Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2001, Page 28
Nýr Subaru Impreza
Ingvaí-
Helgason hf.
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
Óshlíð:
Man óljóst
eftir fallinu
- segir stúlkan
Sautján ára stúlka þakkar bílbelti
lífgjöfina, en bíll sem hún ók féll
rúma 20 metra ofan af Óshlíðarvegi
og niður í stórgrýtta fjöruna fyrir
neðan hliðina skömmu eftir hádegið
í gær.
„Ég var í belti og hugsa að það
hafi bjargað mér. Ég er með stórt
far eftir það,“ sagði stúlkan í viðtali
við DV í morgun.
Slysið varð við Sporhamar á Ós-
hlíðarvegi milli Bolungarvíkur og
Hnífsdals. Að sögn lögreglu var
töluverð hálka. Slysið varð með
þeim hætti að stúlkan missti stjórn
á bíl sínum, ók á ljósastaur og
kastaðist svo niður brekkuna.
„Bíllinn byrjaði bara að dansa og
ég lenti á staurnum og fór svo nið-
ur. Ég man óljóst eftir fallinu,“
sagði stúlkan, sem hefur haft bílpróf
síðan í nóvember í fyrra. Henni
tókst að komast af sjálfsdáðum upp
á veg þar sem hún stöðvaði bíl
Vegagerðarinnar.
„Ég veit ekki hvernig ég komst út
úr bílnum. Þegar ég kom upp á veg-
inn tók bílstjóri mig upp í og ók mér
á sjúkrahús," sagði stúlkan.
Hún var lögð inn til frekari rann-
sóknar, en hún er mikið marin og
bólgin í andliti, sem og annars stað-
ar um líkamann, og hlaut auk þess
bakmeiðsl.
Bíllinn er talinn ónýtur. -SMK
Tíu hring-
vega sigling
DV.AKRANESI:_________________________
Nýtt nóta- og togveiðiskip Harald-
ar Böðvarssonar, Ingunn AK 150,
* leggst að bryggju á Akranesi kl. 11 í
dag en skipið átti að koma í byrjun
árs 2000 frá Chile. Marteinn Einars-
son, skipstjóri sagði í samtali við
DV í morgun að siglingin heim
hefði gengið vel. „Við erum búnir
að sigla rúmar 7000 mílur sem er
nálægt 10 hringvegum," segir Mart-
einn. „Það er mikill tilhlökkun hjá
mönnum að komast heim, þetta er
ævintýri sem maður á ekki eftir að
upplifa aftur. Menn gengu sinar
venjulegu vaktir á heimleiðinni og
sóluðu sig þegar það var hægt. Þeir
koma sólbrúnir til baka enda var
hitinn rosalegur, mest 35 gráður í
Panama," segir Marteinn. -DVÓ
DV-MYND GYLB
Loks kom snjórinn
Jörö var alhvít þegar Akureyringar fóru á fætur í gærmorgun eftjr fágætan góöviöriskafla frá áramótum. Ekki var snjór-
inn mikill en var samt vel fagnaö afyngstu kynslðöinni aö venju, eins og þeim vinunum Daníel og Bjarka á leikskólan-
um Árholti.
Reykjakot:
Stjórnin
sagðð af sér
- kosning undirbúin
Átakafundur var á fundi foreldrafé-
lags leikskólans Reykjakots í Mosfells-
bæ í gærkvöldi. Sagði stjórn félagsins
af sér á fundinum og myndaður var
vinnuhópur sem undirbýr kosningu
kjör nýrrar stjórnar í félaginu. Mar-
grét Pála Ólafsdóttir, leikskólastjóri,
sem verið hefur umdeild í starfi, vildi
lítið tjá sig um niðurstöðu fundarins
að öðru leyti en því að hart hefði ver-
ið tekist á um þau deilumál sem uppi
hafa verið. Þá hafi mikiil meirhluti
myndast gegn fráfarandi stjórn félags-
ins. Að sögn Evu Magnúsdóttur, for-
eldris, var ekki hægt að kjósa nýja
stjóm á fundinum, þar sem boða þarf
sérstaklega til slíks kjörs. Vinnuhópi
er ætlað að undirbúa þann fund og
reglur fyrir nýja stjóm að fara eftir og
er fyrsti fundur vinnuhópsins fyrir-
hugaður á morgun. -HKr
„Ég er alveg steinhissa á mönnum
sem fara út að skemmta sér með svona
mikið fé í vösunum. En hitt er alveg
klárt að maðurinn eyddi ekki 400 þús-
und krónum í dans hér inni,“ segir
Guðjón Sverrisson, eigandi nektardan-
staðarins Bóhem við Grensáveg, um
viðskiptavin sinn sem staðhæfir að
hann hafi keypt nektardans í Bóhem
fyrir 400 þúsund og verið rændur að
auki á meðan hann brá sér á salerni
til að minnka á spennunni.
Guðmundur Sveinsson er rekstrar-
stjóri í Bóhem og hann fylgdist grannt
með gangi mála um síðustu helgi þeg-
ar atburðir þessir áttu að hafa gerst:
„Sannleikurinn er sá að það var ég
sem kallaði lögregluna til þegar mað-
urinn fór að kvarta. Þegar lögreglan
kom á staðinn var
maðurinn búinn að
eyða 20 þúsund krón-
um í dans, 60 þúsund
krónum í kampavín
og aðra drykki auk
þess sem hann hafði
tipsað eiginkonu sina
með 40 þúsund krón-
um. Hann var því alls
búinn að eyða 120
þúsund krónum hér
inni þegar lögreglan kom til skjal-
anna.“
- Dansar eiginkona mannsins á Bó-
hem?
„Já, hún er bresk og búsett hér á
landi, og þau hafa verið í sambúð í eitt
ár.“
- Hvernig fór leit
lögreglunnar fram?
„Ég bað lögregl-
una að skerast í
leikinn og hingað
komu fjórir kven-
lögregluþjónar sem
leituðu gaumgæfi-
lega á dansmeyjun-
um. Til dæmis var
gerð rassaskoðun á
fimm stúlkum sem
vinna hér en ekkert fannst. Það var
tvíleitað á öllum sem yfirgáfu húsið
en án árangurs. Við gerðum allt sem í
okkar valdi stóð til að hafa upp á þess-
um peningum sem maðurinn sagðist
hafa tapað en í raun er engin til frá-
sagnar um að hann hafi yfirleitt verið
með svona mikið fé á sér. Hann segist
hafa eytt 400 þúsund krónum í dans
og saknaði svo 500 þúsund króna til
viðbótar þannig að hann hefur þá
komið hingað í hús með tæpa milljón
í vasanum. Hver trúir því?“ spyr Guð-
mundur Sveinsson, rekstrarstjóri í
Bóhem.
Viðskipavinurinn sem hér um ræð-
ir er þekktur í reykvískum veitinga-
húsaheimi og rak um tima vel kunna
krá. Guðmundur Sveinsson segir
hann hafa verið töluvert undir áhrif-
um áfengis umrætt kvöld um síðustu
helgi og Guðjón Sverrisson, eigandi
Bóhem, segir: „Þegar menn eru
drukknir er ekki alltaf klárt hvar þeir
týna hlutunum."
-EIR
Sannleikurinn um 400 þúsund króna dansinn á Bóhem:
Tipsaði eiginkonuna
með 40 þúsundum
- drakk fyrir 60 þúsund og fékk einkadans fyrir 20 þúsund krónur
Kunnur fótboltakappi kaupir jörð í Skagafirði:
Eyjólfur kaupir Skefilsstaði
- kvótalaust og óíbúðarhæft með veiðiréttindum
DV, SKAGAFIRÐI:______
Einn albesti og
kunnasti knatt-
spyrnumaður þjóð-
arinnar fyrr og síð-
ar, Eyjólfur Sverris-
son, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins,
hefur nýlega fest
Eyjólfur kaup á jörð á Skaga.
Sverrisson. Það er á bænum
Skefilsstöðum í
fyrrum samnefndum hreppi i Skaga-
firði sem kappinn hyggst hreiðra
um sig að einhverju leyti í framtíð-
inni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst ekki ná sambandi við Eyjólf í
Þýskalandi, hvorki i gær né fyrra-
dag.
Það þykja tíðindi þegar þekktustu
menn þjóðarinnar kaupa eyjar og
sker eins og gerst hefur að undan-
förnu. Svo er einnig nú þegar Eyjólf-
ur Sverrisson kaupir sér bóndabæ.
Mun þessa jarðarsölu talsvert hafa
borið á góma á þorrablóti Skaga-
manna sem haldið var um síðustu
helgi í Skagaseli. Þeir eru hins veg-
ar ekki óvanir þvi að þekkt fólk
kaupi jarðir i hreppnum. Þannig
hefur háif Spaugstofan hreiðrað um
sig á því mikla óðali Skíðastöðum.
Á Skaganum hefur hefðbundinn
búskapur verið á undanhaldi síð-
ustu árin eins og víðar. Búið var að
selja allan kvóta á Skefilsstöðum,
flárkvótinn var seldur þaðan síðasta
haust eins og á nokkrum öðrum bæj-
um á Skaganum. Þá er íbúðarhúsið
óíbúðarhæft og mun Eyjólfur hafa í
hyggju að reisa nýtt hús. Eftir þvi
sem Feykir hefur fregnað mun jörð-
in hafa verið seld fyrir upphæð sem
er á bilinu 6-7 milljónir sem er mjög
sennileg tala fyrir kvótalausa jörð,
en hins vegar eru veiðihlunnindi
góð á Skaganum og eiga Skefilsstað-
ir land að Bjamarvötnum. -ÞÁ
Útsala
|
Rafkaup
Ármúla 24 • sími 585 2800
Gæði og glæsileiki
smort
(sólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
>