Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Qupperneq 22
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 I>V Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Stórafmæli 90 ára____________________________ Fanney Sigtryggsdóttir, Hvammi, Húsavík. Sigríður Bjarnadóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 85 ára____________________________ Ingimundur Þorkelsson, Sporöagrunni 4, Reykjavík. Svanborg Kjartansdóttir, Vindási, Grundarfiröi. 80 árg____________________________ Jóhanna Hálfdánardóttir, Skúlagötu 20, Reykjavík. 75 ára____________________________ Ellý Dagmar Guönadóttir, Ásvegi 30, Akureyri. 70ára_____________________________ Hallbjörn V. Sigurðsson, Krossholti, Snæfellsnesi. Sigríður Jakobsdóttir, Espigeröi 4, Reykjavík. 60 ára____________________________ Garðar Rafn Sigurðsson, Bakkavör 11, Seltjarnarnesi. Hulda Róselía Jóhannsdóttir, Klapparási 5, Reykjavík. Ingibjörg Bragadóttir, Eyjaholti 3, Garöi. 50 ára____________________________ Dagný Guðmundsdóttir, Austurbergi 20, Reykjavík. ísleifur Jónsson, Álfheimum 35, Reykjavlk. Jóhannes H. Jóhannesson, Eyrarvegi 9, Akureyri. Mundhildur B. Guðmundsdóttir, Þorbergsstööum, Búðardal. Ólöf Helga Bergsdóttir, Stekkholti 17, Selfossi. Rafn Svan Svansson, Lækjarási 3, Reykjavík. Ragnhildur Björnsdóttir, Rskakvísl 24, Reykjavík. Sóley Ástvaldsdóttir, Stórageröi 9, Hvolsvelli. 40 ára____________________________ Aðalheiður Kr. Þórarinsdóttir, Leirubakka 32, Reykjavík. Geirþrúður Fanney Bogadóttir, Lágmóa 5, Njarövík. Helga Thorsteinsson, Vesturbrún 15, Reykjavík. Hermann Sigurlaugur Gunnarsson, Sundstræti 27, ísafirði. Hugrún Hersilía Einarsdóttir, Breiöási 10, Garöabæ. Kristján Þórðarson, Álfaskeiöi 90, Hafnarfiröi. Ómar Sverrisson, Nesgötu 43, Neskaupstaö. Sigurborg Leifsdóttir, Nestúni 8, Stykkishólmi. SigurðurJónsson, Hvolsvegi 18, Hvolsvelli. Stefán Guðmundsson, Túngötu 17a, Húsavík. Valdimar Sigurður Gunnarsson, Fjaröarstræti 11, Isafirði. mm 1 i n g a r nv 550 5000 (O \>* @ vísir.is 'OJ) FAX 3 550 5727 CQ 'CC I E Þverholt 11, 105 Reykjavík </> Fimmtugur Gunnlaugur Haraldsson þjóðhátta- og fornleifafræðingur á Akranesi Gunnlaugur Haraldsson, þjóö- hátta- og fornleifafræðingur, Jör- undarholti 21, Akranesi, er fimm- tugur í dag. Starfsferill Gunnlaugur fæddist á Egilsstöð- um, ólst upp á Hreiðarsstööum í Fellahreppi til fimm ára aldurs en siðan á Egilsstöðum. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1973, stundaði nám í þjóðháttafræði og norrænni fornleifafræði við Lundarháskóla frá 1975 og lauk þaðan fil.kand.-prófi 1978 og stundaði framhaldsnám til mastersprófs í miðaldafomleifa- fræði við Lundúnaháskóla 1991-92. Að loknu stúdentsprófi vann Gunnlaugur m.a. við Lagarfoss- virkjun, var á síldveiðum í Norður- sjó, bræðslumaður hjá SR á Seyðis- firði og stundaði múrverk. Hann var kennari við Gagnfræða- skólann á Akranesi 1974-75, starfs- maður Safnastofnunar Austurlands á sumrin með námi 1975-78, minja- vörður Austurlands og forstöðu- maður Safnastofnunar Austurlands 1978-79, forstöðumaður Byggðasafns Akraness og nærsveita 1979-95, auk þess stundakennari við Brekkubæj- arskóla á Akranesi 1979-80 og í þjóð- háttafræði við Hl 1984-89 en hefur starfað sjálfstætt að rannsóknum og ritstörfum frá 1995. Hann vinnur nú að ritun á sögu Akraness. Gunnlaugur var formaður Al- þýðubandalags Fljótsdalshéraðs 1978-79, var í skipulagsnefnd Egils- staðahrepps 1978-89, formaður bygg- ingamefndar ME 1978-89, í stjóm Minjasafns Austurlands 1978-79, í endurskoðunarnefnd þjóðminjalaga 1981- 82, í stjórn Félags íslenskra safnamanna 1980-83, í stjórn Al- þýðubandalags Akraness 1980-84 og formaður 1980-82, í miðstjóm Al- þýðubandalagsins 1983-86, formaö- ur heilbrigðisnefndar Akraness 1982- 86 og í svæðisnefnd heilbrigð- iseftirlits í Vesturlandsumdæmi á sama tím, í stjórn Dvalarheimilisins Höfða 1982-90, í byggingarnefnd þjónustuibúða aldraðra 1983-87 og formaður 1986-87, formaður fjáröfl- unar- og framkvæmdanefndar Höfða 1986-90, varabæjarfulltrúi á Akranesi 1986-90, í stjórn Skaga- ferða hf. 1986-93, vþm. Alþýðu- bandalagsins í Vesturlandskjör- dæmi 1987-91, í ritnefnd um sögu Akraness 1987-91, í stjórn Norræna félagsins á Akranesi 1987-90, í stjórn Andakílsárvirkjunar 1988-92, í stjóm Þjóðhátíðarsjóðs 1989-93, formaður Þjóðminjaráðs 1990, í stjórn Endurbótasjóðs menningar- bygginga frá 1990, í yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis frá 1999 og í stjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs á Vesturlandi 1999-2000. Eftir Gunnalug hafa komið út rit- in Akranes, vaxandi bær á Vestur- landi, 1987, ásamt Friðþjófi Helga- syni; Æviskrá MA-stúdenta I-V, 1993-94; Lögfræðingatal 1736-1992, I-IV, 1993-94; Akraneskirkja 1896-1996, 1996; Viðskipta- og hag- fræðingatal I—III, 1997; Tannlækna- tal 1854-1997, 1997; Akranes. Saga og samtíð, ásamt Friðþjófi Helgasyni, 1998; Longætt I—III, 1998; Læknar á íslandi I—III, 2000; Guðfræð- ingatal 1847-2000, nú í prentun. Hann var ritstjóri Dög- unar 1979-87 og Vesturlands- blaðsins 1982-87. Fjölskylda Gunnlaugur kvæntist 23.8. 1975 Elísabetu Jóhannesdóttur, f. 18.3. 1951, kennara við Grundaskóla á Akranesi. Hún er dóttir Jóhannesar Jónssonar, f. 3.6. 1917, d. 18.8.1985, bakarameistara á Akranesi, og k.h., Guðborgar Elías- dóttur, f. 5.4.1920, húsmóður. Börn Gunnlaugs og Elísabetar eru Heimir Fannar, f. 18.5. 1972, kerfisfræðingur og ráðgjafi hjá In- formation Management i Reykjavík, búsettur á Akranesi, sambýliskona hans er Halldóra Andrea Ámadótt- ir, f. 25.1. 1973, lyfjatæknir, og er dóttir þeirra Aldís Ylfa, f. 10.2. 1996; Fanney Ýr, f. 29.10. 1985, grunn- skólanemi. Alsystir Gunnlaugs er Þuríður Bergljót, f. 13.7.1949, svæfmgahjúkr- unarfræðingur í Reykjavik. Hálfsystir Gunnlaugs, samfeðra, er Guðríður, f. 6.10. 1964, skólasál- fræðingur í Mosfellsbæ. Auk þess á hann fimm stjúpsystkini. Foreldrar Gunnlaugs voru Har- aldur Gunnlaugsson, f. 29.1. 1924, d. 15.8. 1986, bóndi á Hreiðarsstöðum í Fellahreppi, síðar bifvélavirki, ökukennari og skrifstofumaður á Egilsstöðum, og f.k.h., Fanney Einarsdóttir, f. 15.7. 1923, d. 30.1. 1956, húsfreyja. Stjúpmóðir Gunnlaugs og seinni kona Haralds er Gunnþóra Bjömsdóttir, f. 30.5.1923, nú búsett í Reykjavík. Fimmtug Ingunn Svavarsdóttir sálfræðingur og kennari í Öxarfirði Ingunn Stefanía Svavarsdóttir nemi, búsett að Vin í Öxarfirði, er fimmtug í dag. Starfsferill Ingunn fæddist á Egilsstöðum en ólst upp á Héraði. Hún lauk stúd- entsprófi frá MA 1971, stundaði nám í tölvufræðum við Roosevelt Uni- versity í Chicago 1972, lauk BA- prófi í sálar- og uppeldisfræði viö HÍ 1977, prófi í uppeldis- og kennslu- fræði við HÍ 1977, M.Sc.-prófi sálar- fræði við Gautaborgarháskóla 1981 og stundar nú nám í fagurlistum. Ingunn vann m.a. á barnageð- deild í Gautaborg með háskóla- námi, var sálfræðingur hjá Dagvist barna í Reykjavík 1981-84, heilsu- gæslusálfræðingur á Kópaskeri og Raufarhöfn 1984-88, stundakennari við Grunnskólann á Kópaskeri 1984-88 og var sveitarstjóri í Öxar- flrði 1988-98. Ingunn var stofnandi Ferðamála- samtaka við Öxarfjörð. Hún var vþm. með setu á Alþingi í hálfan mánuð. Hún sat í hreppsnefnd Presthólahrepps (síðar Öxarfjarðar- hrepps) og var oddviti 1988-91, sat í Héraðsnefnd Norður-Þingeyjar- sýslu, sat í stjórn Fjórðungssam- bands Norðlendinga og formaður 1990-92. Ingunn er áhugasöm um skógrækt, mannrækt, söng, þjóð- menningu, djass og gönguferðir. Fjölskylda Ingunn giftist 6.4. 1974 Sigurði Halldórssyni, f. 5.8. 1951, lækni. Hann er sonur Halldórs Sigurðsson- ar, f. 11.2. 1925, bónda á Valþjófs- stöðum, og k.h., Kristveigar Bjöms- dóttur, f. 2.1.1927, húsfreyju og safn- varðar. Böm Ingunnar og Sigurðar eru Kristbjörg, f. 11.10.1974, læknanemi en unnusti hennar er Gylfi örn Þormar læknanemi; Kristveig, f. 19.5. 1976, söngnemi; Halldór Svav- ar, f. 23.10.1982, menntaskóalnemi. Systkini Ingunnar eru Birna Kristín, f. 4.5. 1953, hjúkrunarfor- stjóri á Eir í Reykjavík; Erla Kol- brún, f. 30.4. 1961, dósent í hjúkrun- arfræði við HÍ: Alma Eir, f. 11.8. 1963, heimilislæknir í Reykjavik. Foreldrar Ingunnar eru Svavar Stefánsson, f. 16.9. 1926, fyrrv. mjólkurbússtjóri á Egilsstöðum, og Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir, f. 3.4. 1933, húsmóðir. Þau eru nú búsett í Reykjavík. Ingunn verður með hanastél með' listrænu ívafi í skólanum á Kópa- skeri laugard. 14.7. kl. 17.00-20.00. Fimmtugur Garöar Lúðvíksson framkvæmdastjóri í Reykjavík Garðar Lúðvíksson framkvæmdastjóri, Langholtsvegi 53, Reykja- vík, er fímmtugur í dag. Garðar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Miðstrætið i Þingholt- unum. Hann lauk prófi sem landbúnaðarvél- tæknifræðingur frá Norska landbúnaðarháskólanum i Ási 1976. Garðar var tækniráðunautur og sölumaður hjá Sölufélagi Garð- yrkjumanna 1976-85, framkvæmda- stjóri Sólarplasts hf. 1985-86, tækni- ráðunautur og sölumaður hjá Sölu- félagi Garðyrkjumanna 1986-91, var einn af stofnendum Frjós ehf. 1991 og er nú stjórnarformaður þar og framkvæmdastj ór i. Garðar hefur auk þess sinnt stundakennslu við Garðyrkjuskóla rikisins og hefur setið í stjórn Skóg- ræktarfélags Mosfellsbæjar í tíu ár. Fjölskylda Garðar kvæntist 19.6. 1976 Ólafiu Jónu Eiríksdóttur, f. 25.3. 1954, leik- skólakennara. Hún er dóttir Eiríks Jónssonar og Sigríðar G. Magnús- dóttur, fyrrv. bænda á Bálkastöðum í Hrútafirði, nú búsettra í Hveragerði. Böm Garðars og Ólafiu Jónu eru Nína Kristbjörg Hjaltadóttir, f. 29.9. 1976, B.Sc. frá Tækni- skóla íslands í vöra- stjórnun, sambýlismaður hennar er Kjartan Rún- arsson rafvirki; Hugrún Elfa Hjaltadóttir, f. 27.9. 1978, nemi við Háskólann í Reykjavík; Valdís Eva Hjaltadóttir, f. 30.12. 1981, nemi í Verslunarskóla ís- lands. Albróðir Garðars: Theódór Lúð- víksson, f. 23.1.1952, endurskoðandi hjá Sameinuðu Þjóðunum í Genf, kvæntur Elísabetu Jóhannsdóttur. Hálfsystkini Garðars eru Sigríður Einarsdóttir Laxness, f. 13.3. 1958, kennari; Halldór Einarsson Lax- ness, f. 18.9.1959, leikstjóri; Margrét Einarsdóttir Laxness, f. 29.12. 1961, myndlistarmaður; Einar Einarsson Laxness, f. 9.8. 1965, Foreldrar Garðars: Lúðvík Hjalta- son, f. 11.2. 1924, d. 7.7. 1953, Og Elsa Jóna Theódórsdóttir, f. 20.11. 1929, leikskólakennari, búsett í Reykja- vík. Ætt Elsa Jóna er dóttir Theodórs Jónssonar skipstjóra og Margrétar Gissurardóttur ljósmóður. Garðar tekur á móti gestum á Grand Hótel i Reykjavík í dag frá kl. 18.00. Merkir Islendingar Oll Kr. Sigurðsson, forstjóri OLÍS, fædd- ist í Reykjavík 23. janúar 1946, sonur Sigurðar Eyjólfssonar prentara og k.h., Ragnhildar Sigurjónsdóttur húsmóður. Hann lauk sveinsprófi í prentiðn 1964. Óli og Jóhannes í Bónusi voru bræðra- synir. Óli sinnti sölumennsku, eigin rekstri, var verslunarstjóri hjá SS og sölumaður hjá Hoffelli. Hann stofnaði heildverslunina Sund hf. 1983 og varð þá umsvifamikill innflytjandi á mat- vöru. Árið 1986 tók hann sína djörfustu ákvörðun, lagði allt sitt undir og festi kaup á OLÍS, Olíuverslun íslands hf., fyr- irtæki sem hafði verið að draga saman seglin og safna skuldum. Kaupin komu mjög á óvart og voru nefnd kaup aldarinnar. Nú tók Óli Kr, Sigurðsson við þrautin þyngri að rétta við hag þessa gamla fyrirtækis án þess að missa það út úr höndunum. Óla tókst á skömmum tíma að komu fyrirtækinu út úr alvarlegum skuldum, auka hlutafé þess með tengsl- um við Texaco í Danmörku og gera það að einu best rekna fyrirtæki landsins. Óli sat i stjórn HB & Co á Akranesi, Nýherja hf. og útgerðarfélagsins Eld- eyjar. Hann var varaformaður íþrótta- félagsins Þróttar um skeið og starfaði í Oddfellowreglunni. Óli í OLÍS var at- hafnaskáld í orðsins bestu merkingu. Er hann lést, langt fyrir aldur fram, 9. júlí 1992, naut hann almennrar virðingar sem yfirlætislaus en fádæma dugmikill, skipu- lagður og hugmyndarikur athafnamaður. Allt til alls ►I550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.