Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
Fréttir
ÐV
Engin ákvörðun liggur fyrir um sölu ríkisjarða á næsta ári:
Alþingi heimilar sölu
48 af 515 jörðum
- einungis þrjár jarðir hafa verið seldar af 22 sem heimilt var að selja
Guöni Agústsson
landbúnaöarráö-
herra.
I íjárlagafrumvarpi ársins 2001
óskaöi landbúnaðarráðuneytið
heimilda til að selja 37 ríkisjarðir
sem eru á for-
ræði landbúnað-
arráðuneytisins.
Auk þess óskaði
ráðuneytið eftir
að heimilda yrði
aflað í fjárlögum
til sölu 11 jarða
eða jarðahluta til
viðbótar. Veitti
Alþingi heimild
til sölu allra
þessara jarða
rétt fyrir jólafrí
þingmanna. Samtals er þama um að
ræða 48 jarðir eða jarðahluta af 515
sem voru skráðar í eigu ríkisins 1.
júlí í sumar.
Samkvæmt upplýsingum frá land-
búnaðarráðuneytinu hefur ekki ver-
ið tekin endanleg ákvörðun um
hvort allar þessar 48 jarðir verða
seldar á næsta ári eða hvort þeim
verður ráöstafað með öðrum hætti
eins og segir í svari ráðuneytis við
fyrirspurn DV um sölu ríkisjarða.
Ráðherra vill selja
„Landið er orðið miklu dýrara og
eftirsóttara en það var, þrátt fyrir
fækkun búa og samdrátt í sveitum.
Fólk vili kaupa jarðimar og setjast
þar að,“ sagði Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra í samtali við DV í
síðasta mánuði og taldi að ríkið ætti
að koma þessum jörðum sínum í
hendur einstaklinga hægt og mark-
visst á nokkrum árum. „Ég hef lýst
því yfir að ég vilji selja sem flestar
ríkisjarðir," sagði ráðherrann.
Þrátt fyrir yfirlýstan vOja ráðherra
hefur þó lítið gerst í sölu ríkisjarða og
einungis 5 jarðir hafa verið auglýstar
til sölu á árinu fyrir utan þær þrjár
sem seldar hafa verið.
Þrjár jarðir seldar
Landbúnaðarráðuneytið hafði
heimild í gildandi fjárlögiun ársins
2000 fyrir sölu 22 ríkisjarða víða um
land sem flestar vom á Suðurlandi. Á
árinu sem nú er að líða hafa þó ein-
Jarðir með heimild
til sölu i fjárlögum
framnes
Þverá
Gröf
Njrækt HræingMtaSur
Hjallar
Asar
Lyngholt
Geitafell
Straumir
Setterg
HóJsland BárastaJí l^taJir
Kngsstaðir
Minni-ÓlafsyeÉr
Kirkjubær
Hrærekslækur
Randversstaðir
E»arll
V JZ'-
Blábjörg
Cufudalur
Gufudalur It
Reykjakol
Og
Krókur
Leiti
Digurholt
Húsgarður
(hluti af jörð)
ungis þrjár
jarðir og
jarðahlutar
verið seldir
af hálfu land-
búnaðarráðu-
neytisins. Þar
er um að ræða
hluta úr jörðunum
Kröggólfsstöðum
Þúfum í Ölfusi í Árnes
sýslu sem gerður var kaup-
samningur um árið 1999. Voru þessir
hlutar seldir á samtals 38,1 milljón
króna. Þá var seld jörðin Reykjakot II
í ölfusi.
Eins voru á árinu auglýstar til sölu
jarðimar Blábjörg í Djúpavogshreppi,
Suður-Múlasýslu, Framnes, Kaldrana-
neshreppi í Strandasýslu, og Gufudal-
ur II, Ölfusi í Ámessýslu. Ekki bárust
viðunandi tilboð í jarðirnar að mati
ráðuneytisins og var þeim því öllum
hafnað. Því til viðbótar er þessa dag-
ana verið að auglýsa jarðimar Kvos-
læk í Fljótshlíðarhreppi og Minni-
Ólafsvelli í Skeiðahreppi.
Verður að auglýsa
í starfsreglum ráðuneytisins, sem
dagsettar eru 1. maí 1999, kemur fram
Svínhagi KáHholt
Wap (Hutia,Íörí)
Ytri-Lyngar II
Bjömskot
Kvoslækur
[stri-Torfastaður H>
að ráðuneytinu er óheimilt að selja
ríkisjarðir án þess að þær séu auglýst-
ar til sölu með opinberri auglýsingu
og leitað kauptilboða í þær nema sér-
stakar lagaheimildir til þess séu fyrir
hendi. Heimild er í lögum til að selja
án auglýsingar ábúendum sem setið
hafa ríkisjarðir í 10 ár eða lengur og
geta lagt fram meðmæli sveitarstjórna
og jarðanefnda með kaupunum. Þá
má einnig selja þeim jarðir aftur sem
selt hafa Jarðasjóði jarðir sínar á
grundvelli laga frá 1992. Eins má selja
sveitarfélögum þar sem viðkomandi
jarðir eru. Aðrar heimildir eru ekki
fyrir hendi til aö selja einstaklingum
eöa lögaðilum ríkisjaröir án undan-
genginna auglýsinga um sölu.
Ströng
skilyrði
Samkvæmt
jarðalögum má
ekki taka land sem
nýtt er, eða hefur verið
notað, til landbúnaðar til
annarra nota, nema heimild sé til
slíks í lögum. Þar er einnig átt við
eyðijarðir. Að öðrum kosti þarf
samþykki ráðherra, enda hafi það
áður verið samþykkt af viðkom-
andi jarðanefnd og sveitarstjórn
og fyrir liggi umsögn Skipulags
ríkisins og Bændasamtaka ís-
lands. Óski stéttarfélag eftir landi
til reksturs orlofshúsa fyrir félags-
menn er jarðanefnd rétt að heim-
ila slík afnot lands rýri þau ekki
til muna kosti jaröarinnar til bú-
skapar.
Unnið er að endurskoðun jarða-
laga með það að markmiði að auð-
velda ríkinu að selja jaröir til ann-
arra nota en fyrir hefðbundinn bú-
skap.
-HKr.
Bæjaryfirvöld og uppkaup húsa í Bolungarvík:
Hugur fylgdi ekki máli
segir Olgeir Hávaröarson, íbúi viö Dísarland
„Orð Ólafs Kristjánssonar í DV á
laugardag um að bæjarstjóm Bol-
ungarvíkur sé öflug og sterk eru
hans eigin en ekki mín enda hefur
„styrkur hennar" ekki komið fram í
þessi máli til hagsbóta fyrir okkur,“
segir Olgeir Hávarðarson, íbúi í
Dísarlandi 10 í Bolungarvík. Hann
er mjög óhress meö vinnubrögð
bæjarins varðandi ósk hans um að
hús hans sem stendur á snjóflóða-
hættusvæði verði keypt upp.
„Bæjarstjórinn sagði i samtali við
DV að það væri ljóst að það þyrfti
líklega lagabreytingu til að mögu-
legt væri að kaupa upp hús í Bol-
ungarvík samhliða gerð varnar-
mannvirkja. Þó bæjarstjórnin í Bol-
ungarvík sé öflug og sterk þá réði
hún enn ekki yfir lögunum.
Ég er eigandi þeirrar eignar er
snjóflóð féll á við Dísarland 10 í
febrúar 1997. Mér er fullkunnugt
um það að hvorki Ólafur né bæjar-
stjóm Bolungarvíkur ráða yflr lög-
um þessa lands. Hins vegar fullyrði
ég að á þeim tíma þegar umrædd
reglugerð var í gildi var hægt að
nýta hana enda var hún ekki eyrna-
merkt Flateyri eða neinu öðru sveit-
arfélagi. í ljósi þeirrar staðreyndar
sem Ólafi á að vera fullkunnugt um,
að bæjarstjóm Bolungarvíkur lýsti
yfir fullum stuðningi við okkur hús-
eigendur að Dísarlandi 10 um að
húsið yrði keypt upp, er ljóst aö
Ólafur og/eða bæjarstjóm gerði
ekkert raunhæft í málinu til úr-
lausnar fyrir húseigendur á meðan
reglugerðin var í gildi. Því er ekki
hægt að segja annað en að hugur
hafi ekki fylgt máli hjá forsvars-
mönnum bæjarfélagsins.
í framangreindri frétt er einnig
haft eftir Magnúsi Jóhannessyni,
ráðuneytisstjóra hjá umhverflsráðu-
neytinu, að félagsmálaráðuneytið
hafi á sínum tíma sett sérreglur
varöandi uppkaup húsa á Flateyri
sem ekki eru lengur í gildi. í sam-
tali milli íbúa viö Dísarland og
Magnúsar eftir einn af þeim fjöl-
mörgum fundum sem haldnir voru í
Bolungarvík til kynningar á fyrir-
hugaðri vamargerð, tjáði hann okk-
ur að hann sæi enga vankanta á því
að hægt yrði að afgreiöa mál okkar
líkt og hafi verið gert á Flateyri.
* --Í5K* • . '.V-
V - -
Dísarland 10 og 14 í Bolungarvík
Olgeir Hávaröarson segir bæjarstjóra og bæjarstjórn ekki hafa gert neitt
raunhæft fyrir húseigendur á meöan reglugerö um uppkaup var í gildi.
Jafnframt gat hann þess aö til þess
að svo gæti orðið yrði bæjarstjóm
Bolungarvíkur að óska eftir slíkri
afgreiðslu. Þegar Magnús lét þessi
orð frá sér fara var umrædd reglu-
gerð í gildi. Hins vegar er ljóst að
bæjarstjórn Bolungarvikur notfærði
sér ekki þessa heimild á meðan hún
stóð til boða. Því er við engan ann-
an aö sakast i þessu máli en Ólaf og
samherja hans í bæjarstjóm Bol-
ungarvíkur," sagði Olgeir Hávarð-
arson og óskaði að lokum Ólafi
Kristjánssyni og öllum bæjarfulltrú-
um gleðilegrar jólahátíöar.
-HKr.
Sandkorn
Færöi jólin
.........ÉElUmsjón:
Reynir Traustason
netfang: snndkom@ff.is
Kári Stef-
1 ^ VI ánsson, for-
1 \ stjóri íslenskr-
ar erfðagrein-
l j ingar, var í
geysigóðu
skapi á Akur-
eyri þegar
- fyrstu sam-
starfssamn-
ingarnir milli
fyrirtækis hans og sjúkra-
stofnana í landinu voru undirritað-
ir. Kári vakti athygli manna á að
hátíð væri í nánd en aðfangadag
jóla bæri að þessu sinni upp á
sunnudag sem væri ávallt slæmt
mál. En síðan bætti Kári við að
menn þyrftu ekki að örvænta, búið
væri að skrifa undir samninga
milli fyrirtækis hans og sjúkra-
stofnana og hátíðin væri þvi hafin.
Það má þvi segja að Kári hafi gert
sér lítið fyrir, stolið jólunum og
flutt þau fram um 5 daga. Kári fet-
aði því í fótspor Castros en þar
skildi i milli að Kári færði þau
fram en gamli leiðtoginn aftur um
nokkrar vikur...
Ósætti í Öskjuhlíð
Eins og fram kom i DV á dögun-
um rær I
Karlakór
Reykja-
víkur líf- (
róður [
vegna
sligandi
skulda
á
flunkunýju húsi sínu Ými í Öskju-
hlíð. Þar deila þeir húsi með
Kvennakór Reykjavíkur sem gerði
15 ára leigusamning viö karlana og
Reykjavíkurborg greiddi 15 milljón-
ir i leigu á einu bretti. Þetta átti að
heita framlag borgarinnar til starf-
semi Kvennakórsins.
Nú er sambúðin i upplausn og
Kvennakórinn sækir það fast að
rifta samningnum þvi samkomulag
þeirra við Karlakórinn er afleitt.
Það gengur á með með stöðugum
rifrildum og leiðindum vegna af-
nota af húsinu og skiptingar milli
karla og kvenna. Reykjavíkurborg
er vondri klemmu þvi féð fæst ekki
aftur. Það stefnir allt í skilnað í
Öskjuhlíðinni...
Sláturtíð
Svo sem DV
greindi frá er
íjölmiðlarisinn
Norðurljós,
sem Jón
Ólafsson er
meirihlutaeig-
andi að, 1 óða-
l önn að slátra
útvarpsstöðv-
um sem í
eina tíð hljómuðu undir merkjum
Fíns miðils. Eftir að hinn fini mið-
ifl sameinaðist Norðurljósum má
hvarvetna á FM skalanum finna
draugarásir útvarpsstööva sem ris-
anum hugnaðist ekki að reka
áfram. Nú heyrist að enn ein slátr-
unin sé á döfinni. Það er ekki
gamla góða Bylgjan sem lendir
undir hnífnum að þessu sinni held-
ur Gull FM sem heyrist að verði
lokað í janúar...
Framtíöarleiötogi
Hmn nyi bæjarstjóri
Garðbæinga, fm v'-
Ásdís Halla i;Æ. . V
Bragadóttir
hefur á ör- W f A S { 4 ^c ,V
skömmum
tíma stimplað \.t{ f \V1 VMHfc-. x I V'f
sig inn í vit- und þjóðarinn-
maður í stjómmálum og framtíðar- leiðtogi Sjálfstæðisflokks. Heimildir
innan úr bæjarstjórn herma þó að
hana vanti enn herslumuninn til
að ná fullum tökum á flokki sínum.
Sá vinsæli bæjarstjóri Ingimund-
ur Sigurpálsson, forstjóri Eim-
skips, situr enn i bæjarstjórn og
þykir skyggja nokkuð á bæjarstjór-
ann...