Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Síða 28
44 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 DV Ji Tilvera v * í f iö I K V I N N II Videodansverk í Listaklúbbnum í kvöld kl. 20.30 verða sýnd 10 videodansverk íslenskra list- dansara í Listaklúbbi leikhús- kjallarans. Þeir danshöfundar og leikstjórar sem þarna eiga verk eru Aðalheiður Halldórsdóttir, Helena Jónsdóttir, Katrín Ólafs- dóttir, Margrét Sara Guðjóns- dóttir, Peter Anderson, Ragna Sara Jónsdóttir, Reynir Lyngdal, Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Val- gerður Rúnarsdóttir. Stjórnend- ur kvöldsins eru Helena Jóns- dóttir og Reynir Lyngdal. Krár ■ TRUBADOR A KAFFI REYKJAVIK Einn lítill og skrýtinn trúbador ætlar að skemmta á Kaffi Reykjavík í kvöld. Enginn veit neitt meira um það. Klassík ■ KAMMERTONLEIKAR I LISTA- SAFNI SIGURJONS Kammersveitin Stelkur leikur í Listasafni Sigurjóns í kvöld klukkan 20. Flytjendur eru Charles Ross, Suncana Slamnig, Jón Guömundson, Maria Gaskell og Páll ívan Pálsson. Tónleikarnir eru liður I Myrkum músíkdögum og má búast við fjölbreyttri og skemmtilegri efnisskrá. Opnun ■ MYNDVEFNAÐUR Á DALBRAUT I dag verður opnuö sýning á myndvefnaði Sveinbjargar Vigfúsdóttur sem er 97 ára og býr í þjónustuíbúðum aldraöra á Dalbraut 27. Sveinbjörg hefur stundaö myndvefnað í tvö ár eða frá því hún var 95 ára. Myndlist ■ GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR HJA SÆVARI KARLI Dýr inni dýr úti er heiti myndlistarsýningar Gabríelu Friöriksdóttur sem stendur í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. Segja má að sýning Gabríelu sé sannköll- uð fjöllistasýning, því auk þess að sýna bæöi fígúratíf verk á gólfi og veggjum úr hördúk, límmassa, viði, trjágreinum, akríl og lakki mun pí- anóverkið „Dýrasónatan", sem Gabríela samdj að gefnu tilefni, óma á sýningunni. Á opnunardaginn mun listamaðurinn ásamt Margréti Vil- hjálmsdóttur frumflytja tónlistar- gjörninginn „Anima animalae" á fiðlu, flygil og vekjaraklukku. Þá mun myndbandiö „Fernando" rúlla allan sýningartímann í litla sýningarglugg- anum sem veit út í Bankastrætiö. Síðustu forvöð ■ MYNDASYNING I RAÐHUSI REYKJAVIKUR I dag lýkur í Tjarnar- sal Ráöhúss Reykjavíkur óvenjulegri sýningu sem ber yfirskriftina Mynda- banki.is. Um er að ræða bæði Ijós- myndir og teikningar. Þeir sem aö sýningunni standa eru Brooks Walker, Hreinn Hreinsson, Jóhann Isberg, Jóhann Óli Hilmarsson, Jón Baldur Hlíðberg, Lárus Karl Inga- son, Ragnar Axelsson og Siguröur H. Stefnisson. Ástæðan fyrir því að jaessir ólíku myndasmiðir halda sýn- ingu af þessu tagi er að þeir hafa tekið upp þá nýbreytni að selja myndir sínar á vefnum á slóðinni myndabanki.is. ■ SÝNING MARÍU KRISTÍNAR STEINSSON I dag lýkur sýningu Maríu Kristínar Steinsson í Gallerí 17 á Laugavegi 91. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Dansinn dunar í Álftamýrinni - Islandsmeistarakeppnin í frjálsum dönsum Háskólabíó - Billy Elliot: ★ ★ ★ ★ Tuttugasta íslands- meistarakeppnin í frjálsum dönsum (freestyle) var haldin í íþróttahúsi Álftamýr- arskóla á fostudaginn. Alls tóku um 150 kepp- endur af öllu landinu þátt í keppninni að þessu sinni en bæði var keppt i hóp- og ein- staklingsdansi. Hópur- inn Textíl frá Reykja- vík fór með sigur af hólmi í hópkeppninni en í einstaklingskeppn- inni var það Hafnar- fjarðarmærin Vilhelm- ína Ósk Ólafsdóttir sem dansaði sig inn i hugi og hjörtu dómara sem áhorfenda. DV-MYNDIR EINAR J. Sigurvegararnir Hópurinn Textíl á gólfinu. Þessar reykvísku stúlkur stóöu sig best í hópkeppninni aö mati dóm- nefndar. I takt Þaö er eins gott aö vera meö samhæföar hreyfingar ef maöur ætlar aö hljóta náö fyrir augum dómnefndar. Lokapunkturinn Allir hóparnir enduöu atriöin sín meö stæl enda er ekki annaö hægt eftir glæsilega frammistööu á gólfinu. Einbeitt á svip Einbeitingin skein úr augum kepp- enda enda greinilegt aö þeir ætl- uöu sér aö ná langt. Skuggadans Einn hópurinn dansaöi fyrir framan hvítt tjald. Var sá dans ekki síöur tilkomumikill séöur aftan frá. T f . • ”1 Gunnar Smári Hetjusaga vorra daga s Billy Elliot er hefðbundin hetju- saga um dreng sem yfírvinnur bæl- ingu samfélagsins og beitir ræktun hæfileika sinna til sjálfsköpunar. Þessi saga hefur verið sögð þúsund sinnum áður. Þetta er hetjusögn vorra daga - tíma þjóðflutninga og stéttaflakks; sjálfsmynd okkar rót- leysingjanna; lífstilgangur einstak- lingshyggjunnar. En um leið og ég dáðist að því hversu vel þessi hetju- saga er sögð í Biily Elliot gat ég ekki annað en velt fyrir mér hvort hún væri ekki endanlega dauð; hvort okk- ur væri ekki fyrir bestu að kveðja er- indi hennar með nýliðinni öld. Á nitjándu öld barðist almúgafólk viö fastskorðað samfélag sem virtist ekki bjóða upp á annað en þrældóm fyrri kynslóða. Þá voru fáar aðrar undankomuleiðir en Vesturheimur. í upphafi tuttugustu aldar bar alþýðan með sér draum um að brjótast til mennta; hífa sig upp í millistétt. Um miðja öldina þráði fólk ríkidæmi - ekki aðeins til að lifa mett heldur til að skapa börnum sínum tækifæri til að halda sig frá eymd verkalýðsins. ‘68-kynslóðin vann sig upp um stétt eins og hún lagði sig. Gallinn var hins vegar sá að það fjaraði undan henni; það er til lítils að tilheyra millistétt ef engin er verkalýðsstéttin þar undir. Þessi kynslóð bætti því við draumum um betri og réttari lífsaf- stöðu, hugmyndir um hreinna og feg- urra líf, við hetjusögur fyrri kyn- slóða. Hún þurfti ríkara inntak en amerískan draum; hennar flakk (eða flótti) var fremur huglægt en raun- gert. í gegnum allar þessar samfélags- breytingar hefur sama hetjusögnin fylgt okkur. Hún er um dreng (sjaldn- ar stúlku) sem vex upp í þröngu og fastskorðuðu samfélagi sem steypir alla í sama mót. Drengurinn býr hins vegar yfir ákveðnum hæfileika (eða sérstöðu) og með örlítilli hvatningu tekst honum að rækta hann svo að hann verður farseðill hans burt. í einni mynd er þetta saga um bíla- kónginn Ford, í annarri blindu stúlk- una Helen Keller, i þeirri þriðju um verðbréfaguttann Gauguin sem vildi verða málari, í fjóröu um Marilyn Monroe, í funmtu um ... allt þar til við á endanum sitjum uppi með Michael Jackson sem vildi yfirvinna kyn sitt og litarhátt, aldur og þroska, ætt sína og uppruna, mennsku og Guð má vita hvað ekki. Og þá staldr- ar maður við og veltir fyrir sér hvort þessi andskotans hetjusögn sé ekki útjaskað gagn; fleirum til ama og leið- inda en lífsgleði. Bandaríkjamenn hafa verið sér- deilis duglegir við að búa til svona hetjusögur - enda er það samfélag rótleysingja og ættlausra flökkudýra. Þar er smábærinn alltaf helvíti og stórborgin paradís; verkalýðurinn heimskur og sjálfsupptekið lista- mannapakk viturt - enda eru þessar sögur skrifaðar af þeim sem fóru og „urðu eitthvað" en ekki þeim sem sátu eftir og ekkert varð úr (sam- kvæmt mælikvarða þeirra sem fóru). Það sem breska myndin Billy Elliot hefur fram yfir flestar þessara mynda er að hún er ekki síöur hetju- og þroskasaga foður og bróður drengs- ins en drengsins sjálfs. Þegar upp er staðið eru þeir sigurvegarar sögunn- ar. Það sjónarhorn bjargar sögunni frá klisjunni. Billy Elliot er frumraun leikhúss- mannsins Stephen Daldry í bió. Hann skilar frá sér fágaðri persónusköpun, ágengu raunsæi, áreynslulausum skiptingum milli frásagnaraðferða og einhvers konar líkamlegri nálgun í dansatriðum - nokkuð sem ég myndi halda fram að ætti rót sina i leikhús- inu ef ég hefði eitthvert vit á því. Jamie Bell fer glæsilega með hlutverk Billys og dansar einhvem veginn eins og Mikael Torfason skrifar. Gary Lewis er frábær sem pabbinn; ekki síður þegar hann heldur aftur af inni- byrgðri reiði sinni en þegar hann læt- ur undan uppgjöfinni. Löngtunótuð persóna Julie Walters hæfir dans- kennaranum, Jamie Draven er hast- arlegur og hættulegur eldri bróðir og Stuart Wells sjarmerandi sem sam- kynhneigði strákurinn sem veit að hann er genginn fram af brúninni. Billy Elliot er tilfinningarik mynd. En hún fellur aldrei í væmni. Þrátt fyrir að sagan sé ort inn í samfélags- legar aðstæður hetjusagnar sem ég persónulega hef fengið nóg af, þá sæk- ir hún tilfinningar sínar i þá klass- ísku staðreynd að það er fjandum erf- iðara að vera maður - svo erfitt að það er allt í lagi að gráta yfir því ann- að slagið. Galdurinn er að kunna að sjúga upp í nefið á eftir og reyna að standa sig. Leikstjórn: Stephen Daldry. Handrit: Lee Hall. Tónlist: Stephen Warbeck. Kvik- myndataka: Brian Tufano. Leikarar: Jamie Bell, Gary Lewis, Julie Walters, Jamie Draven, Stuart Wells o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.