Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
Fréttir
I>V
Sjónvarpið að fyllast af erótík:
Klámi dreift á Breiðbandinu
- ágætis efni sem engan svíkur, segir forstöðumaðurinn
Breiðband Landsímans hóf fyrir
síðustu helgi dreifingu á alþjóðlegu
klámefni sem endurvarpað er víða
um heim. Með dreifingu efnisins er
Landsíminn að þjónustu sjónvarps-
stöðina Skjá einn sem hyggst selja
áskrift að efninu sem sent er út fjór-
ar klukkustundir á sólarhring. Sjón-
varpsstöðin Stöð 1, sem hyggst hefja
útsendingar innan skamms, er
einnig með klámrás á teikniborðinu
en efni hennar verður dreift í gegn-
um kerfi Línu-Nets. Islenska út-
varpsfélagið, sem rekur Stöð 2 og
Sýn, ætlar sér hins vegar ekki frek-
ari landvinninga á þessu sviði en
léttu klámefni hefur verið sjónvarp-
að síðla kvölds á Sýn við ágætar
undirtektir undanfarin misseri.
„Með þessu erum við aðeins að
veita sjónvarpsstöð ákveðna þjón-
ustu. Erótískt efni sem þetta er þeg-
ar á þýskri sjónvarpsstöð á Breið-
bandinu hjá
okkur og
þetta verður
vafalaust vin-
sælt efni hér
á landi eins
og annars
staðar. Þetta
er ágætis efni
sem svíkur
Friðriksson.
engan, segir
Friðrik Frið-
riksson, forstöðumaður Breiðbands
Landsímans sem hefur kynnt sér
efnið sem í boði er. „Erótík er hluti
af því sem fólk vill sjá í sjónvarpi.
En þetta getur enginn séð nema
hann kaupi sér áskrift hjá Skjá ein-
um.“
Hólmgeir Baldursson hjá Stöð eitt
segir klámefni sitt verða komið í
loftið fyrir vorið: „Við verðum að
hafa lokið allri undirbúningsvinnu
Jónasson.
Hólmgeir
Baldursson.
fyrir sumar-
ið því þá
horfir eng-
inn á sjón-
varp. Þáð er
of seint fyrir
okkur að
byrja í
haust.“
Hólmgeir og
félagar ætla
einnig að
setja aðra stöð i loftið undir nafni
Stöðvar eitt en hún mun sýna
spennumyndir og vinsæla fram-
haldsmyndaþætti.
Hjá íslenska útvarpsfélaginu ætla
menn ekki að taka þátt í klámynda-
kapphlaupi sjónvarpsstöðvanna
enda telja þeir nóg að gert með sýn-
ingum á ljósbláum myndum á Sýn.
Þá má telja víst að Ríkissjónvarpið
aðhafist ekki í þessu efni.
Erótík í sjónvarpinu
Stóraukiö framboö á næstu vikum.
„Við erum ekkert að gefa í varð-
andi erótíkina. Hér er allt með
kyrrum kjörum,“ segir Heimir Jón-
asson, aðstoðardagskrárstjóri
Stöðvar 2.
-EIR
Sævar Birgisson í Guangzhou í Kína:
Skelfingu lostinn
að sjá Ófeig sökkva
Óstööug nýsmíöi
Ófeigur VE hálfsokkinn í höfninni í Guangzhou í Kína.
„Ég ætlaði að fara að kíkja á
strákana um borð í Ófeigi þegar
ég sá allt í einu ys og þys á
bryggjunni, menn að príla frá
borði. Þetta voru mikil læti, ótal
menn að hlaupa út og suður og
skipið að síga niöur. Þetta gerðist
mjög snöggt. Skipið var nánast að
fara á hliðina þegar ég kom á
staðinn," sagði Sævar Birgisson
skipatæknifræðingur sem stadd-
ur er i Guangzhou í Kína. Hann
horfði á Ófeig VE, sem er í smíð-
um ásamt 5 öðrum íslenskum
skipum, hálfsökkva í höfninni í
Kína í gær.
Einn maður, sem hafði verið að
vinna um borð, fórst. Engan ís-
lending sakaði.
Samkvæmt upplýsingum DV
varð slysið með þeim hætti að
vandkvæðum hafði verið bundið
að halda stöðugleika skipsins.
Var þá pramma lagt við síðu
skipsins. Þegar hann var tekinn
tók skipið skyndilega að halla og
sjór flæddi inn um hliðarlúgu á
stjórnborðssíðu.
Svipaö og Ýmisslysið
Sævar sagði að Ófeigur hefði
hallast svo hratt að hann hefði
óttast mjög um afdrif íslenskra
kunningja sinna um borð. „Ég
hitti fyrst Kristján Guðmundsson
vélstjóra. Hann var nýstokkinn af
brúnni upp á bryggju. Kristján,
sem var um borð ásamt fleiri
Vestmannaeyingum, sagðist strax
telja að manntjón hefði orðið.
„Danirnir frá vélaframleiðand-
anum Alfa áttu fótum fjör að
launa þegar þeir komust upp úr
vélarrúminu. Þetta gerðist ótrú-
lega snöggt - svipað og þegar
Ýmir sökk í Hafnarfjarðarhöfn á
sinum tíma. Ég varð alveg skelf-
ingu lostinn að sjá þetta.“
Fyrirtæki Sævars heitir Skipa-
sýn. Hann hefur eftirlit með syst-
urskipunum Helgu og Birni sem
eru í smíðum ytra. Verið er að
smíða þrjú önnur skip fyrir ís-
lendinga í Guangzhou, þau heita
Guðni Ólafsson, Guðrún Gísla-
dóttir og Happasæll.
„Islensku skipin hafa legið
þarna öll í röð - sex. Það er mik-
ið verið að gera í Kina þessa
stundina fyrir íslendinga," sagði
Sævar.
-Ótt
Peningaþvætti Stóra fíkniefnamálsins:
Tannlæknir sakfelldur, lögmaður sýkn
- öldruð kona sakfelld en skal ekki sæta refsingu
Dómur féll í tveimur
ákærum á hendur tíu aðil-
um sem ákærðir voru fyrir
peningaþvætti og minni
háttar fíkniefhamisferli í
tengslum við stóra flkni-
efnamálið svokallaða sem
upp komst í september 1999.
Meðal ákærðu í þessum síð-
ari hluta málsins voru sjö-
tug kona, sambýliskona
eins höfuðpaursins, tann-
læknir og lögfræðingur.
Forsprakkar smyglsins not-
uðust við gáma íslensks
skipafélags til þess að koma
gífurlegu magni flkniefna
til íslands frá Danmörku,
Hollandi og Bandaríkjunum
á tveggja ára tímabili. Þrir
hinna ákærðu voru starfs-
menn skipafélagsins. For-
sprakkamir voru dæmdir í
allt að níu ára fangelsi fyrir
flkniefnabrask sitt.
Ákærurnar, sem héraðsdómur
hafði til meðferðar í gær, voru til að-
almeðferðar í janúar en endurupp-
teknar í lok febrúar. Hjördís Hákon-
ardóttir héraðsdómari og tveir með-
dómendur hennar biðu eftir hæsta-
réttardómi í fyrri hluta málsins en
fimm af þeim 14 sem dæmdir voru til
refsingar þá áfrýjuðu til Hæstaréttar.
Dómur Hæstaréttar féll í siðasta mán-
uði og mildaði rétturinn dóm héraðs-
dóms yflr einungis einum þessara
fimm manna.
Úr dómsal
Sjö manns voru dæmdir til refsingar fyrir peningaþvætti í Héraösdómi Reykjavíkur í gær.
var sakfelld en ekki dæmd til refsingar og tveir voru sýknaöir.
Upptaka á 9 milljónum
Tannlæknirinn, Egill Ragnars
Guðjohnsen, og Geir Hlöðver Er-
icsson áttu fyrirtæki með Sverri
Þór Gunnarssyni sem Hæstiréttur
dæmdi í sjö og hálfs árs fangelsi.
Egill var dæmdur í 15 mánaða
fangelsi, að frádregnu átta daga
gæsluvarðhaldi hans, og upptöku
á einni milljón. Geir Hlöðver var
dæmdur til upptöku á 200.000
krónum eða 35 daga fangelsi ella.
Jafnframt voru heimilistæki
Geirs gerð upptæk. Fyrirtæki
þeirra Egils, Geirs og Sverris
Þórs, Rimax efh., nú Blásúlur ehf.,
sætti einnig upptöku á einni millj-
ón króna.
Siguröur Guðmundsson lögmað-
ur var sýknaður af aðild sinni en
hann hafði skrifað upp kaupsamn-
ing á milli Sverris Þórs og Egils
og tekið bankahólfslykil í sína
vörslu en í hólfinu var fé frá
Sverri Þór.
Hinir sjö ákærðu í síðari
ákærunni, sem tekin var
fyrir í héraðsdómi í gær,
þrír karlmenn og fjórar
konur, eru flestir tengdir
venslaböndum. Tveir
karlmannanna voru
dæmdir i 16 og 14 mánaða
fangelsi en þriðji maður-
inn var fundinn sýkn
saka. Sjötug kona var
sakfelld en hlaut ekki sér-
staka refsingu. Tvær kon-
ur sættu hvor um sig
fjögurra mánaða fangelsi
skilorðsbundið í tvö ár.
Sambýliskona Ólafs
Ágústs. Ægissonar, sem
dæmdur var í 9 ára fang-
elsi í fyrri hluta málsins,
var dæmd í 10 mánaða
fangelsi skilorðsbundið í
Ein kona ÞÓú ár.
Jafnframt var fólkið
dæmt til upptöku á sam-
tals 6,765 milljónum
króna og einn maðurinn var
dæmdur til upptöku á fikniefnum,
hnif og grammavog.
Þrjár ákærur í viðbót í þessum
hluta málsins eru enn til meðferð-
ar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þetta er í fyrsta sinn sem peninga-
þvættisákærur koma fyrir ís-
lenska dómstóla og lagði Jón
Snorrason saksóknari því norska
dóma fram til stuönings máli
sínu.
-SMK
Veðjar á vinstri-græna
EI insson, formaður
m Samfylkingarinnar,
■ segist ekki trúa öðru
11 en vinstri grænir
S jjj verði með í Reykja-
.# víkurlistanum, enda
væri annað mikill
ábyrgðarhluti. - Dag-
ur greindi frá.
Lést við Gunnólfsvíkurfjall
Maðurinn sem lést í umferðarslys-
inu við Gunnólfsvíkurijall, milli Þórs-
hafnar og Bakkafjarðar, á þriðjudag
hét Kristján Gunnar Magnússon.
Hann var 28 ára gamall og lætur hann
eftir sig eiginkonu og þrjú böm.
Gin- og klaufaveikigreining
Engin aðstaða er hérlendis tO að
greina eða rannsaka gin- og klaufa-
veikiveim. Kæmi upp grunur um að
smit hefði borist hingað til lands yrði
að taka sýni og senda til greiningar til
Danmerkur. Tilraunastöð á Keldum
hefur óskað eftir aukafjárveitingu til
að reisa rannsóknahús. - RÚV greindi
frá.
Ótti hjá póstfölki um allt land
Þuríður Einarsdóttir, formaður
Póstmannafélags íslands, telur ekki
útilokað að óánægja með niðurskurð
hjá íslandspósti hafi haft einhver áhrif
á að kjarasamningur var felldur í vik-
unni.
Kusu friðinn
Halldór Bjömsson,
formaður Starfs-
greinasambandsins
og starfandi forseti
ASÍ, segist vera
sannfærður um að
kennarasamningarn-
ir með lífeyrisskuld-
bindingum hafi farið
fram úr þeim samningsforsendum
sem samið var um á almenna mark-
aðnum í fyrra. - Dagur greindi frá.
Svaraði loks en treglega
Búnaðarbankinn þarf bara að gera
grein fyrir sínum málum á hluthafa-
fúndum eða svara hluthöfum á annan
hátt. Bankanum er ekki skylt að veita
viðskiptaráðherra upplýsingar um
viðskiptamálefni bankans utan hlut-
hafafundar, þó svo að ráðherra óski
eftir þeim. - Dagur greindi frá.
Pálmi áfram?
Pálmi Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans, hafnar því ekki
að sitja áfram i ráðinu ef honum verð-
ur boðið það á aðalfundi bankans á
laugardag. Hann segist þó ekki sækj-
ast sérstaklega eftir því enda hafi
hann reiknað með að hætta sökum
aldurs. - RÚV greindi frá.
Óvissa um fióttamenn
Alls ekki er víst hvort sveitarfélag-
ið Skagafjörður hýsir flóttamennina
sem von er á til landsins í sumar.
Reiknað er með að taka á móti 20 tO 25
flóttamönnum. - Dagur greindi frá.
Fleiri sjálfsmorð
Fleiri íslendingar
faUa fyrir eigin
hendi en farast í um-
ferðarslysum og er
þó engin samræmd
neyðarlína rekin hér
á landi aOan sólar-
hringinn. Þetta kom
fram i máli Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur á Alþingi
í dag.
Skattalækkun
Tekjuskattsprósentan verður lækk-
uð um næstu áramót vegna útsvars-
hækkunar sveitarfélaganna. Davíð
Oddsson forsætisráðherra segir stjóm-
völd með þessu vera að koma tO móts
við óskir verkalýðshreyfmgarinnar.
-HKr.