Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 19
19 MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 PV_____________________________________________________________________________________________Menning Glæstar gusur Leikiist DV-MYNDIR INGÓ Stjömur þöglu myndanna mættar á frumsýningu Rúnar Freyr Gíslason og Þórunn Lárusdóttir I einum af ótal fögrum kjóium Elínar Eddu. Þjóðleikhúsið sýnir á stóra sviðinu: Syngjandi í rigning- unni eftir Betty Comden og Adolph Green. Lög og söngtextar: Nacio Herb Brown og Arthur Freed. Þýð- Ing: Karl Ágúst Úlfsson. Hljóðstjórn: Sveinn Kjartans- son og Siguröur Bjóla. Lýsing: Páll Ragnarsson. Bún- ingar: Elín Edda Árnadóttir. Leikmynd: Sigurjón Jó- hannsson. Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson. Aö- stoöarleikstjóri: Þórhallur Sigurösson. Danshöfundur og leikstjóri: Kenn Oldfield. Henni finnst hann ekkert merkilegur þó aö hann sé stjarna Kathý (Selma Björnsdóttir) og Don (Rúnar Freyr) hittast af tilvilj- un á sporvagnsstöö. Hann skemmti áhorfendum vel Stefán Karl Stefánsson í hlutverki Cosmó. atriði Júlíu Gold og Sveinbjargar Þórhallsdóttur voru reyndar í sérklassa og einnig var fengur í karldönsurunum þremur sem styrktu heildarút- komuna, án þess að kösturunum væri sérstaklega beint aö þeim. Alls eru leikarar/dansarar í sýningunni tuttugu og einn, auk átta manna hljómsveitar og tveggja dreng- hnokka sem bræddu hvers manns hjarta á frumsýningunni (Alexand- er Nikolaev Mate og Aron Steinn Guðmundsson). Þau leika, dansa og syngja Meðal aðalleikara ber fyrstan að telja Rúnar Frey Gíslason sem leik- ur sjarmörinn Don og ferst það vel úr hendi. Hlutverkið býður ekki upp á mikla dýpt í túlkun fremur en hlutverk í söngleikjum almennt en reynir þeim mun meira á söng- og danshæfileikana og á þá virðist ekkert skorta. Kathý Selmu Björns- dóttur var einlæg og eðlileg og kem- ur væntanlega fæstum á óvart að Selma bæði dansaði og söng eins og engili. Bitastæðustu perónurnar og þær sem yekja mestan hlátur hjá áhorf- endum eru hin skrækróma Lína La- mont og Cosmó Brown, félagi Dons. Á sínum stutta ferli hefur Stefán Karl Stefánsson sýnt að hann er einstaklega fjölhæfur leikari og sannast það enn í þessari upp- færslu. Hann hefur djúpa og fallega rödd, er hreint ótrúlega liðugur og virðist geta kallað fram hlátur án minnstu fyrirhafnar. Það er helst aö meðleikarar hans þurfi að gæta þess að hann steli ekki frá þeim at- hygli! Þórunn Lárusdóttir er líka gamanleikari af Guðs náð. Aðal góðra gamanleikara er hárnákvæm tilfinning fyrir tímasetningum og hún er greini- lega Þórunni í blóð borin. Frábær söngrödd Þór- unnar fær ekki að njóta sín í þessari sýningu en hún mun hins vegar tryggja að Þórunn verði ein skærasta stjarnan i söngleikjauppfærslum fram- tíðarinnar. Þar sver hún sig í ætt við móöur sína, Sigriði Þorvaldsdóttur, sem átti salinn í frábæru dansatriði með þeim Rúnari Frey og Stefáni Karli. Allir aðstandendur þessarar sýningar geta verið stoltir af útkomunni og þá ekki síst Kenn Oldfield sem heldur öllum þráðum í hendi sér. Hann hefur komið að fjölmörgum söngleikjaupp- færslum hérlendis sem danshöfundur og leik- stjóri og gegnir báðum hlutverkum í Syngjandi í rigningunni. Það er því varla á nokkurn hallað þegar því er haldið fram að hann eigi stóran þátt í þvi að uppsetningar söngleikja eru orðnar jafn fagmannlegar hér á landi og raun ber vitni. Halldóra Friðjónsdóttir Þegar Arthur Freed fékk Betty Comden og Adolph Green til að gera handrit að kvik- myndinni Singin’ in the Rain árið 1950 voru meira en tuttugu ár frá þvi talmyndirnar leystu þöglu myndirnar af hólmi. Aðstæð- umar sem lýst er kvikmyndinni heyrðu því sögunni til en skemmtilegt handrit, góð tón- list og frábær dansatriði tryggðu kvikmynd- inni gríðarlegar vinsældir. Sviðsverkið sem þau Comden og Green byggðu á kvikmyndinni er gætt sömu kost- um og því afbragðs skemmtun þegar upp- setningin er jafn vel lukkuð og sú sem Þjóð- leikhúsið býður upp á núna. Þar leggst allt á eitt: góður leikur, söngur og tónlistarflutn- ingur, vel útfærð dansatriði, skrautlegir bún- ingar og skemmtileg umgjörð, og útkoman er án efa glæsilegasta söngleikjauppfærslan sem hér hefur sést á sviði. Kvikmyndum er haganlega fléttað inn í atburðarásina og eyk- ur það skemmtanagildið verulega. Rigning- aratriðin eru svo kapítuli út af fyrir sig eins og þeir sem sitja næst sviðinu komast að raun um á afar áþreifanlegan hátt. Söguþráðurinn hverfist um Don Lockwood og Línu Lamont sem eru vinsælar stjörnur í þöglum myndum Monumental-kvikmynda- versins. Aðdáendum þeirra er talin trú um að parið sé jafn ástfangið í raunverufeikan- um og á hvíta tjaldinu og Lína virðist einnig standa í þeirri trú. Henni verður því ekki um sel þegar Don fer að gera sér dælt við smá- stirnið Kathý Selden og enn kárnar gamanið þegar Kathý þarf að bjarga heiðri Línu og ljá henni rödd í fyrstu talmynd þeirra Dons. Það er valinn maður í hverju hlutverki í Syngjandi í rigningunni og gildir þá einu hvort um er að ræða aðal- eða aukahlutverk. I sýningu sem byggist jafn mikið á hópatrið- um og þessi skiptir samhæfingin gríðarlegu máli og hér gengur allt upp. Sérlega ánægjulegt er að sjá hversu lítið hinir leikaramenntuðu gefa lærðum dönsurum eftir í dansatriðum. Sólódans- Tónlist Nammidagur Boðið var upp á unaðslegt kaffihlaðborð í tón- leikahléi í Langholtskirkju á laugardagskvöldið. Eins gott að það var nammidagur því þarna var einhver gómsætasta djöflaterta sem undirritað- ur hefur smakkað. Aðalgotteríið var þó sjálf tón- listin, söngur Graduale nobili, nýstofnaðs kórs. í honum eru 25 stúlkur á aldrinum 17 til 23 ára og eru þær allar í tónlistarnámi eða hafa verið það. Var auöheyrt strax á fyrstu tónunum að þetta er þrautþjálfaður kór. Eitt fegursta tónverkið á efnisskránni var Music on the Waters eftir Ruth Watson Hender- son við ljóð eftir Byron lávarð. Með kórnum lék Lára Bryndís Eggertsdóttir einkar fallega á pí- anóið og var styrkleikajafnvægi þess við himneskar raddirnar eins og best verður á kos- ið. Þegar kórinn söng um bylgjurnar, „blikandi og kyrrar og sem sofandi vindinn dreymi", skapaði ljúf ölduhreyfing hinna fögru hljóma svo ótrúleg hughrif að maður hefur sjaldan upp- lifað annað eins. Hér var ekki bara eitthvert sönglag heldur ómþýður kliður úr öðrum heimi. Fyrsta íslenska tónsmíðin var Vorlauf eftir Misti Þorkelsdóttur við ljóð Þorsteins Valdi- marssonar, áhrifamikil tónlist, byggð að hluta til á effektum sem minna á þyt í laufi. Sálmur- inn Vökuró eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur var sömuleið- is einkar áheyrilegur, einnig Maríuljóð eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við ljóð Vilborgar Dag- bjartsdóttur og Salutatio Marie eftir Jón Nordal við latneskt helgikvæði. Og sálmurinn Haec est sancta solemnitas eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sem hér var frumfluttur, hljómaði einstaklega vel við fyrstu áheym. Strengjasveit Graduale nobUi virtist saman- standa eingöngu af kórfélögum (að undantekn- um bassaleikaranum sem var eini karlmaður- inn og skemmti sér greinilega vel). Leikur henn- ar var hreinn og öruggur og flutningurinn á barnamessu fyrir kór og strengjasveit eftir finnska tónskáldið Einojuhani Rautavaara var sérlega vandaður, þó strengjahljómurinn væri kannski ögn nemendalegur hér og þar. Einsöngyararnir Árný fngvarsdóttir, Dóra Steinunn Ármannsdóttir, Regína Unnur Ólafs- dóttir, Guðríður Þóra Gísladóttir og Lára Bryn- dis Eggertsdóttir, píanóleikarinn sem getið var hér að ofan, eru allar meðlimir kórsins og stóðu sig öldungis frábærlega. í heild var söngurinn í fremstu röð, tær og ná- kvæmur, samtaka, einlægur og kraftmikill. Hin hröðu hlaup Býflugunnar eftir Rimsky-Korsa- koff í sniUdarlegri umritun kórstjórans Jóns Stefánssonar voru skýr og jöfn og þó einstaka innkomur í fáeinum öðrum lögum hafi verið ör- lítið óöruggar skipti það litlu máli. Jón hefur þjálfað stúlkurnar ákaflega vel, og er ljóst að Graduale nobili á eftir að gegna veigamiklu hlutverki i íslensku tónlistarlífi í framtíðinni. Kórinn er á leiðinni í keppni evrópskra æskukóra í Danmörku síðar í mánuðinum, hann á þar fuilt erindi og er honum hér með óskað góðs gengis. Jónas Sen Tímarit um menn- ingu og mannlíf Þao er ekki sársaukalaust fynr gaml- an ritstjóra Tímarits Máls og menning- ar að sjá á nýju hefti í nýju broti að þó að árgangurinn sé sá 62. heldur það ekki sínu gamla nafni lengur. TMM heitir það en undir skammstöfuninni stendur Tímarit um menningu og mannlif... Blaðið er nú allt litprentað og minnir í útliti mun meira á fallegu blöðin, hin ýmsu „líf ‘ þessa lands, en áður. Þó er „fallegt“ ekki lýsingarorð sem manni dettur fyrst 1 hug þegar þetta fyrsta hefti er skoðað. Til kynningar á aðal- efni heftisins, íslenskri þjóðmenningu, er á forsíðu litmynd af matarlitarflösk- um - þessum sem teknar eru fram úr skotum 1 búrinu skömmu fyrir jól þeg- ar skreyta þarf piparkökurnar. Áreið- anlega er fólgin í þessu ákveðin yfirlýs- ing um að fegurð sé ekki markmiðið, en myndefnið inni í heftinu mótmælir þeirri yfirlýsingu kröftuglega. Að efnisvali og efnismeðferð keppir nýtt TMM fremur við helgarútgáfur dagblaðanna en glanstímaritin. Er nokkurt efni í þessu fyrsta hefti sem ekki gæti verið í Lesbók Morgunblaðs- ins, Sunnudegi Moggans eða helgar- blaði DV? Lausleg athugun á efnisþátt- um sýnir að bókmenntaefni, skáldskap- ur og greinar um bókmenntir, er ívið rúmfrekari en þjóðfélagsmál, a.m.k. ef nýstárleg teiknimyndasaga Bjarna Hin- rikssonar er talin tif skáldskapar frem- ur en myndlistar. Kvikmyndir, listdans, leiklist og myndlist fá tvær til fjórar síður, tónlistin minna. Heimsmynd dóta- kassanna Fjölbreytnin er ekki ámælisverð en efnistökin þurfa að taka dagblöðunum fram. Það gerir grein ritstjórans, Bryn- hildar Þórarinsdóttur, um vaxandi kyn- þáttaátök í Svíþjóð en síður spjall henn- ar við þrjá fróða einstaklinga um ís- lenska þjóðmenningu. Vönduð grein Margrétar Tryggvadóttur um heims- mynd Lego og Playmo kemur verulega á óvart en viðtal við Sigrúnu Eddu Björnsdóttur leikkonu er flausturslega unnið. Grein Ásgrims Sverrissonar um verðlaunamynd Ara Magg af Baldri og Loka er gott innlegg í þá umræðu og grein Höllu Sverrisdóttur um Booker- verðlaunabók Margaret Atwood er mjög skemmtileg, kemur þó ekki í staðinn fyrir greinar um nýjar íslenskar bækur sem maður saknar í nýju TMM. Ekki er auðséð að nýtt TMM fylli upp í áður ófyllt gat á íslenskum blaða- og tímaritamarkaði. Fremur dettur manni í hug, eins og umsjónarmaður Lesbókar Mogga orðaði það á opnun hjá Odd Ner- drum í fyrradag, að það skilji eftir gat þar sem gamla TMM var. En þetta er bara fyrsta heftið... Sögur á tjaldi Dagana 19.-30. apríl stendur hinn sí- virki kvikmyndaklúbbur Filmundur fyrir kvikmyndahátíðinni „Sögur á tjaldi" ásamt Kvikmyndasjóði og Félagi íslenskra bókaútgefenda. Hátíðin er haldin í tilefni af Viku bókarinnar og verða sýndar fjölmargar myndir sem byggðar eru á íslenskum bókmenntum, bæði nýlegar myndir og sígildar mynd- ir sem sjaldan sjást í kvikmyndahúsum. Meðal þeirra má nefna 79 af stöðinni. í tengslum við hátíðina verður haldið málþing í Háskóla íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.