Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 25
29
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 20ul
DV
Tilvera
Sómi á fleygiferð á sjávarútvegssýningu:
Jennifer med
nýja hárgreiðslu
Latínubomban Jennifer Lopez er
bara eins og ný manneskja þessa
dagana. Hún er komin með nýja
hárgreiðslu og nýjan kærasta. Þá er
búið að frumsýna nýja mynd með
henni, ný plata er komin út og
stúlkan er búin að fá nýtt starf í
sjónvarpi.
Þegar Jennifer og kærastinn,
gógódansarinn Chris Judd, mættu á
frumsýningu Englaaugna á dögun-
um ráku margir upp stór augu.
Filmstjarnan var nefnilega í svo
stuttu pilsi að annað eins hafði ekki
sést lengi. Og krullaður makkinn
vakti ekki síður athygli viðstaddra.
Penn er hrifinn
af Nicholson
Bandaríski leikarinn og leikstjór-
inn Sean Penn fer ekki dult með
hrifningu sína á stórleikaranum
Jack Nicholson.
„Ég elska hann, hann er stærsta
gjöf lífs míns,“ hrópaði leikarinn
upp yfir sig á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Þar var Sean Penn að
kynna nýjustu kvikmyndina sína,
The Pledge. Að sjálfsögðu fer
Nicholson með aðalhlutverkið í
henni.
The Pledge er tryllir um leit upp-
gjafa lögreglumanns að morðingja
lítils barns. Myndin tekur þátt í að-
alkeppninni í Cannes.
REM-söngvari
út úr skápnum
Michael Stipe, forsöngvari
rokksveitarinnar REM, hefur viður-
kennt að hafa átt í ástarsambandi
við annan karlmann undanfarin
þrjú ár. Stipe hefur til þessa þagað
þunnu hljóði yfir vangaveltum
manna um kynhneigð hans. Hann
sagði hins vegar i viðtali við Time á
dögunum að kominn væri tími til
að opna sig.
„Fyrst fannst mér þetta bara mitt
einkamál en núna finnst mér það
hafa verið hugleysi að leyna því,“
sagði söngvarinn og bætti við að
kærastinn væri stórkostlegur.
Á fimmtán tímum til Færeyja
og eyjaskeggjar féllu í stafi
„Siglingin gekk að óskum. Við
fengum góðviðri þar til við áttum
örfáar sjómílur eftir til Færeyja. Þá
voru nokkur vindstig á móti,“ segir
Óskar Guðmundsson, forstjóri Báta-
smiðju Guðmundar, sem sigldi
Sómabátnum Bjargey við þriðja
mann frá íslandi til Færeyja um
helgina til að sýna bát sinn, Sóma
960, á sjávarútvegssýningu í Rúna-
vik í Færeyjum. Eins og DV greindi
frá lögðu Hafnfirðingarnir Óskar
forstjóri og Valdimar Long báta-
smiður, ásamt Grímseyingnum Sig-
urði Bjarnasyni, af stað um helgina
en þá vonuðust þeir til þess að ferð-
in tæki um 30 tíma. Nú er komið á
daginn að þeir þurftu aðeins um
helming þess tíma.
Öílug staðsetningartæki og stað-
góð siglingafræðiþekking tryggði að
þeir félagar fóru stystu leið til eyj-
anna. Reyndar höfðu þeir tekið með
tvöfalt meira af olíu í öryggisskyni
en ekki þurftu þeir á varabirgðun-
um að halda.
Um 30 Sómabátar eru í Færeyjum
gríðarlegur áhugi á bátnum," segir
hann.
Sómi 960 gengur 30 sjómUur. Lík-
lega er þarna um íslandsmet að
ræða því meðalhraði Bjargeyjar á
leiðinni frá Vestmannaeyjum til
Færeyja var 25 sjómUur.
Óskar og félagar snúa heim um
næstu helgi og enn með tvöfaldar ol-
íubirgðir í öryggisskyni. Forstjór-
inn segist vona að ferðin eigi eftir
að skila sér í sölu á bátum.
„Ég er bjartsýnn á að selja báta
Færeyja. Þeir þekkja
-'uðvitað Sómann
vel og
...
*»» Sölhí / ^at’
jt urinn
Hetjur hafsins
Óskar Guömundsson forstjóri og féiagar hans sigldu Sómabáti sínum á
mettíma milli ianda. Feröin gekk aö óskum og þeir njóta nú lífsins gæöa
í faömi Færeyinga.
þannig að þessi gerð báta er eyja-
skeggjum að góðu kunn. Óskar seg-
ir bátinn hafa vakið mikla athygli
og mikU ásókn sé í að fara í prufu-
siglingu.
„Færeyingar falla í stafi. Það er
feUur ~~~
svo sannarlega i
kramið hjá þeim. Þetta er alveg
druUugott hér hjá frændum vorum
Færeyingum," segir Óskar sem að
lokinni Færeyjaferðinni afhendir
nýjum eigendum í Grímsey bátinn.
-rt
Kíkt í Kistuna
Kistan.is, vefrit um listir og
menningu, var opnuð á ný eftir
miklar breytingar og endurskipu-
lagningu á laugardaginn. Athöfnin
fór fram í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, og var það Sigurbjörn
Einarsson biskup sem smellti á
músina og opnaði vefritið formlega.
Á eftir fór fram dagskrá þar sem
fram komu meðal annars kanadíski
tónlistarmaðurinn Bill Bourne og
Illugi Jökulsson sem flutti fyrsta
pistil Kistunnar.
Einar og Einar
Einar G. Pétursson hjá Árnastofnun og Einar Sigurbjörnsson, prófessor í guö-
fræöi, voru viöstaddir opnun hins nýja rits.
DV-MYNDIR EINAR J.
Kistan opnuö
Sigurbjörn Einarsson biskup opnar
Kistuna formtega meö aöstoö
Matthíasar Viöars Sæmundssonar.
Spekingar spjalla
Ævar Kjartansson guöfræöinemi og
Þorgeir Þorgeirson rithöfundur ræöa
málin.
Tveir úr heimi tónlistarinnar
Kanadíski þjóölagasöngvarinn Bill Borne ásamt Ólafi Þóröarsyni tónlistar-
manni.
Geri kynnir nýja plötu
Kryddpían okkar fyrrverandi, hún
Geri Halliwell kynnti nýja plötu sína í
London um daginn. Geri hefur af þvi
tilefni lýsti yfir stuöningi viö Verka-
mannaflokkinn en áöur var hún ákaf-
ur stuðningsmaöur járnfrúarinnar
Thatcher.
Matthías Viöar Sæmundsson, stofnandi Kistunnar, Geir Svansson, ritstjóri vefritsins, og Viöar Hreinsson frá Reykja-
víkur-Akademíunni bera saman bækur sínar.
• Stórminnkar sólarhita
■ Gerir sólabirtuna
mildari og þægilegri
■ Útilokar nánast
útfjólubláa geisla og
upplitun
■ Eykur öryggi í
fárviðrum og jarðskjálftum
• Eykur öryggi gegn innbrotum
■ Brunavarnarstuðull er F 15
• Einangrar gegn kulda,
hita og hávaða
• Glerið verður 300% sterkara
■ Minnkar hættu á
glerflísum í andlit
Gerir bílinn/húsið glæsilegra
GLÓIHF
ipavogi
síml 544 5770 _____