Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Side 14
+ r 14 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer. Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Refsað fyrir hagsýni Undarleg tregöa hefur lengi verið hér á landi gegn ol- íugjaldi af hverjum seldum lítra dísilolíu á bíla líkt og sjálfsagt þykir í verðuppbyggingu hvers lítra af bensíni. Þess í stað er eigendum dísilbíla, atvinnubíla jafnt sem einkabíla, gert að greiða þungaskatt sérstaklega. Það kerfi er þungt í vöfum, hvetur ekki til sparnaðar og er tímaskekkja á tímum aukinnar umhverfisverndar. Út- lendingar sem hingað koma á dísilbílum undrast þetta enda reglan sú meðal nágranna okkar að skattlagning ríkisins, vegna eldsneytis á bíla, greiðist strax við elds- neytiskaupin, hvort heldur er um að ræða bensín eða dísiloliu. Eigendur dísilbíla hafa lengi óskað eftir breytingum á hinu úrelta þungaskattskerfi. Það hefur gengið erfiðlega. Þó voru lög um olíugjald sett árið 1995 en gildistöku þeirra frestað í tvígang. Árið 1998 felldi Alþingi lögin síð- an úr gildi. Nú er málið enn til skoðunar en á liðnu ári skipaði Geir H. Haarde fjármálaráðherra nefnd til að at- huga upptöku olíugjalds. Búist er við því að nefndin ljúki störfum og skili ráðherra niðurstöðum í næsta mánuði. Fram kom í blaðagrein Eyrúnar Ingadóttur, fram- kvæmdastjóra Trausta, félags sendibílstjóra, í liðinni viku að atvinnubílstjórar í landinu binda miklar vonir við að í kjölfar nefndarvinmmnar fylgi nýtt frumvarp um olíugjald sem síðan verði að lögum. Formaðurinn nefhir þann galla þungaskattskerfisins að það hvetur ekki til sparnaðar. í því kerfi ræðst gjald af því hve mikið er ekið en með olíugjaldi ræðst gjaldið af því hve mikilli oliu er eytt. Kerfisbreyting hefði í for með sér hvata til endurnýj- unar gamals bílaflota. Bílar með nýjum gerðum dísilvéla eru ekki aðeins sparneytnari heldur menga þeir minna. Hreinni útblástur bíla hlýtur að vera keppikefli stjórn- valda enda hefur athygli þeirra verið vakin á því að áætl- að er að samgöngutæki orsaki um þriðjimg útblásturs- mengunar hér á landi. Verði ekkert að gert mun það hlut- fall aukast á komandi árum. Olíugjald, sem hvati til end- urnýjunar, í stað þungaskatts skiptir því miklu sé litið lengra fram á veginn. Formaður Trausta bendir einnig á þá kosti oliugjalds- ins að eftirlit verður auðveldara auk þess hagræðis sem felst í að greiða gjaldið jafnharðan í stað þungaskattsins sem greiddur er eftir á og þá í stórum fjárhæðum. Breyting frá þungaskattskerfinu í olíugjald snertir ekki aðeins atvinnubíla, þ.e leigubíla, sendibíla, vöru- og flutn- ingabíla og rútur. Hún snertir val og notkun einkabíla ekki síður. í núverandi kerfi borgar sig ekki að kaupa dísilbíla til einkanota nema um sé að ræða mikinn árleg- an akstur eða um sé að ræða stóra og þunga jeppa. í þungaskattskerfinu er enginn hvati til eldsneytissparnað- ar og því er það ósanngjarnt gagnvart litlum og meðal- stórum dísilknúnum fjölskyldubílum. Sá sem vill kaupa sér smábíl með nýrri gerð dísilvélar, sem jafnvel eyðir ekki nema 3 lítrum á hundrað ekna kílómetra, getur það ekki. Honum er hreinlega refsað fyrir hagsýnina. Þótt munurinn sé ekki eins mikill á stærri fólksbílum og minni jeppum gildir þó í meginatriðum hið sama hvað þá varðar. Atvinnubílstjórar, jafnt sem almennir bíleigendur, sjá galla þungaskattskerfisins. Samt hefur ekki tekist að fá breytingu á því úrelta kerfi. Því verður fróðlegt að sjá niðurstöðu nefndar fjármálaráðherra í næsta mánuði og hvemig ríkisstjórn og þing bregðast við nefndarálitinu. Jónas Haraldsson ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 DV ísland munaðarlaust og eitt Ég get ekki orða bundist þótt menn taki kannski minna mark á mér en á þeirri lausmælgi og vaðli sem hefur vaðið uppi hjá menntafólki, stjórnmála- mönnum, hæstaréttardóm- urum og lágt settum lög- fræðingum, svo fáir séu nefndir af andans karl- mönnum sem opna munn samtímans. Kjaftakerlingar virðast hafa misst málið eða horfið úr sögunni eftir að konur urðu í meirihluta við nám í Háskól- anum og sinna nú æðstu stjómstörf- um. - Finnið þið eftir það mun á því hvað heimssýn kynjanna hefur víkk- að og innkaupataskan orðið heimilis- vænni; eða á árangurinn eftir að koma álíka seint í ljós og áður? Nú ætla ég ekki að fara sífellt út í aðra sálma og tína upp smáatriði eins og nýkominn úr sveitinni, held- ur víkja að kjama májsins og segja af hverju ég liðka málbeinið. Datt í hug Matthías Sunnudaginn 21. janúar gerðist fá- heyrt í blaðamennsku og nútímasögu Guðbergur Bergsson rithöfundur okkar. Daginn áður hafði George W. Bush tekið við sem forseti Bandaríkjanna, en þess heimssögulega atburðar var aðeins getið neðst á forsíðu Morgunblaðsins, með lítilli fyrirsögn og mynd, en fyrir ofan stóð stórletrað með hópljósmynd, að Gloria Arroyo hefði _____ tekið við embætti for- seta Filippseyja. Hvort embættiö er merki- legra í okkar augum? Hefði slíkt gerst fyrir fáum áratug- um í fréttaþjónustu Morgun- blaðsins? Mér datt í hug að Matthías Jóhannessen væri farinn frá blaðinu, en Árni Bergmann og Silja Aðalsteins- dóttir hefðu geispað golu Þjóð- viljans á þann ritstjórnarlega snjalla hátt, að hún hefði breyst i hressandi blæ nýs dag- blaðs: Morgun-Viljans í hráka- legu þíðunni, með vissum hálkublettum þó, sem ríkir hér eftir fall Sovétríkjanna og sxáiTrn Arroyo forseti efti friðsamlega uppreia iStOsRÍA tsft 4m«\\ ss w xtwafcoiéíí JfaMpfcR KsswÆk, «r ðS á)r* Háa «8* wtatt«för «t»W+ m&m gagM$ 5$r sfátiBsiafÁ krtéxt Bush tekur við embætti forseta V# T „Sunnudaginti 21. janúar gerðist fáheyrt í blaðamennsku og nútímasögu okkar. Daginn áður hafði George W. Bush tekið við sem forseti Bandarikj- anna, en þess heimssögulega atburðar var aðeins getið neðst á forsíðu Morg- unblaðsins, með lítilli fyrirsögn og mynd, en fyrir ofan stóð stórletrað með hópljósmynd, að Gloria Arroyo hefði tekið við embætti forseta Filippseyja. “ minnkanndi mikilvægi okkar fyrir „morðingjana í Wall Street". „Ekkert fyrir okkur“ Ég fór á Netið en fékk ekki staðfestingu um að skötu- hjúin hefðu skellt Matthíasi. Svo forsíða Morgunblaðsins 21. janúar árið 2001 verður lýsandi dæmi um vaxandi einangrun og það stjómmála- lega tómarúm á sviði alþjóða- mála sem við siglum inn í og æpir stöðugt hærra í þorps- legri umfjöllun sérfræðinga í fjölmiðlum, blöðum og viku- ritum. Með sama áframhaldi verð- um við brátt á ný einangruð smáþjóð með kjaftinn opinn í kotinu, en lokaðan á alþjóða- vettvangi sem er „ekkert fyr- ir okkur“. Því Mogginn virt- ist segja: Ef Bandaríkin hafa ekki áhuga á okkur fáum við ekki áhuga á öðru en áður bandarískum leppríkjum, nú kvenvæddum á meðal ey- þjóða. Guðbergur Bergsson Hvernig er svifrykið flokkað? Tiltekinn hluti mengunar sem kallast svifryk hefur uppgötvast í Reykjavík og valdið nokkurri umræðu. Þarna kemur margt til en nagladekk hafa fengið hvað mest á baukinn, þau eru sögð eiga sök á verulegum hluta af öllu svifryki. Þetta kom fram i könnun sem gerð var um þetta efni. Það sem ég hef misst af í þessari um- ræðu er hvemig mælt var hvaða agnir í þessu svífandi dusti spmttu af nöglum í dekkjum. Maður getur ímyndað sér að agnir af stáli í svifryki séu af dekkjanöglum og líka hlýtur að mega leiða af líkum að ef naglar í dekkjum geri gagn hljóti þeir að grípa í götuna svo upp tætist eitt- hvað af efni hennar, líklega einkum tjöruefnum og sandi. - En er ekki eðli- legt að álíta að fleira tæti upp göturnar en naglamir? Einkum hefur verið talað um harð- komadekk sem valmöguleika á móti nagladekkjum. Þau eru sögð gefa gott grip í vetrarfæri. Þau draga heiti sitt af því að í slitflöt þeirra er blandað hörð- um kornum úr kísilefnum sem grípa vel í, sumir segja fast að því eins vel og naglarnir. Ef hægt er að segja að tiltekið hlutfall „En er ekki eðlilegt að álíta að fleira tœti upp göturnar en naglarnir? Einkum hefur verið talað um harðkornadekk sem valmöguleika á móti nagladekkjum. Þau eru sögð gefa gott grip í vetrarfæri. “ Með og á móti Fólk vill eiga kost á reyklausum svæöum svifryks sé af liöglum í dekkj- um og því sem þeir rífa upp af götunum, er þá ekki líka hægt að segja okkur hve mikið hlut- fall svifryks eru tætlur af harð- komunum eða þeim parti af slitlagi götunnar sem harð- komin hljóta að tæta upp? Vetrardekk notuð allan ársins hring Að minnsta kosti þrír stórir dekkjaframleiðendur, Continental, Michellin og ......... Bridgestone, framleiða vetrardekk sem ekki eru til neglingar en duga vel i vetr- arfæri. Galdur þeirra felst í mjúkri efnablöndu dekksins þó þau séu ekki með harðkom, svo og í gripmiklu og smáflipuðu munstri. Ein dekkin af þess- um em svokölluð loftbóludekk en í þeim er slitlagið alsett smáum loftból- um sem opnast jafnt og þétt eftir því sem dekkið slitnar, með sífellt nýjar og beittar brúnir sem eiga að gefa gott grip. Það sem burtu fer verður væntan- lega svifryk - eða hvað? Bragð í naglasúpuna Ef hætta er á svifryki af ónegldum vetrardekkjum umfram hefðbundin sumardekk, eins og ástæða virðist til að ætla, eru þau að því leyti varasamari en nagladekkin að verulegur fjöldi venju- legra bíleigenda ómakar sig ekki við að taka þau undan yfir sumarið heldur jaskar þeim út allan ársins hring með tilheyrandi svifryki, um leið og þau veröa lélegri til notkunar næsta vetur og skapa því í sjálfu sér hættu í umferðinni. í þróunarborginni Reykjavík er si- fellt verið að moka einhverju upp hér og flytja það þangað. Vélar og bílar sem Sigurður Hreiðar bílablaöamaöur i Samkvæmt könn- un Pricewaterhou- I seCoopers vilja 82% fullorðinna, 15-89 ára, eiga þess kost að geta setið á reyklausum svæðum á veitinga- og kafFi- húsum, þar af 64% reykinga- manna. Tillögurnar í laga- frumvarpinu er því miður lítil breyting frá þeim lögum sem nú gilda. Langflestir staðir hafa brotið lögin frá 1984. Ég er hlynntur því að veitinga- og kafFi- hús geti boðið upp á afdrep fyrir þá sem vilja reykja svo fremi að megin- veitingarýmið sé reyklaust. Ég þekki engan reykingamann sem vill skaða aðra með eigin ósóma og hvers vegna Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjöri Tóbaksvarnar- nefndar. ætti að vera leyfilegt (lög- legt) að eitra fyrir öðrum á veitingastöðum þegar það búið er banna reykingar nánast allsstaðar þar sem fólk kemur saman? Nægir þar að nefna i flugvélum, rútum, kvikmyndahúsum, opinberum byggingum og á vinnustöðum. Telja menn kannski að sígarettur, sem eru reyktar á veitingahús- um, innihaldi færri en 40 krabbameinsvaldandi efni? Og hvers á starfsfólk veitingastaða að gjalda? Á Islandi deyja árlega 30-50 manns af völdum óbeinna reykinga. Ætli það sé á kostnað FRELSIS reykinga- mannsins? jggHg^B Ég er andvigur I tillögu heilbrigðis- ráðherra um að r skylda alla veit- ingamenn til að hafa meirihluta veitingarým- is síns reyklausan, óháð því hvemig aðstæður eru á hverj- um stað. Tóbak er löglegt í landinu og það er ljóst að fjöl- margir vilja reykja á veit- ingahúsum. Það er jafh ljóst að tóbaksreykur truflar marga aðra gesti. Leiðin til að koma til móts við sjónarmið beggja hópanna er ekki sú að ríkið setji strangari lög heldur verða veitingamennirnir sjálfir að fmna út hvað viðskiptavinimir vilja. Skynsamur veitingamaður kemur til Birgir Ármannsson, lögfræöingur. MiUa við þetta notast eru á ferli um allar götur, misdrullug tæki upp úr framkvæmdun- um, sandur og mold og grjót vaðast út um götumar og sitja þar eftir, þoma, brotna og molna upp og verða svifryk. Hlössin á vörubílun- um oftast opin og óvarin og af þeim þyrlast - hvað? - svifryk? Næstum örugglega það flngerðasta sem fyrir- Fmnst á hlassinu. I vetrarríkinu Reykjavík eru saltbOarnir komnir af stað nánast um leið og spáð er frosti og þegar snjór kemur er saltað rækilega í hann. Svo þornar á, en er saltið þá horFið? Eða gef- ur það bragð í naglasúpuna? Engin vísindi? Þrjú undanfarin ár hafði ég glugga á götuhæð sem vissi út að umferðargötu. Ég sá ekki árstíðamun á þeim sandi (grófa og sýnilega partinum af svifryki) sem ég fékk þar inn í gluggakistu. Þar gaf sumar vetrinum ekkert eftir. Nú má vel vera að nagladekkin eigi mesta einstaka uppistöðu í svifrykinu. Ég hef engin vísindi við að styðjast um að svo sé ekki. Heldur ekki að svo sé, þrátt fyrir fuilyröingar þar um, að mér virðist vegna þess að í því er ákveðið hlutfall af þeim efnum sem Fmnast í götum og á. En eigum við, þjóðþegnar, bíleigendur og rykþegar, ekki heimtingu á aö fá upplýst með vísindum hvemig hægt er að sortéra í svifrykinu það sem örugglega kemur frá nagladekkjum svo því sé örugglega ekki ruglaö saman við hitt? Þangað til hlýtur að vera leyfilegt að efast. Sigurður Hreiðar igar á veitingastöðum með lögum? Tóbak er löglegt í landinu móts við óskir viðskiptavina sinna og það hafa sumir gert með því að banna reykingar að eigin frumkvæði. Það er þeim að sjálfsögðu frjálst. Við verðum líka að muna að eng- inn skyldar fólk til að sækja einhverja tiltekna veitinga- staði. Ef fólki ofbýður tóbaks- reykur á tilteknum veitinga- stöðum er rökrétt að það fari ----- í staðinn á veitingastaði þar sem reykingar eru minni eða jafnvel ekki leyfðar. Þeir sem vilja vera í tó- baksreyk geta sótt hina staðina. Aðal- atriðið er að valfrelsi ríki og hið op- inbera sé ekki að setja reglur um hluti sem veitingamenn og viðskipta- vinir geta leyst hjálparlaust. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um breytingar á lögum um tóbaksvarnir sem heröa enn á lögunum, m.a. meö því aö banna reykingar á veitinga- stööum nema á afmörkuöum svæöum og meö ákveðnum skilyröum um loftræstingu. Seðlabankinn talar! „Mikill viðskiptahalli nú er að nokkru leyti ráðgáta í ljósi mikils af- gangs á rikissjóði. Orsaka hans er lík- lega fyrst og fremst að leita í þeim þáttum sem kynt hafa undir vexti eft- irspumar og dregið úr sparnaðar- hneigð. Óhófleg útlánaaukning sem fjármögnuð var að verulegu leyti með erlendu lánsfé á þar stóran hlut að máli... Verðbólga á seinni hluta ársins var minni en flestir bjuggust við“ seg- ir Seðlabankinn. Úr Degi 3. febrúar. íslenskukennsla í ógöngum? „Er það ekki íhug- unarefni hvort ís- lenskukennsla i skóla- keríinu er í réttu horfi þegar í spuminga- keppni framhaldsskól- anna kemur í ljós að enginn þekkir Gunn- arshólma (náttúrulýsing kvæðisins tal- in úr Norður-Múlasýslu!), enginn veit hver orti Ferðalok og enginn þekkir eitt kunnasta kvæði Gríms Thomsen um Goðmund á Glæsivöllum? Það hlýtur að vera unnendum íslenskra bókmennta og menningararfsins nokk- urt umhugsunarefni." Eiöur Guðnason sendiherra. í Rabbi Lesbókar Mbl. 3. febrúar. Við sjálfa okkur að sakast „Ég held að það sé ekki sjálfshól fram- sóknarmanna þegar ég fullyrði að flokkurinn hafi unnið frábært verk i ríkissfjóm bæði á þessu kjörtímabili og því síðasta. Ég hef alltaf haft þá skýringu á dræmu fylgi í skoðanakönnunum að okkur sé ekki lagið að koma þessum verkum nægi- lega til skila til almennings ... í þess- um efnum er ekki við neina að sakast nema sjálfa okkur.“ Ólafur Örn Haraldsson alþm. i viötali í Mbl. 4. febrúar. Bæjarstjóra þakkað „Bæjarstjóm Seitjarnarness getur verið hreykin af stöðu sveitarfélagsins. Tímaritið Visbending gefur Seltjarnar- nesbæ fyrstu einkunn í árlegri úttekt sinni á stöðu sveitarfélaga ... Það er kannski aldrei meiri þörf á traustari fjármálastjórnun en í miklu góðæri. Nú- verandi bæjarstjóm hefur sýnt mikla árvekni og ábyrgð við fjármálastjórnun sveitarfélagsins. Að öllum líkindum ber að þakka Sigurgeiri Sigurðssyni bæjar- stjóra sérstaklega fyrir trausta stjórnun á sveitarfélaginu gegnum árin.“ 1. tbl. Nes-frétta. I 27 Skoðun Hæstiréttur og Alþingi Vera má að borið sé í bakkafullan læk að vekja enn einu sinni máls á bréfaskiptum forsætisnefndar Al- þingis og forseta Hæstaréttar vegna öryrkjadómsins frá 19. desember sl. En umræða undangenginna daga gefur tilefni til að líta yfir farinn veg. Tilefnlö í bréFi oddvita stjórnarandstöð- unnar til forseta Alþingis var því haldið fram að með öryrkjafrum- varpinu væri verið að hrinda dómi Hæstaréttar sem byggður væri á ákvæðum stjórnarskrárinnar, það innihéldi lagaákvæði sem brytu í bága við stjómarskrá og því bæri að vísa því frá áöur en til umræðu kæmi. Forsætisnefnd Alþingis brást við með bréfi til forseta Hæstaréttar. Þar sagði meðal ann- ars þetta: „í frumvarpinu er ráðgert að sem fyrr geti orðið skerðing á fjárhæð tekjutryggingar örorkulífeyrisþega í hjúskap vegna tekjuöflunar maka hans. Við meðferð frumvarpsins á Alþingi hefur veriö deilt um, hvort skilja eigi umræddan dóm Hæsta- réttar svo að með honum hafi verið slegið fóstu, að almennt sé andstætt stjómarskránni að kveöa í lögum á um slíka tekjutengingu. Vegna þessa fer forsætisnefnd Alþingis þess á leit við forseta Hæstaréttar að hann láti nefndinni í té svar við því hvort dómurinn hafi falið slíka afstöðu I sér.“ í svari forseta Hæsta- réttar sagði m.a.: „í dóm- inum var aðeins tekin af- staða til þess hvort slík tekjutenging eins og nú er mælt fyrir um í lögum sé andstæð stjómarskránni. Svo var talið vera. Dóm- urinn felur ekki í sér af- stöðu til frekari álitaefna en hér um ræöir. í því ljósi verður að svara spumingu yðar neitandi." Rök meö því aö leita efnislegs svars Átti forsætisnefnd að spyrja? Þegar það er met- ið, verður að hafa í huga að hér er forsætisnefnd Alþingis að spyrja vegna fullyrðinga um að dómur- inn feli í sér algert bann við tekjutengingu eins og að framan er lýst; önnur skipan fari væntanlega í bága við jafnréttisákvæði stjórnarskrár og rétt til lágmarkslifeyris. Gera verður ráð fyrir að þessi afstaða stjómarandstöð- unnar hafi ekki verið áróð- ursupphlaup, heldur hafi hún átt stoð i sannfær- ingu. Þegar þetta er haft í huga má segja að forsætis- nefnd þingsins hafi verið nokkur vandi á höndum og viðbrögðin skiljanleg. Rök gegn efnislegu svari Átti forseti Hæstaréttar að svara efnislega? Þegar . því er svarað ber að gefa gaum: í fyrsta lagi á dómur að skýra sig sjálfur eins og margsinnis hefur verið bent á. Skýringar eftir upp- kvaðningu kynnu að mótast af um- ræðum sem þá hefðu orðið, en ekki verið hafðar í huga við samningu dóms. í öðru lagi kynni svar forseta Hæstaréttar að vera túlkað á þá leið að Hæstiréttur skuldaði forsætis- nefnd Alþingis skýringar á gerðum sínum og það valda efasemdum um sjálfstæði réttarins. í þriðja lagi liggur fyrir að unnt er að höfða mál til að hnekkja stjórnskipulegu gildi núgildandi laga. í slíku máli yrði öryrkjadóm- urinn ef tii vill túlkaður rúmt sem fordæmi og þá kynni að reyna á vanhæFi þess eða þeirra dómara sem skýrt hefðu öryrkjadóminn, Siguröur Líndal prófessor þessu ekki í dómi með formlegum aðdraganda skv. réttarfars- lögum, heldur vegna fyrir- spurnar. Þegar litið er á hið stutta og hnitmiðaða svar forseta Hæstaréttar verður ekk+ séð að með þvi sé stefnt í neitt óefni. En þrátt fyrir það tel ég að réttara hefði verið að svara bréfinu ekki efnislega. Með efnislegu svari var verið að ýta und- ir efasemdir af því tagi sem hér hafa verið raktar og tilefni tæp- lega nógu ríkt, enda lágu fyrir um- sagnir margra lögfræðinga, nálega allar á einn veg: að frumvarpið stæðist. Tímamótabréf’? Ég lét þá skoðun í ljós í sjónvarps- þætti 24. janúar sl. að ef til vill mörkuðu bréfaskipti þessi tímamót; yrðu tilefni þess að stofnaður yrði stjórnlagadómstóll. Réttilega má benda á að slíkt sé of mikill umbún- aður í ekki stærra þjóðfélagi en hinu íslenska. En byrja mætti með nefnd eða stofnun sem yrði Alþingi til ráðuneytis í þessum efnum eins og reyndar oft hefur verið lagt til. Rökstudd álit hennar ættu að minnsta kosti að stuðla að málefna- legri umfjöllum um álitamál sem lúta að stjórnskipan. Sigurður Líndal „Gera verður ráð fyrir að þessi afstaða stjórnarandstöðunnar hafi ekki verið áróðursupphlaup, heldur hafi hún átt stoð í sannfœringu. Þegar þetta er haft í huga má segja að forsætis- nefnd þingsins hafi verið nokkur vandi á höndum og viðbrögðin* skiljanleg. “ - Frá umrœðum á Alþingi um öryrkjadóminn. 4+

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.