Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Qupperneq 23
27
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
I>V Tilvera ~
mmmm
James Spader
James Spader verður Qörutíu og
eins árs í dag. Hann
fæddist í Boston og KpHwj
eru báðir foreldrar EfiF
hans kennarar. Eftir
hefðbundið nám lá
leið Spaders til New B
York þar sem hann .
reyndi fyrir sér á I *. m Æ/ttl
sviði og i sjónvarpi. Spader hafði leik-
ið misstór hlutverk í tólf kvikmynd-
um auk sjónvarpsmynda þegar Sex,
lies and Videotapes braut ísinn fyrir
hann. Hann var valinn besti leikarinn
á kvikmyndahátíðinni í Cannes og
þykir vandaður og traustur leikari.
Cildir fyrir fímmtudaginn 8. febrúar
Vatnsberlnn (20. ian.-i8. febr.i:
■ Vertu á verði gagnvart
' kjaftasögum. Ekki trúa
öllu sem þú heyrir því
fólk þarf ekki endilega
Fvera áreiðanlegt þó að svo
virðist vera við fyrstu sýn.
Fiskarnir (19. febr-20. marsi:
Heppnin verður með
Iþér fyrri hluta dagsins
og þú færð tækifæri
sem þú hefur beðið eft-
ir lengi. Það verður mikið um að
vera í félagslífinu 1 kvöld.
HrÚtUfinn I21. mars-t9. anrilk
. Þú ættir að forðast
' smámunasemi í dag.
Ekki gagnrýna fólk að
óþörfu þó að þú sért
ekki sammála því að öllu leyti.
Nautið (20. anríl-20. rriaík
Þú ert í góðu jafiivægi
í dag. Þér gengur vel
að vinna úr þvi sem þú
hefur og ert fljótur að
vinna verkefni sem þú tekur þér
fyrir hendur.
Tvíburarnir (2t. maí-21.. iúntn
Vinir þínir koma þér á
’ óvart á einhvem hátt
og þú hefur i nógu að
snúast í sambandi við
' fyrri hluta dagsins.
Tvíburarnir 12
h~]
félagsfif fyn
Krabbinn (22. iúní-22. iúffl:
Dagurinn verður frem-
I ur viðburðasnauður og
þú eyðir honum í ró og
næði. Fjölskyldan
kemur við sögu seinni hluta dags.
Llónlð (23. iúlí- 22. ágústi:
Þú ættir að sýna aðgát
í samskiptum við aðra.
Fullkomin hreinskilni
borgar sig ekki alltaf.
Happatölur þínar era 8, 12 og 25.
Mevian (23. aeúst-22. seot.l:
Þú kynnist nýju fólki
sem vekur áhuga þinn.
jl».Hugsaðu þig vel um
^ r áður en þú tekur mik-
ilvægar ákvarðanir.
Vogln (23. se
VQgln (23. sept-23. okt.l:
Þú þarft að beita sann-
færingarkrafti til að fá
fólk í lið með þér.
Einbeittu þér að smá-
atnðum og vertu vandvirkur.
Happatölur þínar eru 4, 30 og 31.
Sporðdreki (24, okt.-2l. nóv.):
Þú ættir að hugleiða
breytingu í starfi þínu.
jVinur þinn á í ein-
hverjum erfiðleikum.
Þú verður að sýna tillitssemi og
nærgætni ef leitaö er til þín.
BogamaðUf (22. nóv.-21. des.l:
LÁhugi þinn á einhverju
r máli eykst og þú tekur
meiri þátt í félagslifi í
dag en undanfarið. Þú
gétur kynnst skemmtilegu fólki en
þú verður að stilla eyðslunni í hóf.
Stelngeitln (22. des.-19. ian.):
Það verður auðvelt að
fá fólk til að taka þátt
í breytingum á vissum
sviðum. Vertu þolin-
móður þó ekki gangi allt strax
upp.
Drekinn
Tuttugu og tveir nemendur taka þátt í sýningunni.
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð:
Þríhöfða dreki,
stúlka og Lancelot
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð er þessa dagana að æfa
leikritið Drekann sem verður frum-
sýnt föstudaginn 9. febrúar kl. 20 í
Tjamarbíó.
Leikritið er eftir rússneska leik-
skáldið Evgenii Shvarc og skrifað
1949. Það fjallar um líf fólks í borg
þar sem þríhöfða dreki hefur ráðið
ríkjum í margar aldir. Á hverju ári
velur drekinn eina stúlku sem hann
étur og fyrir þetta ár hefur hann
valið Elsu. Bæjarbúar eru fyrir
löngu búnir að sætta sig við þessa
„hefð“ og afhenda stúlkurnar orða-
laust. Dag nokkurn, stuttu áður en
drekinn ætlar að éta Elsu, kemur
riddarinn Lancelot til borgarinnar
og skorar drekann á hólm. Bæjarbú-
um lýst ekki á hugmyndina í fyrstu
þar sem þeir telja ógjöming að sigra
drekann og borgarstjórinn, sem
vægast sagt er mjög furðulegur og
ágætiskunningi drekans, tekur
þetta ekki í mál.
Leikritið er með kómísku ívafi en
undir niðri má greina pólitískan
ágreining enda var það bannað í
heimalandinu í mörg ár.
Alls taka 22 leikarar á aldrinum
16-20 ára þátt í uppfærslunni undir
handleiðslu Friðriks Friðrikssonar
en þetta er frumraun hans í leik-
stjórn. Sjö manna hljómsveit leikur
frumsamda tónlist og María Péturs-
dóttir sér um sviðsmynd og bún-
inga.
Sýningar verða níu í Tjarnarbíói
7.-17. febrúar (tvær skólaforsýning-
ar 7. febrúar) og verður frumsýning
eins og áður segir föstudaginn 9.
febrúar
Tónleikar á Gauki á Stöng:
Kominn með
fráhvarfseinkenni
Haraldur Reynisson trúbador
eða Halli Reynis, eins og hann er
yfirleitt kallaður, verður með tón-
leika á Gauki á Stöng í kvöld.
Halli hefur verið búsettur í Dan-
mörku undanfarin ár en skrapp
heim til að halda nokkra tónleika.
„Ég er búinn að vera fyrir norð-
an að spila undanfarið og síðustu
tónleikar mínir að þessu sinn
verða á Gauknum í kvöld. Mér
skilst að ég sé fyrsti trúdadorinn
sem spilar þar eftir breytingu og
er því dálítið spenntur. Ég var bú-
inn að gefa út fjóra diska áður en
ég fór til Danmerkur og sá flmmti
er væntanlegur á þessu ári. Á tón-
leikunum í kvöld ætla ég að kynna
mikið af nýjum lögum sem verða á
honum.“
Halli segist ekki hafa komið
fram opinberlega lengi og að hann
hafi verið farinn að fá snert af frá-
hvarfseinkennum. „Það var kom-
inn timi til að svala þörflnni og þá
er gott að koma heim. Mig langar
reyndar að gefa út disk úti og á
nóg af efni á hann, ég er búinn að
þýða texta og allt það. Ég er ekkert
farinn að tala við útgefendur en
efnið hefur fengið góðar mótttökur
á tónleikum."
Tónleikamir í kvöld byrja
klukkan 22.00 og standa í rúma tvo
tíma.
Halli Reynis
Leikur og syngur ný og gömul iög í kvöld.
Strákar hrædd-
ir við Mel C
Kryddpían Mel C hefur af því
þungar áhyggjur að strákar séu
hálfhræddir við hana vegna stráks-
legu imyndarinnar sem hún hefur
komið sér upp. Að minnsta kosti lét
síðasti kærastinn hana róa fyrir
stuttu. Sá heitir Dan Williams. „Mel
gerir því skóna að frægð hennar eða
strákalegt útlit kunni að hræða
menn í burtu,“ segir vinur söngkon-
unnar í viðtali við æsifréttablaðið
Sun. Mel C er 27 ára og gengur bara
annað vel.
Jodie kemur í
stað Kidman
Jodie Foster fékk tilboð sem hún
gat hreinlega ekki hafnað, tólf millj-
ónir dollara fyrir að leika í kvik-
myndinni The Panic Room, í stað
Nicole Kidman sem meiddi sig á
hné. Af þessum sökum hefur Jodie
þurft að hætta við formennslu í
dómnefnd hinnar virtu kvikmynda-
hátíðar í Cannes í Frakklandi í vor.
Þarlendir eru að vonum mjög
vonsviknir en Jodie vonast til að fá
annað tækifæri, þótt síðar verði.
Höfundar Panic Room sneru sér þó
fyrst til hinnar munnfögru Angel-
inu Jolie sem þakkaði pent fyrir sig '
en tók annað verkefni fram fyrir.
Spáð í lagasmíð-
ar Russells
Spekingar í Ameríku velta því nú
fyrir sér hvort Russell Crowe, sá
skylmingaþrælslegi kvikmyndaleik-
ari, hafi samið lag um Meg Ryan,
kvikmyndaleikkonu og fyrrum ást-
konu sína. Russell er nefnilega í
hljómsveit og eitt laganna sem hann
samdi fyrir bandið fjallar um konu
sem á son en engan mann. Meg á
einmitt son og ástarsamband henn-
ar og Russells varð til þess að hún
missti eiginmanninn, Texasguttann
Dennis Quaid. En nú er ástarævin-
týrið búið, virðist hafa lognast út af
einhvern tima fyrir jól. Og þá er
bara að bíða eftir næsta lagi frá
Russell Crowe.