Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Qupperneq 29
45 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001_____________________________ DV Tilvera Fornleifar, heimildir og samtíminn: SiáSéspí Hársnyrtivörur Stofnuð 1918 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Sími 551 3010 YAZZ-Cartíse verslun Ný fyrir unglinga og ungar konur á öllum aldri. Lágmarksverð. í úrvali I/V1AGE is exxxotica www.exxx.is v-.t MÍjk, r GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSINS MESTA ÚRVAL AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Listunnendur ÞaO má njóta listarinnar á ýmsan máta, sumir kjósa aö gera þaö standandi, aörir fá sér sæti og enn aörir liggja flatir. Góöir gestir Eva María Jónsdóttir Kastljósmær og Haraldur Jónsson, myndtistar- maöur og rithöfundur, á spjalli. Skyrið hennar Bergþóru DV-MYND INGÓ Heimildagildi fornleifa Orri Vésteinsson er doktor í sagnfræöi frá Lundúnaháskóla og hann hefur veriö forstööumaöur rannsókna- og kennslusviös Fornleifastofnunar íslands frá stofnun hennar. Orri Vésteinsson, fornleifafræð- ingur í Fornleifastofnun íslands, heldur fyrirlestur um heimildagildi fornleifa í Norræna húsinu þriðju- daginn 20. febrúar klukkan 12.05. Orri er doktor í sagnfræði frá Lundúnaháskóla og hann hefur verið forstöðumaður rannsókna- og kennslusviðs Fornleifastofnunar ís- lands frá stofnun hennar, auk þess stjórnað fornleifaskráningu á henn- ar vegum. Orri hefur stjórnað forn- leifauppgrefti víða um land, auk þess hafa birst greinar eftir hann um sagn- og fomleifafræði í inn- lendum sem erlendum tímaritum. Nýlega kom út í Englandi bók hans The Christianization of Iceland. Priests, Power and Social Change 1000-1300. Stefnubreyting Á fyrri hluta 20. aldar fjallaði for- söguieg fornleifafræði fyrst og fremst um þjóðir og þjóðflutninga og er það sambærilegt við áherslu gamaldags sagnfræði á stofnana- og persónusögu. Á seinni hluta aldar-_ innar varð hins vegar svipuð þró- un í fornleifafræði og sagnfræði. Áhugi fornleifafræðinga færðist meira í átt til efnahags, félagsgerð- ar, daglegs lífs, samspils manns og umhverfis o.s.frv. Gagnger stefnu- breyting varð upp úr 1960 þegar hin svokallaöa Nýja fornleifafræði tók upp aðferðir félagsvísinda og sýnt var fram á að með fornleifum einum saman má endurgera horfin félags- og hagkerfi. Meira en að lýsa gömlum rústum Orri segir að fyrirlesturinn fjalli um fornleifar og hvers konar heim- ildir þær eru um fortíðina. „Ég ætla líka að fara aðeins yfir það hvernig fornleifar hafa verið notað- ar sem heimildir um söguna, allt frá því að menn höfðu mestan áhuga á þeim fyrir verðgildið í málminum. Ég rifja einnig upp þeg- ar fornleifafræðingar voru að eltast við að finna skyrið hennar Berg- þóru og atgeirinn hans Gunnars. íslensk fomleifafræði er enn þá að slíta barnsskónum þó hún sé akademískari í dag en hún var fyrir nokkrum áratugum. Það má segja að Kristján Eldjárn forn- leifafræðingur og fyrrverandi for- seti hafi komið fornleifafræðinni á fót sem vísindagrein um miðja síðustu öld. Kristján var á sínum tíma í takt við það sem var að ger- ast í greininni erlendis og fylgdist vel með. Hann var hafði mikinn áhuga á því sem er kallað menn- ingarfornleifafræði, þ.e.a.s. að láta fornleifarnar segja okkur eitthvað um uppruna þjóðarinnar eða þjóð- erni. Það hefur margt breyst frá þess- um tíma og menn þróað aðferðir til að láta fornleifar segja ýmislegt um efnahag, hagkerfi, félagsgerð og jafnvel stjórnmál og við erum að stíga fyrstu skrefin í þessa átt hér á landi. Fornleifafræðingar eru því farnir að gera meira en að lýsa gömlum rústum. -Kip Sposk á svip Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona og Gabríela Friöriksdóttir myndlistarkona ásamt mæöginunum Ugga Ævarssyni, útgefanda meö meiru, og Guörúnu Kristjánsdóttur myndlistarmanni. Kynjadýr og furðuskepnur - dýragarður Gabríelu vígður við hátíðlega athöfn Dýr inni dýr úti er yfirskrift sýningar myndlistarmannsins Gabríelu Frið- riksdóttur sem opnuð var í Galleríi Sævars Karls á laugardaginn. Þar getur að líta hvers kyns furðudýr sem sprottið hafa úr huga höfundar auk þess sem dýrasónatan ómar um salinn. Við opnunina var enn fremur frumflutt- ur tónlistargjörningurinn Anima animalae og fékk listakonan Margréti Vil- hjálmsdóttur til aö spila með sér á fiðlu en sjálf lék hún á slaghörpu. Vill í dúett meö Madonnu DVA1YNDIR EINAR J. Meö horn á höföi Þaö er engu líkara en horn hafi vaxið út úr höföi myndiistarmannsins Hlyns Hallssonar sem hér spjallar viö Ævar Kjartansson, guöfræöinema og út- varpsmann. Puff Daddy Er brúnaþungur þessa dagana og vill fá aö vera friöi fyrir fjölmiölum. Viðurkennir sambandsslit Sean „Puíf Daddy“ Combs hefur loks tekið af allan vafa og viður- kennt að samband hans og söngkon- unnar Jennifer Lopez sé á enda. Talsmenn söngvarans höfðu ítrekað neitað orðrómi þar um jafnvel eftir að sögusagnir fór á kreik um að Lopez væri í tygjum við dansara sem bregður fyrir í einu tónlistar- myndbanda hennar. Lopez er nú í Ástralíu að kynna nýja plötu. Tenórsöngv- arinn Luciano Pavarotti greindi frá því í síðustu viku að hann myndi gjarnan vilja starfa með Madonnu í næsta popp-ten- ór samstarfi. Að sögn Pavarottis gerði Madonna þó skýra kröfu um að þau myndu syngja Caro Mio Bene, barokk-aríu, sem er í uppáhaldi hjá söngkon- unni. Ekki er vitað hvænær þau syngja saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.