hann
óskaði eftir á Al-
þingi í gær efast
um lagalegan
grundvöll fyrir
sameiningu ríkis-
bankanna. Taldi
hann málið allt nánast í upplausn.
Gagnrýndi hann harðlega afskipti
viðskiptaráðherra af af málinu
undanfarna daga og ofanígjöf ráð-
herra við formann bankaráðs Bún-
aðarbanka. Fleiri þingmenn tóku
til máls og Jóhanna Sigurðardóttir
sagði vandræðagang við banka-
sameininguna hafa valdið ótrú
markaðarins á þessum bönkum og
gengi þeirra hafi fallið um 20%,
eða um 10% umfram almennt verð-
fall á hlutabréfamörkuðum. Sverr-
ir Hermannsson taldi frumskilyrði
slikrar sameiningar vera að fá
starfsfólk bankanna með í umræð-
una. Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðaherra sagði ekki trú-
verðugt hvemig þingmenn töluðu
sig nú upp í andstöðu gegn banka-
sameiningunni. Sagði hún Stein-
grim algjörlega hafa snúið við blað-
inu og las upp úr gamalli ræðu
hans því til stuðnings.
-HKr.
Harkalegt verðstríð risanna á matvörumarkaðnum:
Barist um kúnnana með
grænmeti og ávöxtum
- Krónan lækkar verðið niður úr öllu valdi og Bónus svarar um hæl
„Þetta hefur hrist upp í markaðn-
um. Viðskiptavinirnir eru ánægðir
og við líka,“ sagði Sigurjón Bjama-
son framkvæmdastjóri Kónunnar
sem lækkaði kílóverð á grænmeti
og ávöxtum allt niður í eina krónu í
gær og uppskar snögg viðbrögð að-
alkeppinautarins, Bónuss, sem
lækkaði sitt verð umsvifalaust. „Við
erum ekki í stríði; bara með lágt
vöruverð," sagði Sigurjón í Krón-
unni sem rekur fjórar verslanir á
suðvesturhominu, í JL-húsinu við
Hringbraut, í Skeifunni, í Hafnar-
firði og á Selfossi.
Uppi varð fótur og fit í verslunum
Bónuss þegar fréttist af verðlækk-
unum á grænmeti og ávöxtum hjá
Krónunni í gær og þar stukku
starfsmenn til og lækkuðu sín verð.
Viðskiptavinir Bón-
uss tóku einnig vel
við sér og tæmdu
grænmetis- og ávaxta-
hillumar jafnharðan
og starfsmenn fylltu á
þær. Á tímabili þurftu
Bónusmenn að moka
sveppum inn í versl-
un sína en þeir hurfu
jafnharðan á krónu
kílóið. Svipað var
uppi á teningnum í
krónunni: Rauð epli,
sítrónur og melónur á
eina krónu kOóið og
allt hvarf eins og dögg
fyrir sólu.
„Við höldum áfram
að bjóða lágt verð í
dag. Það verða mörg kílóin sem eiga
eftir aö fara á krónu,“ sagði Sigur-
jón í Krónunni í morgun en Krónan
er í eigu Kaupáss sem einnig rekur
Nóatúnsverslanirnar og 11-11 búð-
imar.
Bónusmenn ætla ekkert að gefa
eftir og Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss, sagði í
morgun: „Við bjóðum bara betur,
gerum það sem gera þarf og göngum
eins langt og þarf. Við erum komn-
ir niður í krónu með flestalla ávexti
og grænmeti. Hér er ekki spurt um
gróða eða tap,“ sagði Guðmundur
Marteinsson en treysti sér ekki til
að spá um hveslu lengi krónustríð
risanna á matvörumarkaðnum
stæði.
-EIR/-JBP/ÓSB
Náttúruverndarráð ályktar; vill að kæru verði fylgt eftir:
Meirihluti ráðsins er öfgamenn
- segir umhverfisráðherra - telur ályktimina með ólíkindum
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra
sagði við DV í morgun
að hún teldi nýja
ályktun Náttúru-
vemdarráðs með ólik-
indum og að meiri-
hluti ráðsins væri
öfgamenn. Samkvæmt
Friðleifsdóttir. frétt 1 Degi ‘ dag bein-
ir ráðið tilmælum til
Náttúruvemdar rikisins um að „fylgja
eftir stjómsýslukæm frá í haust tii um-
hverfisráðherra og veita ekki leyfi til
námagraftar í Syðri-Flóa Mývatns" eins
og það er orðað í bréfi til Náttúruvemd-
ar ríkisins.
„Ég hef ekki fengið bréf þessa efnis
frá Náttúmvemdarráði sem er ráðgef-
andi ráð fyrir umhverfisráðherra. Það
veitti á sínum tíma ráðgjöf og umsögn
vegna kísilgúmáms við Mývatn. Síðan
hitti ég ráðið eftir að við höfðum úr-
skurðað þannig að það er með ólíkind-
um að það komi síðan í kjölfarið með
ályktun. Það er búið að hrekja alit sem
kemur fram i ályktun meirihluta ráðs-
ins. Meirihluti ráðsins era öfgamenn
sem em á móti öllu. Það var algjörlega
eðlilega staðið að málum gagnvart úr-
skurðinum um kisilgúmám þar sem ég
staðfesti úrskurð skipulagsstjóra sem
hafði áður fjailað um málið.“
- Breytir þetta einhverju um fram-
vindu Mývatnsmálsins?
„Það sem ég hef fengið er ályktun
meirihlutans og sérálit formanns ráðs-
ins og Magnúsar Oddssonar.
Náttúravemdarráð hefur ekkert um
það að segja hvemig Náttúravemd rík-
isins vinnur. Úrskurður skipulagsstofn-
unar féll fyrir nokkra síðan, ég staðfesti
hann. Síðan er hægt að fara með þann
úrskurð til dómstóla eins og alia aðra
úrskurði,“ sagði ráðherra. -Ótt
4
í
i
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4