Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2001, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2001, Blaðsíða 32
r~A é Svartklædd hersing niður Laugaveg: 400 lögreglumenn í kröfugöngu - koma víðs vegar af landinu og mótmæla samningsleysi Um 400 lögreglumenn, eða um 70% allra lögreglumanna hérlendis, munu í dag kl. 14.00 ganga frá lög- reglustöðinni á Hlemmi niöur Laugaveg að Alþingishúsinu, stilla sér þar upp og afhenda Geir Haarde fjármálaráðherra og Sólveigu Pét- ursdóttur dómsmálaráðherra mót- mæli vegna þess að ekki hafi verið rætt við lögreglumenn um nýja kjarasamninga en lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt. Umferð um Laugaveg teppist á meðan en fyrir göngunni fara lögregluhjól eins og venjan er þegar kröfugöngur fara niður Laugaveginn. Samningar runnu út á síðasta ári. Lögreglumenn víðs vegar af land- inu taka þátt í þessari göngu og t.d. taka um 30 lögreglumenn frá Akur- eyri, Húsavík, Sauðárkróki, Blöndu- ósi og víðar sig saman í bilum og aka til Reykjavíkur og sameinast þar félögum sínum víðs vegar af landinu. Einnig er búist viö þátt- töku sunnan, vestan og austan af landinu. Gengnar verða vaktir með- an á þessum mótmælum stendur en lágmarksþjónustu aðeins sinnt. Haukur Óskarsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að lít- ið sem ekkert sé talað við samninga- nefnd lögreglumanna um nýjan kjarasamning þrátt fyrir að búið sé að halda ótal málamyndafundi og það sé bara lítilsvirðing við stéttina. Haukur byrjaði í lögreglunni árið 1971 og hann segir að kaupmáttur launa hafi þá verið mun meiri en hann sé í dag. Áriö 1987 gengu lög- reglumenn fylktu liði niður að Arn- arhvoli til þáverandi fjármálaráð- herra og kröfðust samninga. Skömmu síðar var samið við þá. -GG FRETTASKOTIÐ SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnieyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MANUDAGUR 30. APRIL 2001 Háskólakennarar: Viðræður mjakast Flugslysaæfing: Slökkviliðs- maður lést Viðamikilli flugslysaæfingu, sem haldin var á Sauðárkróki á laugardag, var aflýst þegar hún stóð sem hæst eftir að einn þátttak- enda, 47 ára gamall slökkviliðs- maður á Króknum, fékk hjartaáfall og lést skömmu síðar á sjúkrahúsi. Um 300 manns tóku þátt í æfing- unni. -sbs Akureyri: Fjórir með fíkniefni Lögreglan á Akureyri handtók í fyrrinótt fjóra menn sem voru með fikniefni undir höndum. Mennim- ir voru á tveimur bílum en þegar lögreglan sá hverjir vom þarna á ferö stöðvaði hún mennina enda lék grunur á að þeir væru með fíkniefni. Reyndist sá grunur á rökum reistur. Að sögn lögreglu reyndust mennimir vera meö á sér um 20 g af hassi og smáræði af amfetamíni. Mennirnir fengu að fara frjálsir ferða sinna eftir að rannsókn máls- ins var lokið og botn kominn í það. -sbs DV kemur næst út miðvikudag- inn 2. maí. Smáauglýsingadeild DV er opin til kl. 22 í kvöld og þriðju- daginn 1. maí kl. 16-22. Síminn er 550 5000. Brotist inn í Allgóður gangur var í gærkvöld í kjaraviðræðum Félags háskóla- kennara og Launanefndar ríkis- ins. Samningafundir stóðu yfir hjá Ríkissáttasemjara alla helgina. „Þetta er að mjakast," sagði Geir Gunnarsson vararíkissáttasemj- ari, sem stýrir viðræðunum, í samtali við DV í gærkvöld. Hann vildi ekki upplýsa hvaða efn- isatriöi helst stæðu út af borðinu, nema hvað tíminn til viðræðn- anna áður en verkfall ætti að skella á væri orðinn naumur. Verkfall er boðað á miðnætti 2. mai og stendur til þess 16. „Mér finnst frekar bjart yfír þessum viðræðum núna og þetta er í góðum farvegi," sagði vararík- issáttasemjari. -sbs. DV-MYND ÞGK Alft truflar umferð Það varö uppi fótur og fit á Víkurbrautinni í Grindavík þegar álft ein mikil og bústin stöövaöi alia umferö og taldi sig eiga fullan tilverurétt þarna innan um blikkbeljurnar. Hópuöust aö krakkar til aö kenna henni umferöarreglurnar og tókst aö iokum aö koma henni af veginum án teljandi vandræöa. Ekki fer fleiri sögum af því hvaö álftinni gekk til en vel gæti ver- iö aö hún hafi veriö í makaleit eöa þá aö þetta hafi veriö heimilisvön álft að skoöa mannlífiö í Grindavík. Hleypt var af skotum í grennd við íþróttavöll ÍR í Breiðholti seint i gærkvöld. Lögreglan í Reykjavík kom fljótlega á vettvang og var önn- um kafin við að rannsaka málið og leita að byssumönnum. Fólk var á svæðinu þar sem skotin riðu af og karlmaður var fluttur á slysadeild en þó ekki með skotáverka. Ekki fengust nánari upplýsingar af at- burðunum í Breiðholti áður en blað- ið fór í prentun. -Gun. Bjartsýni í Karphúsi: Monnunartilboð i dag - sem mikið veltur á. Úthafskarfinn í veði. „Mér finnst held- ur vera að lifna yfir viðræðum okk- ar við útvegs- menn,“ segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags ís- lands. Sjómenn funduðu með út- vegsmönnum alla helgina og þegar Helgi Laxdal. fundum lauk síðdegis í gær lá fyrir að þeir syðu saman samræmt tilboð til viðsemjenda sinna um mönnun- armál. Til stendur að afhenda til- boðið í dag. Mönnunarþátturinn hefur í raun verið stóri ásteytingar- steinninn í öllum viðræðunum en það sem liðkar fyrir nú er meðal annars að í frumvarpi til laga um áhafnir skipa, sem nú liggur fyrir Alþingi, hefur verið tekið út allt það sem snýr að fiskiskipum. „Ef við náum saman við útvegs- menn um mönnunarþáttinn er það Friðrik Arngrímsson. mín tilfinning að þetta fari að druslast saman. Ef ekki bið ég guð að hjálpa okkur eftir mánaðar- langt sjómanna- verkfall," segir Helgi Laxdal. Hann segir til- finningu sína vera þá að gangi út- vegsmenn að tilboði sjómanna um mönnun skipa ættu menn, hvorum megin við samningaborðiö sem þeir sitja, að geta farið að ganga í takt og hægt væri að ná kjarasamningum á einni viku eða svo. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, talar á svipuð- um nótum. Hann segir að alltaf hafi veriö ljóst að mikilvægt væri fyrir gang viðræðnanna að menn næðu saman um mönnunina. Ekki sé við- unandi fyrir útgerðina að kostnaður Tilboö um mönnunarmál Sjómenn funduöu meö útvegsmönnum alla helgina og þegar fundum lauk í gær lá fyrir aö þeir syöu saman samræmt tilboö um mönnunarmál. hennar aukist þótt fækki i áhöfnum. Friðrik treysti sér ekki til að segja fyrir um hve langan tíma þurfi til að semja viö sjómenn þótt mönnun- arþátturinn væri frá, talsvert væri þá óleyst enn. - Hins vegar voru bæði Helgi og Friðrik sammála um að mikilvægt væri að ná samning- um hið fyrsta, ekki síst vegna úthafskarfaveiðanna sem mestar eru og bestar í maímánuði -sbs Brotist var inn í marga sumarbú- staði á Suður- og Vesturlandi í síðustu viku og stolið þaðan sjónvarps- og hljómflutningstækjum, rafmagnsá- höldum og öðrum verðmætum. Brá því mörgum i brún er þeir komu í sumarhúsin sín á fóstudag í þeirri góðu trú að ánægjuleg helgi væri fram undan. Lögreglunni í Borgarnesi var tilkynnt um innbrot í átta bústaði í Svarfhólsskógi i Svínadal og að sögn lögreglunnar á Selfossi hafði verið farið inn í sex hús í Úthlíð í Biskups- tungum. Verksummerki voru svipuð alls staðar. Gluggar höfðu verið spenntir upp en litlar skemmdir unn- ar að öðru leyti. Ekki er ljóst hvert verðmæti þýfisins er. Rannsókn á inn- brotunum stendur yfir. -Gun. brother P-touch 1250 Lítil en STÓRmerkileq merkivél 5 leturstæröir 9 leturstillingar prentar i 2 linur boröi 6, 9 og 12 mm 4 geröir af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443 Veffang www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.