Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 I>V Söruh minnst Mynd af Söruh umkringd leikföng- um. Hvarf hennar vakti mikinn óhug um allt Bretland. Ákærður fyrir morðið á Söruh Fjörutíu og tveggja ára vélvirki frá Littlehampton í Sussex var í gær ákærður fyrir morðið á Söruh Payne, átta ára breskri telpu sem rænt var skammt frá húsi afa síns og ömmu 1. júlí síðastliöinn. Hinn ákærði, Roy Whiting, hafði tvisvar áður verið handtekinn vegna hvarfs litlu stúlkunnar en var sleppt aftur í bæði skiptin án þess að vera kærður. Lík telpunnar fannst nakið og hálfgrafið á akri í um 20 km fjarlægð frá húsi afans og ömmunnar tveimur vikum eftir að hún hvarf. Lögreglan telur að hún hafi verið kyrkt. Sarah hafði verið að leik með systkinum sínum og var á leið heim þegar henni var rænt. Rússland: 160 látnir af völdum kulda Um 160 manns hafa látist í vetrar- hörkunum i Rússlandi að undan- fornu. Kuldakastið hefur varað í Rússlandi í þrjá mánuði og hefur frostið víða farið niður i 50 gráður austan Úralfjalla. Samtímis hefur orkukreppan verið sú versta frá lok- um seinni heimsstyrjaldarinnar. Orka er framleidd en flyst ekki vegna lélegra leiðslna. í bænum Artjom, þar sem um 40 þúsund búa, fengu menn loks nóg og lokuðu þjóðveginum til Vladivostok í mót- mælaskyni. íbúarnir höfðu ekki fengið heitt vatn síðan í maí. Fugla- og dýralíf hefur beðið mik- inn skaða vegna kuldanna. í Mongól- íu frusu 600 þúsund kindur í hel. & Dómi mótmælt Líbíumenn reyndu í gær að ráöast inn í breska sendiráöiö í Trípólí. Mótmæli vegna Lockerbie-dóms Lögreglan í Trípólí í Líbíu beitti í gær táragasi gegn æstum mann- fjölda sem reyndi að ráðast inn í breska sendiráðið. Þúsundir manna tóku þátt 1 mótmælagöngu í Trípólí í gær vegna dómsins yfir Líbíu- manninnum Megrahi. Skoskir dóm- arar dæmdu hann í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa komið fyrir sprengju um borð í farþegaþotu Pan Americ- an flugfélagsins. Þotan hrapaði yfir Lockerbie í Skotlandi 1988 með þeim afleiðingum að 270 létu lífið. Hægrisinninn Ariel Sharon næsti forsætisráðherra ísraels: Skorar á Palest- ínumenn að semja Hægrisinninn Ariel Sharon sigr- aði Ehud Barak, fráfarandi forsætis- ráðherra, með miklum yfirburðum i forsætisráðherrakosningunum í Isr- ael í gær. Friðarferlið í Mið-Austur- löndum er í miklu uppnámi af þeim sökum, enda fyrirlíta arabar Shar- on. Sharon hvatti hins vegar Palest- ínumenn í sigurræðu sinni til að binda enda á fjögurra mánaða upp- reisn sina og semja við hann um „raunhæfan frið“. Vill þjóðstjórn Sharon, sem er orðinn 72 ára, hvatti enn fremur andstæðinga sina á ísraelska þinginu til að taka þátt í þjóðstjórn. Þegar nær öll atkvæði höfðu ver- iö talin hafði Sharon fengið 62,5 pró- sent en Barak aðeins 37,4 prósent. Barak sagði að í kosningunum, sem haldnar voru í skugga ofbeldis- verka á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna, stæði valið milli stríðs og friðar. Barak viðurkenndi ósigur sinn í gærkvöld og lét af embætti leiðtoga Verkamannaflokksins. Hann sagði einnig að hann ætlaði að segja af sér þingmennsku eftir þennan mesta ósigur sem sést hefur í kosningum um forsætisráðherra í ísrael. Ósigurinn var því meiri niður- læging þar sem ekki er liðinn nema 21 mánuður síðan Barak sjálfur sigraði forvera sinn í embætti, hægrisinnann Benjamin Netan- yahu, með yfirburðum. „Ég hvet nágranna okkar, Palest- ínumenn, til að láta af ofbeldisverk- um og taka upp viðræður um frið- samlega lausn deilna okkar," sagði Sharon á fundi kátra stuðnings- manna sinna sem púuðu þegar hann tók sér nafn Palestínumanna í munn. Arafat virðir úrslitin Yasser Arafat, forseti Palestínu- manna, sagði að hann myndi virða niðurstöðu kosninganna og að hann vonaðist til að friðarferlið myndi halda áfram. Sharon hefur þó neitað að taka í höndina á Arafat og sagt að friðarviðræðum verði ekki hald- ið áfram fyrr en átökunum linni. Aðrir leiðtogar Palestínumanna sögðu að sigur hershöfðingjans fyrr- verandi væri mikið áfall fyrir friðarumleitanir. „Áform Sharons leiða til styrjald- ar og til fleiri ólöglegra landnema- byggða og afstaða hans til Palestínu- manna ber keim kynþáttahaturs. Stefna hans mun ganga af friðarferl- inu dauðu,“ sagði Yasser Abed Rabbo, upplýsingaráðherra Palest- ínumanna. Varfærin viöbrögö Viðbrögð við sigri Sharons er- lendis voru varfærin en jafnframt gætti reiði meðal arabaþjóða sem minnast blóðugrar innrásar ísra- elska hersins i Líbanon árið 1982 sem Sharon stjómaði og hafði þær afleiðingar að kristnir bandamenn ísraela í Líbanon myrtu mikinn fjölda palestinskra flóttamanna. George W. Bush Bandaríkjafor- seti talaði við Sharon í síma í fimm mínútur og óskaði honum til ham- ingju með sigurinn. Bush sagði að bandarísk stjórnvöld myndu vinna með Sharon að friðarmálum. Sharon fagnar sigri Ariel Sharon, leiötogi hins hægrisinnaöa Likud-bandalags í ísrael, veifar til stuöningsmanna sinna eftir aö Ijóst varö aö hann sigraöi Ehud Barak, fráfarandi forsætisráöherra, meö miklum yfirburöum í kosningunum um forsætisráö- herraembættiö sem haldnar voru í gær. Kjörsókn var ekki nema 62 prósent sem þykir lítiö í ísrael. Poul Nyrup Rasmussen afdráttarlaus: Danski ríkisstyrkurinn burt kjósi Færeyingar sjálfstæði Danski ríkisstyrkurinn verður tekinn af Færeyingum kjósi þeir að verða sjálfstæðir, eins og land- stjórnin hefur uppi áætlanir um. Ríkisstyrkurinn, sem nemur um tíu milljörðum íslenskra króna á ári, verður tekinn af á fjórum árum. Þetta sagði Poul Nyrup Rasmus- sen, forsætisráðherra Danmerkur, eftir fund með Færeyjanefnd danska þingsins i gær. Færeyingar hafa boðað til þjóðar- atkvæðagreiðslu um sjálfstæðis- áform landstjórnarinnar þann 26. maí í vor. Þeir vilja að ríkisstyrkur- inn verði afnuminn á allt að ellefu ára aðlögunartímabili. Mikill meirihluti dönsku stjórn- málaflokkanna í Færeyjanefndinni studdi forsætisráðherrann. Danska þingið mun skýra afstöðu sína frek- Færeyjaskelfir Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráöherra Danmerkur, er sakaöur um aö reyna aö hræöa Færeyinga meö yfirlýsingum sínum um ríkisstyrkinn. ar í mars eða apríl eftir að það hef- ur tekið Færeyjamálið á dagskrá. „Ég er alveg miður mín,“ var það fyrsta sem Anfinn Kallsberg. lög- maður Færeyja, sagði eftir yfirlýs- ingu Pouls Nyrups í gær. Þá var lögmaðurinn ekki í vafa um hver tilgangur yfirlýsingar danska forsætisráðherrans væri: „Að hræða Færeyinga og fá þá til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni,“ sagði Kallsberg og líkti stöð- unni nú við þá sem kom upp við fyrstu þjóðaratkvæðagreiðsluna í Færeyjum um sjálfstæði á árinu 1946. „Þá var þjóðaratkvæðagreiðsl- an einnig sett þannig upp að Færey- ingar gátu valið á milli danskrar til- lögu eða sjálfstæðis. Og tilgangur- inn var þá sem nú að reyna að hræða okkur,“ sagði Kallsberg. Óeirðir í indónesíu Indóneslu. Goúíar^ flokksins. Um 50 þúsund stuðnings- menn Wahids forseta efndu til göngu til stuðnings honum í bænum Surabaya. Golkarflokkurinn studdi í síðustu viku ávítur á hendur Wa- hid vegna meintrar spillingar. Ráðherra fannst látinn Fyrrverandi innanríkisráðherra Júgóslavíu, Zoran Sokolovic, fannst látinn í bíl sínum í gærkvöld. Sam- kvæmt fréttum var hann með byssu í hendi. Með matarleifarnar heim Leiguflugvél frá Danmörku neyddist til að taka meö sér matar- leifar heim eftir flugferð til Dóminíska lýðveldisins í síðustu viku. Yfirvöld þar óttuðust kúariðusmit. Skotið á diplómata Albanskir skæruliðar í suður- hluta Serbíu skutu í gær að flutn- ingalest með bandarískum stjórnar- erindrekum og yfirmönnum friðar- gæslusveita. Alnæmisfaraldur Um 30 prósent samkynhneigðra og tvíkynhneigðra í sex stórborgum í Bandaríkjunum eru með alnæmi. Nefnd skipar nefnd Nefndin, sem skipuð var til að ákveða hvar setja ætti upp gosbrunn til minningar um Díönu prinsessu, skipaði í gær aðra nefnd. Bróðir prinsessunnar, Spencer jarl, er sagður óánægður með seinaganginn. Kouchner á ráðherrastól Bernamd Kouchner, sem var yfir- maður stjórnar Sameinuðu þjóð- anna í Kosovo, var í gær skipaður heilbrigðisráðherra Frakklands. Myndband í baráttuna Nýtt myndband, sem sýnir fyrrver- andi njósnaforingj- ann Montesinos greiða fyrrverandi flokksfélaga Alans Garcia, fyrrverandi Perúforseta, mútur hefur hleypt illu blóði í kosningabaráttuna. Garcia sækist eftir endurkjöri og er mynd- bandið mikið áfall fyrir hann í kosningabaráttunni. Kanína fitusogin Bresk kanína, sem var svo feit að hún gat ekki þvegið sér og varla hreyft sig og alls ekki notið ástar- lífs, var skorin upp og fitan fjar- lægð. Látinna minnst í Bhuj Minningarathöfn var haldin í borginni Bhuj á Indlandi í morgun um fórnarlömb jarðskjálftans. Nokkrar verslanir voru opnaðar í morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.