Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001
Fréttir DV
Miklir hagsmunir í húfi fyrir innanlandsflugið:
Vill kaupa við Arnarnesvog
Pétur Björnsson,
sem stundum er
kenndur við Kók,
hefur beðið um að fá
að kaupa eða leigja
stórt landsvæði við
Arnarnesvog. Með
þessu er talið að
hann vilji reyna að
koma í veg fyrir að þar rísi íbúðar-
hverfi. Stöð 2 sagði frá.
Ristilkrabbi eykst
Fjöldi karla sem fékk ristilkrabba-
mein nær þrefaldaðist á síðari hebn-
ingi 20. aldar og tvöfaldaðist hjá kon-
um. Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn íslenskra vísindamanna. Um 100
Islendingar greinast með ristil- og
endaþarmskrabbamein á hverju ári.
Yfirleitt greinist krabbameinið á síð-
ari stigum og batahorfur eru því ekki
miklar og deyja 40-50 íslendingar ár-
lega úr ristilkrabba. RÚV sagði frá.
Buena Vista til islands
Buena Vistá Social Club hljómsveit-
in er væntanleg til landsins og heldur
tónleika í Laugardalshöll 30. apríl. í
hljómsveit þessari eru aldraðir
Kúbverjar sem lítið hafði borið á í
langan tíma þegar þeir voru uppgötv-
aðir, gefin út plata með þeim sem
seldist í milljónaupplagi og kvikmynd
gerð sem farið hefur sigurfór um
heiminn og var sýnd hér á síðustu
kvikmyndahátíð. Mbl. sagði frá.
Veðurstofustjóri óánægður
Magnús Jónsson
veöurstofustjóri er
ekki ánægður með
þá ákvörðun Sjón-
varpsins að birta
auglýsingu frá Spari-
sjóðunum fyrir og
eftir veðurfréttir í
kvölddagskránni.
Hann segir að þessi auglýsing komi út
eins og vörumerki eða lógó veðurfrétt-
anna. Morgunblaðið sagði frá.
Fleiri konur í læknanám
Síðustu fjögur árin hafa fleiri kon-
ur en karlar innritast í læknadeild
Háskóla íslands og á síðasta hausti
voru þær tvöfalt fleiri en karlarnir.
Brautskráðir læknar hafa aftur á móti
verið fleiri úr hópi karla flest árin.
Of mikil skriffinska
Of mikil skriffmnska felst í því að
halda uppi skyldubundnu innra eftir-
liti hjá minni matvælafyrirtækjum,
segir formaður Matvæla- og veitinga-
sambands íslands, en heilbrigðiseftir-
lit hefur gért athugasemdir við innra
eftirlit hjá 70% matvælafyrirtækja.
Kindakjötiö selst
Sala á kindakjöti jókst um 4,4% á
síðasta ári. Sala á svínakjöti jókst
hins vegar aðeins um 2,2% en síð-
astliðin ár hefur sala á svinakjöti að
jafnaði aukist mun meira en á
kindakjöti. Sala á nautakjöti dróst
saman um 1,2% og sala á hrossa-
kjöti jókst um 22,8%, en sala á því
sveiflast yflrleitt mikiö á milli ára.
Morgunblaðið greindi frá.
Ormar og veirur liðín tíð?
Tölvufyrirtækið
Friðrik Skúlason
ehf. hyggst koma
upp tölvupóstsíu
þar sem síaður
verður frá allur
póstur með tölvu-
veirum og tölvu-
ormum. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins segir að
þetta eigi að koma í veg fyrir að
tölvunotendur verði fyrir barðinu á
veirum eða ormum sem berast með
tölvupósti. Kerfið verður þannig
byggt upp að netþjónustufyrirtæki
tengist tölvu á vegum Friðriks sem
hreinsar allan póst gegn vægu
gjaldi. RÚV sagði frá. -HK
Beðiö fyrir landsmönnum
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, fyrir miöri mynd, leiöir þátttakendur í bænastund á Vatnsendahæö á laugardaginn þar sem beöiö var fyrir landsmönnum.
Var þetta liöur í bænaátaki sem hefur yfirskriftina í bæn fyrir þér. Um kvöldiö var svo samkoma í Fíladelfíu.
Tilbúinn að minnka
flugvallarsvæðið
- segir ráðherra og segir mikilli atvinnu stefnt í Leifsstöð ef völlurinn fer
„Mér flnnst fullkomlega eðlilegt að
flugmálayfirvöld taki tiliit til þeirra
óska sem fram hafa komið um að
verði að draga
saman seglin þama
á svæðinu og skipu-
leggja það þannig að
meira náist út út því,
fyrir íbúða-
byggð og athafna-
svæði. Ég er reiðu-
búinn að ganga til
móts við þá sem
telja rétt að flugvall-
arsvæðið minnki. Ég tel að miklir
hagsmunir séu í húfi og að leita þurfi
leiða til að ná sátt í þessu máli,“ sagði
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
eftir að hafa setið fjölmennan fund
áhugafólks um flugvallarmál í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær, en andstæð-
ingum gamla herflugvallarins sem og
fylgjendum hans fjölgar stöðugt og all-
ir hafa vit á flugvallarmálum.
„Þarna em miklir hagsmunir í
Sturla
Böðvarsson.
húfi, fyrir innanlandsflugið, ferða
þjónustuna og atvinnulífið á höfuð
borgarsvæðinu," sagði Sturla Böðv
arsson. „Þama em talin á tóifta hund
rað störf á flugvallarsvæðinu. Fari
flugvöllurinn úr Vatnsmýrinni fer
innanlandsflugið í Leifsstöð og at-
vinnustarfsemin færist sjálfkrafa
þangað, einnig ýmislegt sem er háð
því að nýta völlinn, eins og almanna-
vamakerfið, flugrekstur Landhelgis-
gæslunnar og þá styttist í að Gæslan
flytti suður eftir. Nærri flugvellinum
þyrfti án efa að byggja upp sjúkrahús-
þjónustu. Höfuðborgin sæi því á eftir
mörgum störfum, ekki það að ég
harmi það að fjölgi störfum á Suöur-
nesjum, en svona lítur dæmið út í dag
og á því vakti ég athygli," sagði sam-
gönguráðherra.
Sturla segir að þetta hafi verið góð-
ur fundur og að hann hafi fundið að
hann sé ekki einn á báti að verja hinn
60 ára gamla Reykjavíkurflugvöll.
-JBP
DV-MYND HILMAR PÓR
Flugvallarfundur
Júlíus Vífill Ingvarsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Steinunn Vatdis Óskars-
dóttir og Árni Þór Sigurösson, borgarfulltrúar, tóku þátt í þallborösumræöum
á fjölmennum fundi áhugafólks um flugvallarmál í Ráöhúsi Reykjavíkur í gær.
46 nemendur útskrifaðir frá fjölbrautaskólanum á Selfossi
Ótti við slæma útreið
Reiða sig á
kvótakaup og
hagstætt verð
DV, GRINDAVÍK:
Nýlega var Reynir GK seldur og
þegar DV átti leið um bryggjuna í
Grindavík vom nýir eigendur í óða-
önn að gera klárt til að leggja netin og
máttu varla vera að því að líta upp og
stilla sér upp fyrir myndatöku. Það
eru feðgarnir Ólafur Sigurðsson og
Bergsteinn Ólafsson og fleiri sem hafa
keypt bátinn sem er 80 tonna eikar-
bátur, smíðaður í Danmörku 1958 og
var til langs tíma i eigu Fiskaness hf.
en í kjölfar sameiningar Fiskaness,
Þorbjarnar og Valdimars hefur orðið
að selja báta til að hagræða í nýja fyr-
irtækinu. Ákváðu þeir feðgar að slá
til og reyna fyrir sér í útgerð og fékkst
báturinn á hagstæðu verði en enginn
kvóti fylgdi og verða þeir því að reiða
sig á kvótakaup og hagstætt verð fyr-
ir aflann. Báturinn hefur þegar fengið
nafnið Siggi Magg GK 355.
eftir verkfall ástæðulaus
- sagði Örlygur Karlsson aðstoðarskólameistari
46 nemendur voru brautskráðir frá
Fjölbrautaskóla Suðurlands á laugar-
daginn, þar af 25 með stúdentspróf.
Tveir nemendur brautskráðust af
tveim brautum. t máli örlygs Karls-
sonar aðstoðarskólameistara við at-
höfnina kom fram að í haust hefðu 765
nemendur hafið nám, eða fleiri en
nokkru sinni. 56 nemendur hættu
námi á önninni, þar af 24 eftir að
verkfail framhaldsskólakennara skall
á. Þetta er nokkru meira brottfall en
undanfarin ár og sagði Örlygur að
kenna yrði verkfallinu um. Örlygur
sagði að námsárangur þessa önn hefði
veriö heldur lakari en undanfarnar
annir en ótti manna við mjög slæma
útreið nemenda í prófum eftir verk-
fallið hefði ekki verið á rökum reist-
ur. Vorönnin er nú hafin í íjölbrauta-
skólanum á Selfossi. Óvenjulegur
bragur á skólastarfinu er að önnin sé
hafín þegar útskrift af næstliðinni
önn er ólokið. -NH
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Hvítlr kollar á Selfossi
Útskriftarnemendur FjölbrautaskólaSuöurlands á Selfossi
ásamt Siguröi Sigursveinssyni skólameistara.