Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2001, Page 28
44
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2001
Tilvera
Rut Rebekka í
Hafnarborg
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir sýn-
ir stór olíumálverk í Sverrissal í
Hafnarborg um þessar mundir. Sem
fyrr er manneskjan í fyrirrúmi og
uppsprettan í tjáningunni er líkam-
inn þar sem hún leitast við að túlka
með hreyfingu og dansi einbeitni
hans, fegurð og styrk. Frásögnin
með pensildráttum er allt í senn,
með hrynjandi línu og lita, ásamt
byggingu forma. Þetta er fimmtánda
einkasýning Rutar.
Klúbbar
■ STEFNUMOT A GAUKNUM Þá er
aftur komið aö Stefnumóti á Gauki
á Stöng. Hljómsveitirnar Stjörnukisi,
Brain police og Vígspá ætla að sjá
um stuöið.
Krár
■ TRUBADOR A KAFFI REYKJAVIK
Einn litill trúbador í léttum fíling ætl-
ar að mæta á Kaffi Reykjavík í
kvöld. Meira vitum við ekki.
Myndllist
■ EYOIBÝLI í UÓSMYNDASAFNI
REYKJAVIKUR Nú stendur yfir sýn-
ingin Eyöibýli í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, Gröfarhúsi, Tryggva-
götu 15. Um er aö ræða samsýn-
ingu Ijósmyndaranna Nökkva Elías-
sonar og Brians Sweeney sem sam-
anstendur af á fjóröa tug Ijósmynda,
svarthvítum og litmyndum,. teknum
af eyöibýlum víðs vegar á Islandi.
'Eyöibýli Nökkva eru svarthvít, fjar-
ræn og drungaleg en eyðibýli Brians,
sem eru í lit, sýnast af þeim sökum
einum nær okkur í tíma - virðast
jafnvel hafa verið yfirgefin af ábú-
endum í flýti skömmu áður en Ijós-
myndin var tekin. Ljósmyndirnar á
sýningunni einskorðast þó ekki við
eyðibyli. Þar getur aö líta samspil
óvenjulegrar birtu, stórbrotins lands-
lags og fágætrar myndbyggingar.
Nókkvi Elíasson er 34 ára gamall'
áhugaljósmyndari, búsetturí Reykja-
vík. Hann hefur að mestu leyti ein-
beitt sér að svart/hvítum Ijósmynd-
um en undanfarin 10 ár hefur hann
helgað sig eyðibýlum og öðrum yfir-
gefnum mannvirkjum. Verk Nökkva
hafa birst víða, m.a. á bókakápum
og í dagblöðum.
■ KRÝSUVÍKIN MÍN í HAFNAR-
BORG Um helgina var opnuö sýning
á verkum Sveins Björnssonar í aðal-
sal Hafnarborgar. Sýningin nefnist
Krýsuvíkin mín en umhverfið þar um
slóðir var honum lengi hugleikiö.
Verkin á sýningunni eru frá öllum
listamannsferli Sveins, frá því hann
byrjaði iyrst að fást við landslagið í
Krýsuvík og fram á dánarár hans.
■ STORMUR í GALLERÍ HLEMMI
Stormur er yfirskrift sýningar Magn-
úsar Siguröarsonar í
galleri@hlemmur.is sem nú stendur
yfir. Fátt er eins mikið á mörkum
hins byggilega heims og íslensk
myndlist. Margvíslegir samverkandi
þættir koma þar til en stærsta þátt-
inn vill listamaðurinn tileinka hinum
tilfinningalega doða og kulda sem
safnast saman hér á hjara veraldar.
Því liggur beinast við að skilgreina
„Storminn" sem ískalda íhugun á
stöðu hins íslenska myndlistar-
manns fyrr og nú en við nánari at-
hugun kemur margt á óvart er menn
takast á við tilfinningar sínar.
Sport
■ WEST HAM - COVENTRY CITY Á
SPORTKAFFI Ekki missa af hinum
þrælsþennandi leik West ham og
Coventry City í beinni á Sportkaffi í
kvöld, klukkan 19.50.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Biogagnryni
- fjölbreytt menningardagskrá í Húsi málarans
Skemmtun til styrktar
Alnæmissamtökunum
Háskölabíó/Laugarásbíó - O Brother Where Art Thou? ★ ★★
Kostulegur flótti
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrym
um kvikmyndir.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta í Háskóla íslands, stóð á
föstudaginn fyrir skemmti- og
menningardagskrá í Húsi málarans.
Allur ágóði af dagskránni rann til
Alnæmissamtakanna en fyrr um
daginn hafði Vaka einmitt haldið
málfund um þennan illvíga sjúk-
dóm. Fjölmargir skemmtikraftar,
jafnt landsfrægir sem óþekktir,
lögðu málefninu lið með einum eða
öðrum hætti og skemmti fólk sér
hið besta.
Sungið um konur og vín
Töffarinn síungi, Rúnar Júlíusson,
kom einn meö kassagítar og tók
nokkur lög viö góöar undirtektir.
Skáldatími
Skáldiö ástsæla, Þórarinn Eldjárn,
mætti með Ijóðakver í vasanum og
flutti nokkrar frumsamdar sonnett-
ur fyrir áhorfendur.
Tenórarnir tveir
Hjalti Valþórsson og Árni Björns-
son sungu af list og sýndu fræki-
leg danstilþrif þess á milli. Hvort
tveggja féll í góöan jaröveg hjá
áhorfendum sem klöpp-
uöu þeim lof í lófa
aö uppákomunni
lokinni.
Hinn fullkomni jafningi
Felix Bergsson leikari syngur lag
úr leikriti sínu, Hinum fullkomna
jafningja.
Efstu menn
Guöfinnur Sigurvinsson, efsti maö-
ur á lista Vöku til Stúdentaráös í
ár, Inga Lind Karlsdóttir, efsti maö-
ur sama lista í fyrra, og Þórlindur
Kjartansson sem skipaöi efsta
sætiö áriö 1999.
DV-MYNDIR EINAR J.
Rúnar Júl. hvaö?
Brynleifur Birgir Björnsson, fram-
bjóöandi Vöku til Stúdentaráös,
mætti einnig meö gítarinn og söng
nokkra slagara eftir helstu átrún-
aöargoö sín.
Sjálfsagt eru það ekki mjög marg-
ir af þeim sem sjá nýjustu kvik-
mynd Coen-bræðra, O Brother,
Where Art Thou, sem hafa lesið sig
í gegnum kvæðabálk Hómers,
Ódysseifskviðu, sem myndin er
lauslega byggð á. Það er þó hjálp í
að kunna eitthvað fyrir sér í þessari
miklu kviðu þar sem þá eykst skiln-
ingur á sumum atriðum sem virðast
vera út í hött í Mississippi en eru i
samræmi við atburðarásina í
Ódysseifskviðu. Þetta skiptir samt
engu höfuðmáli þar sem þeir bræð-
ur, Joel og Ethan, hafa skapað úr
eigin hugarheimi ærslafulla og vel
gerða kvikmynd sem ber höfundar-
einkenni þeirra. Hetjurnar sem
vaða elginn eru þrír misvitrir fang-
ar sem eru, eins og kapparnir í
Ódysseifskviðu, á leið í heimahag-
ana og lenda í miklum ævintýrum á
leið sinni þangað.
Sögusviðið er Mississippi á íjórða
áratugnum. Kreppan er i hámarki
og spilltir stjórnmálamenn ráða
ríkjum. Almenningur leitar hugg-
unar í bluegrass-tónlistinni og eru
lögin því betri sem þau eru eldri.
Inn í þetta þjóðfélag ana flóttafang-
amir þrir. Ulysses (George Clooney)
er sleipur náungi sem hefur skipu-
lagt flóttann og er sjálfskipaður for-
ingi. Hann hefur sannfært félaga
sína um að mikill fjársjóður bíði
þeirra á leiðarenda. Pete (John
Turturro) er ekki alveg samþykkur
foringjahlutverki Ulysses og maldar
stundum í móinn en Delmar (Tim
Blake Nelson) er sammála síðasta
ræðumanni. Á ferð þeirra verður
fyrir þeim svartur blúsleikari,
Tommy (Chris Thomas King), sem
fær þá félaga með sér í stúdíó þar
sem þeir syngja lag inn á plötu sem
verður vinsælasta lagið í Miss-
issippi án þess þó að þeir viti af því,
trúarhópur sem frelsar Pete og Del-
mar, eineygður biblíusali (John
Goodman) sem rænir þá, þrjár íðil-
fagrar stúlkur sem tæla þá,
gangsterinn George Nelson (Mich-
ael Badaiucco) sem þolir ekki viður-
nefni sitt „Babyface" Nelson, Ku
Klux Klan félagar sem halda þá kyn-
blendinga og þegar á leiðarenda er
komið er eiginkona Ulysses (Holly
Hunter) að fara að gifta sig öðrum.
Hefur hún sagt dætrunum sjö að
pabbi þeirra hafl orðið fyrir lest.
Allri þessari iðu mannlífs, sem er
svo krydduð með sérlega skemmti-
legri kántrítónlist, hafa þeir bræður
náð að gera úr heilsteypta kvik-
mynd sem verður þó ekki talin með
þeirra bestu verkum, aðallega
vegna þess hversu stundum hægir á
atburðarásinni. Myndin stendur þó
vel undir þeim gæðastipli sem er á
öllum þeirra kvikmyndum og satt
best að segja væri bandarisk kvik-
myndagerð ilia stödd í dag ef ekki
væri fyrir frjóa kvikmyndagerðar-
menn á borð við Joel og Ethan
Coen.
George Clooney er leikari sem
vex við hverja kvikmynd og er hlut-
verk Ulysses tvimælalaust hans
mesti leiksigur til þessa. Hann hef-
ur góða tímasetningu (sem sést best
í öllu vafstri hans með hárið á sér),
er afslappaður og segir skemmtilega
frá. Einhvern veginn hefur maður
það á tilfinningunni að honum líði
afskaplega vel fyrir framan kvik-
myndavélina. John Turturro og
Tim Blake Nelson ná einnig að
skapa skemmtilegar persónur og er
samleikur þeirra þriggja frábær.
Leikstjóri: Joel Coen. Handrit: Joel og Et-
han Coen. Kvikmyndataka: Roger Deak-
ins. Tónlist: T Bone Burnett. Aöalleikar-
ar: George Clooney, John Turturro, Tim
Blake Nelson, Charles Durning, John
Goodman og Holly Hunter.