Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 11
11
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
DV
Utlönd
Fyrrverandi yfirmaður franska olíufyrirtækisins Elf:
Tuggði farsímakortið
sitt við handtökuna
Alfred Sirven, fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri ríkisolíufyrirtækisins Elf
í Frakklandi, át farsímakortið sitt
við handtökuna á Filippseyjum á
föstudaginn 1 síðustu viku. „Hann
tuggði það eins og það væri
tyggigúmmí og gleypti það síðan,“
segir James Tosoc, filippseyskur
leyniþjónustumaður, sem var við-
staddur handtöku Sirvens.
Kortið hefði getað veitt frönskum
rannsóknardómurum mikilvægar
upplýsingar um símtöl Sirvens og
jafnvel afhjúpað hvar allar milljón-
irnar eru sem fullyrt er að hann
hafi komið undan þegar hann var
einn yfirmanna Elf. Sirven er sak-
aður um að hafa sett meirihlutann
af þeim 2,5 milljörðum íslenskra
króna, sem hann kom undan, inn á
reikninga í þremur bönkum á nafni
filippseyskrar vinkonu sinnar,
Vilmu Aguilando Medina.
Sirven hvarf frá Frakklandi 1997
NLFKÖ>
Alfred Sirven
Sirven var yfirheyröur fram á nótt viö
komuna til Parísar / gær.
þegar yfirvöld tóku að rannsaka
spillingu innan Elf.
Sirven var í gær framseldur til
Frakklands frá Þýskalandi. Hann
hafði lent í umferðaröngþveiti á Fil-
ippseyjum á leið í flugvél til París-
ar. Þess vegna var flogið með hann
til Frankfurt. Ætlunin var að fljúga
með hann beint þaðan til Parísar en
þýsk yfirvöld héldu honum þar til í
gær. Þau höfðu hug á að yfirheyra
hann vegna milljarða króna mútu-
greiðslna vegna kaupa á a-þýskri ol-
iuhreinsunarstöð 1992. Grunur leik-
ur á að Helmut Kohl, fyrrverandi
Þýskalandskanslari, hafi tekið við
mútum til flokks síns frá Elf. Sirven
kvaðst þurfa nokkrar vikur til að
búa sig undir samtal við þýska
rannsóknarmenn. Dómsmálaráð-
herra Þýskalands varð ekki við ósk
hans um dvalarleyfi og þess vegna
var hann ekki yfirheyrður í Þýska-
landi.
Á meðan Sirven var yfirmaður
Elf hafði hann það hlutverk að múta
stjórnmálamönnum, innlendum og
erlendum, og hafði í þeim tilgangi
umsjón með digrum sjóði. Rann-
sóknardómarar fullyrða að Roland
Dumas, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Frakklands, hafði þegið um 1
milljarð króna frá Elf. Ástkona ut-
anríkisráðherrans mun hafa verið
milligöngumaður. í staðinn var ætl-
ast til að hann skipti um skoðun og
heimilaði öðru rikisfyrirtæki sölu á
stríðsvögnum til Taívans. Réttað er
nú í Frakklandi yfir Dumas, ást-
konu hans fyrrverandi og niu öðr-
um vegna málsins.
Frönsk yfirvöld hafa einnig hug á
að vita hvaða greiða Edith Cresson,
fyrrverandi forsætisráðherra, hafi
innt af hendi fyrir 50 milljónirnar
sem hún fékk frá Elf. Sirven kann
að geta greint frá þessu öllu ef hann
vill.
Ologleg viðskipti
með sláturúrgang
Kúariðukreppan hefur valdið
uppsveiilu í viðskiptum með slátur-
úrgang. Belgíska lögreglan hefur af-
hjúpað skipulagt smygl á sláturúr-
gangi til S-Evrópu, einkum Spánar.
Það er dýrt að losa sig við slátur-
úrgang í Belgíu. Eftirlit er strangt
og gjöldin há. Á Spáni er eftirlit lít-
ið og þar hafa bændur freistast til
að urða sláturúrgang.
Fyrsta smyglið uppgötvaðist í jan-
úar þegar belgískir tollverðir skoð-
uðu spænskan flutningabíl. Bílstjór-
inn losað sig við ávaxtafarm í
Brussel. Undir venjulegum kring-
umstæðum hefði hann ekið með
tóman bil til baka. Lögreglan fann
hins vegar hundruð kílóa af slátur-
úrgangi sem litið er á sem
hættulegan vegna kúariðu.
Mogens Lykketoft
Danski utanríkisráöherrann bíöur eft-
ir formlegri beiöni aö vestan um eld-
flaugavarnakerfi í Thule.
Grænlendingar
og Danir þegja
um eldflaugar
Stjórnvöld í Danmörku og á
Grænlandi neita að tjá sig um fyrir-
ætlanir Bandaríkjamanna um eld-
flaugavarnir, þar sem herstöðin í
Thule á Grænlandi myndi gegna
lykilhlutverki, þar til formleg
beiðni hefur borist frá Washington.
„Dönsk stjórnvöld taka enga
ákvörðun fyrr en borist hefur
beiðni frá Bandaríkjunum," sagði
Mogens Lykketoft, utanríkisráð-
herra Danmerkur, í gær eftir við-
ræður við Jonathan Motzfeldt, for-
mann grænlensku heimastjómar-
innar. „Danir og Grænlendingar
verða að vera samþykkir. Við eig-
um nána samvinnu við Grænlend-
inga,“ sagði Lykketoft.
Motzfeldt sagði að Grænlendingar
myndu glaðir taka þátt i viðræðum
um málið. Hann hefur þó lýst sig
andvígan áformum bandarískra
stjórnvalda.
Ratsjárstöðin i Thule var reist á
6. áratugnum og er mikilvægur
hlekkur í keðju slíkra stöðva sem
nær frá Alaska til Bretlands og er
ætlað að fylgjast með flugskeytum á
leið til Bandarikjanna.
Veitt meö gullerni
Austur í Kasakstan er þaö siöur manna að halda keppni í veiöum meö aö-
stoö fugla. Hér má sjá ungan Kasakstana halda af staö meö gullörninn sinn
sér til fulltingis. Veiöimenn úr öllu Kasakstan eru saman komnir í bænum El-
an Tay til aö sýna hvers fuglar þeirra eru megnugir.
Hryðjuverkamenn að störfum:
Dulkóðuð skilaboð
send á Internetinu
Hópar öfgamanna, þar á meðal
hópur sádi-arabíska hryðjuverka-
mannsins Osama bins Ladens, nota
vinsæl vefsetur til að koma dulkóð-
uðum upplýsingum til útsendara
sinna við skipulagningu hryðju-
verkaárása.,
Internetið hefur nú að miklu leyti
komið í stað smáauglýsingadálka
dagblaða sem helsti farvegur leyni-
legra skilaboða milli þessara hópa.
„Þetta er ódýr leið til að heyja
stríð og mjög auðvelt að gera hana
virka,“ sagði Yonah Aiexander, for-
stöðumaður alþjóðlegrar stofnunar
sem rannsakar hryðjuverk.
Netsíður með upplýsingum um
klám og íþróttir, sem eru meðal
þeirra sem flestar heimsóknir fá,
eru meðal þeirra vinsælustu sem
hryðjuverkamenn nota, að sögn sér-
■ ■■ :
m
fræðingsins Bens Venzkes. Hópur
Osama bins Ladens er þar á meðal.
Bin Laden hefur verið ákærður
vegna sprengjutilræða við tvö
sendiráð Bandaríkjanna í Austur-
Afriku á árinu 1998. Þá liggur bin
Laden undir grun um að bera
ábyrgð á tilræðinu við bandaríska
herskipið Cole í höfninni í Aden í
Jemen á síðasta ári.
Þessa dagana standa yfir réttar-
höld yfir fjórum meintum sam-
verkamönnum bins Ladens vegna
sprengjutilræðanna við sendiráðin.
Bandaríska dagblaðið USA Today
sagði frá því í gær að Osama bin
Laden hefði farið að dulkóða skila-
boð sín fyrir fimm árum en hefði
aukið það nýlega vegna þess að
bandarísk yfirvöld greindu frá því
að símar hans væru hleraðir.
Frestur til að skila skattframtali
einstaklinga rennur út 19. mars.
Ef talið er fram á netinu
er frestur til 2. apríl. 2001
Skattframtölin ásamt fylgiskjölum
verða borin út í byrjun mars.
-|j| m..........
; * 0§ * W m
mSSm