Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Side 11
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
11
DV
Útlönd
Utanríkisráðherra Danmerkur segir af sér:
Bandarískir vísindamenn:
Tveir ráðherrar farn-
ir á skömmum tíma
Utanríkisráöherra Danmerkur,
Niels Helveg Petersen, sem lét af
ráöherraembætti í gær, sagði á
blaðamannafundi af því tilefni að
hann væri ekki rétti maðurinn til
að stýra Evrópusamrunanum fyrir
hönd Danmerkur. Lét hann einkum
í ljós vonbrigði sín með tilraunir til
að brúa bilið á milli fylgismanna og
andstæðinga Maastricht-sáttmála
ESB.
„Ég er ekki rétti maðurinn til að
stýra þessum undanþágum," sagði
Niels Helveg og átti þar m.a. við
andstöðu Dana við inngöngu í
myntbandalag ESB. Ráðherrann
fyrrverandi hefur gegnt embætti ut-
anríkisráðherra undanfarin sjö ár.
„Ég get ekki stutt þetta fyrir-utan-
innan viðhorf sem ég tel að sé ekki
Danmörku í hag, sérstaklega eftir
ráðstefnuna í Nissa," sagði ráðherr-
ann.
„Ég velti því alvarlega fyrir mér
að láta af embætti í september sl. en
Niels Helveg Petersen
Óvíst um eftirmarm hans í embætti.
ákvað að það væri betra að vinna að
undirbúningnum fyrir fundinn í
Nissa,“ sagði hann og vísaði þar i
atkvæðagreiðslu Dana um
Maastricht-sáttmálann sem Danir
höfnuðu í þriðja sinn 28. september
sl.
Að öðru leyti sagðist ráðherrann
vera sáttur við niðurstöður leiðtoga-
fundarins í Nissa og sagðist ánægð-
ur með að fimmtán ný ríki myndu
fá inngöngu í ESB á næstu árum.
Niels Helveg er annar ráðherrann
á skömmum tíma sem yfirgefur rík-
isstjóm Pouls Nyrups Rasmussens
forsætisráðherra. Hans Hækkerup,
sem gegnir stöðu vamarmálaráð-
herra, hefur þekkst boð um að ger-
ast yfirmaður Sameinuðu þjóðanna
í Kosovo.
Ekki hefur enn verið upplýst
hverjir munu taka við stöðum vam-
ar- og utanríkisráðherra.
Mótmæli í parísarhjóli
Fimmtíu Kúrdar hótubu i gær að kveikja í sér í stóra parísarhjólinu sem gnæfir yfir miöborg London. Kúrdarnir gáfust
upp fyrir lögreglu eftir fimm klukkustunda mótmæii. Með mótmætum sinum vildu Kúrdarnir vekja athygli á aöstæöum
kúrdískra fanga i fangelsum i Tyrkiandi. Tyrknesk öryggislögregla réöst til inngöngu í fjölda fangelsa í fyrradag þar
sem fangar höfðu veriö í hungurverkfalli. Sautján fangar létust eftir aö hafa kveikt í sér. Tveir lögreglumenn biöu bana
í átökunum i fangelsunum.
Mikið magn olíu
undir Grænlandsís
Bandarískir jarðfræðingar álita
að um 47 milljarðar tunna olíu séu
undir íshellunni á Norðaustur-
Grænlandi. Er það tvöfalt meira
magn en talið er vera í Norðursjó.
Þetta kemur fram i skýrslu stofnun-
arinnar Bandarískar jarðfræðirann-
sóknir.
í skýrslu sinni leggja vísinda-
mennirnir mat á heildarolíuforða
heimsins næstu 30 árin. Hann er
áætlaður 649 milljarðar tunna eða
20 prósentum stærri en áður var
talið.
Danski jarðfræðingurinn Flemm-
ing Christiansen bendir á að land
hafi risið á Norðaustur-Grænlandi
gagnstætt því sem gerst hafi í Norð-
ursjó. Við landris sé hætta á að olía
berist út í jarðlögin og jafnvel upp í
sjó. Því sé ekki útilokað að menn
séu of seint á ferðinni. Hingað til
hefur olíuleit á Grænlandi verið
árangurslaus.
Stórglæsilegt úrval
pipar- og saltkvarna
fyrir fagurkera
frá William Bounds Ltd.
3 grófleikar
á mölun.
Fást í stáli,
hnotu, tekki
og gegnsæju acryl.
Ný kvörn,
vernduð með
einkaleyfi.
Festist aldrei.
Nýjasta nýtt ! ! !
Súkkulaðikvarnir fyrir cappucino
K/S Einar Farestveit & Co.hff.
Borgartúni 28 g 562 2901 og 562 2900
r a s i
SþréttsigalliiF
Opið
öll kvöld
til jóla
afsláttur
sími 511 4747
Nóatúni 17
SPAR L SP0RT
TOPPMERKI Á LÁGMARKSVERÐI