Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 Skoðun DV Varstu ánægð/ur með úrslitin á HM í handbolta? Tinna Baldursdóttir nemi: Já, mjög ánægö meö aö Frakkar skyldu vinna. Islenska landsliöiö var svolítiö súrt. Tómas Zahneiser sölumaóur: Fylgdist ekki meö úrslitunum en Islendingar voru sorglegir. Guðmundur Jóhannsson sölumaður: Já, þetta var skemmtiteg keppni, ánægöur meö Frakka. íslendingar voru heldur slappir. Svavar Jóhannsson heildsali: Já, ég var alsæll aö Frakkar skyldu vinna. Hins vegar mjög óánægöur meö frammistööu Islendinga. Patrik Chiarolanzio heildsali: Já, ég var mjög ánægöur aö Svíar unnu ekki. íslendingar voru daprir og mættu vinna heimavinnuna betur. Guðrún Inga Grétarsdóttir sölumaður: Nei, ég fylgdist ekkert meö. Saltverksmiðjan á Reykjanesi. Marglr hugöust ávaxta sitt pund. Saltverksmiðjan á Reykjanesi - horfin hlutabréf Fyrir mörgum árum voru uppi háleitar hug- myndir um fram- leiðslu á salti á Reykjanesi og fleiri efnum, jafn- vel til manneldis. Stofnað var und- irbúningsfélag að framkvæmdinni. Margir hugðust ávaxta sitt pund og keyptu hlutabréf í félaginu. En málið átti eftir að fara öðruvísi og verða furðulegt í marga staði. Kom það best fram í orðum bresks rithöf- undar, John Samuelson, sem er í uppáhaldi hjá mér. Hann sagði eitt sinn: Vegurinn til helvítis er varð- aður góðum áformum. Já, góð voru áformin. Og í góðri trú lagði fólk sparifé sitt í þetta æv- intýri, líkt og kom fram hjá góðum dreng, er rakti sögu sína fyrir ekki ,Já, margt fer öðruvísi en œtlað er, og margar vonir hafa brostið þarna. Og enn spyrja margir sem lögðu fjármagn í undirbúnings- fyrirtœkið á Reykjanesi; hvar sé hlutaféð sem þeir lögðu í þennan vafasama „bisness““. löngu hér í þessum dálkum DV. Hvers á sá góði maður og fleiri slík- ir að gjalda? Mér er tjáð, að hann aðhyllist hugsjónir einkaframtaks- ins, hafi réttar trúarskoðanir, sé hlyntur vestrænni samvinnu, taki starf sitt alvarlega og inni það vel af hendi. - Það er þvi eins og blaut tuska í andlit hluthafa að hlutabréf- in skuli hafa verið afskrifuð, og er allt hið ljótasta mál. Blað Suðurnesjamanna, Víkur- fréttir, birti á sínum tíma lofsorð um þessa verksmiðju. Virt blað sem prentað er á dýran Kodak ljós- myndapappír og birtir reglulega pistla frá gömlum krötum og viðtöl við yfirmenn varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, svo og íslenska starfsmenn á vellinum, sem fengið hafa orður, oft fyrir litla hetjudáð, en er að mestu auglýsingar frá verslunum á Suðurnesjum er standa í hörðum slag við Bónus og Rúmfatalagerinn. Já, margt fer öðruvísi en ætlað er, og margar vonir hafa brostið þarna. Og enn spyrja margir sem lögðu fjármagn í undirbúningsfyrir- tækið á Reykjanesi; hvar sé hlutaféð sem þeir lögðu í þennan vafasama „bisness". Hér hlýtur að standa eft- ir ábyrgðarhlutur hins opinbera (iðnaðaráðuneytisins) á hlutabréf- um sem gefin voru út til handhafa á löglegan hátt. Hverjir velja Reykjavíkurflugvöll? Óskar Sigurðsson skrifar: í DV sl. fostudag var birt skoðana- könnun um Reykjavíkurflugvöll. Mér er ekki alls kostar sama hvernig svona skoðanakönnun er fram- kvæmd og í þessu tilviki finnst mér það alrangt að gera könnun um mannvirki í Reykjavík (hvort það eigi að vera eða fjarlægja) með þátt- töku allra landsmanna. Hér um að ræða mannvirki sem höfuðborgarbú- ar og aðrir á höfuðborgarsvæðinu öllu eiga einir að fá að ráða. Ekki all- ir landsmenn. Ekkert frekar en að við, höfuð- borgarbúar, fáum að kjósa um hvort gera eigi jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Og ekki vorum við „Hér er komið upp heitasta málið sem lengi hefur verið deilt um. Miklu heitara en öryrkjadómurinn svonefndi. Fróðlegt verður að sjá hvaða afstöðu fulltrúar borgar- stjórnar taka. “ Reykvíkingar beðnir um álit á tilurð Vestfjarðargangna. En í könnun DV kemur þó fram, að af þeim höfuðborgarbúum sem tóku þátt í könnuninni, voru aðeins um 35% sem vildu halda Reykjavik- urflugvelli. Aðrir vildu flytja flugið, ýmist til Keflavíkur, Lönguskerja eða á Vatnsleysuströndina. Ibúar lands- byggðar og höfuðborgarsvæðis eru því engan veginn sammála um að halda Reykjavíkurflugvelli þar sem hann er. Hér er komið upp heitasta málið sem lengi hefur verið deilt um. Miklu heitara en öryrkjadómurinn svo- nefndi. Fróðlegt verður að sjá hvaða afstöðu fulltrúar borgarstjórnar taka. Aðeins einn borgarfulltrúi, úr minni- hlutanum, hefur nú snúist á sveif með andstæðingum flugvallar í Vatnsmýrinni. Hann og aðrir sem taka sömu afstöðu eiga, að mínu mati, afturkvæmt í sín sæti í borgar- stjórn. Við bíðum eftir afstöðu fleiri borgarstjórnarmanna. - Enginn þeirra getur verið hlutlaus, nema fórna trausti sínu meðal borgarbúa. Dagfari Varaformannsæðið Dagfari vill árétta að hann ætlar ekki að sækjast eftir varaformannssæti Framsóknar- flokksins. Sigriður Sigurjónsdóttir á Neðra-Meðalholti í Meðallagssveit vakti gríðarlega athygli sveit- unga sinna þegar hún á þorrablóti Ungmenna- félagsins Guðmundar lýsti því yfir að hún sæktist ekki eftir varaformannssæti Fram- sóknarflokksins. Skipaði hún sér þar með á fá- mennan bekk og var ekki boðið upp í dans fyrr en undir þrjú um nóttina. Dansaði hún þá við móður sína þar til hún hné niður í yfir- liði. Össur á Holti var þá víðs fjarri, ofurölvi undir borði að laga bindishnút sinn. Gamla konan er þó í lagi en vonast eftir nokkru sam- úðarfylgi í baráttunni um varaformannssætið. Dagfari vill árétta að hann ætlar ekki aö sækjast eftir varaformannssæti Framsóknar- flokksins. Margir myndu halda að fólk yrði fegið því að losna við samkeppni við Sigríði Sigurjónsdóttur i varaformannskjörinu en annað hefur komið á daginn. Bóndi hennar, Friöjón Helgason, hefur skilið við hana að sæng en reyndar ekki borði. Heimsóknir i Neðra-Meðalholti er undir meðal- lagi og pósturinn kemur einungis tvisvar í viku. Sigríður ætlar sér þó að standa við stóru orðin Sigriður Sigurjónsdóttir er ein þeirra sem er af fágætri tegund kvenna sem gengst upp í því að eltast ekki við nýjungar. Sigríður keypti ekki fótanuddtæki þrátt fyrir mikinn ágang, hún horflr ekki á Evróvisjón og hlaupahjólið sem hún fékk i afmælisgjöf síðasta haust ryk- fellur uppi í skáp. Það má því sjá að Sigríður er kona mikils viljastyrks og því aldrei að vita nema hún geti með árangri spymt við fótum gagnvart varaformannsæðinu. Dagfari vill árétta að hann ætlar ekki að sækjast eftir varaformannssæti Framsóknar- flokksins. Tiktúrur Sigríðar Sigurjónsdóttur má rekja til föður hennar og uppeldisaðferða hans. Hann var maður ópólitískur og vildi að menn framkvæmdu það sem þeim kæmi til hugar og þá um leið og það kæmi þeim tfl hugar. Hann hafði slæma reynslu af því að liggja undir feldi. Hann varð einu sinni fyrir því óhappi að kýr fót- brotnaði og lenti ofan á honum og hann lá undir henni heila nótt. Hann dó nokkru síðar en sæk- ist samt eftir varaformannsembættinu. Dagfari vill að endingu árétta að hann ætlar ekki að sækjast eftir varaformannssæti Fram- sóknarflokksins. _ p , VAAtUft- Signður ætlar ser þo að standa við stóru orðin frá þorrablótinu og feta þannig í fótspor Alfreðs.net sem er fullkomlega áhugalaus. frá þorrablótinu og feta þannig í fótspor Al- freðs.net sem er fullkomlega áhugalaus. Dagfari vill árétta að hann ætlar ekki að sækj- ast eftir varaformannssæti Framsóknarflokksins. Islandsbanki-FBA Eykur orösporiö á erlendri grund. Bankaþekking til útflutnings? Gunnar Ólafsson skrifar: í morgunútvarpi Rásar 2 sl. fóstu- dag heyrði ég furðulega frétt um banka i Danmörku sem íslenskur banki, Íslandsbanki-FBA á stærstan hluta í. Banki þessi hefur það fyrir reglu að krefja viðskiptavini sína um, að mig minnir 20 þús. kr. til þess að geta hafiðviðskipti sín við bankann. Finnst Dönum þetta vera irieð ólíkind- um, að vonum. Hvar skyldi þetta tíðkast í nálægum löndum. Er íslands- banki-FBA kannski kominn með sér- þekkingu til útflutnings? En hvers vegna prófaði hann sig ekki áfram á heimavelli fyrst? Mér þykir íslands- banki-FBA hér vera kominn á hála braut í viðskiptum sínum, þótt á er- lendum vettvangi sé, og ekki til að bæta orðsporið. Hefði stutt Ingibjörgu Arnþðr Hálfdánarson skrifar: Ég get ekki, frek- ar en Gunnar Bend- er, í DV sl. fimmtu- dag, látið það þegj- andi fram hjá mér fara bullið í Karli Ormssyni í blaðinu nokkru fyrr, þar sem hann reynir að gera lítið úr Össuri Skarphéðinssyni formanni Samfylk- ingarinnar. Ég hef fulla trú á þvi, að Össur hefði ekki stigið til hliðar og látið frú Ingibjörgu Pálmadóttur heil- brigðisráðherra skella í gólfið, hefði hún fallið í áttina til hans. Össur hefði tekið henni opnum örmum eins og hann gerði við mig, þegar ég sem vara- formaður í veiðiklúbbi SVR leitaði til hans um að halda erindi um ísaldar- urriðann í Þingvallavatni. Slíkt ljúf- menni er hann. Ossur Skarp- héðinsson alþingismaður Heföi ekki stigiö til hliðar heföi ráöherra falliö í áttina til hans. Burt meö verðbætur Reynir hringdi: Ég er sammála Jafet S. Ólafssyni sem svarar spurningu DV sl. fimmtu- dag um hvort verðbótaþátturinn sé nauðsynlegur í íslensku lánakerfi, þegar hann mælir með því að verð- bótaþátturinn hverfi. Ég held aö flest- ir muni taka undir með honum. Menn tala hér um háa vexti, en gleyma því sem mest um munar, t.d. á langtíma- lánum, nefnilega verðbótaþættinum sem er í raun tvöfaldur, bæði á vexti og á höfuðstól. Þetta fyrirbæri tíðkast hvergi í heiminum, að mér er sagt. Sannleikurinn er sá, að okkur er að verða ólift með núgildandi lánakerfi, með ofurvexti og tilbúna verðbóta- þætti þar ofan á. Sakamenn verndaðir? Þorvaldur hringdi: Þetta nýjasta mál hjá íslandspósti, vegna ráðningar starfsmanna þar, kemur manni óneitanlega spánskt fyr- ir. Að ekki megi fá upplýsingar frá lög- reglunni um fólk sem hugsanlega teng- ist ólöglegum vímuefnum! Pósturinn er jú ekki eins og hver önnur stofnun, þarna er unnið með sendingar til landsins og frá því, og þar hefur oft verið reynt að smygla inn vímuefnum og öðru sem þeim tengjast. Það er því ekkert óeðlilegt að yfirmenn hjá Póst- inum reyni að afla sér upplýsinga um verðandi starfsmenn. En mér finnst lögreglan túlka málið eins og um verndun sakamanna sé að tefla. Auð- vitað eiga gögn yflr fyrrum sakamenn að liggja á lausu, ef svo ber undir. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.ís Eða sent bréf til: Lesendasí&a DV, Þverholti 11,105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.