Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2001, Blaðsíða 6
6
_______MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2001
Fréttir I>V
Hitafundur um lyfjareglugerð heilbrigðisráðhera í Borgarnesi:
Eg er lögbrjótur
- segir dýralæknir og á yfir höfði sér fangelsisdóm
DV-MYNDIR DANÍEL V. ÖLAFSSON.
Reiöir kúabændur
Mikill fjöldi kúabænda mætti á fundinn eins og sjá má á myndinni. Menn
voru haröoröir um lyfjareglugeröina sem ætlaö er aö draga úr notkun
sýklalyfja.
DV, BORGARBYGGÐ:
\ & „Lyfjareglugerðin er vantraust á dýra- lækna og bændur," sagði Rúnar Gíslason héraðsdýralæknir á fundi með kúabænd-
um á Vesturlandi.
• •• Menn fjölmenntu á
Rúnar funti í Hótel Borgar-
Gíslason. nesi á fimmtudags-
kvöldiö. Þar var út-
skýrð og kynnt lyfjareglugerð sem Ingi-
björg Pálmadóttir, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, setti í ágúst sl. og hef-
ur vakið reiði meðal bænda og
óánægju dýraiækna.
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
var gagnrýndur bæði af bændum og
dýralæknum vegna reglugerðarinnar
sem er sambærileg reglum á Evrópska
efnahagssvæðinu og á Norðurlöndum,
reynt er að draga úr sýklalyfjagjöf og
sýklaónæmi. í dag eru íjórar af hverj-
um tíu kúm ónæmar fyrir sýklalyfjum.
Kom fram á fundinum að þær lyfjagjaf-
ir sem menn hafa verið að nota undan-
farin ár hafa verið til einskis.
Gagnrýnt er að bændur mega ekki
hafa lyf á lager en verða að kalla á
dýralækni sem meðhöndlar dýrið og
gefur tilvísun á lyfrn. Siðan má bónd-
inn taka við og gefa lyfin , ef júgur-
bólga eða annar sjúkdómur kemur upp
sem bóndinn veit hvemig á að bregðast
við.
Allt aö 2 ára fangelsi
„Dýralæknar, vitið þið hver
viðurlög eru við brotum á reglu-
gerðinni? Jú, við fyrsta brot allt
að tveggja ára fangelsi og við ann-
að brot eða ítrekuð brot allt að
fjögurra ára fangelsi," sagði Sig-
urður Helgason bóndi.
Hann kvaðst hafa rætt við Ingi-
björgu Pálmadóttur heilbrigðis-
ráðherra og hún hefði lýst því yfir
að hún hefði viljað rýmri reglu-
gerð en ekki fengið hana.
„Það er ekkert sem segir í til-
skipun frá EES að bændur megi
ekki eiga lyf á lager,“ sagði Sig-
urður.
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir sagði að dýralæknar væru
yfirleitt sammála reglugerðinni
en tveir dýralæknar sem lýstu
skoðun sinni og sá þriðji frá
Hvammstanga sem sendi skilaboð
á fundinn voru ósammála yfir-
dýralækninum.
Vantraust á dýralækna og
bsndur
Dýralæknirinn á Hvammstanga
bar kveðjur til fundarins sagðist
ekki hafa farið eftir reglugerðinni
og ætlaði ekki að gera það.
Rúnar Gíslason héraðsdýra-
læknir á Snæfellsnesi sagði að
reglugerðin væri vantraust á
bændur og dýralækna. Hann
sagðist hafa fylgt reglugerðinni
frá 1. september en hann sagði
það augljóst mál að það gætu
komið verri vetur en í vetur og þá
væri erfitt að fylgja reglugerð-
inni.
„Þessar reglur setja mér og okk-
ur dýralæknum skorður. Ég
treysti mér ekki til að mæla með
reglugerðinni þetta er vantraust á
mig og mina stöðu og það get ég
ekki sætt mig við,“ sagði Rúnar.
Gunnar Gauti Gunnarsson hér-
aðsdýralæknir sagðist ekki hafa
getað fylgt reglugerðinni i vetur.
„Ég breytti ekki minni
lyfjapólitík og hef ekki farið eftir
reglugerðinni og þar af leiðandi
er ég orðinn lögbrjótur," sagði
Gunnar Gauti á fundinum. -DVÓ
Frjósöm gylta:
Eignaöist
22 grísi
DV, HORNfíRDI:_
Gyltan Lukka, sem er eins og hálfs
árs, er heldur betur fijósöm því á dög-
unum eignaðist hún 22 grísi. Allir
voru þeir lifandi en tveir dóu
skömmu eftir fæðinguna. Sex þeir
minnstu eru enn í hitakassa og fá
mjólkina úr pela. Sjaldgæft er að gylt-
ur fæði svona mörg lifandi afkvæmi í
einu en þetta er annað got Lukku.
Eigendur Lukku eru hjónin Sævar
Kristinn Jónsson og Pálína Bene-
diktsdóttir, bændur á Miðskeri í Nesj-
um.
Ekki er þetta afrek Lukku íslands-
met. Geir Geirsson á Vallá á Kjalar-
nesi segir i samtali við DV að á búinu
þar hafi fæðst 25 grísir en algengast
sé að gylta gjóti 13 til 15 grísum. Gylt-
an er með 16 spena og góð gylta getur
nýtt þá alla. Geir segir það þó afar
sjaldgæft að gylta komi svo mörgum
grisum upp eins og gerðist hjá Lukku
á Miðskeri. -JI
WtF 1
- i,
DV-MYNDIR JÚLlA IMSLAND
Gott samkomulag
Lukka getur ekki látiö allan hópinn drekka í einu en samkomutagiö viröistgott hjá þeim litlu, a.m.k. enn þá. Á
innfelldu myndinni er veriö aö gefa einum af minnstu grísunum aö drekka úr pela.
Sinueldur hjá Selfossi:
Reykinn lagði
yfir bæinn
ÐV. SELFOSSI:
Slökkvilið Bruna-
vama Ámessýslu
barðist í síðustu viku
við sinueld sunnan
við byggðina á Sel-
fossi. Þar höfðu litlar
hendur farið óvar-
lega með eld sem fór
Bar*®t viö úr böndunum og
eldinn. brenndi hátt í einn
hektara lands. Á svæðinu er búið að
planta trjágróðri sem líklegt er að
skemmst hafl talsvert af völdum elds-
ins.
Mikinn reyk lagði yfir hluta byggð-
arinnar sem hætt er við að hafl valdið
einhverjum vandræðum því margir
notuðu góða veðrið í gær til að viðra út
hjá sér og hengja þvott til þerris í blíð-
unni. -NH
Stolið frá Sindra-stúlkum
- nánast öllum farangri þeirra rænt úr búningsklefa
DV, HORNAFIRDI:
Fótboltastelpurnar í Sindra sem
fóru að keppa við Þrótt og HK-Vík-
ing á dögunum, urðu fyrir þvi að
nánast öllum farangri þeirra var
stoliö á meðan þær voru að keppa
við Þrótt. „Við vorum í Þróttar-
heimilinu í Laugardal og .skildum
dótið okkar eftir í búningsklefan-
um,“ sagði Hjördis Hjartardóttir
sem var ein keppenda. Klefinn var
ekki læstur en allt læst nema dyr út
að vellinum og enginn vöröur var
inni.
„Við urðum þarna fyrir miklu
tjóni því þjófamir tóku farsímana
okkar, úr, fatnað, snyrtivörur og
ýmislegt fleira og einnig lykla að
tveim bílum. Við fréttum það eftir á
að þjófar væru tíðir gestir í bún-
ingsklefunum þarna og okkur
fannst það fúlt að við skyldum ekki
vera varaðar
við. Þegar við
kærðum þetta
og tilkynntum
hverju hefði ver-
iö stolið kom
heimaliðið með
lista yfir það
sem áður hafði
verið stolið frá
því,“ sagði Hjör-
dís.
Svolítil sára-
bót var fyrir
stelpumar úr
Sindra að þær
sigruðu i báðum
leikjum, með 3-2
við Þrótt og 5-0
við HK-Víking.
-JI
Reynslunni ríkari DV'MYND Júlía imsland
Kvennaliö Sindra æfir á fullu, reynslunni ríkara þegar
næsta ferö veröur farin.
Barist um hylli Davíös
Framsóknar-
menn eru farnir
að velta vöngum
yfir næstu ríkis-
stjórnarmyndun
og hafa þeir
mundað skotfærin
á vinstri græna I
sem þykja skeinu-1
hættir keppinautar'
um hylli Sjálfstæðisflokksins. Ung-
liðar SUF furða sig á vangaveltum
Sverris Jakobssonar sagnfræð-
ings, sem birtust á vefritinu Múr-
inn.is, um að Samfylkingin sé farin
að biðla til Sjálfstæðisflokksins.
Rök Sverris séu að nokkrir sam-
fylkingarmenn hafi verið fengnir
til að ritstýra Fréttablaðinu. Ergo:
Samfylkingin sé því komin í bull-
andi tilhugalif með Davíð Odds-
syni. Benda Framarar á að Stein-
grímur J. Sigfússon hafi sjálfur
gengið með grasið í skónum á eftir
Davíð og telja nafn flokksins
einmitt dregið af því græna grasi...
Kiddi í vanda
Greinilegt er
að staða Kristins
H. Gunnarssonar
varðandi þingsæti
á lista Framsókn-
arflokksins í nýja
norðvesturkjör-
dæminu er ekki
talin ýkja sterk
um þessar mundir.
Uppreisn hans gegn flokksformann-
inum í kvótamálunum virðist síður
en svo hafa styrkt stöðu hans til
metorða. f uppreisnartilraun sinni
til að breyta stefnu flokksins naut
hann stuðnings Reykvíkinga og því
var talið næsta borðleggjandi að
■Kiddi vippaði sér yfir í annað
tveggja Reykjavíkurkjördæmanna.
Staðhæft er að Kristinn hafi rætt
við trúnaðarmenn flokksins um
slíkan flutning. Ekki virðist hrifn-
ingin þó mikil fyrir þessari hug-
mynd því að á Hriflu, vef Reykja-
víkurfélagsins, er þess hreiniega
óskað að menn hætti að úthluta
sætum í Reykjavík. Þeir séu full-
færir um það, sjálfir Reykjavíkur-
frammarar...
Helv... þorskurinn étur allt
Togararall Haf-
rannsóknastofn-
unar gekk að von-
um afskaplega vel
fyrir utan eitt.
Fjárans þorskur-
inn lét varla sjá
sig og lítið af þeim
gula var á hefð-
bundnum aflaslóð-
um. Hins vegar segja hafrann-
sóknamenn að þorskurinn sem
fannst hafi verið í góðum holdum.
Sagt er að Jóhann Sigurjónsson
sé þvi þokkalega hress með niður-
stöðuna. Svo mun ekki vera um þá
sem gagnrýnt hafa fiskveiðistjórn-
unarkerfið. Segja þeir ástæðuna
fyrir góðu holdafari vera þá að
þorskurinn hafi tilhneigingu til að
éta fiska af sama stofni ef annað er
ekki á boðstólum. Því sé þorskur-
inn á góðri leið með að eyða sjálf-
um sér vegna of lítiliar veiði...
Upp með kaupið...!
Nokkur fólks-
flutningafyrir-
j tæki, þeirra á
meðal Kynnisferð-
ir, neita að ráða
félaga í Bifreiða-
stjórafélaginu
Sleipni til starfa
og bjóða þeim
Sleipnisfélögum
sem hjá þeim vinna launahækkun
segi þeir sig úr félaginu. Hjá fyrir-
tækinu starfar einmitt Óskar Stef-
ánsson, formaður Sleipnis, sem nú
horfir á starfsfélaga sína fá 40.000
kr. launahækkun fyrir það eitt að
segja sig úr Sleipni. í heita pottin-
um þykir mönnum einsýnt að
þarna sé búið að finna nýja leið
fyrir Óskar í baráttu bílstjóra fyrir
bættum launum. Sagt er að kröfu-
spjöld bílstjóra í Sleipni 1. maí
verði því: „Upp með kaupið - niður
með Sleipni..."