Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Síða 24
40 _____________________________________________MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 Tilvera I>V Video-námskeið fyrir þig Tom Cruise Er ekki allur þar sem hann er séöur. Ræður einkaspæjara Gamanið er heldur betur farið að kárna hjá hjónakornunum Cruise og Kidman. Eins og alþjóð veit, og upplýstist í aðalfrétta- tima Sjónvarpsins, hafa þau ákveðið að skilja eftir tíu ára hjónaband og fengið sér heila hjörð af fégráðugum lögfræðing- um sem berjast um að fá að naga kjötið af beinunum. Nýjustu fregnir í þeim efnum herma að Cruise hafi ráðið til sín einkaspæjara til að grafast fyrir um að hvað Kidman er að gera. Subbulegt! Stephen King Ekki sáttur viö tryggingafélag sitt. Vill meiri bæt- ur fyrir slysið Meistari hrollvekjunnar, Steph- en King, hræðist fátt meira en að fá ekki borgað það sem honum ber. King slasaðist sem kunnugt er í júni árið 1999 þegar ökumað- ur ók aftan á hann þar sem hann gekk sér til heilsubótar úti í veg- kanti á þjóðvegi skammt frá heimili sínu. King hefur gengist undir fjölmargar aðgerðir síðan þá og enn bíða hans nokkrar. í samskiptum sínum við trygginga- félag sitt segist King ekki hafa fengið greitt það sem honum ber. Fer hann fram á tæpar hundrað milljónir í greiðslu frá félaginu fyrir vinnutap og sjúkrakostnaö. King segir heildarkostnaðinn hins vegar nema 650-750 milljón- um króna. Bökuðu 1400 pönnukökur Allt á fUllll DV-MYNDIR PÉTUR Ingibjörg Pétursdóttir, Linda Vigfúsdóttir, Guörún Víglundsdóttir og Alda Vil- hjálmsdóttir í óöaönn við aö ganga frá pönnukökunum. Þær voru árrisular konurnar í Kvenfélagi Ólafsvíkur á fimmtudag í sl. viku er þær hófu sinn árlega sólarpönnukökubakstur. Hann er í tilefni af því að sólin gæist þá á Snoppuna í Ólafsvík, ef gott veður er, en Ólafsvíkurenni skyggir þar á til 23. janúar ár hvert. Fyrirtækjum og stofnunum í Snæfellsbæ er þá gefinn kostur á að kaupa pönnsur með morgun- og síödegiskafFinu og eru þær alltaf vel þegnar. Þar sem búið var að taka niður pantanir og salan gekk vel í vikunni þá varð að vakna snemma og fara hræra degið, baka, þeyta rjóma o.m.fl. Að sögn Esterar Gunnarsdóttur, formanns pönnukökunefndar Kven- félagsins, en í henni eru 11 konur, tókst þessi bakstur mjög vel og fé- lagskonur tóku langflestar virkan þátt í honum. Alis seldust um 1400 pönnukökur og hún vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem keyptu. Pönnukök- urnar sem ýmist voru seldar með rjóma og sultu eða aðeins sykri þóttu afbragðsgóðar en þær voru svo keyrðar til viðskiptavina. Þetta er mjög góð fjáröflun fyrir félagið en bæði Ólafsvíkurkirkja og fleiri aðil- ar í bæjarfélaginu hafa notið góðs af dugnaði þeirra. Núverandi formaður Kvenfélags Ólafsvíkur er Steiney Ólafsdóttir og ásamt henni eru þær Nanna Þórðar- dóttir og Berglind Hallmarsdóttir í stjórn. -PSJ Sumartískan sýnd í New York: Stutt pils og ofurmjúkt leöur Fagurgrænt Anna Sui fékk hrós fyrir falleg efni og hér má sjá fagurgrænan flannelkjól skreyttan blómum. Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur: Þótt enn sé vetur og sumarið ekki einu sinni á næsta leiti keppast tískuhönn- uðir heimsins nú við að boða tísku næsta hausts. Haustlínan var kynnt á svokall- aðri tískuviku í New York sem lauk nú fyrir helgina. Meðal þess sem þar bar fyrir augu voru stutt pils i anda 9. áratugarins úr tískuhúsi hins virta hönnuðar önnu Sui. Anna Sui vakti töluverða athygli og þótti haustlína hennar hressileg og henni var m.a. hrósað fyrir fallega efnisnotkun. Sjálf sagðist hún sækja áhrifin tii 9. áratugarins en einnig til áranna upp úr 1940. „Mér hefur alltaf fundist diskótimabilið vera endurómun af því sem var að gerast á fimmta áratugnum," sagði Anna Sui meðal annars um áhrifavalda haustlínunnar. Skartgripir skipa stóran sess í sumarlínu Sui eins og venjulega enda hvetur hönnuðurinn konur til vera duglegar að nota fylgihluti og breyta þannig ásýnd fatnaðarins. Önnur kona, Caroline Herrera, vakti einnig verðskuldaða athygli í New York. Hún þótti einnig sækja áhrif til tísku 9. áratugarins eins og kollega hennar, Anna Sui. Það var hins vegar ofurmjúkt leðrið í nokkrum ílíka Herrera sem vakti hvað mesta athygli en almennt er talið að leður i ýmsum myndum verði algeng sjón næstkomandi haust. Kasmírull í peysu Caroline Herrera átti margar fallegar flíkur á tískuvikunni í New York. Hér klæðist fyrirsætan glæsilegri föigrænni kasmírullarpeysu viö hnésítt pils. * Silki og siffon Glæsilegur haustklæðnaður, og afskaplega htýtegur, ættaöur úr tískuhúsi Önnu Sui. Bleikir og brúnir litirnir fara vet saman. Minkur viö buxur Fyrirsætan klæðist svörtum buxum og fínlegum toppi úr minkaskinni. Mittisskrautiö setur svo punktinn yfir i-iö. Hvernig á að taka betri myndir? „ . , . , „ . . .. _ Hvernig á að klippa videomyndir? Hvernig búnað er best að kaupa? Námskeið fyrir þá sem vilja taka betri fjölskyldumyndir í fríinu og geta klippt þær og hljóðsett. Einnig leiðbeint hvernig hægt er að klippa og hljóðsetja gömlu myndirnar sem þú tókst fyrir mörgum árum. Góð aðstaða: tölvur og myndavólar, litlir hópar, fagmenn leiðbeina. Kvöldnámskeið, 8 klst., kr. 12.000. Þátttakendur fá sérstakan afslátt á myndvinnslubúnaði hjá ACO. FILMLEIKAFELAGIÐ Hringið í síma 551 0708 - núna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.