Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Qupperneq 24
40
_____________________________________________MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001
Tilvera I>V
Video-námskeið fyrir þig
Tom Cruise
Er ekki allur þar sem hann er séöur.
Ræður
einkaspæjara
Gamanið er heldur betur farið
að kárna hjá hjónakornunum
Cruise og Kidman. Eins og alþjóð
veit, og upplýstist í aðalfrétta-
tima Sjónvarpsins, hafa þau
ákveðið að skilja eftir tíu ára
hjónaband og fengið sér heila
hjörð af fégráðugum lögfræðing-
um sem berjast um að fá að naga
kjötið af beinunum. Nýjustu
fregnir í þeim efnum herma að
Cruise hafi ráðið til sín
einkaspæjara til að grafast fyrir
um að hvað Kidman er að gera.
Subbulegt!
Stephen King
Ekki sáttur viö tryggingafélag sitt.
Vill meiri bæt-
ur fyrir slysið
Meistari hrollvekjunnar, Steph-
en King, hræðist fátt meira en að
fá ekki borgað það sem honum
ber. King slasaðist sem kunnugt
er í júni árið 1999 þegar ökumað-
ur ók aftan á hann þar sem hann
gekk sér til heilsubótar úti í veg-
kanti á þjóðvegi skammt frá
heimili sínu. King hefur gengist
undir fjölmargar aðgerðir síðan
þá og enn bíða hans nokkrar. í
samskiptum sínum við trygginga-
félag sitt segist King ekki hafa
fengið greitt það sem honum ber.
Fer hann fram á tæpar hundrað
milljónir í greiðslu frá félaginu
fyrir vinnutap og sjúkrakostnaö.
King segir heildarkostnaðinn
hins vegar nema 650-750 milljón-
um króna.
Bökuðu 1400 pönnukökur
Allt á fUllll DV-MYNDIR PÉTUR
Ingibjörg Pétursdóttir, Linda Vigfúsdóttir, Guörún Víglundsdóttir og Alda Vil-
hjálmsdóttir í óöaönn við aö ganga frá pönnukökunum.
Þær voru árrisular konurnar í
Kvenfélagi Ólafsvíkur á fimmtudag
í sl. viku er þær hófu sinn árlega
sólarpönnukökubakstur. Hann er í
tilefni af því að sólin gæist þá á
Snoppuna í Ólafsvík, ef gott veður
er, en Ólafsvíkurenni skyggir þar á
til 23. janúar ár hvert. Fyrirtækjum
og stofnunum í Snæfellsbæ er þá
gefinn kostur á að kaupa pönnsur
með morgun- og síödegiskafFinu og
eru þær alltaf vel þegnar. Þar sem
búið var að taka niður pantanir og
salan gekk vel í vikunni þá varð að
vakna snemma og fara hræra degið,
baka, þeyta rjóma o.m.fl.
Að sögn Esterar Gunnarsdóttur,
formanns pönnukökunefndar Kven-
félagsins, en í henni eru 11 konur,
tókst þessi bakstur mjög vel og fé-
lagskonur tóku langflestar virkan
þátt í honum. Alis seldust um 1400
pönnukökur og hún vill koma á
framfæri innilegum þökkum til
allra þeirra sem keyptu. Pönnukök-
urnar sem ýmist voru seldar með
rjóma og sultu eða aðeins sykri
þóttu afbragðsgóðar en þær voru
svo keyrðar til viðskiptavina. Þetta
er mjög góð fjáröflun fyrir félagið en
bæði Ólafsvíkurkirkja og fleiri aðil-
ar í bæjarfélaginu hafa notið góðs af
dugnaði þeirra.
Núverandi formaður Kvenfélags
Ólafsvíkur er Steiney Ólafsdóttir og
ásamt henni eru þær Nanna Þórðar-
dóttir og Berglind Hallmarsdóttir í
stjórn. -PSJ
Sumartískan sýnd í New York:
Stutt pils og
ofurmjúkt leöur
Fagurgrænt
Anna Sui fékk
hrós fyrir falleg
efni og hér má
sjá
fagurgrænan
flannelkjól
skreyttan
blómum.
Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur:
Þótt enn sé vetur og sumarið ekki einu sinni á næsta leiti keppast tískuhönn-
uðir heimsins nú við að boða tísku næsta hausts. Haustlínan var kynnt á svokall-
aðri tískuviku í New York sem lauk nú fyrir helgina.
Meðal þess sem þar bar fyrir augu voru stutt pils i anda 9. áratugarins úr
tískuhúsi hins virta hönnuðar önnu Sui.
Anna Sui vakti töluverða athygli og þótti haustlína hennar hressileg og
henni var m.a. hrósað fyrir fallega efnisnotkun. Sjálf sagðist hún sækja
áhrifin tii 9. áratugarins en einnig til áranna upp úr 1940. „Mér hefur
alltaf fundist diskótimabilið vera endurómun af því sem var að gerast
á fimmta áratugnum," sagði Anna Sui meðal annars um áhrifavalda
haustlínunnar.
Skartgripir skipa stóran sess í sumarlínu Sui eins og venjulega enda hvetur
hönnuðurinn konur til vera duglegar að nota fylgihluti og breyta þannig ásýnd
fatnaðarins.
Önnur kona, Caroline Herrera, vakti einnig verðskuldaða athygli í
New York. Hún þótti einnig sækja áhrif til tísku 9. áratugarins eins og
kollega hennar, Anna Sui. Það var hins vegar ofurmjúkt leðrið í
nokkrum ílíka Herrera sem vakti hvað mesta athygli en almennt er
talið að leður i ýmsum myndum verði algeng sjón næstkomandi
haust.
Kasmírull í peysu
Caroline Herrera
átti margar
fallegar flíkur á
tískuvikunni í New
York. Hér klæðist
fyrirsætan
glæsilegri
föigrænni
kasmírullarpeysu
viö hnésítt pils.
*
Silki og siffon
Glæsilegur
haustklæðnaður, og
afskaplega htýtegur,
ættaöur úr tískuhúsi
Önnu Sui. Bleikir og
brúnir litirnir fara vet
saman.
Minkur viö
buxur
Fyrirsætan
klæðist svörtum
buxum og
fínlegum toppi
úr minkaskinni.
Mittisskrautiö
setur svo
punktinn yfir i-iö.
Hvernig á að taka betri myndir? „ . , . , „ . . .. _
Hvernig á að klippa videomyndir?
Hvernig búnað er best að kaupa?
Námskeið fyrir þá sem vilja taka betri fjölskyldumyndir í fríinu
og geta klippt þær og hljóðsett. Einnig leiðbeint hvernig hægt
er að klippa og hljóðsetja gömlu myndirnar sem þú tókst fyrir
mörgum árum.
Góð aðstaða: tölvur og myndavólar, litlir hópar, fagmenn leiðbeina.
Kvöldnámskeið, 8 klst., kr. 12.000.
Þátttakendur fá sérstakan afslátt á myndvinnslubúnaði hjá ACO.
FILMLEIKAFELAGIÐ
Hringið í síma 551 0708 - núna