Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Page 8
8_______ Fréttir MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 I>V Þingmenn áttuðu sig ekki á þjóðlendufrumvarpinu: Munum berjast til Almennur fundur um þjóðlendu- málin var haldinn sl. þriðjudags- kvöld í Mánagarði og var Geir H. Haarde fjármálaráðherra frummæl- andi á fundinum. Fundinn sóttu 170 manns þar með taldir niu þingmenn og tveir ráðherrar. Fjármálaráð- herra sagði meðal annars að hepp- legra hefði verið að úrskurður óbyggðanefndar um þjóölendumörk- in i Árnessýslu hefðu legið fyrir áður en kröfum var lýst á öðrum svæðum en hann vonast til að þær öldur sem risið hafa lægi þegar fyrsti úrskurðurinn liggi fyrir. Allir þingmennirnir tóku til máls á fundinum og vakti það mikla at- hygli fundarmanna að fram kom hjá þingmönnum að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir að framkvæmd- ir i þjóðlendumálinu yrðu með þess- um hætti, en eins og fram hefur komið var þjóðlendumálið sam- þykkt í þinginu af öllum þingmönn- um. Örn Bergsson, bóndi á Hofi, var einn framsögumanna og var hann ómyrkur i máli og sagðí að þetta væri hrein aðför að eignarrétti land- eigenda og sagöi að bændur mundu berjast til síðasta blóðdropa fyrir rétti sínum. Fyrirspurnir komu til fjármála- ráðherra um hverjir kæmu til með að bera lögfræðikostnað og annan Einvalaliö á fundi Albert Eymundsson bæjarstjóri stjórnar fundlnum. Örn Bergsson bóndi, Ólaf- ur Björnsson lögmaöur og Geir H. Haarde voru framsögumenn á fundinum. Til fundar mættu tveir ráöherrar og níu þingmenn. DV-MYNDIR JULIA IMSLAND. Þungt hljóö Fundarmenn fylgdust meö ræöum þingmanna með athygli. Talsvert þungt hljóö var í mörgum fundarmanna sem þykir að veriö sé aö sviþta þá réttmætum eigum sínum. kostnað sem málinu fylgir og hverju menn mættu eiga von á í því sam- bandi. Ráðherra sagðist ekki geta svarað þessu því það væri alfarið óbyggöanefnd sem heföi með þau mál að gera . Einn af mörgum landeigendum sem fundinn sótti var Anna María Ragnarsdóttir, sem ásamt móður sinni er aðaleigandi Skaftafells, og þegar DV hafði samband við hana eftir fundinn til að fá skoðun henn- ar á gangi mála sagði hún: „Það sem að okkur snýr, þá ætla þeir að hirða meirihluta jarðarinn- ar þar með talinn Skeiðarársand út að sjó og við erum óskaplega ósátt og skiljum þetta ekki. Það kemur fram í kröfulýsingunni að Skafta- fellsbóndi kaupir jörðina af konungi þann 16. maí 1836 og greiðir fyrir hana 537 rikisdali. Þama kemur í ljós að jörðin er keypt og greitt fyr- ir hana með peningum og samt á að taka hana,“ segir Anna María sem var eins og aðrir mjög undrandi á yfirlýsingum þingmanna og að þeir skyldu ekki skilja betur hvað þeir voru að samþykkja á Alþingi. Júlia Imsland síðasta blóðdropa - segir Örn Bergsson, bóndi á Hofi, og talar um aöför að bændum Vinnuhópur á vegum Samtaka verslunar og þjónustu: Gagnrýnir nýtt tó- baksvarnarfrumvarp Vinnuhópur á vegum Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir að í nýju frumvarpi til laga um tóbaks- varnir sé yngra fólki en 18 ára ekki heimilt að selja tóbak, nema með sér- stakri tímabundinni undanþágu. Hópurinn telur að ef ákvæðið nær fram að ganga verði víða erfitt fyrir verslunareigandur að manna sölu- staði. Ljóst sé að fækkun starfsfólks muni leiða til minni þjónustu í mat- vöruverslunum og styttri afgreiðslu- tíma almennt. Samkvæmt hópnum er starfsfólk undir 18 ára oft mjög mikilvægur starfskraftur þegar skortur er á vinnu- afli eins og nú er. Um að ræða fram- haldsskólanema sem fjármagna skóla- göngu sína að hluta með vinnu í fríum. í greinargerð með frumvarpinu segir að ástæðan fyrir þessu ákvæði sé sú að afgreiðslumenn undir 18 ára treysti sér ekki til að neita jafnöldrum sínum um að fá keypt tóbak eins og gert er ráð fyrir í núgildandi lögum. Vinnuhópur SVÞ bendir á að beita þurfi jafhræðisreglu í þessu tilviki. í því sambandi má benda á að á kaffi- og veitingahúsum þar sem selt er áfengi eru starfsmenn oft á tíðum undir 20 ára aldri sem er lágmarksaldur þeirra sem mega kaupa áfengi. Verslunarrek- endur sem selja tóbak telja sig hafa átt mjög gott samstarf við heilbrigðis- nefndir um að framfylgja reglum varð- andi bann við sölu tóbaks til þeirra sem eru yngri en 18 ára. Virkt eftirlit er með þessum hlutum og átaksverk- efni sem í gangi hefur verið er unnið í góðri og árangursríkri samvinnu verslana og eftirlitsstofnana. Aðrar athugasemdir sem vinnuhóp- urinn gerir við frumvarpið er að versl- unareigendur þurfi að sækja um sér- stakt leyfi til að fá að selja tóbak og að sveitarfélögum sé heimilt að inn- heimta leyfisgjald af verslunum fyrir það. Þá er vinnuhópur SVÞ ósammála því ákvæði sem segir að uppstilling á tóbaki á sölustöðum verði bönnuð. Slíkt heföi í fór með sér mikinn hönn- unar- og breytingarkostnað í verslun- um og vandséð að þessi aðgerð leiði til þess að fullnægja markmiðum frum- varpsins, þ.e. að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks. -DVÓ Steinullarverksmiðj an Sauðárkróki: Meiri sala en nokkru sinni - 88 milljóna hagnaður í fyrra Um 88 milljóna króna hagnaður varö af rekstri Steinullarverksmiðj- unnar hf. á síðasta ári en var 108,8 milljónir árið áður. Minni hagnað má að mestu rekja til þess að upp- safnað rekstrartap fyrri ára er nú að fullu nýtt og hækka skattar fyrir- tækisins því um 15,4 milljónir og nema nú 42,6 milljónum króna. Heildarsala fyrirtækisins varð um 182.000 rúmmetrar sem er um 6% meira en árið áður og er þetta mesta sala frá upphafi rekstrar árið 1985. Sala á innanlandsmarkaði nam um 121.000. rúmmetrum, sem er um 4,5% aukning frá fyrra ári, og út voru fluttir um 61.000 rúmmetrar sem er u.þ.b. 11% aukning milli ára. Rekstrartekjur á siðasta ári voru 693,9 milljónir en 671,8 miljónir áriö á undan, rekstrargjöld 555,5 milljón- ir en 532,2 árið 1999. Veltufé frá rekstri var 141,2 milljónir en 167,9 milljónir árið á undan. Skammtíma- skuldir jukust á árinu í 180,9 millj- ónir úr 153,6 milljónum en lang- tímalán lækkuðu um svipaða tölu, í 60,9 milljónir úr 85,7 milljónum. Veltufjárhlutfall var á síðasta ári 1,98 en árið áður 1,82. Eiginfjárhlut- fall var 66,0 í stað 63,2 og arðsemi eigin fjár 19,8 í stað 23,7 árið 1999. Aðalfundur Steinullarverksmiðjunn- ar verður haldinn í lok mars og legg- ur stjórn fyrirtækisins til að greiddur verði 10% arður til hluthafa. -ÞÁ DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON. Drjúgur blóðgjafi Bára Jósefsdóttir hjúkrunarkona eftir þrettándu blóögjöfina meö ávaxtasafa og heldur í hendina á öörum blóögjafa, honum til uþþörvunar, ekkert aö óttast. Gaf blóð í 13. sinn í DV. AKRANESI: __________________ Akurnesingar brugðust vel við þegar Blóðbankinn var staddur á Akranesi nýlega. Heilu fyrirtækin sendu starfsmenn sína til blóðgjafar i og voru starfsstúlkur Blóðbankans mjög ánægðar með viðtökurnar. Hvort sem það var tilviljun eða ekki þá var Bára Jósefsdóttir, hjúkrunar- kona á Sjúkrahúsi Akraness og Heilsugæslustöð, að gefa blóð í 13. sinn. -DVÓ Vegagerðin: Hafnar beiðninni - um að byggja upp gamla þjóðveginn DV. AKRANESI' Vegagerðin vill ekki byggja upp gamla þjóðveginn við Akranes eins og bæjarstjóm Akraness hefur farið fram á. „Fyrstu svör Vegagerðarinnar vora þá að það væri í höndum þingmanna kjördæmisins að ákveða framkvæmdir sem þessar en þegar gengið var eftir nákvæmari svörum kom það fram hjá Vegagerðinni að á áttunda áratugnum heföi veriö samþykkt í samræmi við aðalskipulag kaupstaðarins að byggja innkeyrslu í bæinn upp á þeim stað þar sem hún er nú,“ sagði Gísli Gísla- son, bæjarstjóri á Akranesi, við DV. Hann segir að þess vegna geti Vega- gerðin ekki mælt með því að ný inn- keyrsla verði gerð um Þjóðbraut sem reyndar var áður aðalinnkeyrslan í bæ- inn. Að sögn Gísla er bæjarstjórn almennt þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að færa þungaflutninga inn og út úr bænum þannig að ekki verði ekið um verslunar- og íbúðargötur. Máliö verður í framhaldi af þessari niðurstöðu rætt við þingmenn kjördæmisins. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.