Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001
17
I>V Fréttir
Guðjón A. Kristjánsson:
Vill leyfa
heimabrugg
á léttvíni
Guðjón A.
Kristjánsson,
þingmaður
Frjálslynda
flokksins, hefur
lagt fram frum-
varp á Alþingi
um að einstak-
lingum verið
leyft að brugga
léttvín til eigin
nota með allt að
15% styrkleika
alkóhóls. í dag er
leyfilegt að
kaupa efni og tæki til slíkrar gerðar
en ekki er leyfílegt að brugga
drykki sem eru með meira en 2,5%
styrkleika alkóhóls.
Að sögn Guðjóns er ástæðan fyrir
frumvarpinu sú að á íslandi sé
fjöldi fólks sem áhuga hafi á að
brugga eigin matarvín en er með
því að fara á skjön við lögin og því
þurfi að breyta. „Fólk á að mega
framleiða matarvín til eigin nota í
heimahúsum eða til að gefa það ætt-
ingjum og vinum þó þeir megi ekki
selja það,“ segir Guðjón.
Hann telur mjög áhugavert að sjá
hvernig nota megi íslenskar jurtir
og ber í slíkri víngerð og jafnvel sé
hægt að þróa hér á landi þekkingu á
því hvemig búa megi til af-
bragðsvín úr slíku hráefni. Það sé
ákveðinn tvískinnungsháttur sem
hér ríki því fólk megi kaupa efni og
tæki til vínframleiðslu en í raun-
inni megi það ekki stunda slíka
framleiðslu. „Ég vona að það sé
stuðningur við frumvarpið og sé
ekki af hverju íslendingar ættu að
vera öðruvísi en nágrannaþjóðir
okkar þar sem það þykir ekki til-
tökumál að fólk framleiði sin eigin
borðvin," segir Guðjón.
-MA
Kosningar að ári:
Samfýlkingin
í start-
holunum
DV. AKUREYRI:
„Menn eru ekki famir að ræða
framboðsmál i kjördæminu vegna
sveitarstjórnarkosninganna á
næsta ári en við erum að stofna
Samfylkingarfélög i Eyjafirði, bæði
á Dalvík og Akureyri um helgina
þar sem formaður okkar mun m.a.
mæta,“ segir Örlygur Hnefill Jóns-
son, formaður Kjördæmisfélags
Samfylkingarinnar í Norðurlands-
kjördæmi eystra og formaður kjör-
dæmisráðs í nýja kjördæminu á
Norður- og Austurlandi.
Örlygur Hnefill segist ekki eiga
von á öðru en Samfylkingin muni
bjóða fram á flestum eða öllum
stöðum í sveitarstjórnarkosning-
unum á næsta ári, en það geti orð-
ið eitthvað misjafnt eftir stöðum
hvort Samfylkingin býður fram
sér eða með öðrum. Aðspurður
hvað muni gerast á Húsavík og
Akureyri, þar sem boðnir voru
fram sameiginlegir listar Alþýðu-
ílokks og Alþýðubandalags í síð-
ustu kosningum auk Kvennalist-
ans á Akureyri, segist hann ekki
geta fullyrt neitt um hvað muni
gerast.
„Á Húsavík var boðinn fram
Húsavíkurlisti sem náði meiri-
hluta í bæjarstjórn. Síðan hefur
landslagið breyst og m.a. orðið til
nýtt stjórnmálaafl sem er VG.
Menn hafa ekki rætt þetta, en ég
held að hugur Samfylkingar-
manna muni standa til þess sem
víðast að halda því samstarfi sem
verið hefur, t.d. á Akureyri. Ég
held að þetta sé stefnan en auðvit-
að munu félögin á hverjum stað
taka endanlega ákvörðun í fram-
boðsmálunum," segir Örlygur
Hnefill. -gk
99
Radial IVIudder
ÍVlest seldu dekkin í yfirstærð
Sérverslun jeppamannsins
Kringlunni og Vagnhöfða 23 • Sími 590 2000
- www.benni.is -
Radial
Mudder
jp'»
Allt milli himins ogjarðar...
*mta
*
Smáauglýsingar
DV
kðf Z^T*****^*^--.^.. ISfh
550 5000
/L*
‘Qhllr,
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VISIV1.
2^555-^., ÍSjT fe