Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2000, Page 25
*H* ^AWríZm .K JT10/■.<rJTlÆMl'*.
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
29
Tilver^.
DV-MYNDm INGO
Kínaklúbbur Unnar:
Sólhvörf með
kínverskum
hætti *
í tilefni vetrar-
sólstaðna verður
Kínaklúbbur
Unnar með
skemmtun i
kvöld kl. 19 á
veitingahúsinu
Sjanghæ viö
Laugaveg. Sól-
hvörfin voru
mikilvægasta dægrið í gamla Kína
því þá var keisarinn í beinu sam-
bandi við fóður sinn, himininn. Á
þessum degi þakkaöi keisarind^
himninum fyrir góða uppskeru líð-
andi árs um leið og hann bað um
góða uppskeru á komandi ári.
Kínaklúbburinn fagnar sólhvörf-
unum líka, þó af annarri ástæðu,
nefnilega þeirri að með hækkandi
sól léttist lund manna. Skemmtunin
hefst með því að Unnur Guöjóns-
dóttir sýnir litskyggnur frá Kína og
jafnframt verður næsta ferð klúbbs-
ins til Kína kynnt. Snædd verður
kínversk hátíðarmáltíð og flutt
skemmtiatriði.
Syngjandi
jólasveinn
1.990 kr
Syngjandi jólasveinn
sem dansar
Opið hjarta Borgarleikhússins
Borgarleikhúsið var með opið
hús fyrir alla fjölskylduna síðastlið-
inn laugardag. Sýnt var úr barna-
leikritinu sem frumsýnt verður um
jólin, leikritið um frumskógar-
drenginn Móglí og úr leikritunum
Abigail heldur partí og Skájdanótt.
Auk þess var ýmislegt annað til
skemmtunar.
Margir þekktust gott boð Borgar-
leikhússins og var stemningin á
staðnum létt og skemmtileg. Það er
nefnilega alltaf gaman að fá að
skyggnast baksviðs í leikhúsinu,
sérstaklega fyrir börnin.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Gestir Borgarleikhússins voru
á öllum aldri
Karólína litla Sigríöur í fangi Jóhönnu
Vigdísar Guömundsdóttur.
Tvær glæsilegar leikkonur
Leikkonurnar Margrét Helga Jóhanns-
dóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir
iétu fara vel um sig í sófahorninu.
Móglíleikarar meö leikhússtjóra sínum
Theodór Júlíusson heldur á Uröi Pálínu Reynisdóttur, Friörik Friöriksson,
Guöjón Pedersen leikhússtjóri og Ellert Ingimundarson.
Leikarar í opnu hjarta
Ingvar E. Sigurösson og Snæfríöur
dóttir hans ásamt
Birni Inga Hilmarssyni.
í faömi frumskógarkonu
Sigga Rósa Bjarnadóttir passar hér upp á Snæfríöi ingvarsdóttur.
□stavaktin á Vísi.is
Listavaktin er vefur sem hefur verið opnaður á Vísi.is.
Þar getur f>ú fengið ítarlega og skemmtilega umfjöllun
um allar jólabækurnar. g
Öll sala á vefnum er í samvinnu við
netverslun Hagkaups.
IS
vísir.
*