Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 DV 9 Fréttir Samherji stuðlar að öflugu atvinnulífi í Grindavík: Met á met ofan - hjá Vilhelm Þorsteinssyni EA Aflahæsta skipið á loðnuvertíðinni. gar BM Komdu með bílinn -við græjum hann Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík: Áframhald á skjálft- um í Vatnajökli DV, DALVÍK: Samkvæmt veðurspá Veður- klúbbsins á Dalbæ er ekki mikilla breytinga að vænta veðurfarslega á næstunni. Allílestir klúbbfélagar vilja halda sig við að þetta verði svipað áfram og það snjói ekki mik- ið, gæti samt orðið kaldara heldur en verið hefur. Klúbbfélaga hefur dreymt góða drauma sem benda til góðs veðurs. Sumum finnst að þetta góða veður og þessi hlýindi séu lognið á undan storminum, en sjáum nú til. Nokkr- ir klúbbfélagar voru sammála Páli Bergþórssyni er hann spáði því að næstu 4-5 árin verði veðrið gott og hlýtt, og vilja þeir meina að við séum að ganga inn í einhvern kafla sem sé í betri kantinum, þó svo að inn á milli komi kaflar sem minni okkur á hvar við eigum heima. Veðurklúbbsmeðlimum þykir lík- legt að ef hann snjói eitthvað þá verði það ekki fyrr en í mars, eða þá um eða upp úr 23. febrúar á nýju tungli (góutungl). Kannski er það tímapunkturinn sem sleða- og skíðamenn biða eftir, en aðrir vilja ekki heyra minnst á. Við viljum minnast á hvassviðri sem líklegt er að gangi yfir landið í febrúar og viljum við gefa upp tvær dagsetningar, 8.-9. febrúar eða 21.-23. febrúar, en við veðjum á þá fyrri. Meiri líkur eru á að það verði án snjókomu, en þetta er nú bara spá. Oft er talað um að eftir því sem viðrar á Pétursmessu 22. febrúar muni viðra í 40 daga á eftir. Klúbbfélagar telja líklegt að það verði áframhald á skjálftum í Vatnajökli og kannski einhver stærri en var helgina 27.-29. janúar. Pálsmessa 25. janúar spáði illa fyrir árið. Við mælum með því að fólk muni eftir veðrinu fóstudaginn 2. febrúar (kyndilmessu) samkvæmt vísunni: Ef í heiði sólin sést / á sjálfa kyndilmessu / snjóa vænta máttu mest / maður upp frá þessu. Það gekk sem betur fer ekki eftir. Og enn og aftur skal tekið fram að spár Veðurklúbbsins á Dalbæ gilda eingöngu um Norðurland, nema annað sé tekið fram. -hiá Almannavarnanefndir á höfuðborgarsvæðinu: Vilji fyrir sameiningu Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í siðustu viku að leggja til við bæjarstjóm að hún tæki jákvætt í hugmyndir um sam- einingu almannavarnanefnda á höf- uðborgarsvæðinu. Formaður al- mannavamanefndar Hafnarfjarðar- svæðis, sem Garðabær á aðild að, hefur ásamt sýslumanni átt viðræð- ur við formann Almannavarna- nefndar Kópavogs og sýslumanninn í Kópavogi. Formenn þessara nefnda fóru síð- an í sameiningu á fund almanna- varnanefndar Kjósarhrepps, Mos- fellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarn- arness. í bréfi almannavamanefnd- ar Hafnarfjarðarsvæðis til bæjar- ráðs kemur fram að almennur vilji virðist vera til þess að setja á stofn eina sameiginlega almannavarna- nefnd höfuðborgarsvæðisins. Öll sveitarfélögin sem fyrr um ræðir hafa tekið jákvætt í þessar hugmyndir. -DVÓ Loðnuvertíðin: Örn KE er aflahæstur DV, AKUREYRI:_____________ Nótaskipin Örk KE frá Keflavík og Víkingur AK frá Akranesi eru langaflahæstu skipin á loðnuvertíð- inni. Örn er með 18.218 tonn og Vik- ingur með 17.457 tonn. í næstu sætum koma Grindvík- ingur GK með 12.582 tonn, Sigurður VE 11.2263 tonn, Júpiter ÞH 11.109 tonn, Súlan EA 9.553 tonn, Birtingur NK 9.110 tonn, Börkur NK 9.039 tonn, Hólmaborg SU 8.648 tonn og Jón Kjartansson NK 8.386 tonn. -gk Samþykkt aö sameina veiturnar DV, SAUÐÁRKRÓKI: I sveitarstjórn Skagafjarðar hefur verið samþykkt að rafveita, hitaveita og vatnsveita verði sameinaðar í eitt fyrirtæki. Sameiningin á að eiga sér stað 1. júní. Með henni er stefnt að því að ná fram eins mikilli hagræð- ingu í rekstri og kostur er, bæði hvað varðar mannahald, húsnæðismál og annan rekstrarkostnað. ÞÁ Líttu við íglæsilegri hljómtækjaverslun okkar og upplifðu stemmninguna B R Æ Ð U R N Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is DV, GRINDAVÍK: Mikilvægi dýpkunar hafnarinnar í Grindavík er enn að sanna sig því nú í janúar hefur Vilhelm Þor- steinsson EA tvívegis slegið það aflamet sem landað hefur verið upp úr einu skipi. Fyrst kom hann með rúm 2000 tonn og svo gær með um 2500 tonn sem er líklega mesti afli upp úr einu skipi á Vesturlandi. Á síðasta ári var landað hjá Fiski- mjöli og lýsi 93 þúsund tonnum af hráefni til verksmiðjunnar sem er 10 þúsund tonnum meira en á síð- asta ári. Eru allar líkur á því að það met verði slegið á þessu ári ef fram heldur sem horflr. Talið er að Vil- helm geti borið alls 2800 tonn og er þá alveg á mörkunum að hann geti athafnað sig í höfninni og verður það ekki gert nema við bestu að- stæður, í blíðviðri og stórstreymi, því mönnum þykir nógu tæpt siglt, en síðast þurfti Vilhelm að bíða í 12 tima eftir að komast út vegna þess að of hvasst var. Óskar Ævarsson, rekstrarstjóri hjá Fiskimjöli og lýsi, sagði að það væri strembið að taka á móti Vil- helm þegar svo litlu má muna en það væri mikil bót fyrir verksmiðj- una hafa skip með svo mikla burð- argetu því yfirleitt þyrfti að sigla langt með aflann. Óskar sagði það vera mjög jákvætt fyrir verksmiðj- una að fá svona öflugt skip og núna myndi svo Þorsteinn EA bætast við en hann er nýkominn úr lengingu og ber nú um 2000 tonn. Miklar framkvæmdir Miklar framkvæmdir og endur- bætur hafa staðið yfir í verksmiðj- unni undanfarið og nú er nýlokið Setjum tækið i bílinn þér að kostnaðar/ausu Aflaskip Áhöfnin á Vilhelm Þorsteinssyni sló eigiö löndunarmet í gær. Verð frá 19.900,- við að leggja mikla og volduga röra- lögn frá löndunarbryggju að vigtar- húsi og sagði Óskar að núna væri allt að fara á fullt með að undirbúa loðnufrystingu en töluverð óvissa er varöandi hve fljótt verður hægt að hefja frystingu úr þessari óvæntu loðnugöngu. Þegar síðast fréttist var of mikil áta í loðnunni en komin ágæt hrognafylling. Óhætt er að segja að með yfirtöku Fiskimjöls og lýsis á Samherja, eins og Grindvík- ingar orða það, hafi atvinnulíf eflst sínum tíma að innan árs yrði öll í Grindavík. Það er þvert á spár starfsemi F&L farin úr bænum. svartsýnustu manna sem fullyrtu á -ÞGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.