Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2001, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 12. MARS 2001
Utlönd
I>V
Bjargaöi andlitinu
Yoshiro Morí, forsætisráöherra Jap-
ans, tilkynnti ekki beint afsögn sína
en gaf hana samt í skyn.
Japanar leita að
eftirmanni Moris
Yoshiro Mori, forsætisráðherra
Japans, sagði á laugardaginn að
hann væri hlynntur því að flýtt yrði
kjöri nýs leiðtoga Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins. Það þýðir í raun að
hann ætli að draga sig í hlé eins og
margir.hafa vonast til. Fjölmiðlar
og stjórnmálaskýrendur fögnuðu í
gær tilkynningu Moris
„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
er eins og kjöt úr kæliborðinu sem
fyrir löngu er komið fram yfir síð-
asta söludag," sagði prófessorinn
Tetsuro Kato.
CIA studdi uppreisn
albanskra skæruliða
Bandaríska leyniþjónustan, CIA,
studdi myndun skæruliðasveita Al-
bana sem herja í suðurhluta Serbíu
og Makedóníu, að því er breska
blaðið The Observer greinir frá.
CIA á að hafa, með stuðningi
bandarískra yfirvalda, hvatt fyrr-
verandi leiðtoga uppreisnarhers
Kosovo-Albana, UCK, til að hefja
vopnaða uppreisn í Presevodalnum
I Serbíu.
Tilgangurinn var að veikja srjórn
Slobodans Milosevics, fyrrverandi
Júgóslavíuforseta. The Observer
kveðst hafa upplýsingar sínar frá
evrópskum liðsforingjum í friðar-
gæsluliðinu í Kosovo en einnig frá
makedónskum og bandarískum
heimildarmönnum.
„Nú þegar búið er að bola Milos-
evic frá getur bandaríska utanríkis-
ráðuneytið ekki sett bönd á skæru-
liðana," segir evrópskur liðsforingi
í viðtali við blaöiö.
Heimildarmenn The Observer
saka bandaríska friðargæsluliða um
YAZZ-CARTISE
verslun
fyrir unglinga og ungar konur á ölium aldri.
Lágmarksverð.
CARTISE, YAZZ,
Hamraborg 1, s. 554 6996 Hamraborg 7, s. 544 4406
FÆRANLEGAR
RAFSTÖÐVAR
EINS OGÞRÍGGJA FASA
BBNSÍN OG DÍSEL
SKEIFUNNI 3E-F • SlMI 581 2333 ¦ FAX 668 0216
rafver@sitnnetis
Gítarinn ehf. -,
Laugauegí45,l^
Kassagítarar SflDl 552-2125 OB 895-9316.
S&STCSX* frá 7.900 kr. ¦
og snura.
Áðup 40.400 kp.
Nú 27.900 kr.
i
Hljómborð >^
frá 3.900 Jt,
y r. \
ui. «ii Kk
Wl!- Pv^^v* ^
i i ¦** ^
: r 9 3
iwi 'J^fl \
Zy~^*=; ál
i á J i
u 1 ^B
I viöbragösstööu
Serbneskur lögreglumaður í bænum
Lucane í suöurhluta Serbíu. Fulltrúi
NATO var í gær bjartsýnn
á vopnahlé.
að hafa látið sem þeir tækju ekki
eftir liðsfiutningi og flutningi á
vopnum yfir landamærin til Serbíu.
Presovodalurinn í Serbíu er við það
svæði í Kosovo sem Bandaríkja-
menn bera ábyrgð á og eiga að hafa
eftirlit með.
Háttsettur evrópskur liðsforingi
segir CIAhafa fengið leyfi til að
standa á bak við uppreisn í Kosovo
með einkaher til þess að steypa
Milosevic. Mikillar óánægju hafi
gætt í fyrra með stuðning Banda-
ríkjamanna við albanska uppreisn-
armenn. Stefha Bandarikjanna hafi
ekki verið i samræmi við annarra
innan NATO. Fulltrúi bandaríska
utanríkisráðuneytisins skellir
skuldinni á stjórn Clintons forseta.
Nú séu breyttar áherslur.
Fulltrúar NATO voru í gær bjart-
sýnir á að það tækist að koma á
vopnahléi milli albanskra uppreisn-
armanna og serbneskra öryggis-
sveita. Rólegt var á svæðinu í gær
eftir tveggja daga bardaga.
Glímt viö bangsa
Talapsho Tsjekhov, sem er 72 ára fyrrverandi byggingaverkamaður, glímir hér
við birnuna Maríu í Dushanbe í Tadsjikistan. Tsjekhov fann Maríu, sem er 9
ára, særða uppi í fjöllum pegar hún var lítill húnn.
Sósíalistar með
forystu í París
Vinstrimenn voru meö afgerandi
forystu í fyrri hluta borgarstjórnar-
kosninganna í París í gær sam-
kvæmt fyrstu útgönguspám sem
birtar voru í gærkvöld. Frambjóð-
andi sósíalista, Bertrand Delanoe,
hlýtur 32 til 36 prósent atkvæða en
opinber frambjóðandi gaullista,
Philippe Seguin, 23 til 27 prósent.
Það verður mikið áfall fyrir Jacques
Chirac Frakklandsforseta sigri sósí-
alistar í París. Flokkur Chirac hefur
stýrt í París síðan 1977. Litið er á
París sem stökkpall upp í forseta-
höllina. Chirac var sjáhur borgar-
stjóri í 18 ár áður en hann varð for-
seti 1995.
Ýmis hneykslismál hafa oröið til
að veikja stöðu hægri manna í Par-
ís. Sitjandi borgarstjóri, Jean
Tiberi, hefur verið bendlaður við
spillingarmál. Þrátt fyrir andstöðu
gaullista býður Tiberi sig fram.
Honum er spáð 17 prósenta fylgi.
Reyndar þykir frambjóðandi sósí-
alista, Delanoe, sem er 51 árs þing-
Jean Tlberi
Núverandi borgarstjórí býður sig
fram þrátt fyrir andstöðu gaullista.
maður, svo litlaus að það hafði
varla nokkur áhrif þegar hann
greindi frá samkynhneigð sinni fyr-
ir tveimur árum.
Siuttar fréttir
Heim af sjúkrahúsi
Borís Jeltsín,
fyrrverandi Rúss-
landsforseti, hefur
verið útskrifaður
af sjúkrahúsinu
sem hann var lagð-
ur inn á skömmu
¦ fyrir sjötugsaf-
fl mæli sitt vegna
—B—_——¦ veirusýkingar.
Veikir kálfar aflífaðir
Grunur leikur á gin- og klaufa-
veiki hafi komið upp á búi í Þýska-
landi með 99 kálfum. Slátrun dýr-
anna hófst í gær. í Bretlandi höfðu í
gær greinst nær 170 tilfelli af veík-
inni.
Myrkur í Stokkhólmi
Rafmagnslaust varð í gærmorgun
hjá 50 þúsund íbúum í norðurhluta
Stokkhólms vegna bruna á kapli.
Rafmagn kemst ekki á fyrr en ann-
að kvöld. Síma- og farsímasam-
bandslaust er og ekkert heitt vatn.
Banað með naglaskotum
Palestínskur bóndi, sem var jarð-
settur á Gazasvæðinu í gær, var
drepinn með nýrri ísraelskri vopna-
tegund, eins konar naglaskotum.
Vel heppnaö konukvöld
Karlalaust kvöld á föstudagskvöld
í Bogota í Kólumbíu tókst vel. Borg-
arstjórinn setti útgöngubann á
karla til að benda þeim á að þeir
bæru ábyrgð á 18.500 af 21 þúsundi
dauðsfalla af völdum ofbeldis í borg-
inni síðustu 5 árin. Lögreglan til-
kynnti um 1 dráp um kvöldið. Á
venjulegi föstudagskvöldi eru þau 5.
Hægt að bjarga Díönu
Christian Barn-
ard, læknirinn sem
framkvæmdi fyrstu
hjartaígræðsluna,
skrifar í væntan-
legri bók sinni að
hægt hefði verið að
bjarga lífi Díönu
prinsessu hefði hún
komist á sjúkrahús innan 10 mín-
útna eftir bílslysið í Paris og fengið
rétta meðferð.
Höfnuðu beiðni Annans
Leiðtogar Talebana í Afganistan
höfnuðu í gær beiðni Kofis Annans,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, um að stöðva eyðileggingu
búddalíkneskja.
Nota rödd Kennedys
Öldungadeildar-
þingmaðurinn Ed-
ward Kennedy hef-
ur harðlega mót-
mælt notkun á rödd
bróður síns, Johns
F. Kennedys, fyrr-
verandi Bandaríkja-
forseta, í auglýsingu
repúblikana. Notuð eru ummæli
Kennedys um skattalækkun í aug-
lýsingu til að þrýsta á demókrata-
þingmann til aö greiða atkvæði með
skattalækkun Bush forseta. Edward
segir bróður sinn ekki myndu hafa
stutt tillögu Bush.
Zapatistar í höfuðborginni
Gífurlegur mannfjöldi fagnaði
leiðtogum zapatista-skæruliða er
þeir komu til miðborgar Mexíkó-
borgar í gær. Leiðtogar skærulið-
anna hefja friðarviðræður við yfir-
völd í dag.