Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2001
7
I>V Fréttir
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND.
Bæjarstjóri fagnaði
Albert Eymundsson, bæjarstjóri á
Hornafirði, opnaði formlega nýja
Skjávarpsvefmn og sagðist fagna til-
komu hans.
Nýr fréttavefur:
Vill öflug
skoðanaskipti
DV, HORNAFIRDI:
Opnaður hefur verið nýr frétta-
og upplýsingavefur á Netinu á veg-
um SkjáVarps. Þetta er landshluta-
bundinn vefur og hefur hver lands-
hluti sina vefsíðu þar sem hægt er
að fylgjast með svæðisbundnum
fréttum og upplýsingum en
Skjávarp er með staðbundna frétta-
þjónustu í öllum íjórðungum.
Samkvæmt upplýsingum frá
SkjáVarpi er stefnt að öflugum
skoðanaskiptum og mun vefurinn
ekkert láta sér óviðkomandi þegar
um staðbundna viðburði er að ræða
og fylgst verður vel með hvað er að
gerast á hverju svæði. Fjöldi pistla-
höfunda hefur gengið til liðs við
Skjávarp.is og munu þeir skrifa
pistla sem ýmist tilheyra þeirra
landsvæði eða landinu öllu. Þessi
vefur er sá eini sinnar tegundar á
landinu og er byggður upp í svipuðu
formi og SkjáVarp og er viðbót við
staðbundna upplýsingamiðlun
SkjáVarps sem aukist hefur og eflst
á undanfórnum mánuðum.
-JI
r
Utsala
á gröfum í röðum
%/ Góðar gröfur á verði við allra hæfi.
/ Fyrsta afborgun í nóvember 2001.
%/ Allar vélarnar yfirfarnar.
/ Komið og kynnið ykkur málið.
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
Netfang: veladeild@ih.is
Véladeild
Hópar, klúbbar og starfsmannaféiög:
Við bjóðum Helgarslaufur á sérstöku
tilboðsverði fyrir stærri hópa.
Hafið samband í síma 570 30 30
fax: 570 3001
websales@airiceland.is
www.flugfelag.is
Munið eftir Helgarslaufunum
þegar ykkur langar í tilbreytingu.
.. .fljúgðu frekar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Nú er rétti tíminn til að bregða út af hinni
daglegu venju, hnýta litríkar og spennandi
slaufur á tilveruna og halda á vit
skemmtilegra og rómantískra ævintýra.
- fyrir fólk eins og þigl
mg-JS
Við bjóðum Helgarslaufur,
pakkaferðir með flugi og
gistingu, á frábæru verði,
til áfangastaða okkar innanlands.