Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Page 20
-f 32 Tilvera ÞRIDJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 I>V Naomi í mann- réttindabaráttu i Breska ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur ákveðið að berjast fyrir auknum réttindum ríka og fræga fólksins og betri meðferð á því í fjölmiðlum. Ástæðan ku vera frétt blaðsins Mirror á dögunum um að Naomi sæti daglega fundi fólks sem hætt er að neyta ólöglegra fikniefna. Fyrirsætan hefur átt í vandræðum með bæði dóp og brennivín í gegn um tíðina. „Þetta snýst ekki bara um mig, þetta snýst um alla í þessari stöðu,“ segir Naomi í viðtali við Mirror. Þar viðurkennir hún að fréttin á dögunum hafl komið henni í upp- nám, þó ekki nema í fimm mínútur. Naomi hefur áður varað við þeim hættum sem ungum stúlkum í fyrir- •í sætustörfum stafar af eiturlyfja- notkun. Madonna veld- ur vonbrigðum Það eru um það bil 2 vikur síðan Britney Spears tilkynnti að hún myndi syngja dúett með Madonnu, sjálfri poppdrottningunni. Orðróm- ur um samvinnu þeirra hafði verið á kreiki í nokkra mánuði og á fréttamannafundi í tengslum við Rokk í Ríó hátíðina staðfesti Britn- ey orðróminn. Nú segir Britney að t ekkert verði af dúettinum. Hennar fólk sé þó í sambandi við Madonnu. Talsmenn poppdrottningarinnar staðfesta að rætt hafi verið um sam- vinnu en segja að ekkert hafi komið út úr viðræðunum. Britney hefur oft lýst því yfir að Madonna sé fyrirmynd hennar. Leo kastar kúk í ljósmyndarana Hrægammaljósmyndarar fengu heldur kaldar kveöjur frá hjartaknúsaranum Leonardo DiCaprio í Róm um daginn. Rétt væri að segja að skítalykt hefði ver- . ið af þeim því kappinn henti í þá hrossataði. Það var það sem hendi var næst þegar ljósmyndurunum tókst að ganga gjörsamlega fram af leikaranum heimsfræga sem er við störf í Róm um þessar mundir. Ljós- myndaramir munu hafa verið held- ur aðgangsharðir við þrjá slasaða aukaleikara í myndinni. Reyndar ■* svo, að það tafði fyrir sjúkraflutn- ingamönnum. Stútungur á Flateyri: Ekkert glas brotnaði Lýður Árnason, læknir og stuð- bolti á Flateyri, var í sviðsljósinu á Stútungi á Flateyri síðastliðið laugardagskvöld. Stútungur er þorrablót Flateyringa. Nú er þorri blótaður í íþróttahúsinu þar sem er gott rými fyrir sístækkandi Stútunga. Fjölmenntu Flateyring- ar að vanda, bæöi heimamenn og brottfluttir. Rúmlega tvö hundruð manns voru mætt til blóts. I skemmtinefnd var valinn hópur, Hálfdán Kristjánsson, formaður karla, og Guðrún Kristjánsdóttir, formaður kvenna. Meðal annarra skemmtinefndarmanna má nefna Lýð lækni og Ólaf Ragnarsson, poppara og skipstjóra, samherja Lýðs í fjörinu. Meðal atriða á Stútungi var söng- ur Lýðs læknis og móður hans, sem er danskrar ættar, en þau sungu lagið hugljúfa, Lille sommerfugl. Minnti ómþýður söngur þeirra mæðgina á beykiskóga og bleika akra i landi danskra. Skyndilega hóf Lýður söng á íslenska tungu. Breyttist sláttur tónlistarinnar við það, varð allur þyngri og norrænni. í stað þess að syngja um fiðrildi og huggulegheit í dönskum skógum söng Lýður læknir nú íslenskum þorramat lof, hrútspungum og súr- um hval. Var greinilegt að móðir læknisins treysti sér ekki til að taka undir þennan söng og dró sig í hlé. Veislugestir tóku hins vegar undir í viðlaginu af hjartans lyst. Eftir borðhald og skemmtidag- skrá var stiginn dans fram eftir nóttu. Ber veislugestum saman um að Stútungur í ár hafi verið hin dýr- legasta skemmtan sem fór vel fram í alla staði. Kristján Einarsson, einn nefndarmanna, sagði að ekki hefði brotnað svo mikið sem eitt glas. Glaöir aö lokinni góöri dagskrá Lýöur læknir, Óli popp og tveir einlægir aödáendur, þær Ágústa Guðmundsdóttir og Joianta Tomaszewska. Margt var fagurra fjóöa á Stútungi nú sem fyrr Steinunn Einarsdóttir og Guö- björg Konráösdóttir skemmtu sér greinilega vel. Lýöur og mamma Lýður læknir og móöir hans syngja um fiðrildi og huggulegheit í dönskum laufskógum. Aldursforsetinn María Jóhannsdóttir, sem er aldurs- forseti Flateyringa, 94 ára aö aldri, var heiöursgestur á Stútungi. Meö henni á mynd er dóttir hennar, Jó- hanna Guörún Kristjánsdóttir. w 3V-MYNDIR VALDIMAR HREIÐARSSON Tenórarnir fjórir slógu í gegn Ólafur Ragnarsson poppari, Kristján Rögnvaldur Einarsson, Hálfdan Kristjáns- son og Lýöur Árnason læknir sungu fyrir Stútungsgesti og ætlaði fagnaðarlát- unum aldrei aö linna. r Stemning á Stútungi Gríöarleg stemning var á Stútingi á laugardags kvöld. Þar koma kynslóðirnar saman og skemmta sér. Soknarpresturinn og prófasturinn Guösfólkiö skemmti sér hiö besta á Stútungi. Hér eru Óli Aadneby, séra Stína Gísla- dóttir, Holti í Önundarfiröi, og séra Agnes M. Sigurðardóttir, prófastur og sóknarprestur í Bolungarvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.