Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Blaðsíða 26
42 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 I>V Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára_______________________________ Guðrún D. Björnsdóttir, Hæðargaröi 33, Reykjavík. 80 ára_______________________________ Elías ívarsson, Skeljabúð, Selfossi. 75 ára_______________________________ Ásgeir Guðmundsson, Fannafold 11, Reykjavík. Guömunda Davíösdóttir, Þverbrekku 2, Kópavogi. Hólmfríöur Árnadóttir, Faxabraut 13, Keflavík. 70 ára ______________________________ Margrét S. Árnadóttir, Laugarásvegi 7, Reykjavík. Sigríöur Bjarnadóttir, Brimhólabraut 38, Vestmannaeyjum. Sigurpáll Óskarsson, Starengi 18, Reykjavík. 60ára_________T______________________ Sigurlína Rut Ólafsdóttir, Stekkjargerði 10, Akureyri. Sunna Söebech, Austurbrún 6, Reykjavík. 50 ára_______________________________ Guðný Sigríöur Hilmisdóttir, Vestmannabraut 72, Vestmannaeyjum. Guöný Þorgeirsdóttir, Uppsalavegi 6, Húsavík. Heiöar Hermannsson, Kirkjuvegi 2, Bolungarvík. Ingibjörg Siguröardóttir, Dalatúni 14, Sauðárkróki. Jón ívarsson, Lautasmára 8, Kópavogi. Linda Hannesdóttir, Bröttugötu 21, Vestmannaeyjum. Ólafur Þórarinsson, Víkurbraut 14a, Grindavík. Sigríöur Baldursdóttir, Hamraborg 18, Kópavogi. Skafti Þ. Halldórsson, Haukalind 29, Kópavogi. 40ára________________________________ Benedikt Lárusson, Kirkjubæ 1, Kirkjubæjarklaustri. Helga Ester Snorradóttir, Dalbraut 8, Dalvík. Helga Jóhannesdóttir, Viðarrima 64, Reykjavík. Jóhanna Kristín Jósefsdóttir, Melavegi 10, Hvammstanga. Jón Þorleifsson, Hafnargötu 119, Bolungarvík. Olgeir Þorvaldsson, Klapparstíg 1, Dalvík. Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir, Gilsbakka 8, Hvammstanga. Soffía Sigurnanna Hrelnsdóttir, Klaufabrekkum, Dalvík. Sólveig Antonsdóttir, Rfurima 8, Reykjavík. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen Sverrir Einarsson útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíö35 • Siml 581 3300 allan sólarhrlnginn. www.utfararstofa.ehf.is/ Andlát Ámý Evrún Ragnhildur Helgadóttir, Garövangi, Garöi, áður Þórustíg 17 og Vallarbraut 2, Njarðvík, lést 15.2. Inga Guðbjörnsdóttir, Keldulandi 13, Reykjavík, lést á Landspítala, Vífilsstöð- um, fimmtud. 15.2. Sigfús Agnar Sveinsson, Hólavegi 34, Sauðárkróki, andaðist á Heilbrigðis- stofnun Skagafjarðar fimmtud. 15.2. Jarðarför Eyrúnar Normann fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu 26.1. Anna Oddsdóttir frá Stykkishólmi, Furugerði 1, andaöist fimmtud. 15.2. Fímmtugur Finnbogi Rútur Þormóðsson kennari við Hí Dr. Finnbogi Rútur Þormóðsson taugalíffræðingur, Mávahlíð 35, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Finnbogi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Hlíðunum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972, BS-prófi i líffræði við HÍ 1980 og doktorsprófi Ph.D. í taugalíffræði frá Cornwell University Graduate School of Med- ical Science í New York 1990. Finnbogi var aðstoðarmaður á rannsóknarstofu ÍSAL 1972-75, var kennari við MK 1980-83, stundaði rannsóknarstörf við læknadeild Yale University í Bandaríkjunum 1990-92 og hefur sinnt rannsóknar- störfum og stundakennslu við læknadeild HÍ. Finnbogi hefur samið ýmsar fræðigreinar og ritgerðir er tengjast rannsóknum hans og námi. Fjölskylda Finnbogi kvæntist 12.8. 2000 Sig- rúnu Láru Shanko, f. 13.10.1955, sér- fræðingi í endurkröfum. Hún er dóttir Gunnars Hermannssonar og Huldu Þorgrímsdóttur. Sonur Finnboga og Estherar H. Guðmundsdóttur er Steinbergur Finnbogason, f. 30.7. 1973, sölumað- ur í Reykjavík, en kona hans er Hrafnhildur Valdimarsdóttir og er dóttir þeirra Dagmar Linda Stein- bergsdóttir. Dóttir Finnboga er Geirþrúður Finnbogadóttir, f. 7.8. 1977, nemi. Börn Sigrúnar frá fyrra hjóna- bandi eru Atli Ásmundsson, f. 12.6. 1979; María Ásmundsdóttir, f. 2.2. 1978. Systkini Finnboga eru Tryggvi Þormóðsson, f. 16.10.1954, ljósmynd- ari í Reykjavík; Jóhanna Þormóðs- dóttir, f. 7.9. 1957, skrifstofumaður í New Hampshire í Bandaríkjunum; Þormóður Þormóðsson, f. 22.8. 1963, flugrekstrarfræðingur i Reykjavík. Foreldrar Finnboga: Þormóður Hjörvar, f. 24.5. 1922, d. 31.12. 1970, loftsiglingafræðingur og Geirþrúður Finnbogadóttir, f. 17.6. 1923, sjúkra- liöi. Ætt Meðal systkinia Þormóðs er Úlfur rithöfundur, faðir Helga Hjörvar, forseta borgarstjórnar. Þormóður var sonur Helga Hjörvar, útvarps- manns og rithöfundar. Meðal margra hálfsystkina Helga, sam- feðra, voru Pétur Hoffmann; Gunn- ar Úrsus aflraunamaður; Lárus glímukóngur, faðir Ármanns glímu- kappa, og Haraldur, faðir Auðar Haralds rithöfundar. Helgi var son- ur Salómons, b. í Drápuhlið í Helga- fellssveit, Sigurðssonar, b. í Miklholti, Horna-Salómonssonar, b. í Hólakoti, Bjamasonar, langafa Kristjönu, móður Ingibjargar Þor- bergs söngkonu. Móðir Helga Hjörv- ar var Guðrún Sigurðardóttir, b. á Gríshóli í Helgafellssveit, Þórðar- sonar. Móðir Þormóðs var Rósa, systir Kristjóns, afa Helga Péturssonar borgarfulltrúa. Rósa var dóttir Daða, b. á Litla-Vatnshorni í Döl- um, Daðasonar, b. á Bólstað í Döl- um, Magnússonar. Móðir Daða yngri var Sigríður Erlendsdóttir, b. á Fremra-Skógskoti, Þórðarsonar. Móðir Rósu var Guðbjörg Sigríður, systir Jens, vaktara í Stöðlakoti, afa Brynjólfs Jóhannessonar leik- ara. Guðbjörg var dóttir Jóhannes- ar, steinsmiðs í Kasthúsum í Reykjavík, Magnússonar og Ingibjargar Jensdóttur, frá Eyrarbakka, Ólafssonar. Móðir Ingi- bjargar í Kast- húsum var Gróa Gunnars- dóttir, hrepp- stjóra i Einars- höfn á Eyrar- bakka, Jóns- sonar, bróður Jóns yngra Gamalíelsson- ar, en af afkom- endum hans má nefna Ingi- björgu Sólrúnu borgarstjóra. Geirþrúður er dóttir Finn- boga Rúts, raf- virkja í Reykjavík, Ólafssonar, b. og sjómanns í Múla I Gufu- dalssveit, Kristjánssonar. Móðir Finnboga Rúts var Guðrún Ara- dóttir, b. í Múla, bróður Jóns, föð- ur Björns, ritstjóra og ráðherra, föður Sveins forseta. Systir Ara var Helga, langamma Viðars Vík- ingssonar kvikmyndagerðar- manns. Ari var sonur Jóns, b. i Djúpadal, Arasonar, bróður Guð- rúnar, ömmu Gests Pálssonar skálds. Bróðir Jóns var Finnur, afi Ara Arnalds, afa Ragnars Arnalds, rithöfundar og fyrrv. alþm. Móðir Geirþrúðar var Jóhanna, dóttir Kristjáns, b. á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Jónssonar, b. í Fagur- hlíð í Landbroti, Eyjólfssonar og Guðnýjar Jónsdóttur, b. í Efri-Vík, Guðbrandssonar. Móðir Guðnýjar var Guðlaug Oddsdóttir, systir Guð- ríðar, langömmu Jóhannesar Kjar- vals. Móðir Jóhönnu var Eyrún Jónsdóttir, b. á Árgilsstöðum, Berg- steinssonar, bróður Þuríðar, langömmu Bergsteins brunamála- stjóra og Sigurðar hrl. Gizurarsona, Ólafs G. Einarssonar, fyrrv. alþing- isforseta, og Boga Nilssonar, fyrrv. ríkissaksóknara. Móðir Eyrúnar var Þuríður Eyjólfsdóttir. MBm' : Skúli Pétursson grunnskólakennari á Dalvík Skúli Pétursson, grunnskóla- kennari á Dalvík, Hjarðarslóð ld, Dalvík, er fertugur í dag. Starfsferill Skúli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var í Langholtsskóla, Ármúlaskóla, lauk kennaraprófi frá KHÍ 1992 og stundaði nám í sálfræði við HÍ í tvö ár. Skúli starfaði i mörg ár á sambýli fyrir einhverfa og á sambýli fyrir fjölfatlaða. Þá starfaði hann um ára- bil við Kleppsspítalann og á ung- lingageðdeild Hann kenndi við Einholtsskóla í Reykjavík 1994-96 og hefur kennt við Dalvíkurskóla frá 1997. Skúli hefur sungið í kórum og syngur nú með Samkór Svarfdæla. Fjölskylda Skúli kvæntist 11.7. 1998 Lindu Björk Holm, f. 18.6. 1961, sjúkraliða og háskólanema. Hún er dóttir Jóns H. Holm, leigubifreiðarstjóra í Dan- mörku, og Eddu Vilborgar Guð- mundsdóttur, ráðgjafa í Reykjavík. Böm Skúla og Lindu Bjarkar eru Þórdís Edda Holm Skúladóttir, f. 20.4. 1992; Sturla Holm Skúlason, f. 26.6. 1995. Systkini Skúla eru Sigurður Pét- ursson, f. 30.1. 1955, d. 1.1. 1983, prentari; Ásta Pétursdóttir, f. 13.4. 1956, búsett í Bandarikjunum; Mar- grét Pétursdóttir, f. 3.11.1966, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Skúla: Pétur Sigurðs- son, f. 2.7. 1928, d. 16.12. 1996, for- stjóri Hrafnistu og alþm., og Sigríö- ur Sveinsdóttir, f. 1.7. 1931, skrif- stofumaður. Ætt Pétur var sonur Sigurðar, kaup- manns í Keflavík, Péturssonar, sjó- manns í Keflavík, Jónsson, frá Kata- dal í Húnavatnssýslu, Jónssonar. Móðir Sigurðar var Ingibjörg, systir Þórðar, langafa Jóns Guðmundsson- ar á Reykjum og langafa Vigdísar, móður Láru Ragnarsdóttur alþm. Þórður var afi Erlendar Ó. Péturs- sonar, formanns KR, sem var móð- urbróöir Péturs Guðfmnssonar, fyrrv. framkvæmdastjóra Sjón- varpsins. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. og skipasmiðs í Engey, Pétursson- ar, b. í Engey, Guðmundssonar. Meðal bama Péturs í Engey voru Guðrún, langamma Bjama Bene- diktssonar, Sigriður, langamma Pét- urs Sigurgeirssonar biskups og Pét- urs Sigurðssonar, frv. forstjóra Landhelgisgæslunnar, og Halldóra, langamma Gunnars, föður Þorsteins leikara og arkitekts. Móðir Péturs var Bima Ingibjörg, dóttir Hafliða, sjómanns i Reykjavík, bróður Bjama vígslubiskups. Hafliði var sonur Jóns, tómthúsmanns i Mýrarholti í Reykjavík, Oddssonar, b. á Vindási í Kjós, Loftssonar. Móð- ir Jóns var Kristín Þorsteinsdóttir, systir Kristínar eldri, langömmu Þuríðar Pálsdóttur og Jómnnar Við- ar. Móðir Hafliða var Ólöf, systir Guðnýjar, ömmu Jóhannesar Zoega hitaveitustjóra. Ólöf var dóttir Haf- liða, tómthúsmanns í Nýjabæ í Reykjavík, Nikulássonar og Guð- fmnu Pétursdóttur, systur Jóns í Engey, afa Sigurðar, fóður Péturs. Sigríður er dóttir Sveins, bróður Fannýjar Kristínar, móður Ingvars Gíslasonar, fyrrv. alþm. og ráð- herra. Sveinn var sonur Ingvars, alþm. á Ekm, Pálmasonar, b. á Ás- um í Austur-Húnavatnssýslu, Sig- urðssonar. Móðir Ingvars á Ekru var Guðrún Björg Sveinsdóttir. Móðir Sveins Ingvarssonar var Margrét Guðmundína, dóttir Finns Guðmunssonar og Önnu Margrétar Guðmundsdóttur. Móðir Sigríðar var Ásta Fjeldsted. :• ________Jarðarfarir Sigríöur Sigurðardóttir (Stella), Hrafn- istu, Hafnarfirði, síðast á Þorragötu 7, Reykjavík, veröur jarösungin frá Dóm- kirkjunni mánud. 19.2. kl. 13.30. Hákon Ragnars, Hrauntungu 66, Kópa- vogi, sem lést á heimili sínu aðfaranótt föstud. 9.2., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánud. 19.2. kl. 15.00. Magnús Brynjar Guðjónsson, Móasíöu 6a, Akureyri, sem lést af slysförum mánud. 12.2., veröur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriöjud. 20.2. kl. 13.30. Jóhann Gunnar Jóhannsson trésmiður, Grænuhlíö 8, sem andaðist mánud. 12.2., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjud. 20.2. kl. 13.30. Merkir íslendingar Friðfinnur Ólafsson, forstjóri Háskóla- bíós, fæddist á Strandseljum í ögur- hreppi við Djúp 19. febrúar 1917. Hann var sonur Ólafs Kristjáns Þórðarsonar, bónda á Strandseljum, og k.h., Guðríðar Hafliðadóttur húsfreyju. Meðal barna Friðfinns eru Björn ráðuneytisstjóri, Stefán, forstjóri íslenskra aðalverk- taka, Ólafur innkaupastjóri, Sigrún hjá Tryggingastofnun, Guðríður endurskoðandi og Elin Þóra, hjá Skjá einum. Friðfmnur var bróðir Sólveigar, konu Hannibals Valdimarssonar og móður Jóns Baldvins sendiherra og Am- órs heimspekings. Meðal bræðra Friðfinns má nefna Kjartan kaupfélagsstjóra, Hafliða í Ögri og Þórð, útvegsb. í Odda. Friðfinnur Ólafsson Friðfinnur lauk stúdentsprófi frá MA 1938 prófi i viðskiptafræði frá HÍ 1942. Hann var stundakennari við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Iðnskólann í Hafnarfirði og kenndi við MR 1958-1980. Hann var forstöðumaður hjá Viðkiptaráði, fram- kvæmdastjóri Tjamarbíós og siðan Háskólabíós til dauðadags 7. júni 1980. Friðfinnur var lengst af fremur þungur á velli, en hafði þeim mun létt- ari lund, var hnyttinn í tilsvörum og ágætur hagyrðingur eins og kom fram i útvarpsþáttum Sveins Ásgeirssonar. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðuflokkinn og sat í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur en gröf hans í Grafarvogskirku- garði er fyrsta gröfm sem þar var tekin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.