Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
x>v
7
Fréttir
Garðbæingar bjóða út einkarekinn leikskóla:
Bæjarfulltrúinn sam-
þykkti en sat svo hjá
- einkarekstur eykur fjölbreytni, segir bæjarstjórinn
Garðabær auglýsti um helgina eftir
tilboðum í rekstur nýs 92 bama leik-
skóla sem verið er að byggja i Ása-
hverfi. Ailur minnihluti bæjarstjómar
Garðabæjar sat hjá við atkvæða-
greiðslu um málið á bæjarstjómarfundi
í síðustu viku.
Að sögn Ásdísar Höllu Bragadóttur,
bæjarstjóra Garðabæjar, er upphaf
málsins það að leikskólanefnd bæjarins
ályktaði að bæjaryflrvöld skyldu bjóða
út rekstur leikskóla og sagði hún marg-
vísleg rök hafa verið færð fyrir því.
„Kostimir eru flölmargir, meðal ann-
ars þeir að verið er að auka flölbreytni
í starfsemi leikskóla í Garðabæ og gefa
fagfólki sem hefur áhuga á að koma
meira að rekstrinum tækifæri til að
gera það. Við viljum láta á það reyna
hvort ekki sé fagfólk sem hefur áhuga á
að axla meiri ábyrgð í rekstri og koma
að starfsemi svona leikskóla, á þeim
forsendum að sjálfsögðu að farið verði
eftir gildandi aðalnámskrá leikskóla og
lögum og reglugerðum sem eru um
starfsemi leikskóla,“ sagði Ásdís Halla.
„Þeir sem nota þjónustuna munu að
sjálfsögðu hafa sama rétt og aðrir sem
nota þjónustu leikskóla sem Garðabær
rekirn núna og til dæmis má nefna að
gjaldskrá þessa leikskóla verður sú
sama og hjá hinum leikskólunum."
Vill ekki útboð
Útboðið var samþykkt samhljóða á
bæjarráðsfundi í síðustu viku en á bæj-
arstjómarfundi síðastliðinn fimmtudag
sátu allir fulltrúar minnihlutans hjá.
Sigurður Björgvinsson, fulltrúi Garða-
bæjarlistans, greiddi atkvæði með
þessu á bæjarráösfundi en sat hjá á bæj-
arstjómarfundinum. í samtali við DV
sagði Sigurður ástæðuna vera misskiln-
ing þar sem á fyrri fundinum taldi
hann sig vera að greiða atkvæði með
því að senda ákvörðunina til bæjar-
stjómar.
„Ég er að hugsa til lengri tima. Þeg-
ar að því kemur að einhver hluti leik-
skólans verði gerður að skyldu þá hef
ég ekki áhuga á því að kennsla sé boð-
in út,“ sagði Sigurður. „Við erum nú
samt alltaf að hugsa um að spara fyrir
bæjarbúa og það getur vel verið að ein-
hver spamaður komi út úr þessu en
þegar til lengri tíma er litið þá er ég
ekkert viss um að það verði.“
Á sunnudag var einkarekinn leik-
skóli fyrir 80 böm vígður að Háholti 17
í Hafnarfirði. Eigandi skólans og rekstr-
araðili hússins er Nýsir hf. en Hafnar-
flarðarkaupstaður leigir húsið með lóð
og búnaði í 25 ár. -SMK
Siglfirðingar leita að lækni
pv. siglufirði: I 1 gengi að fá nýjan lækni
..Okkur hefur ekki til starfa. Við heilbrigð-
enn tekist að finna isstofnunina eru tvö
lækm sem vill nv"Kl stn',"loil'11 lækna. Til
hingað í bæinn en við viðbótar kemur Guðjón
munum leita áfram, IHH2|HH&S!w9j!Í Baldursson læknir og
þetta hlýtur að hafast á dvelur í flóra og hálfan
endanum," sagði Þórar- mánuð á ári í Siglu-
inn Gunnarsson, fram- Hús heilbrigðisstofnunar firöi. Andrés Magnús-
kvæmdastjóri Heilbrigð- Erfiðlega gengur að fylla aðra son yfirlæknir hefur
isstofnunarinnar á stöðu læknis við stofnunina verið einn í Siglufirði
Siglufirði, þegar hann og leita menn logandi Ijósi að siðan í byrjun desem-
var spurður um hvernig góðum lækni. ber því þá fór læknir-
inn sem með honum var í veikinda-
leyfi og sá hætti síðan störfum i byrj-
un janúar. Þórarinn framkvæmda-
stjóri segir að undanfarið hafi hann
fengið lækna að sem verið hafa viku
og viku í senn en það sé að sjálfsögðu
aðeins skammtímalausn. Hann segir
að Guðjón komi nú í byrjun febrúar
og verði væntanlega í tvo mánuði
samfleytt og vonast til að á þeim tíma
verði Siglfirðingar búnir að fmna
lækni sem vill flytjast búferlum til
þeirra. -ÖÞ
Vígsla leikskóla
Einkarekinn leikskóli var vígður í Hafnarfirði á sunnudag. Leikskólinn og
rekstraraöili hússins er Nýsir hf. en Hafnarfjarðarkaupstaður leigir húsið með
lóð og búnaði í 25 ár. Garðabær hefur nú boöiö út umsjón og rekstur leik
skóla sem opna skal í sumar.
...og fyrstu verðlaun
"ALLRA FLOKKA"
órið 2001 fær...
|
Breska tímaritið „Off Road
& 4 Wheel Drive", nóvember
2000, þar sem allir jepplingar
og jeppar voru prófaðir.
„ALLIR FLOKKAR"
Bflar sem efstir urðu í
sínum flokkum:
I.Suzuki Jimn'
Dísiljeppar
Mitsubishi Fájero Shogun Dl-D
Ralljeppar
Ford Ranger Double Cab
Lffstfll
Suzuki Jimny
Lúxus
Jeep Gr. Cherokeg V8 lim. edh.
Stæni jeppar
Land Rover Discovery V8
Minni jeppar
Mrtsubtshi Rajeto Pinin Fahna GLS
SUZUKl JHVITMY
í umsögn dómnefndar segir m.a.:
„Frábært verd, frábær hönnun og frábærir aksturseiginleikar."
„Jimny SoftTop er með litla, kraftmikla vél og sérlega gott fjórhjóladrifskerfi sem er
auðtengt og með möguleika á lágri gírskiptingu þannig að hann kemst leiðar sinnar
við allar aðstæður." VERÐ: 1.490.000,-
JANÚAR
TILBOÐ!
Sjálfskiptan Jimnv á
verði beinskipts ef þú
segir okkur hvar þú
sást þetta tilboð.
(Verð sjálfskiptingar:
130.000 kr.).
SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Borgarnes: Bílasala Vesturlands, slmi 437 15 77. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95.
Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 22 30. Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, slmi 453 66 70. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bllasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, slmi 471 30 05.