Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 Fréttir X>v Famkvæmdastjóri LÍÚ enn bjartsýnn á samninga án verkfalls: Bara spurning um vilja - enginn samningafundur haldinn hjá sáttasemjara í tæpan hálfan mánuð og verkfall nálgast DV. AKUREYRI:_____________________ „Við höfum ekki mætt á formleg- an fund hjá sáttasemjará siðan mið- vikudaginn 24. janúar en menn hafa hist aðeins óformlega til að ræða af- markað mál,“ segir Friðrik Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands islenskra útgerðar- manna, um stöðuna i kjarasamn- ingaviðræðum útvegsmanna og sjó- manna. Friðrik hefur verið manna bjartsýnastur um að deilduna megi leysa áður en til verkfalla kemur 15. mars og hann er það enn. „Þetta er bara spuming um vilja en ég ræð þessu ekki einn, það þarf tvo til. En það er engin spurning að það er hægt að ná saman ef vilji er fyrir hendi,“ segir Friðrik. Skýtur þá ekki skökku við að talsmenn sjó- manna segi útvegsmenn neita öllu sem frá þeim hef- ur komið til lausnar deil- unni. „Það er alveg fráleitt að segja þetta. Við skulum byrja á því að átta okkur á i hvaða kerfi við erum. Við erum í því kerfi að skipta á milli þvi sem til er og þá kemur að því á ákveðnum tímapunkti að það er komið að þeim mörkum hvað hvor hópurinn fær fyrir löngu. Hins vegar getum við búið til meiri peninga með betri búnaði og tækjum og þannig náum við að auka tekjur sjómanna enn meira þegar það gerist. En við vilj- um um leið fá hluta af þessum pen- ingum. Samt erum við líka að bjóða þeim núna að þeir fái meira. Við erum með þessi hluta- skipti, sem eru grundvall- aratriði, og menn verða bara að gera sér grein fyr- ir því að þeir geta ekki endað með 60% af kök- unni. Nú eru þeir með að meðaltali um 40% og al- veg upp í um 50%, stund- um reyndar meira, og ef þeir ætla sér það markmið í hverjum samningum að ná alltaf meiri hlutdeild þá verður ekki samið. Þar fyrir utan er margt hægt að gera.“ - Hafa verið einhverjar óformleg- ar þreifingar? „Já, það er alltaf einhverjar þreif- ingar. Við vorum t.d. í síðustu viku að fara yfir slysatryggingamálin en við lögðum til að farið yrði í þau mál, það þýðir ekki bara að gera kröfur óháð kostnaði og við vorum að fara yfir það. Þetta kostar fullt af peningum. Svo gengur okkur illa að taka á fiskverðsmálunum, við höf- um boðið þeim að taka á þessum lægstu verðum. Þar sem menn eru bæði með útgerð og vinnslu er þetta ekki spurning um fiskverð, þetta eru bara samningar um laun. Við erum með úrskurðamefnd ef menn ná ekki saman og t.d. á síðasta ári komu ekki nema 333-4 mál til nefndarinnar af öllum flotanum. Hvar er þessi óánægja?" spyrFrið- rik. -gk Friðrik Arngrímsson: Það er margt hægt að gera. DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Viö hús andanna Hálfdán er hér með Selárdal í baksýn. Skaut ókenni- legan ref DV, SUOUREYRI: Fyrir stuttu skaut Hálfdán Guð- röðarson ref sem kom honum und- arlega fyrir sjónir. Refurinn var miklu stærri og þyngri heldur en venjulegur refur, „á við vel alinn hund“, sagði Hálfdán, „allt að 6 kíló á þyngd“. Liturinn var líka sér- kennilegur. „Hann var dökkgrár og á lengstu hárum bryddaði á svört- um lit - afar fallegur feldur. Þetta er sennilega alirefur eða blendingur af villiref og aliref. Hins vegar eru engin refabú lengur á þessum slóð- um.“ Náttúrustofnun í Bolungarvík sendi refinn suður til athugunar en Hálfdán hefur ekki frétt frekar af málinu. Hálfdán er frá Kálfavík við Djúp. Hann var lengi vel á togurum sem gerðir voru út frá ísafirði. Eftir slys sem hann varð fyrir úti á sjó hætti hann sjómennsku. Nú býr Hálfdán á Suðureyri við Súganda- fjörð og leggur gjörva hönd á margt. Meðal annars sér hann um eyðingu á vargi í Súgandafirði, bæði flug- vargi og einnig leggur hann gildrur fyrir mink og skýtur ref. Þar að auki sér hann um eyðingu á varg- fugli á Flateyri. Hálfdán hefur komið sér upp að- stöðu á Seli í Súgandafirði, þar sem hann hefur nokkrar hænur og end- ur. Það var einmitt við Selið sem hann skaut refinn þar sem hann var á vappi við húsið sem gárungamir kalla „Hús andanna" eftir að Hálf- dán hóf búskap sinn þar. -VH u/v-iviiinu uruv Ku/nnniivoovjiN Rætt um mál málanna Hér er rætt um búskap, frá vinstri: Einar Gíslason, stórbóndi á Syöra-Skörðugiii, Þórey Jónsdóttir og hinn söngelski eiginmaður hennar, Jóhann Már Jóhannsson (bróðir Kristjáns), bændur í Keflavík, á tali við Magnús Jónsson, fyrrverandi skólastjóra á Hvanneyri. Skilningur á starfi bóndans að aukast - segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra Aukinn skilningur Guöni Ágústsson á fundi með skagfirskum bændum í síðustu viku. Hann segir að skilningur þéttbýlisbúa á mikilvægi landbúnaðar hafi aukist. DV, SKAGAFIRÐI: „Eg er að byrja hér i Skagafirði á fundaferð um landið þar sem ég vil hitta sem flesta bændur og áhuga- fólk um íslenskan landbún- að. Tilgangurinn er meðal annars að heyra hvað brennur á sveitafólki um þessar mundir. Einnig vil ég brýna íslenska bændur á hinu fjölþætta hlutverki landbúnaðarins og glæsileg- um tækifærum á mörgum fleiri sviðum en að fram- leiða mjólk og kjöt. Þá vil ég leggja áherslu á að bændur gangi vel um landið, taki þátt í verkefnum eins og feg- urri sveitir því bændur eru fyrst og fremst ræktunarmenn," sagði Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra að loknum fjölmennum bændafundi í Varmahlíð í Skaga- firði sl. fimmtudag. Guðni sagðist telja að nú ætti landbúnaðurinn talsverð sóknarfæri. Nefndi hann í því sambandi vaxandi neyslu á kjöti og mjólkur- vörum, enn fremur ferða- þjónustu, skógrækt og marg- þætt þjónustuverkefni. Hann sagðist jafnframt leggja áherslu á að sveitin geti hæglega verið bústaður fólks sem starfaði við annað en landbúnað. Tölvutækni, breiðband og intemetteng- ing gæfi margvíslega mögu- leika á þessu sviði. Ráðherrann sagðist finna aukinn skilning í þéttbýlinu fyrir starfi og hlutverki bóndans. Að hans mati stæðu neytendur í landinu nú með bændum og sú staðreynd gæfi þeim ýmis sóknarfæri til fram- tíðar. -ÖÞ Gestir frá Kanada í Hafnarfiröi: Áhugi á tæknisamskiptum Góðir gestir frá Cape Breton í Kanada heimsóttu Hafnarfjarðarkaup- stað í vikunni. Það voru þau John Morgan, borgarstjóri Cape Breton, Lisa MacKenzie frá Cape Breton Post og Jeffrey Mullen og Helen Graham Gromick frá Enterprise Cape Breton Corporation sem sóttu bæjaryfirvöld í Hafnarflrði heim. Haldinn var stuttur fundur í Hafn- arborg þar sem m.a. kom fram að miklir möguleikar eru á ýmsum sam- skiptum milli íslendinga og Kanada- manna. M.a. starfa um 5000 manns við upplýsingatækniiðnaðinn í Cape Breton og einnig er mikill áhugi þar- lendra á hátækniþekkingu og fram- leiðslu búnaðar fyrir fiskiðnað á ís- landi og vísindum i landbúnaði, svo eitthvað sé nefnt. Samhljómur var um flest það sem um var rætt á fundinum enda sagði John Morgan að margt væri líkt með íslandi og þessum hluta Kanada, bæði í mannlífi og landslagi. Þó vant- ar hraunið i Cape Breton. -DVÓ Við Kjarvalshraun Það þótti viö hæfí að taka mynd afgestum oggestgjöfum við hraunmynd eftir Kjar- val. Á myndinni eru f.v.: Jeffrey Mullen, Helen Graham Gromick, Lisa MacKenzie, Magnús Gunnarsson, John Morgan, Halldór Árnason og Árni Þór Hilmarsson. ttimslön: Gyifi Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.is Nú vil ég Ólafur Örn Haraldsson, odd- viti Framsóknar- flokksins í Reykja- vík, hefur nú stig- ið á stokk og til- kynnt að hann : vilji verða vara- formaður flokks- ins. Ólafur, sem ekki hefur alltaf gengið í takt við forustu flokksins, segir að höfuð- borgarbúar verði að koma meira að forustu flokksins og sjálfur hafi hann stutt Finn Ingólfsson í varaformannssætið á sínum tíma enda hafi Finnur þá verið nr. 1 í Reykjavík. Nú skipar Ólafur það sæti og vill því stuðning lægra settra við sig núna. Nokkuð óvænt hjá Ólafi, enda hafði Jónína Bjartmarz, sem tók sæti á Alþingi við brotthvarf Finns í Seðlabank- ann, fremur verið orðuð við vara- formannsstólinn en Ólafur Örn. Hitt er svo annað mál að framboð Guðna Ágústssonar ýtir þeim báðum út af sviðinu... Bölvað rusl Það fannst mörg- um það gott hjá Fjólu Runólfsdótt- ur, bónda í Land- sveit, að kaupa ruslkjöt frá Slátur- félagi Suðurlands í búð í Rangárvall- arsýslu og sýna það á bændafundi þar sem Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra var meðal fundar- manna. Fjóla hundskammaði menn fyrir að láta svona vöru frá sér og sýndi kjöttætlur í poka máli sínu til stuðnings og sagðist hún ekki myndu gefa hundum sínum og kött- um slíkt draslkjöt. Forstjóri SS var svo kallaður í fréttirnar daginn eftir og látinn biðjast afsökunar á drasl- kjötinu og landbúnaðarráðherra var ekki fagur á svipinn yfir þessum ruslmat. Feldi létt af ráðherra Annars er það að frétta af land- búnaðarráðherra að hann hefur ver- ið að ferðast um landið með mikla hirð með sér og haldið fundi með bændum. Þeir hafa sumir a.m.k. þótt þjóðlegir í meira lagi enda far- ið með kvæðabálka og fleira í þeim dúr á fundunum. Sennilega hefur Guðni Ágústsson ekki átt von á að helsta málið á fundunum yrði skammir út í hann vegna innflutn- ingsins á fósturvísunum úr kúm frá Noregi. Búist er við að kúabændur samþykki að fresta fósturvísunum bráðlega og verður þá feldi létt af ráðherranum og hann getur snúið sér af krafti í kosningabaráttu vegna varaformannsslags... Geir gagnrýnir Ekki ásættanlegt að komast bara í 16 liða úrslit - ekki geta til að fara lengra - lítið gerst á einu ári - ekki endalaust hægt að skýla sér bak við fjárskort - hefði viljað sjá æfingar sl. sumar - sorglegt að eng- ar framfarir hafi átt sér stað - skrýtið að velja ekki Gústaf og Halldór - markvissari undirbúning hefði þurft - tímaskortur ekki af- sökun - enginn heill heilsteyptur leikur - Þorbjöm hefði átt að nýta tímann betur - leita þarf að eftir- manni Þorbjörns. Ofanritað er úr viðtali við Geir Sveinsson, fyrr- um landsliðsþjálfara, sem birtist í DV sl. föstudag. Þessi orð segja allt sem segja þarf um skoðun lands- liðsþjálfarans fyrrverandi á undir- búningi og getu landsliðs okkar á HM í handbolta og þeir eru íjöl- margir í þjóðfélaginu sem eru miklu reiðari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.