Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Qupperneq 11
.„aNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001
DV
Utlönd
11
Barnaníðingsmál skekur Frakkland:
Kynferðisleg áreitni
í kennslustofunni
íbúarnir í bænum Cormeilles í
Frakklandi, sem liggur 100 km vest-
ur af París, urðu slegnir óhug þegar
47 ára gamall kennari var kærður
fyrir nauðgun og kynferðislegt of-
beidi gagnvart börnum sem verið
höfðu nemendur hans í fyrsta bekk
frá árinu 1989 þar til nú. Lagðar
hafa verið fram 18 kærur. Átta
rannsóknarmenn yfirheyra nú nær
300 börn sem verið hafa nemendur
kennarans á þessu árabili. Búist er
við yfir 100 nýjum kærum.
Það hefur einnig vakið skelfmgu
að skólastjórinn í skólanum og
kennslumálayílrvöld í Eure-hérað-
inu vissu um að nemendur hefðu
kvartað undan kynferðislegri
áreitni.
Móðir drengs að nafni Dimitri
hefur greint frönskum íjölmiðlum
frá því að hún hafi þegar árið 1996
farið á fund skólastjórans, sem er
kona, eftir að sonur hennar hafi
greint frá því að kennarinn hafi
neytt hann til að þreifa á sér. Skóla-
Menntamálaráðherra Frakklands
Jac Lang skrifaði sjálfur fjölskyldu
fórnarlamba barnaníðingsins bréf.
Rithöfundurinn Jean-Yves Cendrey
etfhjúpaði málið í Cormeilles.
stjórinn á að hafa beðið kennarann
um að hætta að taka bömin í fang-
ið.
Sautján ára gömul stúlka, Elodie,
segir kennarann hafa nauðgað sér á
skólaárinu 1989 til 90 og að kynferð-
islegt ofbeldi hafi átt sér stað undir
kennaraborðinu í kennslustundum.
Skólastjórinn hafl eitt sinn staðið
kennarann að verki en ekki hafi
verið brugðist viö. „Kennarinn
klæddi sig í skyndi en skólastjórinn
lét sem hún sæi ekkert," segir
Elodie sem tvisvar hefur reynt að
svipta sig lífl.
Rektorinn hefur nú verið kærður
vegna málsins. Jack Lang, mennta-
málaráðherra Frakklands, hefur
ritað viðkomandi fjölskyldu bréf.
Rithöfundurinn Jean-Yves
Cendrey aíhjúpaði málið í
Cormeilles. Hann fór sjálfur í
skólann og tók kennarann með sér
til lögreglunnar. Kennarinn
viðurkenndi kynferðislegt ofbeldi
gagnvart nemendum sínum.
Við Markúsartorg í Feneyjum
Blómum skreyttur gestur á kjötkveðjuhátíðinni í Feneyjum. Hátíöin, sem stendur til 27. febrúar, laðar aö sér fjölda
feröamanna á hverju ári.
Borgaryfirvöld í New York:
Þrefa við leigusala um
skrifstofu fyrir Clinton
Borgarstjóri New York, Rudolph
Giuliani, kveðst ekki vera að reyna
að skapa vandamál fyrir Bill Clint-
on, fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
vegna þrefs um verð á skrifstofu-
húsnæði í Harlem. Giuliani hefur
greint frá því að embættismenn í
New York hafl hafnað tveimur eða
þremur tilboöum leigusalans sem
vill leigja Clinton skrifstofur sem
þegar hafa verið leigðar barna-
vemdarstofnun borgarinnar.
Giuliani bendir á að öryggis-
gæsla verði nauðsynleg og að borg-
aryfirvöld vilji tryggja að starfsfólk
og ungir skjólstæðingar þess hafi
greiðan aðgang að byggingunni.
Clinton skoðaði skrifstofuhús-
næðið í Harlem eftir að hann var
harðlega gagnrýndur fyrir að hafa
hugleitt að taka á leigu rándýra
Rudolph Giuliani
Borgarstjórinn /' New York kveðst
ekki vera að skapa vandamál fyrir
Bill Clinton.
skrifstofu i skýjakljúf á Manhattan
á kostnað skattgreiðenda.
Samningaviðræður um skrif-
stofuhúsnæðið sigldu í strand
vegna skilyrða sem borgaryfirvöld
settu leigusalanum áður en þau af-
hentu Clinton 14. hæðina i skipt-
um fyrir annað rými í bygging-
unni undir bamaverndarstofnun-
ina.
„Ég veit að þetta lítur út fyrir að
vera sniðugt og fyndið og allt það
en við erum ekki að gera Clinton
erfitt fyrir,“ tók Giuliani fram á
fundi með fréttamönnum.
Giuliani, sem er repúblikani,
bauð sig fram til þingsetu í öld-
ungadeildinni fyrir New York á
móti Hillary Clinton. Hann dró sig
í hlé eftir að hann greindist með
krabbamein í blöðruhálskirtli.
útsala
verðhrun
\
Opnunartími:
Mán.-fim. og lau. kl. 10-18
Fös. kl.10-19. Sun. kl.12-17
VÖRUHUSIÐ
Kai Satay
Kolagrillaðir
kryddaðir
kjúklingateinar með
hnetusósu og
steiktum
hrísgrjónum.
Ekkert MSG!!!
Umboösaöiii:
Tómas & Dúna ehf.
Bergholt 2, 270 Mosfellsbær
Sími 896 3536 • Fax.566 8978
E-mail. tomasb@simnet.is
1/2 kíló hver réttur
Kai Pad Kra-Prow
Steiktur kjúklingur með fersku chili,
hvítlauk og basillaufum.
Kio Wan Kai
Kjúklingur í hefðbundinni taílenskri grænni
karrísósu, með kókosmjólk, ferskri myntu
og eggaldin.
Pad thai
Steiktar taílenskar hrísnúðlur með rækjum
og smokkfiski, eggi og söltuðum hreðkum,
blaðlauk og hnetum.
Tom yam koong
Rækjur með sítrónugrasi
og sveppum í sterkri súpu.
Tom Kha Kai
Kjúklingur með sítrónugrasi,
sveppum og kókosmjólk í sterkri og súrri súpu.
Pad Ped Kai Nor-Mai
Steiktur kjúklingur með fersku chili,
bambusrótum, hvítlauk og basillaufum.
Nýtt á íslandi
Beint frá Thailandi
I
Nýkaup
Loksins getur þú borðað thailenskan mat
heima eins og Thailendingar matreiða hann.