Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2001, Side 2
2
MÁNUDAGUR 12. MARS 2001
Fréttir r>V
Samfylkingin á nú engan fulltrúa í bankaráöi Búnaðarbankans:
Leynimakk og pukur
- segir Össur Skarphéðinsson formaður
Það er öllum Ijóst, einnig þeim
ágæta manni sem situr í bankaráð-
inu og viðskiptaráðherra kallaði
svo vinsamlega í sjónvarpsviðtali
„krógann minn“.“
Össur sagði öllum hafa verið ljóst
að „blóðugur bardagi hafi verið inn-
an stjórnarflokkanna og á milli
þeirra“ um yfirráðin í Búnaðar-
bankanum.
Viðskiptaráðherra hefði viljað
skipta út öllu bankaráðinu en ekki
haft krafta til þess innan eigin
flokks. Þessi atburðarrás væri
dæmigerð fyrir þá helmingaskipta-
aðferð sem gilti hjá stjórnarflokkun-
um. -JSS
Samfylkingin á nú engan fulltrúa
í nýkjörnu bankaráði Búnaðarbank-
ans, að sögn Össurar Skarphéðins-
sonar, formanns Samfylkingarinn-
ar. Haukur Helgason var fulltrúi
flokksins fram að aðalfundi sl. laug-
ardag. Þá var honum skipt út fyrir
Árna Pál Ámason, að tillögu Val-
gerðar Sverrisdóttur viðskiptaráð-
herra. Einnig urðu þær breytingar
á ráðinu, að Magnús Gunnarsson
tók sæti formanns ráðsins í stað
Pálma Jónssonar. Hrólfur Ölvisson
var einnig settur út, en inn kom
Þorsteinn Ólafsson. Elín Sigfúsdótt-
ir og Þórólfur Gíslason sitja áfram í
bankaráðinu.
„ Viðskiptaráðherrann
sýndi mér þá rausn að bjóða
mér að tilnefna þann mann
sem hún vildi sjáif,“ sagði
Össur Skarphéðinsson við
DV. „Það góða boð afþakk-
aði ég. Satt að segja sýti ég
það ekki mög mikið. Þessi
aðferð sem rutt hefur sér til
rúms á seinni árum, að þeir
sem sitja í stjóm séu að láta
einhverja mola detta af
borðum til stjórnarand-
stöðu í skjóli leynimakks og
pukurs hugnast mér ekki. Ég vil
ekki þetta pukur og mér finnst þetta
kærkomið tækifæri til þess að minn
Ossur
Skarphéðinsson
Eigum engan
fulltrúa
flokkur endurskoði af-
stöðu sina í slíku. Mér
finnst að þetta eigi ekki
við nú á tímum. Við erum
að berjast fyrir stjórnfestu
og viljum að hlutirnir séu
gagnsæir. Svona aðferðir
eru ekki gagnsæjar. Þetta
gamaldags makk og sam-
trygging flokkanna heyrir
til liðinni tíð.“
Aðspurður um hvort
Samfylkingin ætti enga
hlutdeild að bankaráði
Búnaðarbankans, svaraði Össur:
„Samfylkingin á enga hlutdeild að
þessu bankaráði.
DVWND KOLBRÚN SVERRISDÖTTIR
Sumarsport
á góunni
DVTlSAFÍRfir:
Vestfirðir hafa upp á margt að
bjóða, blómstrandi alþjóðlegt menn-
ingarlíf, stutt í skíðalönd og fyrir þá
sem vilja tilbreytingu er ekki ama-
legt að geta skellt sér á kajak í byrj-
un mars í veðurblíðunni, þennan
unga mann rakst ljósmyndari DV á
á dögunum þar sem hann renndi út
sundin í Skutulsfirði. Þessi íþrótt er
kannski meira sumarsport, en eins
og nú hagar til á góunni er kajakinn
tekinn fram og róið á haf út. -KS
Eldur í Kolbeinsvík
Hlaða og lítill bátur brunnu til
kaldra kola i Kolbeinsvík i Stranda-
sýslu seinni partinn á laugardag. Að
sögn lögreglunnar á Hólmavík er
ekki vitað um eldsupptök. Mannlaus
var á staðnum þegar atburðurinn átti
sér stað og eru hlaðan og báturinn,
sem var úr plasti, gjörónýt. Kip
Get valið í bankaráð
eins og mér sýnist
- segir Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
Hlýtt á með athygli
Davíö Oddsson forsætisráöherra ásamt Sóloni
R. Sigurössyni bankastjóra og Jóni Adolfi
Guöjónsyni fráfarandi bankastjóra á aöalfundi
Búnaöarbankans.
„Ég kem inn í bankaráð
Búnaðarbanka sem fagmaður,
en ég er vissulega félagi í Sam-
fylkingunni," sagði Árni Páll
Árnason héraðsdómslögmaður
sem tók sæti í bankaráöi Bún-
aðarbankans á aðalfundi bank-
ans sl. laugardag. „Ég lít á það
sem mikilvægt verkefni að
stuðla að því að sala Búnaðar-
bankans fari fram með þeim
hætti að almenningur í land-
inu, sem byggt hefur upp þenn-
an banka, fái eins gott verð fyr-
ir hann og kostur er.“
Árni Páll kom inn í banka-
ráðið í stað Hauks Helgasonar
sem var fulltrúi Samfylkingar-
innar í ráðinu. Árni Páll hefur starf-
að talsvert við utanríkismál.
Hann starfaði sem pólitískur ráð-
gjafi Jóns Baldvins Hannibalssonar
í utanríkisráðuneytinu fyrir nær
tíu árum. Eftir tvö ár í því starfi var
hann starfsmaður í utanríkis-
þjónustunni í fjögur ár. Frá
1998 hefur hann verið starf-
andi lögmaður og sinnt ráð-
gjöf fyrir ýmsa aðila, þar á
meðal fyrir fyrirtæki, ráðu-
neyti og stofnanir.
„Ég kýs allt bankaráðið og
það er á mína ábyrgð þannig
að í sjálfu sér get ég valið í
það eins og mér sýnist," sagði
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra við DV. „En
það er hefð fyrir þvi að reyna
að hafa breidd í hlutunum.
Samfylkingin átti þarna mann
en það er ekkert launungar-
mál að Árni er ekki tilnefndur
af forystu þess flokks heldur fund-
inn af mér og valinn á faglegum for-
sendum." -JSS
Hundruð milljóna
- til uppbyggingar í Borgarnesi
Kjötvinnslufyrirtækið Goði hef-
ur sótt um lán til Byggðastofnunar
vegna uppbyggingar á starfsemi
fyrirtækisins. Umsóknin er grund-
völluð á þvi að fyrirtækið verði
byggt upp i Borgamesi. Ekki fæst
uppgefið nákvæmlega hversu háa
upphæð fyrirtækið hefur sótt um,
en hún mun nema hundruðum
milljóna og er ein sú hæsta sem
sótt hefur verið um til Byggðastofn-
unar.
Ákveðið hefur verið að sameina
kjötvinnslur fyrirtækisins, sem eru
Goði á Kirkjusandi, Borgar-
nesskjötvörur, kjötvinnslan Höfn á
Selfossi og kjötvinnsla Nóatúns,
Faxafeni. Kristinn Þ. Geirsson,
framkvæmdastjóri Goða, sagði að
engin ákvörðun hefði verið tekin
um hvar sameiginleg kjötvinnsla
yrði byggð upp. Um sl. áramót
hefði verið tekin ákvörðun um að
byggja fyrirtækið upp i Mosfellsbæ,
en síðan hefði valkostunum fjölgað.
Þá hefðu forráðamenn Árborgar
velt upp þeim hugmyndum að
byggt yrði yfir starfsemina á Sel-
fossi og einhverjir aðilar kæmu að
rekstri fyrirtækisins en ekkert
formlegt tilboð hefði borist. Krist-
inn sagði að gert væri ráð fyrir að
í sameinaðri vinnslu ynnu um 100
manns.
Kristinn H. Gunnarsson, stjórn-
arformaður Byggðastofnunar, sagði
að umsóknin yrði afgreidd fljótlega
frá Byggðastofnun með synjun eða
samþykkt. „Ef fyrirtæki vilja
byggja upp starfsemi sína á lands-
byggðinni þá reynum við stuðla að
því,“ sagði hann. -JSS
Tiiþrif
Baldur Hólm vann Tilþrifabikar DV-Sport í keppni vélsleðamanna í
Mývatnssveitinni um helgina. Mikið var um glæsileg tilþrif enda stökkpallar
mjög stórir aö þessu sinni. Sjá nánar á bls. 18
íslandsmótið í dorgveiði:
Tómas Gunnarsson íslandsmeistari
- tveggja ára sonur hans yngstur keppenda
DV-MYNDI G.BENDER
íslandsmeistarinn
Tómas Gunnarsson íslandsmeistari
í dorgveiöi og Jóhannes
Tómasson tveggja ára sonur hans
en hann var yngsti keþþandinn á
mótinu. Tómas veiddi 9 fiska.
„Við erum mjög hressir með mót-
ið, þátttakan var góð og veöurfarið
fint, þó auðvitað vilji maður alltaf
aö það veiðist fleiri fiskar. Þetta er
bara gangurinn en veiðin byrjaði
rólega á mótinu en það rættist úr
henni,“ sagði Björn G. Sigurðsson,
formaður Dorgveiðifélags íslands, í
samtali við DV eftir að tiunda ís-
landsmótinu í dorgveiði lauk um
helgina á Ólafsfjarðarvatni. Þátttak-
an var góð, veiðimenn mættu víða
að af landinu eins og úr Reykjavík,
Hofsósi, Akureyri, Mývatnssveit og
Raufarhöfn, svo einhverjir staðir
séu nefndir.
„Keppnin tókst vel og gaman að
sjá veiðimenn hérna á ölium aldri
við veiðiskapinn," sagði Ásgeir Logi
Ásgeirsson bæjarstjóri í samtali við
DV rétt eftir að hann hafði afhent
verðlaunin á íslandsmótinu.
í eldri flokki veiddi Sunisa Otharit
fyrsta fiskinn, og Jakob Óðinsson
þann stærsta en flesta veiddi Tómas
Gunnarsson. í yngri flokki veiddi El-
mar Heiðarsson bæði fyrsta og
stærsta fiskinn, flesta fiska veiddi
Saga Karen Björnsdóttir. Minnsta
flskinn veiddi Ásgeir Bjarnason, en
yngsti keppandinn var Jóhannes
Tómasson tveggja ára og elsti Sigur-
geir Hólmgeirsson, 74 ára.
íslandsmeistari varð síðan Þing-
eyingurinn Tómas Gunnarsson en í
fyrra varð Halldór H. Gunnarsson
meistari. Tómas veiddi sex bleikjur
og þrjá kola sem gáfu honum titil-
inn í ár. - G.Bender
ŒŒ,
Flóttamenn í Skagafjörö
Samþykkt var á
fundi Byggðaráðs
Skagafjarðar á
föstudaginn að taka
upp viðræður við
Flóttamannaráð og
Félagsmálaráðu-
neytið um móttöku
á flóttafólki.
Þröstur framkvæmdastjóri
15. mars næstkomandi mun
Þröstur Óskarsson taka við starfl
framkvæmdastjóra Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði. Þröstur
var áður fjármálastjóri á Akureyri,
hann er skipaður til fimm ára.
Verslun á Bakkafirði
íbúar á Bakkafirði geta nú aftur
keypt matvörur heima í héraði.
Undanfarnar vikur hafa þeir þurft
að sækja nauðsynjar í nágranna-
byggðalögin en síðastliðinn fostu-
dag var verslunin Sjafnarkjör opn-
uð.
Matvöruverslun í pósthúsinu
Að und-
anfömu
hefur ís-
landspóst-
ur samið
viö fyrir-
tæki víða
um land
um að sjá um póstafgreiðslu. Á
Breiðdalsvík hefur aftur á móti
komið upp sú hugmynd að íslands-
póstur taki að sér rekstur matvöru-
verslunar á staðnum og standi
þannig undir kostnaði viö rekstur
pósthúss á staðnum.
Meiri lúða
■ Fiskeldi Eyja-
fjarðar hlaut fyrir
skömmu Nýsköp-
unarverðlaun Út-
flutningsráðs og
Rannsóknaráðs
Islands. Fyrirtæk-
ið stefnir að því
að margfalda
lúðueldi sitt á
næstu árum.
Einræktun manna bönnuð
Einræktun manna er bönnuð á ís-
landi samkvæmt sáttmála sem ís-
lendingar hafa gengist undir í Evr-
ópuráðinu. Ekki er hægt að setja lög
sem leyfa hana og ekki er vitað tii að
neinar tilraunir með klónun hafi far-
ið fram hér á landi. RÚV greindi frá.
Garðyrkjumiðstöð íslands
Búnaðarþing 2001 hefur skoraö á
landbúnaðarráðherra að tryggja
nægjanlegt fé á næsta ári til að
ljúka við Garðyrkjumiðstöð íslands
að Reykjum í Ölfusi.
Súlur í svefnherbergin
Samkvæmt því sem kom fram á
blaðamannafundi sem Stígamót
héldu um daginn eru íslenskir karl-
menn farnir að heimta sömu þjón-
ustu heima og þeir geta fengið á
súlustöðum. Rúna Jónsdóttir, tals-
maður Stigamóta, sagði aö ekki
væri um beint ofbeldi að ræða en að
konur finndu fyrir breyttum kröf-
um í kynlífi. „Þær tala jafnvel um
einhverja niðurlægjandi hluti sem
þær hafi ekki þekkt áður.“ Dagur
greindi frá. Kip