Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 I>V Fréttir Álverið á Grundartanga: Stækkunin gengur vel Framkvæmdir við stækkun ál- vers Norðuráls á Grundartanga ganga samkvæmt áætlun. „Ný starfsmannaaðstaða var tekin í notkun í nóvember og ný viðhalds- bygging verður tekin í notkun í byrjun janúar," segir Birgir Karls- son staðarverkfræðingur. Vinna við stækkun þurrhreinsistöðvar hófst í desember ásamt undirbúningi vegna súrálsflutningakerfis inni í kerskálum. “Nú er unnið við lokafrágang á kerskálabyggingum álversins og við gerum ráð fýrir að ný kerfóðrunar- bygging verði tilbúin í lok janúar," segir Birgir. Á síðasta ári hafa á milli 80 og 100 manns starfað við fram- kvæmdirnar á hverjum tíma og gert er ráð fyrir að fjöldi starfsmanna fari vel yfir 100 manns nú í janúar. Áætl- að er að framkvæmdum við stækkun- ina ljúki næsta vor. -DVÓ Norðurmjólk ehf.: Helgi Jóhannesson ráðinn DV, AKUREYRI:___________ Stjórn Norðurmjólkur ehf. hefur ákveðið einróma að ráða Helga Jó- hannesson sem framkvæmdastjóra fyr- irtækisins. Norðurmjólk ehf. er nýtt fyrirtæki sem varð tU við sameiningu MSKEA, MSKÞ og Grana ehf. en Granir eru hlutafélag i eigu Auðhumlu sem er samvinnufélag í eigu mjólkurframleið- enda í Eyja0arðar- og Þingeyjarsýsl- um. Norðurmjólk rekur m.a. mjólkur- samlögin á Akureyri og Húsavík. Helgi Jóhannesson er Akureyringur að uppruna, fæddur árið 1956 og verk- fræðingur að mennt. Hann kom til starfa sem forstöðumaður slátrunar- og kjötiðnaðarsviðs KEA í febrúar 1997. Hann varð framkvæmdastjóri Norð- lenska ehf. við stofnun félagsins sl. sum- ar en Norðlenska varð sem kunnugt er til með samruna kjötiðnaðarsviðs KEA og Kjötiðjunnar ehf. á Húsavík á sl. ári. Helgi mun heha störf hjá Norðurmjólk á næstu dögum. -gk Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut og Breiðholtsbraut: ístak lægstbjóðandi - verkinu að mestu lokið í haust, segir vegamálastjóri Tilboð í langstærstu vegafram- kvæmdir ársins, mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Breið- holtsbrautar, voru opnuð í gær. Lægsta tilboð í verklegar fram- kvæmdir átti ístak hf. og hljóðaði það upp á 931.118.590 krónur. Meginhluta verksins á að ljúka næsta haust. 931 milljón króna, en næstir voru ís- lenskir aðalverktakar hf. með 999.662.780 krónur. Þá kom sameigin- legt tilboð frá Eign ehf., Háfelli ehf., Suðurverki hf. og Sveinbimi Sigurðs- syni ehf. og hljóðaði það upp á 1.197.777.777 krónur. Hæsta tilboðið í verkið kom síðan frá Veli hf., að upp- hæð 1.233.558.280 krónur. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar í eftirlitsþáttinn var 29.900.000 krón- ur. Verulegur munur var á hæsta og lægsta tilboði í þann þátt, eða 14,8 milljónir króna. Lægsta tilboðið kom frá Forverki ehf. og Verkfræðistofu Bjöms Ólafssonar ehf., að upphæð 18.430.000 krónur. Næst i röðinni kom sameiginlegt tilboð frá VSÓ-ráðgjöf og VSB-verkfræðistofu ehf., að upp- hæð 20.425.000 krónur, og síðan tilboð frá Fjölhönnun ehf., í samstarfi við Hnit hf. og Raftæknistofuna hf., að upphæð 21.375.000 krónur. Hæsta til- boðið í þennan þátt átti Almenna verkfræðistofan, að upphæð 33.250.000 krónur. Tilboðin koma ekki á óvart „Almennt séð i jarðvinnuverkum þá merkjum við ekki mikla spennu i tilboðum undanfarið. Byggingarverk- in em dálítið á öðm róli,“ sagði Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og átti þá við brúarsmíði og slíka þætti. „Það kemur okkur i sjálfu sér ekkert á óvart að lægstu tilboðin séu ekki Ráðherra ánægður „Ég er ánægður með að hér hafa gert tilboð mjög öflug fyrirtæki. Það vekur hins vegar athygli að tilboð verktakanna í aðalverkið em mjög nærri áætlun Vegagerðarinnar. Mér sýnist að þar sé á vísan að róa með væntanlegan verktaka, hver úr hópn- um sem það verður, þegar búið er að fara yfir allar tölur,“ sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 970 milljónir króna en aðalhönnuður verksins er Verkfræði- stofa Sigurðar Thoroddsens. Um er að ræða gríðarmikið mannvirki með brú og tilheyrandi slaufum yfir Reykjanesbraut. Brú verður einnig á Álfabakka, auk þriggja undirganga á Dalvegi, Nýbýlavegi og Breiðholts- braut. DV-MYNDtR ÞÖK Frá opnun tilboöa Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri ræöir viö Sturlu Böövarsson samgönguráö- herra í Rúgbrauösgeröinni í gær. Næst er breikkun í Hafnarfirðí Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segir næstu verk vera breikk- un á Reykjanesbraut í gegnum Hafn- arfjörð en til þess er áætluð fjárveit- ing á þessu ári. Verður sá kafli vænt- anlega boðinn út á næstunni. „Á næsta ári er það kaflinn frá Kúagerði til Hafnarfjarðar sem er núna í skipu- lagsvinnu og umhverfismati." Varð- andi mislæg gatnamót á Vesturlands- vegi sagði ráðherra að það verk væri í skipulagsvinnu og þvi ekki hægt að greina nákvæmlega frá stöðu þess eins og er. -HKr. Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut viö Breiðholtsbraut Um er aö ræöa gríöarmikiö mannvirki. Yfir Reykjanesbraut veröur 35 metra löng brú meö tveim höfum og tilheyrandi slauf- um. Breiöholtsbraut mun iiggja á brú yfír Áifabakka og þrenn undirgöng veröa undir Dalveg, Nýbýlaveg og Breiöholtsbraut. Fjögur tilboð bámst í verklegu framkvæmdimar og fimm í eftirlits- þáttinn. Eins og áður sagði bauð ístak hf. lægst í framkvæmdimar, rúma mikið undir kostnaðaráætlun. Mikill hluti af þessu er byggingarverkið. Þama er um erfitt og flókið verk að ræða þar sem verktaki er með mikla umferð á sér allan tímann, auk þess sem framkvæmdatíminn er knappur. Þessu á að ljúka í haust, að öðru leyti en því að frágangur verður dreginn til vors.“ Varðandi það hvort hér væri um óvenjumikinn fram- kvæmdahraða að ræða sagði Helgi að þessi háttur hefði verið hafður á öðr- um verkum varðandi vegagerð í Reykjavík. Nefndi hann Höfðabakka- brúna og Skeiðarvoginn sem dæmi í því sambandi. Hann sagði fram- kvæmdir hefjast um leið og búið verði að semja við verktaka en Vega- gerðin hefur fjórar vikur til að fara yfir tilboðin. Veörib í kvöld m*' ■ **; ,«Ha ÁV v1; Urkomulítiö norövestan til Spáð er austan 13 til 18 m/s. Rigning eöa skúrir veröa sunnan- og austanlands en úrkomulítið nopövestan til. Hiti 3 til 8 stig. Sólairgangur og sjávarfóll § Veðrið á morgun Sólarlag í kvöld REYKJAVIK 16.46 AKUREYRI 16.15 Sólarupprás á morgun 10.31 10.32 Síödegisflóö 18.18 22.51 Árdegisflóö á morgun 06.38 11.11 Skytíuáar á voöurfátomm Kvinoatt IOV-hiti .10° w ^ ViNDSTYRKUR CDftCT HEIDSKÍRT í metrum á sekóndu o IÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKYJAÐ : I © iví RIGNING . SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA W & = ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA VEÐUR RENNINGUR Fsrð Góö færð Samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinni eru allir helstu þjóövegir landsins greiöfærir, en hálka er á hæstu heiðum. Austlæg átt Austan 10 til 15 m/s veröa á morgun - rigning eöa skúrir sunnan- og austanlands en úrkomulítið norðvestan til. Hiti 3 til 8 stig. Rmrntod m Fóstud m - i Laugaró Vindur: /^ 10-15 m/8 Hiii 0° til 5° Vindurz /^ 8—13 in/s Hiti 1° til 5° Vindur: X" 8—13 m/tt Hiti 1° til 5° Noröaustan 10-15 m/s en hægari austast. Rlgnlng á Austuriandi og él noröanlands en skýjaö og úrkomulítlö suövestan til. Httl 0 tll 5 stlg. Noröaustan 8-13 m/s og víöa skúrlr eöa slydduél en þurrt að kalla suövestan tll. Hlti 1 tll 5 stig. Norðaustan 8-13 m/s og víöa skúrlr eöa slyddué en þurrt aö kalla suövestan tll. Hltl 1 tll 5 stig. Veðrib kl. 6 jfv ■ AKUREYRI súld 5 BERGSSTAÐIR alskýjaö 6 BOLUNGARVÍK rigning 4 EGILSSTAÐIR 4 KIRKJUBÆJARKL. rigning 5 KEFLAVÍK rigning 4 RAUFARHÖFN þoka 4 REYKJAVÍK rigning 5 STÓRHÖFÐI rigning 5 BERGEN heiöskírt -1 HELSINKI snjókoma -6 KAUPMANNAHÖFN slydda 1 ÓSLÓ snjókoma -3 STOKKHÓLMUR snjókoma -2 ÞÓRSHÖFN rigning 6 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -1 ALGARVE alskýjaö 15 AMSTERDAM þoka 5 BARCELONA skýjaö 10 BERLÍN alskýjað 1 CHICAGO skýjaö -2 DUBLIN skýjaö 7 HAUFAX heiöskírt -11 FRANKFURT rigning 5 HAMBORG rigning 2 JAN MAYEN snjókoma -1 LONDON léttskýjaö 6 LÚXEMBORG skýjað 5 MALLORCA skýjaö 14 MONTREAL alskýjaö -6 NARSSARSSUAQ léttskýjaö -19 NEWYORK hálfskýjaö -1 ORLANDO alskýjaö 10 PARÍS léttskýjaö 6 VÍN þoka -1 WASHINGTON þoka -9 WINNIPEG heiöskírt -9 amaBBHBBHaágMmsai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.