Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptabla&ið
Ossur og OJ. & Kaaber
stofna fyrirtæki
Össur hf. og Eignarhaldsfélag Ó.
Johnson & Kaaber hf. hafa gengið
frá samkomulagi um stofnun nýs
fyrirtækis á heilbrigðissviði. Össur
hf. - Hjálpartækjabankinn, Grjót-
hálsi 5, og Heilbrigðisvörudeild
ÓJ&K eru grunnur hins nýja fyrir-
tækis sem mun sækja enn frekar
fram á heilbrigðissviði og útvíkka
starfsemina með meiri þjónustu og
breiðara vöruúrvali.
Hvort fyrirtæki um sig á helm-
ingshlut í hinu nýja fyrirtæki. í
frétt frá félögunum segir að nýja
fyrirtækið muni þjóna bæði einstak-
lingum og heilbrigðisstofnunum en
deildirnar starfa hvor á sínu svið-
inu í dag. Samanlögð velta á yfir-
standandi ári er áætluð um 300
milljónir króna. Markmið Össurar
hf. og ÓJ&K er að koma á fót öflugu
fyrirtæki sem nýtir samlegðaráhrif
á þekkingu starfsfólks, viðskipta-
samböndum og vöruframboði til að
skapa ný tækifæri.
„Starfsemi Hjálpartækjabankans
hefur staðið utan við kjamastarfsemi
Össurar hf. sem er hönnun, fram-
leiðsla og sala á lausnum til stoðtækja-
smíði. Með núverandi skipulagi fær
verslunarreksturinn ekki þá áherslu
sem honum ber og hefur þessi leið ver-
ið valin þar sem við höfum mikla trú á
þeim möguleikum sem þessi rekstur
hefur. Ekki er gert ráð fyrir að stofnun
þessa fyrirtækis hafl áhrif á afkomu
Össurar hf. en gert er ráð fyrir að velta
Össurar hf. - Hjálpartækjabankans
verði um 134 milljónir á þessu ári.“
segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
hf.
„Við lítum björtum augum á framtíð
hins sameinaða fyrirtækis og vonumst
til að geta veitt viðskiptavinum enn
betri þjónustu en áður. Segja má að
þessi sameining komi í beinu fram-
haldi þeirra skipulagsbreytinga sem
átt hafa sér stað hjá okkur á árinu og
nýlega hafa verið kynntar." segir Frið-
þjófur Ó. Johnson, forstjóri Eignar-
haldsfélags ÓJ&K.
Össur hf. - Hjálpartækjabank-
inn hefur rekið smásöluverslun
með vinnuhollustuvörur, stuðn-
ingsvörur, hjálpartæki og hjúkr-
unarvörur. Heilbrigðisvörudeild
ÓJ&K hefur boðið sérhæfða sölu
og þjónustu á vörum, búnaði og
tækjum til notkunar á sviði lækn-
isrannsókna, hjúkrunar og heil-
brigðis.
Nýja fyrirtækið verður að
Grjóthálsi 5, þar sem Hjálpar-
tækjabankinn er nú til húsa.
Stefnt er að því að það hefji rekst-
ur 1. janúar 2001. Framkvæmda-
stjóri verður Stefán Smári Skúla-
son.
Ertu búin(n) að senda jólakortin innanlands?
Þrjú fyrirtæki
SÍF sameinast
á Spáni
Eimskip losar fé til fjárfestinga
Sameinað á Suðurnesjum
- tvö öflug uppsjávarfyrirtæki sameinast í Festi hf.
Ef jólakortin eiga að berast viðtak-
endum fyrir jól þarf að senda þau
í allra síðasta lagi 21. desember.
íslandspóstur hf
Ákveðið hefur verið að sameina
þrjú fyrirtæki SÍF-samstæðunnar á
Spáni, þ.e. SÍF Spain, Iceland Seafood
Spain og Armengol undir nafni SÍF
Spain. Tæplega eitt hundrað starfs-
menn munu starfa hjá fyrirtækinu og
er velta þess áætluð um 4,2 mifljarðar
íslenskra króna á ári.
Starfsemi hins sameinaða fyrirtæk-
is hefst 1. janúar nk. og hefur Ásbjörn
Bjömsson verið ráðinn framkvæmda-
stjóri þess.
Megintilgangur sameiningarinnar
er að setja saman rekstrareiningu sem
getur vaxið hraðar og náð meiri mark-
aðslegum styrk en þrjár aðskildar ein-
ingar gerðu áður. Hagræðing af sam-
einingunni er augljós og tímabundinn
kostnaðarauki óverulegur, að þvi er
segir í frétt frá SÍF hf. Hið sameinaða
félag verður alhliða sölu- og markaðs-
fyrirtæki sjávarafurða, þó svo að sér-
stök áhersla verði áfram á saltfisk og
frystar afurðir, en fyrirtækið er með
sterka stöðu á saltfískmarkaðinum á
Spáni.
Með samruna SÍF og ÍS má segja aö
legið hafl fyrir ákveðin tækifæri um
sameiningu Iceland Seafood Spain og
SÍF Spain. Samruni við Armengol,
sem sérhæft er í framleiöslu saltfiskaf-
urða, skapar ný og aukin tækifæri á
þessum markaði. SÍF-samstæðan, sem
átti fyrir 70% hlut i Armengol, mun
eiga 85% hlut í hinu nýja fyrirtæki en
fyrri eigendur Armengol 15%.
Fyrir sameiningu SÍF og ÍS höfðu
bæði fyrirtækin starfsstöðvar á ís-
landi, i Frakklandi og á Spáni og má
því segja að með samruna þessara fé-
laga á Spáni sé hinu eiginlega sam-
runaferli SÍF og ÍS lokið.
Eimskip hóf í gærmorgun sölu
til hluthafa á eigin bréfum félags-
ins að nafnvirði rúmlega 61 millj-
ón króna á genginu 7,1 eða um
2% hlutafjár í félaginu. Að sögn
Þorkels Sigurlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra þróunarsviðs Eim-
skips, er megintilgangur hluta-
fjársölunnar sá að losa fé til fjár-
festinga og til að grynnka á
skuldum.
„Þegar við keyptum bréfin á
sínum tíma voru í raun alltaf
uppi áform um aö selja þau aftur
í framtíðinni þegar þannig stæði
á. 1 dag er útlitið þannig að á
næstunni eru fyrirsjáanlegar
meiri fjárfestingar en ráðgerðar
höfðu verið, bæði vegna skipa og
vegna nýrrar væntanlegrar vöru-
dreifingarmiðstöðvar, en auk
þess sjáum við með þessu tæki-
færi til að grynnka á útistand-
andi skuldum. Að vandlega at-
huguðu máli þótti okkur tíma-
setningin núna fyrir áramót vera
best fyrir framkvæmdina, m.a.
vegna þess að það er vinsæll timi
til hlutabréfakaupa. Jafnframt
tókum við þá ákvörðun, eins og
fram hefur komið, að bjóða bréfin
hluthöfum okkar til sölu ef þeir
Eigendur þeirra, útgerðarmennirn-
ir Sigmar Björnsson og Örn Erlings-
son, undirrituðu samkomulag um
sameiningu félaganna síðastliðinn
laugardag eftir u.þ.b. þriggja mánaða
viðræður. Sameinað félag mun bera
nafnið Festi hf. og verður skráð í
Grindavík.
Heildareignir félaganna eru um 4,6
milljarðar króna en þar er innifalið
nýtt nóta- og togveiðiskip Arnar Er-
lingssonar sem nú er unnið að smíði á
í Kína. Það er 73 metra langt, 14 metra
breitt og 2.600 brúttólestir að þyngd.
Skipið, sem fengið hefur nafnið Guð-
rún Gísladóttir, er sérhæft i frystingu
og tæknilega fullkomið til þess að
bregðast við breyttu framleiðslu- og
neyslumynstri uppsjávarfisks. Þetta
kemur fram í frétt frá Viðskiptablað-
inu.
Bæði Þórshamar og Örn hafa i
áraraðir verið meðal fengsælustu
nótaskipa íslenska flotans. Við síðustu
úthlutun varanlegra aflaheimilda kom
um 2,51% loðnukvótans í hlut Þórs-
hamars en 3,64% í hlut Arnar. Saman-
lagðar aflaheimildir skipanna eru því
6,15% alls loðnukvótans. Auk þess
mun félagið eiga þrjá og hálfan síldar-
kvóta, lítils háttar kvóta í rækju, tvo
veiðirétti í norsk-islenska síldarstofn-
inum og meirihluta í nýrri fiskimjöls-
verksmiðju sem dótturfélag Festi,
Gautavík hf., starfrækir á Djúpavogi.
Einar Jón Ólafsson ráðgjafi telur að
sameining Festi og Nótar muni hafa
mjög jákvæð samlegðaráhrif í fór með
sér fyrir verksmiðjuna.
Á leið á markað
Einar Jón hefur um árabil veitt
ráðgjöf um sameiningu og samstarf
sjávarútvegsfyrirtækja, bæði sjálf-
stætt og er hann starfaði hjá Lands-
banka íslands. Einar Jón veitti eig-
endum Festi og Nótar ráðgjöf um sam-
einingu félaganna. „Ég held að þetta
sé ein besta sameining sem ég hef
komið nálægt," segir Einar Jón í sam-
tali við Viðskiptablaðið. Hann segir
fyrirsjáanlegt að rekstrarumhverfl
uppsjávarfyrirtækja muni gjörbreyt-
ast á næstu árum vegna krafna mark-
aðarins og aukinnar framieiðslu til
manneldis. „Kröfumar um bætta nýt-
ingu aflans verða sífellt háværari en
ég tel að þau nýju skip sem eru að
koma til landsins muni tryggja bjarta
framtíð í greininni,“ segir Einar Jón
og bendir á fjölhæf frystiskip á borð
við Guðrúnu Gísladóttur í því sam-
bandi en einnig nýtt fjölveiðiskip
Samheija hf., Vilhelm Þorsteinsson.
Hann segir að fyrirhugað sé aö
sameinað fyrirtæki verði opnað fyrir
nýjum fjárfestum og stefnt sé að því
að koma fyrirtækinu á markað innan
tveggja ára. Einar vill ekki upplýsa að
svo stöddu hvernig staðið verður að
þátttöku nýrra fjárfesta eða skrán-
ingu á markað en ætla má að í þessu
felist að Festi muni annaðhvort skoða
sameiningu við önnur fyrirtæki utan
Verðbréfaþings eða leita eftir samein-
ingu við eitthvert þeirra sjávarútvegs-
fyrirtækja sem fyrir eru á Verðbréfa-
þingi.
hefðu áhuga, heldur en að bjóða
þau út á hinn almenna markað,“
segir Þorkell Sigurlaugsson.
Sölunni lýkur föstudaginn 29.
desember nk. og hafa hluthafar
rétt til kaupanna í hlutfalli við
hlutafjáreign sína.
Eigendur tveggja öflugra uppsjávar-
fyrirtækja hafa undirritaö yfirlýsingu
um sameiningu þeirra. Fyrirtækin sem
um ræðir eru Festi hf. í Grindavík, sem
gerir út nótaskipið Þórshamar GK 75,
og Nót ehf. í Keflavík, sem gerir út
nótaskipið Öm KE 13.
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 4336 m.kr.
- Hlutabréf 3134 m.kr.
- Ríkisvíxlar 860 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
© Samheiji 980 m.kr.
© Kaupþing 574 m.kr.
Q Marel 563 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Nýherji 8,7 % 1
Q Bakkavör Group 4,5 %
© Flugleiðir 3,7 %
MESTA LÆKKUN : |
© Opin kerfi 7% ,
© ísienski hugbúnaöarsj 3,2 %
© Delta 2 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1287 stig
- Breyting O 0,96 %
Launavísitalan
upp um 0,1%
Launavísitalan, miðað viö meðal-
laun i nóvember, hækkaði um 0,1%.
Hún er nú 197,4 stig, samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar. Samsvar-
andi launavísitala, sem gildir við út-
reikning greiðslumarks fasteignaveð-
lána, er 4318 stig í janúar 2000.
Vísitala byggingarkostnaðar lækk-
aði um 0,3% frá fyrra mánuði miðað
við verðlag um miðjan desember. Sam-
kvæmt útreikningum Hagstofunnar er
vísitalan 245,1 stig og gildir fyrir janú-
ar.
Samsvarandi vísitala miðuð við eldri
grunn (desember 1982=100) er 784 stig.
Hækkun vísitölunnar síðastliðna þrjá
mánuði samsvarar 0,7% hækkun á ári.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala
byggingarkostnaðar hækkað um 3,5%.
Árið 2000 var vísitala byggingarkostn-
aðar að meðaltali um 3,1% hærri en
árið 1999
Samið um stækk-
un Hótel Esju
í gær var undirritaður samningur á
milli Flugleiðahótela hf. og Þyrpingar
hf. um stækkun Hótel Esju. Eftir
stækkunina verður Hótel Esja stærsta
hótel landsins, útlit þess verður gjör-
breytt og við það veröur glæsileg ráð-
stefnumiðstöð. Hótelið verður opnað í
nýrri mynd i apríl 2003, eftir rúm tvö
ár.
Líkur á vaxtalækkun
í Bretlandi miklar
Væntingar mai'kaðsaðila til vaxta-
lækkunar í Bretlandi jukust snarlega
þegar vitað var að tveir meðlimir í
nefnd peningamála Seðlabanka Bret-
lands hefðu gefið jáyrði sitt fyrir 0,25%
vaxtalækkun á fundi nefndarinnar 7.
desember síðastliðinn.
Mat þessara meðlima var það að allt
útlit benti til að eftirspum heimsins
væri að minnka hraðar en vænst hafði
verið. Hagvöxtur í Bandaríkjunum hef-
ur hægt verulega á sér sem gæti leitt til
minni eftirspumar frá Bandaríkjunum
á vörum frá Bretlandi. Einnig var sú
ástæða tilgreind að verð hlutabréfa hef-
ur lækkað í Bretlandi sem leiðir til
minnkunar eftirspumar almennings i
gegnum auðsáhrif eigna.
____________ 21.12.2000 M. 9.15
KAUP " 5ÁLA i
KAUP SÁLA
BB Dollar 85,200 85,630
£H9Pund 125,170 125,810
l*B Kan. dollar 55,880 56,220
Dönsk kr 10,4260 10,4840
i Norsk kr 9,4980 9,5500
S Sænsk kr. 8,9080 8,9570
H—^ R. mark 13,0783 13,1568
J j Fra. franki 11,8544 11,9256
B II Belg. franki 1,9276 1,9392 1
3 Sviss. franki 51,0300 51,3200 !
QHolLgyllinl 35,2859 35,4979
^ Þýskt mark 39,7580 39,9969
1 ít. lira 0,04016 0,04040
BM Aust. sch. 5,6510 5,6850
jÍH Port. escudo 0,3879 0,3902
1 * 1 Spá. peseti 0,4673 0,4702
| * [ Jap. yon 0,75660 0,76120
g | írskt pund 98,734 99,327
SDR 110,6500 111,3200
£!ecu 77,7598 78,2271