Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2001, Blaðsíða 32
Grunaður um ölvun:
Harður árekstur
á Hellisheiði
Harður árekstur varð í Hveradala-
brekkunni á móts við Skíðaskálann í
Hveradölum rétt eftir klukkan fimm í
gær. Að sögn Svans Kristinssonar,
* varðstjóra lögreglunnar á Selfossi, var
tiikynnt um mjög harðan árekstur á
Hellisheiði klukkan 17.26.
Bilarnir komu sinn úr hvorri áttinni
þegar annar ökumaðurinn, sem er grun-
aður um ölvun, missti stjórn á bifréið-
inni þannig að hún snerist á veginum
og fór yfir á öfugan vegarhelming og
skall framan á bil sem var að koma úr
gagnstæðri átt. Tveir voru í hvorum bíl
og voru allir fluttir með sjúkrabíl til
Reykjavíkur þar sem gert var að sárum
þeirra. Ökumaðurinn sem missti stjóm
á bílnum er talinn mest slasaður, bílam-
ir eru gerónýtir. Engin hálka var á veg-
inum þegar áreksturinn átti sér stað og
telur lögreglan að kenna megi
ölvunarakstri um slysið.
Þær upplýsingar fengust á slysa-
deildinni í Fossvogi seint í gærkvöld
að þrír þeirra sem lentu i árekstrinum
hefðu verið sendir heim að lokinni
rannsókn en sá fjórði ætti að gista á
spítalanum í nótt.
Kallað var á tækjabíl frá Hveragerði
en ekki reyndist þörf á að nota hann til
að ná fólkinu úr bílunum. Lögreglan á
Selfossi lokaði Hellisheiðinni með að-
stoð lögreglumanna frá Reykjavík í
rúman klukkutíma og var umferð
beint um Þrengslin á meðan. -Kip
tilboösverö kr. 2.750,-
Merkilega heimilistækiðS
Nú er unnt aö "5
merkja allt á o
heimilinu,
kökubauka,
spólur, skóla-
dót, geisla-
diska o.fl.
Nýbýlavegi 14 Slmi 554 4443
Veffang: www.if.ls/rafport___
Rafport
Á bráðamóttöku
vegna fíkniefna
FYRIRMYND UNOA
RM
'■01
FOLKSINS?
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
T hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJ ALST, O H A Ð DAGBLAÐ
MANUDAGUR 12. MARS 2001
DV44VND HILMIR ÞÓR
Missti stjórn á bílnum
Harður árekstur varö á Hellisheiði í gær, fjórir voru fluttir á slysadeild og bílarnir eru gerónýtir. Grunur leikur á að ökumaður annarrar bifreiðarinnar hafi verið ölvaður.
Fulltrúar 6 félaga bæjarstarfsmanna af 13 gengu út af samningafundi:
Samflot bæjar-
starfsmanna klofið
- skiptist í fylkingar norður og suður
Þrettán ára samflot fé-
laga bæjarstarfsmanna í
samningum viö sveitarfé-
lög riðlaðist í fyrrinótt þeg-
ar forsvarsmenn sex féiaga
á Suöurlandi og i nágrenni
Reykjavíkur gengu út af
samningafundi með
Launanefnd sveitarfélaga.
Selfoss
Akureyri
Afgangurinn, þrettán félög sem hafa
tekið sér nafnið Kjarni, skrifaði und-
ir samning við sveitarfélög sömu
nótt.
„Við urðum vitni að því að samflot
bæjarstarfsmanna klofnaði. Markmið
okkar var að ná samningum við sem
flesta og við erum ánægðir með að
hafa samið við þrettán starfsmannafé-
lög sem hafa hátt í 1700 meðlimi,“ seg-
ir Karl Björnsson, formaður Launa-
nefndar sveitarfélaganna.
„Áherslumunur er á milli þejgara
tveggja hópa. Við sem ekki skrifuðum
undir töldum okkur tapa of miklu á
því að samningurinn fól í sér að
möguleiki þeirra sem eru endur-
menntaðir á að auka launin með frek-
ari endurmenntun var skertur miðað
við þá samninga sem ríkjandi eru í
dag. Fundurinn var ekki átakalaus
enda ekki við öðru að búast þegar far-
ið er út úr þrettán ára samstarfi,“ seg-
ir Elín Björg Jónsdóttir, formaður Fé-
lags opinberra starfsmanna á Suður-
landi, sem er í forsvari fyrir klofn-
ingsfélögin sex.
Athygli hefur vakiö að flest starfs-
mannafélögin sem ekki skrifuðu und-
ir samning við sveitarfélögin eru á
því svæði sem talað hefur verið um
sem höfuðborgargrennd, en þau sem
skrifuðu undir eru hring-
inn í kringum landið, frá
Borgarfirði til Þorláks-
hafnar, með þeirri undan-
tekningu að starfsmanna-
félagið á Seltjamamesi
skrifaði undir.
„Það má kannski út-
skýra þessa skiptingu með
því að fyrir sunnan og í nágrenni höf-
uðborgarinnar hefur þenslan veriö
greinilegri, hreyfanleiki vinnuafls
meiri og samkeppni um þaö meiri.
Fólk er meðvitað um það. Á þessu
svæði er sá hópur sem hefur endur-
menntað sig stærri en hjá félögunum
13 sem sáu sér fært að skrifa undir.
Við töldum hagsmunum okkar betur
borgið með því að skrifa ekki undir,“
segir Elín.
Arna Jakobína Björnsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Akureyrar
og talsmaður Kjarna, segir málið á
viðkvæmu stigi og vildi ekki tjá sig
efnislega um það. -jtr
Sjómannasamningarnir:
Nákvæmlega ekkert hefur miðað í
samningaviðræðum sjómanna og út-
vegsmanna um helgina þrátt fyrir dag-
lega fundi.
Þær fréttir var helst að hafa af fund-
inum frá á laugardag að þar hafl menn
aðeins komist í sjónmál hveijh- við
aðra en lítið meira, og um eiginlegar
samningaviðræður var ekki að ræða.
Ekki er komin niðurstaða um einn ein-
asta hlut deiluaðila þrátt fyrir að verk-
fall eigi að skella á á fimmtudagskvöld.
Stöðvast þá allar veiðar og heyrast
menn tala um að verkfalliö, komi til
þess, geti orðið langt. -gk
Hlekktist á í
lendingu
Lítiili íjögurra manna flugvél af gerð-
inni Beachcraft hlekktist á í lendingu á
Reykjavikurflugvelli um klukkan 15.40 í
gær. Flugmaðurinn var einn í vélinni
að æfa lendingu á svokallaðri 1-3 braut
sem liggur í átt aö Skeijaflrðinum. Þeg-
ar vélin var á móts við Flugfélag Islands
tók hún skyndilega vinstri beygju og fór
út í móa. Flugmaðurinn er ómeiddur og
vélin lítið skemmd. -Kip
Annríkt hjá lögreglunni í Kópavogi um helgina:
K»
Ahættuatriði við Hamraborgarbrúna /
og maður á níræðisaldri tekinn vegna ölvunaraksturs
Lögreglan í Kópavogi átti nokkuð
annnríkt um helgina. Að sögn Þrastar
Hjörleifssonar varðstjóra voru tuttugu
og fimm manns teknir fyrir of hraðan
akstur frá því á fóstudagskvöldið.
Einn ökumannanna sinnti ekki stöðv-
unarmerkjum lögreglunnar og reyndi
að stinga af með því að auka hraðann
og slökkva ljósin. Maðurinn komst
undan inn á Arnamesið þar sem hann
náðist stuttu síðar. Ökumaðurinn
gekkst við brotinu, hann var ekki und-
ir áhrifum áfengis. Þrír voru stöðvað-
ir vegna gnms um ölvun við akstur og
Brúin viö Hamraborg
Kvikmyndageröarmenn komu fyrir
dýnu á Hafnarfjaröarveginum, fyrir
neðan brúna, og svo ætlaði einn aö
hoppa fram af fyrir framan kvik-
myndatökuvél.
þar af einn á níræðisaldri.
Þröstur segir að lögreglan hafi í
tvígang þurft að hafa afskipti af kvik-
myndagerðarmönnum við Hamra-
borgarbrúna. „Þessir skrattakollar voru
að sviðsetja áhættuatriði með því að
henda sér fram af brúnni. Þeir komu
fyrir dýnu á Hafnarfj arðarveginum, fyr-
ir neðan brúna, og svo ætlaði einn að
hoppa fram af fyrir framan kvikmynda-
tökuvél. Við höiðum afskipti af þeim að-
faranótt laugardags og komum í veg fyr-
ir framkvæmdina. Því miður urðum við
að hafa afskipti af þeim aftur aðfaranótt
sunnudagsins þrátt fyrir að hafa gert
þeim ítarlega grein fyrir hættunni sem
þessu fylgir; að það þurfi að sækja um
leyfi til lögreglu og veghaldara og gera
viðeigandi ráðstafanir vegna umferðar
um svæðið meðan á töku stendur.
í seinna skiptið voru þeir búnir að
skella dýnunni á umferðareyjuna á
mUli akreinanna og voru að ljúka töku
þegar lögreglan kom á svæðið. Við lít-
um þaö mjög alvarlegum augum þegar
fólk hlustar ekki á viðvaranir okkar og
verða mennimir kærðir vegna athæfis-
ins.“ -Kip
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
voru tvö ungmenni flutt með hraöi á
bráöamóttöku vegna fikniefnaneyslu
klukkan átta á sunnudagsmorgun.
Talsmaöur lögreglunnar sagöi að fólk-
ið hefði verið í ibúð í austurbænum og
langt leitt er að var komið. Mikið af
fiknieínum fannst í íbúðinni ásamt
meintu þýfi. Einn var fluttur í fanga-
geymslur í tengslum við málið. -Kip
825
SYLVANIA