Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
Útlönd
DV
Shimon Peres
ætlar aö bjóöa sig fram til
forsætisráöherra.
Reynt að binda
enda á átökin
Fyrrum forsætisráðherra ísraels,
Shimon Peres, hefur tilkynnt að
hann áformi að gefa kost á sér í
embætti forsætisráðherra 1 kosning-
unum sem fram fara í ísrael í febr-
úar á næsta ári. Peres gat þess þó að
framboð hans byggðist á því að
hinn vinstrisinnaði Meretz-Qokkur
væri reiðubúinn til að styðja hann í
framboðinu.
Á Gaza létust tveir drengir í gær,
átján og fjórtán ára, er til átaka kom
á milli israelskra hermanna og
Palestínumanna nærri egypsku
landamærunum. Að minnsta kosti
40 aðrir særðust en um 300 áhorf-
endur höfðu safnast saman til að
fylgjast með bardaganum.
Friðarviðræður ísraela og Palest-
ínumanna héldu áfram í Was-
hington í gær og hafði Shlomo Ben-
Ami, utanríkisráðherra ísraels, á
orði að samkomulag gæti verið í
nánd ef færi sem horfði.
Gore fékk 130
viðbótaratkvæði
í Lake-sýslu
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna og forsetaframbjóðandi
demókrata, hlaut 130 viðbótarat-
kvæði í Lakesýslu í Flórída við óop-
inbera talningu blaðsins Orlando
Sentinel á 6 þúsund vafaatkvæðum.
Bandaríska blaðið Washington Post
greindi frá þessu í gær. Áður en
óopinbera talningin hófst var Geor-
ge Bush, verðandi forseti, meö 154
atkvæða forskot í Flórída.
Við óopinberu talninguna í
Lakesýslu fékk Gore 376 viðbótarat-
kvæði en Bush 246 atkvæði: Ekki lék
nokkur vafi á merkingu kjósenda.
Kosningavélar höfðu hins vegar
hafnað atkvæðaseðlunum þar sem
kjósendur höfðu jafnframt ritað nafn
sama frambjóðanda í reit þar sem
menn gátu sjálfir bætt við nöfnum.
Jólaball í höllinni
Stefanía Mónakóprinsessa ogjólasveinninn afhentu börnum í Mónakó jólagjafir á balti sem hatdiö var í gær í höllinni
í furstadæminu.
Bush skipar í embætti fjármála- og viðskiptaráðherra:
Æskufélagi verður
viðskiptaráðherra
George W. Bush hefur skipað for-
stjórann Paul O'Neill íjármálaráð-
herra í næstu ríkisstjóm Bandaríkj-
anna. Sagði Bush að O'Neill byggi
yfir þeirri reynslu og styrk sem
þyrfti til að stýra efnahag sem væri
hugsanlega á leið „í öldudal".
Bush tilkynnti einnig um val sitt
á fleiri ráðherraefnum og skipaði
Don Evans, gamlan æskufélaga og
kosningastjóra sinn, í embætti við-
skiptaráðherra. Mel Martinez,
kúbanskur flóttamaður og fyrrum
embættismaður í Orange-sýslu í
Flóridaríki verður næsti ráðherra
húsnæðismála og byggðaþróunar.
Þá var Ann Veneman, fyrrum land-
búnaðarráðgjafi í Kaliforníu, skipuð
í embætti landbúnaðarráðherra.
Skipanir Bush á ráðherraefnum
verða að hljóta náð fyrir augum öld-
ungadeildarinnar áður en unnt
verður að setja þá í embætti. Engu
að síður þykir mönnum val Bush á
ráðherraefnum sýna að hann setur
Don Evans
Nýr viðskiptaráöherra Bandaríkjanna.
hollustu í öndvegi þegar kemur að
ráðherraveitingum. Evans er góður
vinur forsetans tilvonandi en
Veneman þjónaði í stjórnartíð foður
hans, Bush eldri.
Þá hefur Bush einnig lagt á það
mikla áherslu að skattbyrði þjóðar-
innar verði lækkuð um 1,3 billjónir
Bandaríkjadala vegna ótta við að
gott efnahagsástand síðustu ára sé í
rénun.
„Efnahagur okkar sýnir hættu-
merki um að hann sé hugsanlega að
hægja á sér,“ sagði Bush á frétta-
mannafundi þar sem tilkynnt var
um skipan O'Neill í embætti fjár-
málaráðherra.
Skipan O'Neill í embætti dró ekki
úr lækkun á gengi hlutabréfa á
bandarískum hlutabréfamörkuðum
í gær.
Á NASDAQ féll gengi hlutabréfa
um 7,1 prósent að meðaltali og 2,5%
á Dow Jones.
DELSIUS i
Þægindi
•Afslöppun
Hvíld
á
-aðeins imyndunarqflið setur þér takmörk
.
ÍU/\SA
: . J
________.*•
Þrýstyöfhun
Jólatilboð
Koddar kr. 3.900.- \
•Celsíus heilsudýnan er gerð úr seigteygjanlegu efni með
opnum frauðblöðrum sem leyfa efninu að „anda”
•Hiti líkamans formar efhið
•Bætir blóðrás og hindrar legusár
•Linar hrygg- og vöðvaverki
•Bætir vellíðan og skapar bestu aðstæður fyrir svefn
•Dreifir líkamsþyngdinni yfir stærra yfirborð og minnkar
þannig álag á þrýstipunkta
Þynnanlegur
Sendum í pósti hvert á land sem er
INMBÚ,,
Smiðjuvöllum 6 Keflavík Sími 421 4490
Njósnaforingi í
lýtaaðgerð
Njósnaforinginn Vladimiro
Montesinos, sem flúði Perú á lúxus-
snekkju og gabbaði innflytjendayfir-
völd í Kostaríku með fólsuðum skil-
ríkjum, gekkst undir lýtaaðgerð í
Caracas, höfuðborg Venesúela. For-
stjóri læknastofunnar, þar sem að-
gerðin var gerð, segir Montesinos
hafa fengið nýtt andlit og síðan
stungið af án þess aö borga reikn-
inginn.
„Við héldum að Manuel Rodrigu-
ez væri venjulégur Venesúelabúi.
Hann lét laga á sér nefið og augnlok-
in en greiddi ekki reikninginn,“
sagði forstjórinn.
Montesinos var í sex nætur á lúx-
ushóteli nálægt læknastofunni í
Caracas í síðustu viku ásamt konu
að nafni Emma Mejia. Hún er sögð
hafa gefið sig fram í sendiráði Perú
í Caracas í síðustu viku. Emma
Mejia er nú i haldi í Perú. Fujimori
Perúforseti var rekinn í kjölfar
mútuhneykslis sem Montesinos var
viðriðinn.
Enginn hefndarþorsti
George Bush
eldri visaði þvi á
bug í gær að honum
fyndist sem hann
hefði náð að hefna
sín þegar sonur
hans var lýstur sig-
urvegari í forseta-
kosningunum í
Bandaríkjunum. George Bush eldri
tapaði fyrir Bill Clinton 1992 eftir
eitt kjörtímabil í Hvíta húsinu.
Vili selja kosningavélar
Yfirmaður kjörstjómarinnar í
Palm Beach f Flórída hefur hug á að
selja úreltar kosningavélar sýslunn-
ar sem orðnar eru frægar.
Komst aftur undan
Franska kaupsýslumanninum Al-
fred Sirven, sem verið hefur á flótta
síðan 1997, tókst enn einu sinni að
komast hjá handtöku um síðustu
helgi á Filippseyjum. Sirven var
einn yfirmanna oliurisans Elfs.
Hans er leitað vegna spiUingar.
Varaö viö pylsum
HeUbrigðisráðherra Þýskalands
varaði i gær almenning við að
borða vissar tegundir af pylsum
vegna hættu á Creutzfeldt-Jacob
veikinni. Hvatti ráðherrann fram-
leiðendur til að taka vörurnar af
markaði.
Umbótasinnum spáð sigri
Lýðræðisbandalaginu í Serbíu er
spáð yfirburðasigri í þingkosning-
unum á laugardaginn.
Breyttur framburöur
Framburður El-
ísabetar Englands-
drottningar er far-
inn að líkjast fram-
burði þegnanna.
Þetta sýnir rann-
sókn sem gerð hef-
ur verið á árlegu
jólaávarpi drottn-
ingar frá 1952. Rannsóknin, sem
gerð var við Macquarieháskólann í
Ástralíu, sýnir að framburður á sér-
hljóðum sé farinn að líkjast fram-
burði þeirra sem yngri eru og á
lægra stigi í þjóðfélaginu.
Engin ástæöa til aö óttast
MikhaU Gorbat-
sjov, fyrrverandi
leiðtogi Sovétrikj-
anna, segir að Rúss-
ar eigi að hafa að
engu spár um
kuldalegri sam-
skipti Rússlands og
Bandaríkjanna eftir
valdatöku Bush. Gorbatsjov sagði
að þótt stíUinn breyttist yrðu stjórn-
málin ekki óábyrg.
Ekkert eitur
ísraelsk yfirvöld vísuðu í gær á
bug ásökunum sýrlenskra náms-
manna um að ísraelar hefðu losað
sig við eiturefnaúrgang í borgum á
Gólanhæðum og dreift eitraðri
málningu tU íbúa á svæðinu.
Stofufangelsi ógilt
Hæstiréttur í ChUe ógUti fyrir-
skipun dómara um að setja Augusto
Pinochet, fyrrverandi einræðis-
herra, í stofufangelsi. Pinochet er
sakaður um mannrán og morð á 77
stjórnmálamönnum og leiðtogum
stéttarfélaga.