Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformafiur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstofiarritstjóri: Jónas Haraldsson Augtýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vtsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Traust rikir áfram Stjórn Landssambands kúabænda lagöi til frestun á inn- flutningi norskra fósturvísa í íslenskar kýr á fulltrúafundi í gær og sú tillaga var samþykkt samhljóöa eftir miklar um- ræður. Þar meö er frestað því tilraunaverkefni sem land- búnaöarráðherra heimilaði 31. október sl. Innflutningur fósturvísanna hefur veriö umdeildur meöal neytenda, bænda og sérfræðinga. Umsókn um leyfi til tilraunainn- flutnings var send í marslok 1998 eftir langa umfjöllun á vegum bænda. Landbúnaðarráðuneytið tók sér langan um- hugsunarfrest, eða 31 mánuð. Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra tók við málinu frá forvera sínum, Guðmundi Bjarnasyni, og lá lengi undir feldi áður en hann tók ákvörð- un sína. Þótt málið væri umdeilt fyrir varð afgerandi breyting á afstöðu til málsins skömmu eftir leyfisveitinguna vegna ótta við kúariðu. Fjöldi bænda snerist öndverður gegn innflutn- ingnum og í óformlegri könnun áhugamannasamtakanna Búkollu kom fram að meirihluti bænda legðist gegn inn- flutningi fósturvísanna. Eftir að DV birti niðurstöðu skoð- anakönnunar um afstöðu til fósturvísainnflutningsins þurfti ekki að fara í grafgötur um afstöðu almennings. Fram kom að 92,1 prósent kjósenda lagðist gegn innflutningi hinna norsku fósturvísa. Andstaðan var því afgerandi. Þeir sem harðast hafa sótt eftir leyfi til þessara kynbóta á kúakyninu vilja með þeim auka afköst stofnsins og segja að NRF-kúakynið norska hafi verið valið að vandlega athug- uðu máli. Þá sé heilbrigðisástand í nautgripum í Noregi gott og sjúkdómagreining fullkomin. Ekki skal það dregið í efa en hinu má ekki gleyma að sérfræðingar hafa ekki verið sammála um leyfisveitinguna og við þær aðstæður sem nú ríkja má ekki taka neina áhættu. Höfuðmáli skiptir að traust ríki milli framleiðenda og neytenda matvöru. Kúabændur eiga sitt undir því að varan seljist. Slíkt traust rikir ekki lengur í nágrannalöndum okk- ar vegna kúariðunnar. íslenskir neytendur hafa getað treyst gæðum og heilbrigði íslenskra nautgripaafurða. Með ákvöröun sinni í gær sást að kúabændur vilja halda við því trausti enda kom fram í greinargerð með tillögu stjórnar þeirra á fulltrúafundinum að umræðan að undanfórnu ætti sér ekki hliðstæðu. í fyrsta skipti hefði það gerst að neyt- endum hefði staðið til boða nautgripaafurðir sem þeir töldu sig hafa ástæðu til að tortryggja. Þar var átt við innflutning nautakjöts frá írlandi þar sem kúariða hefur verið alvarlegt vandamál. Þótt stjórn Félags kúabænda telji óttann vegna fósturvísa- innflutningsins ástæðulausan viðurkennir hún að tor- tryggni sé fyrir hendi. Þá kemur það og fram að þess hefur gætt í umræðunni að bændur óttast að smitsjúkdómar geti borist með þessum innflutningi. Með þeim rökum, sem og að viðurkenna að gagnkvæmt traust milli kúabænda og neytenda sé þeim lífsnauðsyn, var ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en samþykkja frestun á fósturvísainnflutningnum. Það felast mikil verðmæti í íslenska kúastofninum. Kúariða, sem valdið hefur bændum í Evrópu ómældu efna- hagstjóni, hefur ekki greinst hér. Enn er vísindaleg óvissa um sjúkdóminn og smitleiðir hans. Því kemur ekki til greina að taka neina áhættu. í nýlegri samþykkt stjórnar Mjólkursamlagsins í Búðar- dal sagði að mikilvægt væri að halda ímynd hreinleika og hollustu i íslenskum landbúnaði. Öll vafamál beri að túlka íslenskum landbúnaði og íslensku þjóðinni í hag. Það gerðu kúabændur með ákvörðun sinni í gær. Jónas Haraldsson DV Góður árangur í sorpmálum Reykjavíkurborg hefur á undanfornum misserum staðið fyrir viðamiklum tilraunum með breytta sorphirðu í Breið- holti, Árbæ, Selási og Ártúns- holti. Niðurstöður þessara til- rauna geta ráðið miklu um framtíðarskipan sorphirðu- mála í borginni. í Breiðholti hefur tilraunin verið tvíþætt. í Seljahverfi, Skógum og hluta af Bökkum hefur staðið yfir til- raun með vigtun en tíðni/rúm- málskerfi var notað í Fellum, Bergum, Hólum og Stekkjum. í Árbæ, Selási og Ártúnsholti var breytt úr hirðu á 7 daga fresti í hirðu að meðaltali á 10 daga fresti. í byrjun júlí var innsöfnunarkerfi fyr- ir dagblöð og fernur einnig breytt og gámum fjölgað í allri borginni. Inn- söfnunarkerfinu var breytt þannig að í stað 1100 lítra kera voru settir upp þriggja rúmmetra gámar og þeim skipt i tvö hólf, annað fyrir dag- blöð og hitt fyrir fernur. Eldri gámar eru þó einnig á nokkrum stöðum i borginni. Niðurstöðutölur fram til árámóta lofa afskaplega góðu um árangurinn og eru um margt athyglisverðar. Aukningin á tilrauna- svæðinu er mikil í dag- blaða- og fernusöfnun, eða 61% á móti 4% í öðr- um hverfum, borgarinn- ar, og í Fellum, Bergum, Hólum og Stekkjum hef- ur sorpmagn minnkað um tæp 4% sem nemur u.þ.b. 10 tonnum að með- altali á mánuði miðað við sama tímabil 1999. Aukin endurnýting dagblaða og ferna Síðan dagblaðasöfnun hófst I Reykjavik hefur árangurinn verið þokkalegur flest árin og aukn- ing átt sér stað flest árin. Árangur síðasta árs var þó óvenjugóður, eða um 12,3% í borginni allri. Stórkost- leg aukning varð hins vegar í Breið- holti en þar söfnuðust um 241,2 tonn árið 2000 en 152,6 tonn árið 1999 og er aukningin því um 61%. Vegna þess að innsöfnunarkerfinu var breytt er hægt að segja með vissu hversu mik- ið safnaðist af fernum. Frá því í byrj- un júlí söfnuðust um 36 tonn af fern- um í allri borginni. Þar af söfnuðust í Breiðholti 31%, eða 11,2 tonn, sem Hrannar Björn Arnarsson borgarfulltrúi og for- mabur Umhverfis- og hellbrigöisnefndar gerir að meðaltali um 0,52 kg/íbúa, en í öðrum borgarhlutum söfnuðust samtals 24,8 tonn, eða um 0,28 kg/íbúa. Minnkandi sorp Þessi góði árangur í dagblaöa- og fernusöfnun er ekki einu merkin um þá ánægjulegu breytingu sem er að verða í sorpmálum á tilraunasvæð- unum. Samhliða aukinni flokkun og endurnýtingu hefur nefnilega dregið úr sorpmagni þvert á það sem gerist í öðrum hverfum borgarinnar. Minnkun á sorpmagni í Stekkja-, Fella-, Hólahverfi og Bergum frá ágúst til nóvember er 4% á milli ára. Þessi minnkun samsvarar tæplega 10 tonnum af sorpi í hverjum mánuði sem jafngildir ríflega 100 tonnum á ári. Á sama tíma er aukningin á sorpmagni í Reykjavík um 0,15%. Þessi ánægjulega þróun sem sýnir svo ekki verður um villst að með sameiginlegu átaki borgarbúa má ná miklum árangri í aukinni endurnýt- ingu og minnkun sorps. Hér er um afar brýnt verkefni að ræða sem samhliða bættri umgengni við nátt- úruna getur sparað okkur umtals- verð útgjöld. íbúar tilraunahverf- „tbúar tilraunahverfanna hafa sýnt glœsilegan árang- ur á stuttum tíma og nú œttum við hin að fara að dœmi þeirra - auka flokkun og endurnýtingu og minnka sorp. “ anna hafa sýnt glæsilegan árangur á endurnýtingu og minnka sorp. Vilji stuttum tíma og nú ættum við hin að er allt sem þarf. fara að dæmi þeirra, auka flokkun og Hrannar Bjöm Arnarsson Það sem ber að gera Það fer ekki á milli mála, að með framgöngu sinni á undanförnum mánuðum hefur ríkisstjórninni tek- ist að ganga fullkomlega fram af stórum hluta landsmanna. Hver skoðanakönnunin eftir aðra sýnir minnkandi fylgi stjórnarinnar og aukið fylgi stjómarandstöðunnar. Skoðanakönnun DV fyrir nokkrum vikum sýndi meira að segja fram á að Samfylkingin og Vinstri grænir eiga góðan möguleika á að ná þing- meirihluta í næstu kosningum, ef rétt er á málum haldið. Vilji stuðn- ingsmanna flokkanna er því skýr. - Ein af ástæðunum fyrir þessu aukna fylgi er án efa að flokkarnir hafa á undanfórum vikum verið samstíga í gagnrýni sinni á stjórnina en því miður hefur verið misbrestur á því þar til nú. Skýran pólitískan valkost og Vinstri grænna leggur flokkunum ákveðnar skyldur á herðar. Vandi þeirra er fyrst og fremst sá að fylgi þeirra er ekki tilkomið fyrir verðleika þeirra sjálfra held- ur vegna fautaskapar og van- stillingar stjórnarherranna. Það þarf því ekki mikið út af að bera til að allt sigli í sama farið, mehihluti landsmanna styðji aftur stjórnina og Dav- íð Oddsson verði ástsælasti stjórnmálamaður þjóðarinn- ar. Til að koma í veg fyrir slíkt slys þurfa flokkarnir að bjóða kjósendum upp á skýr- an pólitískan valkost. Þeir þurfa að samræma stefnu sina í þeim mála- flokkum sem heitast brenna á öllum almenningi, þ.e.a.s. endurreisn vel- ferðar- og menntakerfisins. í efnahagsmálum verða flokkamir að sýna fram á með ótvhæðum hætti að stefna þeirra taki mið af hags- munum alls almennings en ekki bara verðbréfasala, fjárfesta og hlutabréfaeigenda, eins og verið hef- ur á undanförnum árum. Á því sviði er mikilvægast að endurskipuleggja fiskveiðistjórnunarkerfið og ganga þannig frá hnútum að það skilji ekki eftir sviðna jörð utan höfuðborgar- svæðisins. Utanríkismálin þar sem ágreiningur flokkanna er hvað mest áberandi verða að vera afgangs- stærð, um stundar sakir að minnsta kosti. Ekki sameining, heldur samvinna Ef stjórnarandstöðuflokkarnir ætla að vera trúverðugir gagnvart • fylgismönnum sínum verður þessi vinna að fara í gang hið fyrsta. Hér er ekki verið að leggja til sameiningu af neinu tagi heldur sam- viimu. Sameining hefur verið reynd og niðurstöð- una þekkja allir. Fyrsta skrefið í þessu ferli gæti verið samráð og samræm- ing á málflutningi í ákveðnum málaflokkum innan þings. Ef vel tekst til á þeim vígstöðvum væri hægt að fara út í frekari málefnavinnu sem síðan gæti, ef allt gengur að óskum, leitt til þess að fyrir næstu þingkosn- ingar yrði myndað kosningabanda- lag sem hefði það meginmarkmið að fella núverandi ríkisstjóm. Það auð- veldar myndun slíks bandalags að flokkamir mælast með svipað fylgi, þeir ættu því að geta náð samkomu- lagi um helmingaskipti á framboðs- listum. Fyrh næstu kosningar þurfa kjósendur að hafa frá hendi flokk- anna ótvíræð fyrirheit um að nái þeir meirihluta muni þeh mynda ríkisstjórn. Ef stjómarandstöðuflokkarnir koma ekki einhveijum skilaboðum af þessu tagi til kjósenda á næstu vikum er ekki hægt að draga af því aðra ályktun en þá að keppikefli þeirra, hvors um sig, sé að verða næsta ríkisstjórnarhækja Davíðs Oddssonar þegar hann er búinn að klára Framsóknarflokkinn. Guðmundur J. Guðmundsson Vaxandi fylgi Samfylkingarinnar „Sameining hefur verið reynd og niðurstöðuna þekkja allir. Fyrsta skrefið í þessu ferli gæti verið samráð og samrœming á málflutningi í ákveðnum málaflokkum innan þings.“ Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræbingur Með og á móti lóti Reykjavíkuiýlugvelli? Atkvæðagreiðslan er flótti Meirihlutinn á að ráða „Mér fmnst að það eigi að fara sparlega með alls- herjaratkvæða- greiðslur," sagði Friðrik Pálsson, talsmaður Hollvina Reykjavíkurflugvall- ar. „Þær eiga að fjalla um af- markaðar og skýrar spurning- ar. í þessu tilviki er um að ræða flugvöll sem er aðalsam- gönguæð landsmanna í lofti. Hér er því spurt um sam- göngumál, öryggismál, ferða- mál, samskipti íþróttafélaga, skólamál og atvinnumál fyrh utan að völlurinn er í höfuðborg landsins þar sem er miðstöð allrar stjómsýslunn- ar. Þetta er þess vegna langt frá þvi að vera einfalt eða af- markað mál. Þegar fyrir liggur að lítill hluti landsmanna sem býr rétt við völlinn, sem allir eiga, skal greiða atkvæði um það hvort hann eigi að fara eða vera þá er ákvörðun reyk- viskra borgaryfirvalda alger- lega óskiljanleg. Þetta getur ekki verið annað er flótti lög- legra kjörinna fullhúa frá því að takast á við þau verkefni sem þeir eru kjörnir af okkur til þess að leysa og við trúum þeim fyrir.“ Friðrik Pálsson. Talsmaöur samtak- anna Hollvinir Reykjavíkurflugvallar. „Ég trúi ekki öðru en að meiri- hluti atkvæða muni hafa áhrif á staðsetningu flug- vallar á höfuðborgarsvæðinu, í lýðræðisríkjum fær meiri- hlutinn ráðið,“ sagði Bryndís Loftsdóttir en hún er i for- svari fyrir nýstofnuð samtök sem heita 102 Reykjavík og Taismabur samtak- hafa það markmið helst á ^nna 102 Reykjavík stefnuskra sinni að berjast höfubs fiugveiiinum. gegn því að Reykjavíkurflug- ———— völlur verði kyrr í Vatnsmýrinni þar sem hann er. „Þetta er stórt og flókið mál sem Bryndís Loftsdóttir. stjórnmálamenn hafa veigrað sér við að taka á í mörg ár, m.a. vegna hagsmuna emb- ættismanna. Þetta mál klýfur alla flokka og betra er að beita lýðræðis- legum vinnubrögðum og bjóða til atkvæðagreiðslu heldur en að gera ekki neitt. Reykvíkingar hafa valið að búa í borginni og því skyldu þeir ekki líka hafa val um það hvemig borgin býr að þeim?“ Fram undan er allsherjaratkvæfiagreifisla mefial borgarbúa um framtífi Reykjavíkurfiugvallar. Á mlðju sifiasta árl voru stofnufi samtök sem berjast fyrlr því afi flugvöllurinn verðl kyrr. Um síöustu helgl voru stofnufi samtök sem hafa það eltt á stefnuskrá sinnl að losna vlfi flugvölllnn úr Vatnsmýrlnnl. Dellt eru hvort atkvæöagreiðsla um málifi eigi rétt á sér. Lest til Keflavíkur '"!iÆsur| „Er kannski kom- /3% % inn sá tími að við eig- 1 j um að skoða af fullri [* ’' m. lj alvöru möguleika á ^ f lest milli Reykjavíkur ® "C ÍJ og Keflavíkur? Getur » veri® Þnö sé sú K; •É.jeWBasia framtfðarmúsik sem ber að huga að? Mér þætti afar fróð- legt að sjá arðsemismat af slíkri framkvæmd og hún myndi ekki ein- ungis nýtast þeim sem ætla í flug, heldur og þeim sem keyra daglega milli Suðumesja og höfuðborgar- svæðis. Kannski væri ekki úr vegi að gera könnun meðal flugfarþega um það hvert leiðir þeirra liggi þegar komið er til Reykjavikur." Guörún Ögmundsdóttir alþm. í Mbl. 6. febrúar. Reagan og vinstri „intelligensían<c „Ronald Reagan varð einn ágætasti og vanmetnasti forseti sem Banda- ríkjamenn hafa eignast. Víða um heim þykir ennþá sjálfsagt mál og samkvæmisleikur að gera sem minnst úr Reagan og lifsstarfi hans. Vinstri intelligensían hefur auðvitað aldrei getað séð hann í friði og vandfundinn er sa sSÍ ^e-Þjóðviljinnj menningarviti sem ekki er reiðubú- inn til að lýsa því yflr að Reagan hafi verið stríðsóður auli... Intelligensían veit sem er að Reagan hvorki til- heyrði henni né kærði sig á nokkurn hátt um hana eða hennar álit. Og það sem meha var, Reagan var áratugum saman nokkurn veginn sá eini í hópi stjómmálamanna sem ógnaði veldi hennar og benti á hve sjálfbirgingur hennar var innstæðulaus." Úr Vef-Þjóöviljanum 6. febrúar. Mergsjúga fólk og fyrirtæki „Vextir á innlend- um lánamarkaði era einfaldlega allt of háir. Þeir era hægt og bftandi aö mergsjúga bæði fólkið og fyrir- tækin í þessu landi. Seðlabankinn er sagð- ur vera undir miklum þrýstingi að lækka hjá sér stýrivexti. Forkólfar þar á bæ berja þó höfðinu við stein- inn og segja ekkert tilefni til vaxta- lækkunar. Á meðan beðið er eftir því að slakni á einhverri efnahagslegri spennu sem tvær til þrjár stórfram- kvæmdir á byggingamarkaðnum virðist valda, blæðh atvinnulífmu hægt og bítandi út.“ Einar Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi í Garöabæ. i Mbl. 6. febrúar. Skoðun Kjósum flug- völlinn burt Breski herinn hertók Vatnsmýrina fyrh nálega sextíu árum og malbikaði yfh hana flugvöll sem hefur skilið efth sig sár í síðu mið- borgarinnar. Á næstunni munu Reykvíkingar náðar- samlegast fá að kjósa um framtfð svæðisins og eygja þaimig möguleika að endur- heimta herfangið Til að fá skýrar niðurstöður væri auð- vitað best að spyrja aðeins um tvo kosti: Á flugvöllurinn að vera í Vatsmýrinni eða ekki? En hvernig sem því verður háttað vhðist það morgunljóst að Reykvíkingar munu kjósa flugvöllur- inn burt af núverandi landsvæði. Þá verður eftir því tekið hvort borgaryf- irvöld hafa þann dug í sér til moka honum burt sem allra fyrst. Að öðrum kosti verður borgar- stjórnarmeirihlutanum einfaldlega mokað burt í kosningum. Ekki svo að skilja að hinir séu hótinu skárri - þvert á móti - heldur er hér einfald- lega um það mikilvægt mál að ræða að borgarstjórnarmeirihluti sem heykist á því nú, honum verður ekki vært. Skipulagsmorð Reykjavík er klassískt dæmi um fórnarlamb fúnksjónalismans. Á borginni hefur í raun verið framið skipulagsmorð. Fyrir utan hinn ör- smáa, en ágæta, miðbæ er Reykjavík öfl heldur austantjaldsleg. Skipulags- hugsunin nær ekki lengra en til þess að hola fólki niður í hentugt hús- næði í hentugum hverfum. Og helst Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræöingur þannig að enginn þurfi að eiga í samskiptum við nokkurn mann. Allt er miðað við bílinn og skipu- lagið er beinlfnis fjandsam- legt gangandi fólki. Nokkrir góðir menn, með Trausta Valsson skipu- lagsfræðing fremstan í flokki, hafa þó haldið þeim hugmyndum á lofti að heillavænlegra sé að skipu- leggja hverfin í kringum gangandi fólk með því að þétta byggðina og blanda saman atvinnu- og íbúðabyggð. Með því vilja þeir skapa grundvöll fyrir aukið samneyti íbúanna og stuðla þannig að betra mannlifl. Hingað til hafa þessar raddir því miður talað fyrir daufum eyrum, en á síðustu misserum hefur umræðan um skipu- lagsmál í þéttbýli blessunarlega verið að vakna til lífsins. Reykvíkingar standa nú frammi fyrir einstöku tækifæri. Með því að byggja upp í Vatnsmýrinni íbúa- byggð með veitingahúsum, verslun- um og annarri miðborgarstarfsemi getum við veitt miðbænum nauðsyn- legan stuðning til að stuðla að blóm- strandi mannlífi. í nýlegri sjónvarps- mynd sýndi Hrafn Gunnlaugsson til að mynda fram á hvernig svæðið gæti nýst til að bæta mannlífið í borginni. Sú sýn sem þar var sett fram á svo sannarlega erindi við skipulag Reykjavíkur. Áróðursbragðiö Á síðari árum hafa þröngir hags- munir flugmálayfirvalda og manna sem kalla sig hollvini flugvallarms, hvað svo sem það nú merkir, barist hatrammlega gegn flutningi hans og þar með gegn hagsmunum okkar ibúanna. Þessir svokölluðu hollvinir hafa haldið að fólki þeim bjánalega málflutningi að flugvöflurinn geti hvergi annars staðar verið en í sjálfri miðborginni. Að öðrum kosti fari hann til Keflavíkur. Þeir halda því blákalt fram að utan Vatnsmýr- arinnar sé það eina mögulega stað- setningin fyrir innanlandsflugið. Þetta er auðvitað ekkert annað en lævíst áróðursbragð - sett fram í þeirri von að það muni drepa um- ræðunni á dreif. Vitaskuld eru margvíslegir aðrir kostir í stöðunni, ef menn bara vilja leysa málið. Til að mynda hefur ver- ið nefnd sú stórsnjalla leið að flytja hann bara út í Skerjafjörðinn. í • vandaðri skýrslu prófessors Stefáns Ólafssonar er farið kerfisbundið í gegnum kosti og galla fimm mögu- legra flugvallarstæða. Þar kemur í ljós að núverandi staðsetning er lök- ust allra. Ég er þó ansi hræddur um að mál- ið leysist ekki fyrr en þessum mönn- um verður gert það ljóst að ef þeh ekki geta komið sér niður á annað flugvallarstæði en sjálfan miðbæinn þá verði flugvöflurinn einfaldlega færður tfl Keflavíkur. Ég þori að veðja að þá verður komið annað hljóð í strokkinn hjá flugmálayfirvöldum og samgönguráðherra, - þá loksins munu koma upp ýmsir möguleikar sem allir verða taldir álitlegri en að - færa flugið til Keflavíkur. Eiríkur Bergmann Einarsson „Reykjavík er klassískt dœmi um fórnarlamb fúnksjónalismans. Á borginni hefur í raun verið framið skipulagsmorð. Fyrir utan hinn örsmáa en ágœta miðbœ er Reykjavík öll heldur austantjaldsleg. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.