Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2001, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2001, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2001 43 DV Tilvera Arsenio Hall 45 árs Sjónvarps- stjaman og leik- arinn Arsenio Hall fagnar í dag 45 ára afmælinu. Arsenio þykir með afbrigðum fyndin og hefur um skeið stýrt vinsælum spjall- þætti vestanhafs. Meðal þekktra kvikmynda sem hann hefur leikið í má nefna Com- ing to America frá 1988. Gildir fyrir þriöjudaginn 13. febrúar Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.l: , Lífið virðist brosa við þér þessa dagana og ef þú ert ekki þegar orð- inn ástfanginn mimtu i verða það næstu daga. Flskarnir (19. fehr.-20. mars>: Dagurinn verður á ein- Ihvem hátt eftirminni- legur og þú tekur þátt i einhveiju spennandi. Þú ættir að taka virkari þátt í fé- lagslífínu. Hrúturlnn (21. mars-19. apríl): Þú skalt forðast óþarfa tilfinningasemi og ekki láta skapið hlaupa með þig í gönur. Rómantíkin liggur i loftinu og von bráðar mun draga til tíðinda í ástarlífínu. Nautlð (20. apríl-20. maí): Þú átt mjög annríkt fyrri hluta dagsins og fólk er ekki jafn tilbú- ið að hjálpa þér og þú r. Þegar kvöldar fer allt að ganga betur. Tvíburarnlr (21. maí-21. iúni); \ Þú heyrir eitthvað sem kemur þér á óvart en -V / þú færð betri skýringu áður en langt um líð- ur. Kvöldið verður ánægjulegt. Krabblnn (22. iúní-22. iúiíi: Þó að þér finnist vinnan I vera mikilvæg þessa dag- ana ættirðu ekki að takahana fram yfir vini skyldu. Vertu heiðarlegur og hreinskilinn í samskiptmn við fólk. UÓnlð (23. iúlí- 22. áeúst): Það er hætta á deilum i dag, þar sem spenna er í loftinu vegna at- burða sem beðið er eft- ir. Skipulagning er afar mikilvæg. Mevlan (23. áeúst-22. sept.): Þú ættir að hta í eigin barm áður en þú gagn- rýnir fólk. Ef þú gerir ^ f það mun þér ganga vel að vinna með öðm fólki. Vogln (23. sept.-23. okt.l: J Einhver sýnh þér hlýtt viðmót og áhuga sem þú V f áttir aiis ekki von á. Þú /áf verður mjög ánægður með þetta en þú skalt samt ekki sýna það of mikið til að byrja með. Sporðdrekl (?4. okt.-?i. nóv.): Fjölskyldan ætti að eyða meiri tíma sam- jan. Það er margt sem kemur þér skemmti- lega á óvart i dag. Bogamaður (22. nóv.-2i. des.): i Dagurinn einkennist r af tímaskorti og þú verður á þönum fyrri hluta dagsins. Kvöldið verðiu- þó rólegt og ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar. Stelngeltln (22. des.-19. ian.l: Þú færð góðar hug- myndir í dag en það er hægara sagt en gert að koma þeim á framfæri. Fólk virðist vera afar upptekiö af sjálfu sér. Svíösljós Hraðsoðinn búðlngur í Harvard Hvaö gat aumingi'a Drew Barrymore gert annaö en reka upp skelfingaróp þegar þessir tveir kvenmannsklæddu herramenn úr Hasty Pudding Theat- ricals leikfélaginu í Harvardháskóla smelltu á hana kossi. Drew var valin hraðsuöubúöingur Harvard fyrir áriö 2001 og þykir þaö mikill heiöur. Tom Cruise með armana um Cruz Spænska leikkonan Penelope Cruz kann aö vera ástæða skilnaðar Toms Cruise og Nicole Kidman. Penelope Cruz hefur hvað eftir ann- að sést með hetjunni í Mission: Impossible. Og það er orðrómur á kreiki um að þau hafi ekki bara rætt um vinnuna. Samtímis því sem Nicole Kidman hefur veikst hvað eftir annað und- anfarna mánuði hefur Tom Cruise verið önnum kafinn við kvikmynda- tökur, meðal annars á myndinni Vanilla Sky í New York. Og sam- kvæmt slúðurfréttum þaðan hefur hann haft það bærilegt i stórborg- inni. Tom Cruise og Penelope Cruz, sem nýlega lék á móti Matt Damon í AU The Pretty Horses, sáust oft ein saman að kvöldi til á veitingastöð- um á Manhattan. Þau sáust einnig í göngutúr með armana hvort um annað. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem leikkonunni spænsku er kennt um hjónaskilnað. Ekki er langt síðan hún var orðuð við Nicolas Cage en honum kynntist hún við tökur á myndinni Captain Corellis Mandol- in um það leyti sem Cage yfirgaf eiginkonu sína, Patriciu Arquette. Fyrir hálfu ári sagði Nicole að hún vonaðist til að þau Tom gætu verið saman þegar þau yrðu áttræð. Hjónin hafa höföað mál gegn blöð- um sem hafa skrifað um meint Skilin að boröi og sæng Hér faömar Cruise Nicole eiginkonu sína. Skilnaöur þeirra hefur vakiö mikla athygli. vandamál i hjónabandi þeirra. Nú virðist hamingjusamt hjónaband vera orðið Marriage Impossible. Orðrómur er þó ekki bara á kreiki um Tom. Bent hefur verið á að vel hafi farið á með Nicole og George Clooney þegar þau stóðu hlið við hlið og svöruðu spuming- um eftir Golden Globe verðlaunahá- tíðina í síðasta mánuði. Talsmaður Clooneys segir hann vini Nicole og Toms og að hann hafi ekki haft hugmynd um skilnaðinn. Ritstjóri National Enquirer segir skilnaðinn ekki bara vegna þess að bæði hafi verið upptekin vegna frama síns. Johnson sakaö- ur um dónaskap Kona nokkur í San Francisco hef- ur sakað sjónvarps- og kvikmynda- stjömuna Don Johnson fyrir dóna- skap. Donni og konan, sem lögregl- an vill ekki nafngreina, gengu í flas- ið hvort á ööru á veitingastað í borginni við flóann. Við það tæki- færi mun leikarinn hafa gripið í konuna og spurt hana hvort brjóst- in á henni væru ekki ekta. Að sögn konunnar angaði Don af brennivíni og hún hafði ekkert fallegra um hann að segja en aö hann væri við- bjóöslegt svín. EFNAVÖRUR 1H JljijJ TveSr fyrir einn Kr. 499 C- Í/SISIÍ! I lítrí !»*<■* V IJJJJjÉÍLÆF ___ Jbónusvideo f ítverfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.