Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Side 26
42
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001
I>V
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_______________________________
Guðrún D. Björnsdóttir,
Hæðargaröi 33, Reykjavík.
80 ára_______________________________
Elías ívarsson,
Skeljabúð, Selfossi.
75 ára_______________________________
Ásgeir Guðmundsson,
Fannafold 11, Reykjavík.
Guömunda Davíösdóttir,
Þverbrekku 2, Kópavogi.
Hólmfríöur Árnadóttir,
Faxabraut 13, Keflavík.
70 ára ______________________________
Margrét S. Árnadóttir,
Laugarásvegi 7, Reykjavík.
Sigríöur Bjarnadóttir,
Brimhólabraut 38, Vestmannaeyjum.
Sigurpáll Óskarsson,
Starengi 18, Reykjavík.
60ára_________T______________________
Sigurlína Rut Ólafsdóttir,
Stekkjargerði 10, Akureyri.
Sunna Söebech,
Austurbrún 6, Reykjavík.
50 ára_______________________________
Guðný Sigríöur Hilmisdóttir,
Vestmannabraut 72, Vestmannaeyjum.
Guöný Þorgeirsdóttir,
Uppsalavegi 6, Húsavík.
Heiöar Hermannsson,
Kirkjuvegi 2, Bolungarvík.
Ingibjörg Siguröardóttir,
Dalatúni 14, Sauðárkróki.
Jón ívarsson,
Lautasmára 8, Kópavogi.
Linda Hannesdóttir,
Bröttugötu 21, Vestmannaeyjum.
Ólafur Þórarinsson,
Víkurbraut 14a, Grindavík.
Sigríöur Baldursdóttir,
Hamraborg 18, Kópavogi.
Skafti Þ. Halldórsson,
Haukalind 29, Kópavogi.
40ára________________________________
Benedikt Lárusson,
Kirkjubæ 1, Kirkjubæjarklaustri.
Helga Ester Snorradóttir,
Dalbraut 8, Dalvík.
Helga Jóhannesdóttir,
Viðarrima 64, Reykjavík.
Jóhanna Kristín Jósefsdóttir,
Melavegi 10, Hvammstanga.
Jón Þorleifsson,
Hafnargötu 119, Bolungarvík.
Olgeir Þorvaldsson,
Klapparstíg 1, Dalvík.
Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir,
Gilsbakka 8, Hvammstanga.
Soffía Sigurnanna Hrelnsdóttir,
Klaufabrekkum, Dalvík.
Sólveig Antonsdóttir,
Rfurima 8, Reykjavík.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen Sverrir Einarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíö35 • Siml 581 3300
allan sólarhrlnginn. www.utfararstofa.ehf.is/
Andlát
Ámý Evrún Ragnhildur Helgadóttir,
Garövangi, Garöi, áður Þórustíg 17 og
Vallarbraut 2, Njarðvík, lést 15.2.
Inga Guðbjörnsdóttir, Keldulandi 13,
Reykjavík, lést á Landspítala, Vífilsstöð-
um, fimmtud. 15.2.
Sigfús Agnar Sveinsson, Hólavegi 34,
Sauðárkróki, andaðist á Heilbrigðis-
stofnun Skagafjarðar fimmtud. 15.2.
Jarðarför Eyrúnar Normann fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu 26.1.
Anna Oddsdóttir frá Stykkishólmi,
Furugerði 1, andaöist fimmtud. 15.2.
Fímmtugur
Finnbogi Rútur Þormóðsson
kennari við Hí
Dr. Finnbogi Rútur Þormóðsson
taugalíffræðingur, Mávahlíð 35,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Finnbogi fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Hlíðunum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1972, BS-prófi i
líffræði við HÍ 1980 og doktorsprófi
Ph.D. í taugalíffræði frá Cornwell
University Graduate School of Med-
ical Science í New York 1990.
Finnbogi var aðstoðarmaður á
rannsóknarstofu ÍSAL 1972-75, var
kennari við MK 1980-83, stundaði
rannsóknarstörf við læknadeild
Yale University í Bandaríkjunum
1990-92 og hefur sinnt rannsóknar-
störfum og stundakennslu við
læknadeild HÍ.
Finnbogi hefur samið ýmsar
fræðigreinar og ritgerðir er tengjast
rannsóknum hans og námi.
Fjölskylda
Finnbogi kvæntist 12.8. 2000 Sig-
rúnu Láru Shanko, f. 13.10.1955, sér-
fræðingi í endurkröfum. Hún er
dóttir Gunnars Hermannssonar og
Huldu Þorgrímsdóttur.
Sonur Finnboga og Estherar H.
Guðmundsdóttur er Steinbergur
Finnbogason, f. 30.7. 1973, sölumað-
ur í Reykjavík, en kona hans er
Hrafnhildur Valdimarsdóttir og er
dóttir þeirra Dagmar Linda Stein-
bergsdóttir.
Dóttir Finnboga er Geirþrúður
Finnbogadóttir, f. 7.8. 1977, nemi.
Börn Sigrúnar frá fyrra hjóna-
bandi eru Atli Ásmundsson, f. 12.6.
1979; María Ásmundsdóttir, f. 2.2.
1978.
Systkini Finnboga eru Tryggvi
Þormóðsson, f. 16.10.1954, ljósmynd-
ari í Reykjavík; Jóhanna Þormóðs-
dóttir, f. 7.9. 1957, skrifstofumaður í
New Hampshire í Bandaríkjunum;
Þormóður Þormóðsson, f. 22.8. 1963,
flugrekstrarfræðingur i Reykjavík.
Foreldrar Finnboga: Þormóður
Hjörvar, f. 24.5. 1922, d. 31.12. 1970,
loftsiglingafræðingur og Geirþrúður
Finnbogadóttir, f. 17.6. 1923, sjúkra-
liöi.
Ætt
Meðal systkinia Þormóðs er Úlfur
rithöfundur, faðir Helga Hjörvar,
forseta borgarstjórnar. Þormóður
var sonur Helga Hjörvar, útvarps-
manns og rithöfundar. Meðal
margra hálfsystkina Helga, sam-
feðra, voru Pétur Hoffmann; Gunn-
ar Úrsus aflraunamaður; Lárus
glímukóngur, faðir Ármanns glímu-
kappa, og Haraldur, faðir Auðar
Haralds rithöfundar. Helgi var son-
ur Salómons, b. í Drápuhlið í Helga-
fellssveit, Sigurðssonar, b. í
Miklholti, Horna-Salómonssonar, b.
í Hólakoti, Bjamasonar, langafa
Kristjönu, móður Ingibjargar Þor-
bergs söngkonu. Móðir Helga Hjörv-
ar var Guðrún Sigurðardóttir, b. á
Gríshóli í Helgafellssveit, Þórðar-
sonar.
Móðir Þormóðs var Rósa, systir
Kristjóns, afa Helga Péturssonar
borgarfulltrúa. Rósa var dóttir
Daða, b. á Litla-Vatnshorni í Döl-
um, Daðasonar, b. á Bólstað í Döl-
um, Magnússonar. Móðir Daða
yngri var Sigríður Erlendsdóttir, b.
á Fremra-Skógskoti, Þórðarsonar.
Móðir Rósu var Guðbjörg Sigríður,
systir Jens, vaktara í Stöðlakoti,
afa Brynjólfs Jóhannessonar leik-
ara. Guðbjörg var dóttir Jóhannes-
ar, steinsmiðs í Kasthúsum í
Reykjavík,
Magnússonar
og Ingibjargar
Jensdóttur, frá
Eyrarbakka,
Ólafssonar.
Móðir Ingi-
bjargar í Kast-
húsum var
Gróa Gunnars-
dóttir, hrepp-
stjóra i Einars-
höfn á Eyrar-
bakka, Jóns-
sonar, bróður
Jóns yngra
Gamalíelsson-
ar, en af afkom-
endum hans
má nefna Ingi-
björgu Sólrúnu
borgarstjóra.
Geirþrúður
er dóttir Finn-
boga Rúts, raf-
virkja í
Reykjavík,
Ólafssonar, b.
og sjómanns í
Múla I Gufu-
dalssveit, Kristjánssonar. Móðir
Finnboga Rúts var Guðrún Ara-
dóttir, b. í Múla, bróður Jóns, föð-
ur Björns, ritstjóra og ráðherra,
föður Sveins forseta. Systir Ara
var Helga, langamma Viðars Vík-
ingssonar kvikmyndagerðar-
manns. Ari var sonur Jóns, b. i
Djúpadal, Arasonar, bróður Guð-
rúnar, ömmu Gests Pálssonar
skálds. Bróðir Jóns var Finnur, afi
Ara Arnalds, afa Ragnars Arnalds,
rithöfundar og fyrrv. alþm.
Móðir Geirþrúðar var Jóhanna,
dóttir Kristjáns, b. á Árgilsstöðum í
Hvolhreppi, Jónssonar, b. í Fagur-
hlíð í Landbroti, Eyjólfssonar og
Guðnýjar Jónsdóttur, b. í Efri-Vík,
Guðbrandssonar. Móðir Guðnýjar
var Guðlaug Oddsdóttir, systir Guð-
ríðar, langömmu Jóhannesar Kjar-
vals. Móðir Jóhönnu var Eyrún
Jónsdóttir, b. á Árgilsstöðum, Berg-
steinssonar, bróður Þuríðar,
langömmu Bergsteins brunamála-
stjóra og Sigurðar hrl. Gizurarsona,
Ólafs G. Einarssonar, fyrrv. alþing-
isforseta, og Boga Nilssonar, fyrrv.
ríkissaksóknara. Móðir Eyrúnar
var Þuríður Eyjólfsdóttir.
MBm' :
Skúli Pétursson
grunnskólakennari á Dalvík
Skúli Pétursson, grunnskóla-
kennari á Dalvík, Hjarðarslóð ld,
Dalvík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Skúli fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Langholtsskóla,
Ármúlaskóla, lauk kennaraprófi frá
KHÍ 1992 og stundaði nám í sálfræði
við HÍ í tvö ár.
Skúli starfaði i mörg ár á sambýli
fyrir einhverfa og á sambýli fyrir
fjölfatlaða. Þá starfaði hann um ára-
bil við Kleppsspítalann og á ung-
lingageðdeild
Hann kenndi við Einholtsskóla í
Reykjavík 1994-96 og hefur kennt
við Dalvíkurskóla frá 1997.
Skúli hefur sungið í kórum og
syngur nú með Samkór Svarfdæla.
Fjölskylda
Skúli kvæntist 11.7. 1998 Lindu
Björk Holm, f. 18.6. 1961, sjúkraliða
og háskólanema. Hún er dóttir Jóns
H. Holm, leigubifreiðarstjóra í Dan-
mörku, og Eddu Vilborgar Guð-
mundsdóttur, ráðgjafa í Reykjavík.
Böm Skúla og Lindu Bjarkar eru
Þórdís Edda Holm Skúladóttir, f.
20.4. 1992; Sturla Holm Skúlason, f.
26.6. 1995.
Systkini Skúla eru Sigurður Pét-
ursson, f. 30.1. 1955, d. 1.1. 1983,
prentari; Ásta Pétursdóttir, f. 13.4.
1956, búsett í Bandarikjunum; Mar-
grét Pétursdóttir, f. 3.11.1966, búsett
í Hafnarfirði.
Foreldrar Skúla: Pétur Sigurðs-
son, f. 2.7. 1928, d. 16.12. 1996, for-
stjóri Hrafnistu og alþm., og Sigríö-
ur Sveinsdóttir, f. 1.7. 1931, skrif-
stofumaður.
Ætt
Pétur var sonur Sigurðar, kaup-
manns í Keflavík, Péturssonar, sjó-
manns í Keflavík, Jónsson, frá Kata-
dal í Húnavatnssýslu, Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg, systir
Þórðar, langafa Jóns Guðmundsson-
ar á Reykjum og langafa Vigdísar,
móður Láru Ragnarsdóttur alþm.
Þórður var afi Erlendar Ó. Péturs-
sonar, formanns KR, sem var móð-
urbróöir Péturs Guðfmnssonar,
fyrrv. framkvæmdastjóra Sjón-
varpsins. Ingibjörg var dóttir Jóns,
b. og skipasmiðs í Engey, Pétursson-
ar, b. í Engey, Guðmundssonar.
Meðal bama Péturs í Engey voru
Guðrún, langamma Bjama Bene-
diktssonar, Sigriður, langamma Pét-
urs Sigurgeirssonar biskups og Pét-
urs Sigurðssonar, frv. forstjóra
Landhelgisgæslunnar, og Halldóra,
langamma Gunnars, föður Þorsteins
leikara og arkitekts.
Móðir Péturs var Bima Ingibjörg,
dóttir Hafliða, sjómanns i Reykjavík,
bróður Bjama vígslubiskups. Hafliði
var sonur Jóns, tómthúsmanns i
Mýrarholti í Reykjavík, Oddssonar,
b. á Vindási í Kjós, Loftssonar. Móð-
ir Jóns var Kristín Þorsteinsdóttir,
systir Kristínar eldri, langömmu
Þuríðar Pálsdóttur og Jómnnar Við-
ar. Móðir Hafliða var Ólöf, systir
Guðnýjar, ömmu Jóhannesar Zoega
hitaveitustjóra. Ólöf var dóttir Haf-
liða, tómthúsmanns í Nýjabæ í
Reykjavík, Nikulássonar og Guð-
fmnu Pétursdóttur, systur Jóns í
Engey, afa Sigurðar, fóður Péturs.
Sigríður er dóttir Sveins, bróður
Fannýjar Kristínar, móður Ingvars
Gíslasonar, fyrrv. alþm. og ráð-
herra. Sveinn var sonur Ingvars,
alþm. á Ekm, Pálmasonar, b. á Ás-
um í Austur-Húnavatnssýslu, Sig-
urðssonar. Móðir Ingvars á Ekru
var Guðrún Björg Sveinsdóttir.
Móðir Sveins Ingvarssonar var
Margrét Guðmundína, dóttir Finns
Guðmunssonar og Önnu Margrétar
Guðmundsdóttur. Móðir Sigríðar
var Ásta Fjeldsted.
:• ________Jarðarfarir
Sigríöur Sigurðardóttir (Stella), Hrafn-
istu, Hafnarfirði, síðast á Þorragötu 7,
Reykjavík, veröur jarösungin frá Dóm-
kirkjunni mánud. 19.2. kl. 13.30.
Hákon Ragnars, Hrauntungu 66, Kópa-
vogi, sem lést á heimili sínu aðfaranótt
föstud. 9.2., verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánud. 19.2. kl. 15.00.
Magnús Brynjar Guðjónsson, Móasíöu
6a, Akureyri, sem lést af slysförum
mánud. 12.2., veröur jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju þriöjud. 20.2. kl. 13.30.
Jóhann Gunnar Jóhannsson trésmiður,
Grænuhlíö 8, sem andaðist mánud.
12.2., verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjud. 20.2. kl. 13.30.
Merkir íslendingar
Friðfinnur Ólafsson, forstjóri Háskóla-
bíós, fæddist á Strandseljum í ögur-
hreppi við Djúp 19. febrúar 1917. Hann
var sonur Ólafs Kristjáns Þórðarsonar,
bónda á Strandseljum, og k.h., Guðríðar
Hafliðadóttur húsfreyju. Meðal barna
Friðfinns eru Björn ráðuneytisstjóri,
Stefán, forstjóri íslenskra aðalverk-
taka, Ólafur innkaupastjóri, Sigrún
hjá Tryggingastofnun, Guðríður
endurskoðandi og Elin Þóra, hjá Skjá
einum. Friðfmnur var bróðir Sólveigar,
konu Hannibals Valdimarssonar og
móður Jóns Baldvins sendiherra og Am-
órs heimspekings. Meðal bræðra Friðfinns
má nefna Kjartan kaupfélagsstjóra, Hafliða í
Ögri og Þórð, útvegsb. í Odda.
Friðfinnur Ólafsson
Friðfinnur lauk stúdentsprófi frá MA 1938
prófi i viðskiptafræði frá HÍ 1942. Hann
var stundakennari við Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar, Iðnskólann í Hafnarfirði
og kenndi við MR 1958-1980. Hann var
forstöðumaður hjá Viðkiptaráði, fram-
kvæmdastjóri Tjamarbíós og siðan
Háskólabíós til dauðadags 7. júni 1980.
Friðfinnur var lengst af fremur
þungur á velli, en hafði þeim mun létt-
ari lund, var hnyttinn í tilsvörum og
ágætur hagyrðingur eins og kom fram i
útvarpsþáttum Sveins Ásgeirssonar.
Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Al-
þýðuflokkinn og sat í stjórn Kirkjugarða
Reykjavíkur en gröf hans í Grafarvogskirku-
garði er fyrsta gröfm sem þar var tekin.