Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001
51
Útgáfufélag: Frjáls fjölmlölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Fróttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíðai http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmíölun hf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöiuverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
DV greiðir ekki víömælendum fyrir viötöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Ný sókn
Eins og fram kom hér í DV í gær hefur sjálfstæöri út-
komu dagblaðsins Dags verið hætt en útgáfan sameinuð
útgáfu DV. Augljóslega markar þetta þáttaskil í sögu ís-
lenskrar blaðaútgáfu. Útgáfa Dags var merkileg tilraun
þar sem leitast var við að samhæfa undir merkjum
frjálsrar blaðamennsku arfleifð gömlu flokksblaðanna
annars vegar og ákveðnar landsbyggðaráherslur hins
vegar sem m.a. lýstu sér í því að þetta var eini fjölmið-
illinn sem hafði heimili og varnarþing sitt utan Reykja-
víkur. Þessi sérkenni birtust síðan í efnistökum og
áherslum blaðsins, þar sem umfjöllun um stjórnmál og
landsbyggðarmálefni hvers konar voru áberandi ásamt
að sjálfsögðu almennum þjóðlífsfréttum. En þrátt fyrir
góða spretti og vönduð vinnubrögð gekk Dagskapallinn
ekki upp efnahagslega og því varð að stokka upp á nýtt.
í þeim kapli sem nú hefur verið lagður hefur sérkenn-
um Dags ekki verið kastað fyrir róða. Þvert á móti er
hugmyndin sú að varðveita sérkenni blaðsins, þó það
verði í nýju samhengi. Þess vegna munu ýmsir efnis-
þættir sem voru einkennandi fyrir Dag nú flytjast yfir í
DV og vonandi verður niðurststaðan sú að allir geti
fundið í sameinuðu blaði fjölmargt við sitt hæfi. Þeir
sem voru áskrifendur Dags fá mun stærra og fjölbreytt-
ara blað á sama tíma og gamlir DV-áskrifendur fá
ferskar áherslur og efnisþætti. Með sameiningu blað-
anna er þvi verið að blása til nýrrar sóknar á blaða-
markaði þar sem nýtt og endurbætt DV stillir sér upp
sem áberandi sterkasta blaðið á landsbyggðinni og einn
eftirsóknarverðasti fjölmiðillinn á landsvísu jafnt fyrir
lesendur sem auglýsendur.
Sérstök ástæða er til að nefna sterka viðveru DV á
Akureyri eftir sameininguna. Þar hafði Dagur umtals-
verða starfsemi og var um árabil langstærsti og íjöl-
mennasti fjölmiðillinn þar í bæ og á landsbyggðinni
allri. Slíkt var eðlilegt í ljósi þess að blaðið byggði með-
al annars á grunni gamla Dags sem var fyrst og síðast
svæðisbundið blað á Norðurlandi. Þetta mun ekki breyt-
ast og starfsstöð DV á Akureyri mun áfram verða
stærsta ritstjórn nokkurs fjölmiðils utan Reykjavíkur.
Blaðið vonast því eftir góðu samstarfi við Norðlendinga
í framtiðinni.
Því hefur verið haldið fram að sameining síðdegis-
blaðs eins og DV og morgunblaðs eins og Dags - blaða
sem þar að auki hafa haft talsvert ólíkar áherslur í ýms-
um málum - geti ekki gengið. Það er alrangt. Fullyrð-
ingar af því tagi eru raunar til vitnis um mikla þröng-
sýni og óþarfa takmörkun á hugmyndaflugi. Það er eng-
in ástæða til að láta gamlar skilgreiningar um síðdegis-
blöð og morgunblöð fjötra sig á timum hraðra breytinga
og þróunar í fjölmiðlaheiminum. Það sem máli skiptir
er að bæði þessi blöð hafa haft að leiðarljósi almennar
grunnreglur frjálsrar og óháðrar fréttamennsku og
byggja þar af leiðandi á sömu grundvallaratriðum.
Skoðanir einstakra stjórnenda eða blaðamanna eru og
hafa í báðum blöðum verið afmarkaðar í sérstökum
dálkum og ekki blandað saman við hlutlæga umfjöllun
blaðsins um menn og málefni. Svo verður að sjálfsögðu
áfram. í þessari nýju sókn sameinaðs DV verður þús-
und blómum að sjálfsögðu leyft að spretta!
Birgir Guðmundsson
I>V
Skoðun
Eignir lífeyrissjóða
Samkvæmt nýlegum
upplýsingum var meðal-
raunávöxtun lífeyris-
sjóða síðustu flmm árin
jákvæð um 7-8%. Út-
koman á síðasta ári var
þó slök og hlutabréfa-
eign sjóðanna skilaði
neikvæðri ávöxtun. Af-
koma margra lífeyris-
sjóða var semsé undir
væntingum þó að skráð-
um félögum fjölgaði í
flestum þeirra.
Lífeyrissjóðir eru til
orðnir vegna þess að vinnandi fólk í
landinu leggur mánaðarlega ákveðna
prósentu af launum sínum í sjóði.
Þar á móti kemur framlag atvinnu-
rekanda.
Ekki eru mörg ár síðan þau lög
voru sett að allir væru skyldugir aö
greiða í lífeyrissjóði en ánægjuleg er
sú staðreynd að margir sjóðir eru nú
þegar orðnir öflugir og veita laun-
þegum öryggiskennd. Af hálfu sjóð-
anna eru ööru hvoru send bréf til fé-
lagsmanna þar sem þeim er sýnt
svart á hvítu að þeir geti litið róleg-
ir til ævikvöldsins þvi þá fái þeir
greitt úr sínum sjóði miðað við
framlag.
Vekurfurðu
Kynslóðir forfeðra okkar
þekktu ekki slíkan munað.
Ömmur margra okkar áttu
ekki annan kost viö fráfall
maka en að bregða búi og
leggjast í flakk á milli bama
sinna. þegar fyrirvinnan var
fallin frá. Möguleikar þeirra til
að sjá sér farborða voru tak-
markaðir. Þær sem voru svo
lánsamar að komast i vinnu
urðu að lúta því að laun þeirra voru
langt undir launum karla þótt þær
ynnu sambærileg störf. Tækifæri
karla voru fleiri því þeir voru úti á
vinnumarkaðnum meðan konur
unnu launalausar heima við bú og
bamauppeldi.
Það vekur furðu að heyra þau tíð-
indi að þingmaður Vinstri grænna
skuli stíga í pontu og flytja tillögu
þess efnis að eignir lífeyrissjóða
skuli notaðar til að standa undir
byggingum félagslegra íbúða. Ekki
svo að skilja að þeir sem þurfa á fé-
lagslegri þjónustu að halda séu ekki
Gunnhildur
Hrólfsdóttir
rithöfundur
alls góðs verðir. Mér er bara
fyrirmunað að koma auga á
arðsemi þess að ávaxta pen-
inga í félagslegum íbúðum
nema kannski í gleðinni yfir
að létta áhyggjum af sam-
ferðafólki.
Dæmið frá Vestfjörðum
Það er svo stutt síðan
stjómendur bæjarfélaga á
landsbyggðinni voru og eru
kannski enn í erfiðleikum
vegna reksturs félagslegs
húsnæðis. Byggðarlag á
Vestfjörðum réðst í bygg-
ingu slíkra íbúða. Voru þær
seldar á góðum kjörum en ef
eigandinn kaus að losa sig
við eign sína þá var bæjarfé-
lagið skyldugt aö kaupa
hana aftur. Sömu sögu er að
segja um önnur bæjarfélög
víðs vegar um landiö. Þau
sitja uppi með íbúðir sem
eru baggi á bæjar- og sveita-
sjóðum.
Hugsanlega vakir fyrir
Vinstri grænum að um-
ræddar byggingar verði
„Af hálfu sjóðanna eru öðru hvoru send
bréf til félagsmanna þar sem þeim er sýnt
svart á hvítu að þeir geti litið rólegir til
œvikvöldsins því þá fái þeir greitt úr sín-
um sjóði miðað við framlag. “
reistar í Reykjavík. Þar
sem fjármunir lífeyris-
sjóða eru ávaxtaðir á
ýmsa vegu megi allt eins
lána til íbúðabygginga
eins og kaupa hlutabréf,
innlend eða erlend. Stað-
reyndin er sú að það er
sama hvar félagslegar
íbúðir verða reistar, rekst-
ur þeirra skilar tæplega
þeim arði sem lífeyrissjóð-
irnir þurfa á að halda.
Gleðin yfir að létta undir
með saferðafólkinu yröi
dýru verði keypt ef hún
sviptir launþega í landinu
vissunni um öruggar tekj-
ur að starfsdegi loknum.
Áhyggjulaust ævikvöld
er máltæki sem oft er not-
að. í hraða og verðbólgu
þjóðfélagsins þarf að
ávaxta fjármuni með gætni
og skynsemi til að skila eig-
endum þeim greiðslum sem
þarf til að þeir geti rólegir
litið til rólegra stunda að
loknum löngum starfsferli.
Gunnhildur Hrólfsdóttir
Framsókn fékk þó Schengen
Það hlýtur að verða mörgum ís-
lendingum ráðgáta nú og framvegis,
hvemig þaö mátti verða að eyríkið í
Norður-Atlantshafi skyldi innlimað i
þann sérkennilega óskapnað sem
gengur undir nafninu Schengen og
greiði háan aðgangseyri í þokkabót.
Pólitíska röksemdin hefur verið að
með Schengen væri verið að bjarga
því ferðafrelsi sem fram að þessu
hefur gilt á milli Norðurlanda.
Samlíkingin er þó langsótt, því að
Schengen-kerfið á fátt ef nokkuð
sameiginlegt með því frjálsræði sem
komið var á milli norrænu rikjanna
á 6. áratugnum. Kjarninn í Schengen
er hins vegar að ná fram mikilvægu
skrefi í þróun Evrópusambandsins í
átt að ríkisheild, þ.e. afnám
landmæraeftirlits milli aðildarlanda
en hærri og þéttari girðingar út á
við.
Halldór í fótspor krata
Kratar, sem lengi hafa iátið sig
dreyma um aðild íslands að Evrópu-
sambandinu, eru auðvitað himinlif-
andi yfir Schengen. Málið var á
„Við skuldbindum okkur til að hœkka hér girðingar
gagnvart ferðamönnum frá öðrum heimshlutum, í
raun sérstaklega til og frá Norður-AmerCku, einnig að
því er íslendinga varðar. “ - Unnið að stœkkur Leifs-
stöðvar, m.a. með tilliti til Schengen-samkomulagsins.
fullri ferð þegar Halldór Ás-
grímsson tók við af Jóni
Hannibalssyni sem hús-
bóndi í utanríkisráðuneyt-
inu 1995.
Formaður Framsóknar-
flokksins var þá þegar engu
minni áhugamaður um að-
ild Islands að ESB en núver-
andi sendiherra í Was-
hington. Aðeins þurfti Hall-
dór að ganga varlegar irni
gáttir vegna baklands i eig-
in flokki og stjórnarsam-
starfs við Sjálfstæðisflokk-
inn. Schengen var tækifæri til að
tengja ísland fastari böndum við
Brussel og þaö eftirlét Davíð leik-
bræðrum sínum í ríkisstjóm. Aðeins
örfáir þingmenn nenntu að setja sig
inn i málið og koma nú af fjöllum
rétt eins og almúginn þegar
Schengen-netið steypist yfir okkur.
Stóri bróðir inn á gafl
Schengen hefur lítið með frelsi að
gera þótt svo sé látið í veðri vaka. í
stað eftirlits á innri landamærum
kemur margeflt eftirlit gagnvart öll-
um sem hreyfa sig inn og út af svæð-
inu og gífurleg söfnun upplýsinga
um einstaklinga inn í risatölvukerfi
Schengen þar sem engin trygging er
fyrir lýðræðislegu eftirliti. Þegar
hafa um 10 milljón manns verið
skráðir inn í móðurtölvu SIS
(Schengen Information System) í
Strasburg, sumpart vegna þess að
HUGSANLEGT er talið að þeir
ÆTLI AÐ fremja afbrot eða beita sér
gegn allsherjarreglu. Stóri bróðir
hefur með Schengen heldur betur
sótt i sig veðrið. Fjölmargir, þar á
meðal norska Persónuverndin og
lögmannasamtökin i Nor-
egi, hafa varað við afleið-
ingum af Schengen-kerfinu
fyrir réttaröryggi almenn-
ings.
Landamæravarsla fyrir
Evrópusambandið
Með skilyrtri Schengen-
aðild eru íslendingar að
taka að sér landamæra-
vörslu fyrir Evrópusam-
bandið og borga sjálfir háar
fúlgur fyrir! Við skuldbind-
um okkur til að hækka hér
girðingar gagnvart ferðamönnum frá
öðrum heimshlutum, í raun sérstak-
lega til og frá Norður-Ameríku,
einnig að því er íslendinga varðar.
Það vegabréfaeftirlit sem við hefð-
um þurft að fara í gegnum við komu
inn á Schengen-svæðið breytist nú í
framvísun persónuskilríkja í langt-
um meira mæli en áður af alls konar
tilefni, svo sem við gistingu og lyfja-
kaup. Eftirlit sem farangri
Schengen-farþega við komu til lands-
ins, meðal annars vegna fikniefna, á
eftir að verða erfiðara en áður þótt
tolleftirlit sé áfram að nafninu til.
Um breytingu á Schengen-reglum
höfum við engin úrslitaáhrif og verð-
ur kastað út úr samstarfinu umyrða-
laust, ef við höfnum þeim.
í vandræðum sínum vegna yfir-
þyrmandi kostnaðar af Schengen
hefur ríkisstjórnin nú falið Dönum
að annast vegabréfaáritanir fyrir ís-
lands hönd á 70 stöðum víða um
heim, því að kjörræðismenn Islands
mega ekki lengur sinna slíku! Er
ekki ástæða til að óska Framsóknar-
flokknum til hamingju með afrekið?
Hjörleifur Guttormsson
Hjörleifur
Guttormsson
fyrrv. alþingismaöur
Með og á móti
tulaginu í handboltanum?
Ummæli
Flugvallarkosningin og
leikreglur lýöræðisins
„Til atkvæða-
greiðslunnar var
boðað með lýðræð-
islegum hætti af
til þess bærum yf-
irvöldum. Öllum
var tryggður að-
gangur að greinar-
góðum upplýsing-
um, kostirnir sem um var kosið voru
skýrir og allir borgarbúar áttu jafna
möguleika á því að nýta sér atkvæð-
isréttinn. Þrjátíu þúsund borgarbúar
gerðu það og tóku efnislega afstöðu
til málsins. Líta verður svo á, að hin-
ir sem ekki fóru á kjörstað, hafi
ákveðið að láta sig málið ekki varða,
og þ.a.l. lagt það í hendur annarra að
taka ákvörðun. Þannig framseldu
þeir rétt sinn, en það er fráleitt að í
því felist réttur einhverjum til handa
til að slá eign sinni á eða túlka skoð-
anir þessa hóps.“
Ingibjörg Sölrún Gtsladóttir borgarstjóri
I Mbl.-grein 20. mars.
Kosningin um Reykja-
víkurflugvöll
„Hér var á ferð tilraun til að auka
þátttöku borgaranna í töku ákvarð-
ana. Vona verður að hér sé aðeins
um að ræða upphaf og kjósendur fái
ekki á tilfmninguna að framlag
þeirra sé léttvægt fundið. Þeir, sem
ekki kusu, ættu hins vegar að hafa
hugfóst þau orð breska sagnfræð-
ingsins Arnolds Toynbees, aö það
eru örlög þeirra að vera stjórnað af
þeim, sem neyta atkvæðisréttar síns
... Úrslit þessarar kosningar voru
ekki afgerandi, en engu að síður
fékkst niðurstaöa. Þegar gengið hef-
ur verið til lýðræöislegra kosninga
er aðeins spurt hvernig atkvæði
voru greidd, ekki hversu stór meiri-
hlutinn var.“
Úr forystugreinum Mbl. 20. mars.
Lífgar mótið við
Alls ekki hrifinn
jÉ— „Keppnin í efstu
I deild hefur verið
IP deyjandi síðustu
árin og lið sem
hafa fallið hafa misst alla
tekjumöguleika. Með þessu
nýja fyrirkomulagi erum við
að taka dramatískt stökk sem
á að gera mótið líflegra og
leikina mikilvægari. Það
mun skipta liðin mjög miklu
máli að komast í styrkleika
eitt. Mikilvægi leikjanna eykst mjög
mikið. Það mun til dæmis skipta
gríðarlega miklu máli fyrir liðin
Valdimar
Grímsson
handknattleiks-
maöur í Val
hvort þau ná þriðja eða
fjórða sæti og eins hvort lið
ná sjötta eða sjöunda sæti.
Liðin verða sífellt að keppa
um sæti til að tryggja sér
betri aðstöðu í framhaldinu.
Síðan má líka nefna nýja
keppni, deildabikarinn. Það
eru fjögur efstu liðin i styrk-
leika eitt sem komast í þaö
mót. Þa verður til mikils að
vinna en stefnt er að peninga-
verðlaunum í deildabikarnum sem
leikinn verður á einni og sömu helg-
inni.“
r„Ég er alls ekki
hrifinn af þessu
nýja fyrirkomu-
lagi. Ég hefði vilj-
að fá tíu liða efstu deild. Átta
lið hefðu komist áfram í úr-
slitakeppni eins og nú er og
þau tvö lið sem neöst yrðu
léku þá í úrslitakeppni við
tvö eða fjögur efstu liðin i l.
deild. Með þessu yrði tryggt
að tíu bestu liðin væru alltaf
í efstu deild. I dag eru fin lið
að falla og lið að koma upp sem hafa
ekkert upp að gera. Ætlunin er að
Þorieífur
Ananíasson
umsjónarmaöur
heimasíöu KA
ems og
þetta spilist í framtíðinni út
og suður og enginn skilur
neitt í neinu.
Ég get ekki ímyndað mér að
venjulegur maður sem fylgist
eitthvað aðeins með íþróttum
skilji upp né niður í þessu
enda er þetta afar ruglings-
legt fyrirkomulag.
Þetta verður til þess að eng-
inn áhugi verður á íslands-
mótinu fyrr en rétt áður en
úrslitakeppnin hefst, alveg
þetta er í dag.“
Á nýafstöönu ársþingi Handknattleikssambands íslands var ákveöiö aö breyta keppnisfyrirkomulaginu í 1. deild karla. Þegar eru komnar fram
óánæE'iuraddir meö brevtinguna og skoöanir manna eru miög skiptar.
Hjartað er vinstra megin
„Sums staðar
hafa hugmynda-
fræðingar brugðið
á það ráð að
reyna að færa
miðborgarlífið úr
sínum gömlu
kjörnum á
rúmbetri svæði í
stækkandi borgum. Gjarnan undir
þak. Þetta hefur tekist misjafnlega,
sennilega af þeirri ástæðu að mið-
borg á ævinlega hlutverk sitt að
þakka sögu og hefð. Eða eins og
maður nokkur sagði í sjónvarpinu
um daginn: Hjartað verður alltaf
vinstra megin, sama hvað maður
bætir á sig mörgum kílóum."
Úr pistli Sigurbjargar Hjartardóttur,
skálds og blm., í Mbl. 20. mars.
fer
um greiddi atkvæði á móti vellinum.
Allir sjá aö þetta er hrikaleg útkoma.
Hins vegar varast hollvinurinn að
minnast á að skoðanabræður hans
fengu enn minna. Þaö er engu líkara
en að maðurinn sé fullfær um að út-
lista ársreikninga i hlutafélögum.
Einföld jafntefll
Það er með ólíkindum hvað hægt
er að vinna marga sigra í gagnslaus-
um kosningum. En það er líka hægt
að sætta sig við jafntefli. Fullyrðing-
ar um að úrslitin séu hnífjöfn eru al-
gengar. Eins og allir hljóta að sjá er
28 og 29 mörk í handbolta jafntefli,
að minnsta kosti þegar tekið er tillit
til þess, að hefði leikurinn staðið yf-
ir hálfri mínútu lengur hefðu okkar
menn náð að jafna. Svona einfalt er
það.
Kosningin um Vatnsmýrina mun
gleymast eins fljótt og flugfélögin
sem nú eru að fara á hausinn vegna
tapreksturs í innanlandsflugi. Hún
er eins marklaus og rökin sem vesl-
ings atkvæðunum er boðið upp á um
framtíð byggðarlaga.
En kannski er þetta holl æfing í
lýðræði. Verði það raunin hefur öll
þjóðin sigrað.
Oddur Ólafsson
verður og
Segja má með sanni að það sé
gleðilegur endir á kosningum þegar
allir málsaðilar fara með sigur af
hólmi. Lýðræðið bæði sigraði og tap-
aði í flugvallarkappleiknum mikla og
niðurstaðan er ýmist engin eða að
borgarskipulagið er leyst úr álögum.
Enginn játar sig sigraðan en samt
hafa allir gengið á milli bols og höf-
uðs á andstæðingunum. Ef einhverj-
ir eru með allt niður um sig eftir
rammaslaginn um Vatnsmýrina eru
það þeir sem önnuðust skoöanakann-
anir um kjörsókn og fleira, sem
komust upp í að vera 50% vitlausar.
R-listinn sannaði lýðræðisást sína
með því að efna til kosninga sem
enginn þarf að taka mark á. íhalds-
minnihlutinn vann sinn stóra sigur
með því aö sýna sönnum sjálfstæðis-
mönnum fram á að þeir gengju er-
inda Ingibjargar Sólrúnar með því
að láta í ljósi skoðun á hvort flugvöll-
urinn á að vera eða fara þegar kem-
ur fram á öldina. Og Inga Jóna skor-
aði á þá að sitja heima og taka enga
afstöðu til eins mesta deilumáls sem
upp hefur komið í borgarstjórninni
síðan hendur voru látnar skipta i
Gúttóslagnum sæla í fyrir-
stríðskreppunni.
Af öllu þessu rugluðust D-lista at-
kvæðin svo í skoðanakönnun um
hvern þau vildu
helst fá sem
borgarstjóraefni
flokksins, að
2,5% þeirra vilja
helst sjá Ingi-
björgu Sólrúnu
leiða íhaldið til
sigurs og tóku
hana fram yfir
þungavigtar-
Oddur Ólafsson mennina Árna
blaöamaöur Sigfússon Og
.......'Vilhjálm Vil-
hjálmsson.
Létt reikningsdæmi
Borgarstjórinn er hárviss um að
lýðræðið sigraði í flugvallarkosning-
unni, en það vefst fyrir henni sem
fleirum hvað á að gera við vinning-
inn, ef einhver er. Flugvöllurinn er
nefnilega jarðfastur i mýrinni í hálf-
an mannsaldur til að byrja með.
Sportflugmaðurinn, sem er hollast-
ur vina malbiksflæma og ryðbrunn-
inna skúra í Miðbænum, fer létt með
að reikna út hvemig andstæðingar
vallarins skítlágu í kosningunni þótt
þeir hafi fengið meirihluta atkvæða.
Þeir fengu innan við 50% atkvæða
vegna þess hve mörg voru ógild og
aðeins einn af hverjum sex borgarbú-
„Sportflugmaðurinn, sem er hollastur vina malbiksflœma og ryðbrunninna skúra í
Miðbœnum, fer létt með að reikna út hvemig andstæðingar vallarins skítlágu í
kosningunni þótt þeir hafi fengið meirihluta atkvœða. “