Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Blaðsíða 32
36
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
* Tilvera
I>V
Kanajól á
Kringlukránni
í kvöld og næstu fimmtudags-
kvöld fram að jólum ætla engir
aðrir en Harold Burr og Grétar
Örvarsson að vera með skemmti-
dagsskrá fyrir matargesti
Kringlukrárinnar. Þeir munu
leika og syngja frá kl. 19 til 21.
Félagamir munu halda uppi
jólastemningu með Kanaívafi
þar sem boöið verður upp á sér-
stakan Kanajólamatseðil af
þessu tilefni.
Popp
■ BOTNLEÐJA OG KANADA A
BRAVO Það veröur nóg um að vera
á Kaffi Thomsen í kvöld þegar enn
eitt Bravo-kvöldið fer í loftiö. Hljóm-
sveitin Kanada stígur lyrst á stokk,
en langt er síöan heyrðist frá henni
vegna þess aö Raggi Kjartans hefur
verið erlendis nú um nokkurn tfma.
Sveitin gaf sem kunnugt er út frá-
hæra plótu fyrr á árinu.
■ KAMMERKÓR SUÐURLANDS í
JAPIS KRINGLUNNI I dag mun
Kammerkór Suðurlands mæta í
verslun Japis í Kringlunnl og syngja
jólalög og passa að jólaskapið sé
komið I gesti.
Djass
■ DELERAÐ MEÐ TONLEIKA A
SUFISTANUM, LAUGAVEGI Hljórrv
sveitin Delerað heldur tónleika á
Súfistanum, bókakaffi í verslun
Máls og mennlngar Laugavegi í
kvöld kl. 21. Þar leikur sveitin lög af
nýútkomnum diski semjnniheldur
Söngdansa Jóns Múla Árnasonar. .
Klassík
■ MOZART VIÐ KERTAUOS
Kammerhópurinn Camerarctica
heldur í kvöld sína árlegu kerta-
Ijósatónleikar rétt fyrir jól með tón-
list eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art. Camerarctica mun leika í Dóm-
klrkjunni í Reykjavík og munu tón-
leikarnir heflast klukkan 21 og eru
um klukkustundarlangir. Kirkjan
veröur eins og áður einungis lýst
með kertaljósum. Verkin sem hópur-
inn hefur valið aö þessu sinni eru
Kvartett fyrir klarinettu og strengi
op. 79 (samtíma umritun á KV 378
(317d)) og Strengjakvintett í B-dúr,
KV 174. I lokin verþur að venju leik-
inn jólasálmurinn „I dag er glatt í
döprum hjörtum" sem einnig er eftir
Mozart. Camerarctica skipa þau Ár-
mann Helgason, klarinettuleikari,
Hlldigunnur Halldórsdóttlr og Sigur-
laug Eðvaldsdóttir, fiöluleikarar,
Guðmundur Kristmundsson, vfólu-
leikari og Slgurður Halldórsson,
selióleikari en gestur þeirra í ár er
víóluleikarinn Þórunn Marlnósdóttlr.
Aögöngumiöar veröa seldir viö inn-
ganginn, eldri þorgarar og nemendur
fá helmingsafslátt og ókeypis að-
gangur er fyrir börn.
Leikhús
■ MISSA SOLEMNIS I dag kl.
17.30 veröur sýndur 5. einleikurinn f
einleikjaröö Kaffileikhússins.,Sá
nefnist Missa Solemnis eða í öðr-
um heimi og er eftir finnsku leikkon-
una og leikstjórann Krlstilnu Hur-
merlnta. Leikari er Jórunn Sigurðar-
dóttlr og leikstjóri er höfundurinn
sjálfur Kristiina Hurmerinta.
Síöustu forvöð
■ BUBBI OG JQHANN Bubbl(Guð-
björn Gunnarsson) myndhöggvari og
Jóhann G. Jóhannsson myndlistar-
maöur Ijúka I dag sýningu á verkum
sfnum í Sparlsjóðnum í Garðabæ,
Garöatorgi 1.
Sjá nánar: Líflð eftir vlnnu á Vísi.ls
Már Jónsson hefur rannsakað og sett dulsmál frá 1600 til 1900 í bók:
Sek uns sakleysi er sannað
- málin öll í sjálfu sér hræðileg vegna þeirra ótrúlegu refsihörku sem beitt var
Þegar Scream kom á markaðinn
fyrir tæpum fimm árum og sló í
gegn svo um munaði varö strax ljóst
að eftirlíkingar myndu fylgja í kjöl-
farið og má segja að á síðustu árum
hafi holskefla af „Scream-myndum",
sem fylgja sömu formúlu og Wes
Craven og Kevin Williamson lögðu
upp með, komið fram og satt best að
segja hefur verið fátt um flna drætti
í þessari flóru unglingahryllings-
mynda. Eftir því sem myndimar í
sjálfri Scream-seríunni versnuðu
urðu fylginautar hennar verri. En
eins og segir í máltækinu að mjólka
eigi kýmar meðan dropi fæst, þá
hafa Hollywood-bændur ekki hlaup-
ið frá formúlunni meðan hún gefur
eitthvað í aðra hönd.
Ein þeirra kvikmynda sem fylgdu
Scream-formúiunni var Sögusagnir
(Urban Legends) sem gerð var fyrir
tveimur árum. Ekki þótti hún góður
biti, en dollaramir fylltu vasa fram-
leiðanda myndarinnar og því þótti
sjálfsagt að gera framhald, Urban
Legends: Final Cut, sem nú lítur
dagsins ljós hér á landi. Það væri
gaman aö geta haldið því fram aö
botninum væri náð i unglingahryll-
ingnum, en eins og flestir vita eru
brunnar djúpir og því má alveg eins
búast við mörgum slíkum ófagnaði í
viðbót.
Það væri nóg til að gera hvem
mann vitlausan að fara að reyna að
útskýra hvað er að gerast í Sögu-
sögnum 2, má segja að myndin sé
frá upphafi til enda ein mótsögn við
sjálfa sig. Hún á að gerast innan-
dyra í kvikmyndaskóla þar sem
nemendur eru að gera skólamyndir
sem senda á í Hitchcock- sam-
keppni. Þama er allt til alls, meðal
annars heilt hryllingssafn af vax-
myndum og tækjum sem hver stofn-
Morðinginn og fórnarlambið
Morðinginn kvikmyndar eigið morð á ungri leikkonu.
un gæti verið hreykin af og mætti
halda að nemendur væru að gera
milljón dollara myndir. í skólanum
er líka brjálaður morðingi sem
drepur hvern nemandann á fætur
öörum. Á meöan morðinginn heldur
sínu striki er eina sem hægt er að
gera sér til dundurs til að dreifa
huganum aö reyna að fara ein-
hverja krókaleið í að finna út hver
morðinginn er, því að sjálfsögðu
fylgir myndin þeirri formúlu aö láta
einn vera grunsamlegan, sem svo að
sjálfsögðu er saklaus. Þegar svo
ljóst er hver morðinginn er var það
í eina skiptið í myndinni sem hægt
var að brosa, ekki yfir snilldar-
taktík handritshöfundar og leik-
stjóra, heldur yfir fáránleikanum í
plottinu.
Sjálfsagt myndi meistari
Hitchcock snúa sér viö í gröfinni ef
hann vissi að nafn hans væri bendl-
að við Sögusagnirnar. Hryllingur-
inn í myndinni er ekki djúpur,
byggist upp á að koma áhorfendum
á óvart í fyrirsjáanlegum atriðum
eða með aðstoð hljóðtæknimanna,
og er myndin aðeins staðfesting á
því að slíkar brellur nægja ekki, það
þarf að vera eitthvað á bak við þær.
Leikstjóri: John Ottman. Handrit: Paul
Harris Boardman og Scott Derrickson.
Kvikmyndataka: Brian Pearson. Tónlist:
John Ottman. Aóalleikarar: Jennifer
Morrison, Matthew Davis, Hart Bochner
og Joseph Lawrence.
á íslandi sem mér er kunnugt
um frá lokum 16. aldar til
fyrstu ára 20. aldar þótt hann
sé ekki tæmandi."
Már segir að skelfilegasta
málið sem hann þekki sé frá
árinul802 og fjalli um dauða
Guðrúnar ívarsdóttir, bústýru
á Garðabrekku í Snæfellsnes-
sýslu. Guðrún lést 18. septem-
ber og daginn eftir fundust lík-
amsleifar nýfædds barns í
ösku þegar öskustóin var
tæmd. „Partar af fullvöxnum
nýklakins barns líkama voru
og á staðnum framvísaöir; var
það höfuð, læri, lendar og fæt-
ur, sem allt virtist fullburða,
en miðpartinn vantaði."
Ótrúleg refsiharka
„Málin eru öll hræðileg
vegna þeirra ótrúlegu refsi-
hörku sem beitt var. í fyrstu
málunum kemur fram að kon-
urnar voru hreinlega drepnar
þrátt fyrir að engin barnslík
væru til staðar. Það er erfitt
fyrir nútímamann að skilja
þessa hörku en sem sagnfræð-
ingur verður maður að leggja
kalt mat á atburðina án þess
að fara í mikla geðshræringu.
í dag segjum við að fólk sé
saklaust uns sekt er sönnuð en
á þessum tíma var þessu öfugt
farið og konumar þurftu að
sýna fram á sakleysi en dómur-
inn ekki að sanna sekt þeirra.
-Kip
DV-MYND PJETUR
Már Jónsson dósent í sagn-
fræöl
Már segir ótrúlega refsihörku
hafa verið í dulsmálum fyrr á
öldum.
Már Jónsson, dósent við
Háskóla íslands, hefur ný-
lega sent frá sér bókina Duls-
mál 1600-1900. Dulsmál eru
mál sem fjalla um fólk, aðal-
lega konur, sem af einhverj-
um ástæðum leynir fæðingu
barns og skýtur því undan
með einhverjum hætti.
Már lauk BA-prófi í sagn-
fræði frá HÍ árið 1980,
kandídatsprófi 1985 og dokt-
orsprófi 1995. „Bókin sem ég
var að senda frá mér er að
stofni til ritgerð frá 1985 um
dulsmál. Á sínum tíma
reyndi ég að safna öllu sem
ég gat um efnið og hefur
alltaf langað til að vinna
meira með það. Efnið er mjög
áhugavert og æskilegt að fólk
hafi aðgang að því. í fyrra
hóf Sagnfræðistofnun útgáfu
á heimildaritum og þá kvikn-
aði hjá mér hugmynd um að
gefa dulsmálin út.“
Líkamsleifar barns í
öskustónni
„í nýju bókinni eru birt
fjórtán mál sem strangt tekið
eru tólf dómar, ein yfir-
heyrsla og eitt bréf. Þegar ég
skrifaði ritgerðina fjallaði ég
um málin en birti ekki dóma.
í nýju bókinni eru birtir
dómar sem taka til tímabils-
ins frá 1600 til 1900 og eru
sæmilega lýsandi fyrir heild-
ina. Inngangurinn er að
miklu leyti byggður á rit-
gerðinni en með viðbótum
sem ég hef fundið frá því ég
skrifaði hana. Ég reyni að
setja efnið í meira samhengi
og í lok bókarinnar er að
finna annál yfir öllu dulsmál
Bíógagnrýni
Stjörnubíó - Urban Legends: Final Cut i
Rugl og meira rugl
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.