Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2001, Page 24
44
í f iö
Fenris var fyrst sýnt árið 1985 í
tilefni af alþjóðlegu ári unglinga á
vegum Sameinuðu þjóðanna en það
voru Danir sem áttu frumkvæðið
að því að ungir leikhópar á Norður-
löndum sameinuðust um leiksýn-
ingu sem síðan hefur verið viðhald-
ið með nýjum sýningum að jafnaði
annað hvert ár undir nafni Fenris.
Leikklúbburinn Saga er áhuga-
leikklúbbur ungs fólks á Akureyri
og hefur um árabil tekið þátt í
Fenris en auk þeirra taka þátt leik-
hópar frá Færeyjum, Grænlandi,
Álandseyjum (fyrir Finnland), Nor-
egi, Svíþjóð og Danmörku. Leik-
stjóri allra leikhópanna er Agnar
Jóns Egilsson.
Styrktist í trúnni á leikhús-
formin
„Það sem kom mér mest á óvart
var að þetta skyldi vera hægt en
þegar ég hitti hópnn allan í fyrsta
sinn í íþróttahúsi í Humlebek þá
tókst á innan við klukkutíma að ná
að búa til hóptilfmningu þannig að
þau voru öll eins og hugur manns.
Þetta gerði það að verkum að ég
styrktist í trúnni á leikhúsformin,"
segir Agnar sem hefur síðan fyrir
áramót verið á flakki milli þessara
sjö landa norðursins og leikstýrt
samtals hundrað manns sem í sum-
ar munu sameinast í leikferð um
Norðurlöndin í einu stóru kröftugu
leikverki sem heitir „Tabú“ og
verður frumsýnt i Iþróttahúsi Gler-
árskóla á Akureyrir fyrstu helgina
í júlí í sumar. Eftir að þessi fjöl-
menni hópur ungra áhugaleikara
hefur flakkað um ísland í rútum
með leikmynd tabú á toppnum, ligg-
ur leiðin um borð í Norrænu og er
næsti viðkomustaður Norræna hús-
ið í Færeyjum.
Með Tabú á toppnum
- Hvað er að vera tabú?
„Krakkarnir ákváðu eftir að
hafa unnið þemavinnuna saman
að viðfangsefnið að þessu sinni
skyldi vera tabú og hræðsla við
hið óþekkta. Tabú er það sem ekki
Bíógagnrýni
DV-MYND EÓ
Leikstjóri í sjö löndum
„Þaö sem kom mér mest á óvart var aö þetta skyldi vera hægt, “
segir Agnar Jón Egilsson leikstjóri.
má tala um og það sem á að þagga
niður og það er heldur ekki auð-
veldasta líkamlega tjáningarform-
ið fyrir áhugaleikara þannig að
þau gáfu sér undirþemu. Það er
nefnilega mjög mismundandi hvað
er tabú í hverju landi, t.d. er kyn-
líf ekkert endilega tabú í einu
landi en er það í öðru. Svo geta
trúarbrögð verið tabú í einu landi
meðan sagan er tabú eins og við
fundum hjá dönsku og sænsku
krökkunum sem líta á seinni
heimstyrjöldina sem hluta af upp-
runa sínum og vilja helst ekki tala
um þann hluta sögunnar. íslenski
leikhópurinn valdi trúarbrögð
sem undirþema tabú og byrjuðu að
vinna með satanisma og trúar-
brögð sem þau ekki þekkja og hafa
þess vegna fordóma gagnvart. Það
endaði með því að við bjuggum
bara til nýja trú og spunamir
þeirra ganga út á trú sem ekki er
leyfð og hvernig samfélagið er
ekki tilbúið að samþykkja trúar-
brögð fólks, ekki vegna þess að
það þekki til þeirra heldur bara
vegna þess að þau eru öðruvlsi."
Talar tungum
- Á hvaða tungumáli er hægt að
leikstýra svona fjölþjóðlegum hóp?
„Ég er nú ekkert voðalega dug-
legur i dönskunni en hef í gegnum
tiðina aflað mér smá sænskukunn-
áttu. Þannig að ég flakka á milli
þess að tala tala íslensku með
sænskum og dönskum hreim og
smá sænsku eða dönsku inn á
milli. Ég hef samt komist aö því að
það er eiginlega best að nota það
sem ég kalla skandinavískt kropp-
sprog, þá notar maður alla
vöðvana í andlitinu, tunguna,
hendurnar og baðar út öllum öng-
um, þannig nær maður líka best
til þeirra sem eru lengst í burtu,
þetta er jú svo stór hópur“, segir
Agnar og bætir við að krakkarnir
sjálfir séu algjörir snillingar í að
finna upp einhvern
samskiptamáta. -W
Sam-bióin/Háskóiabíó/Laugarásbíó:
Ofurmenni - lífs og liðin
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001
DV
Tilvera
■ MEÐ VIFIÐ I LUKUNUM - FOR-
SYNING Gamanleikritið Meö vífiö í
lúkunum eftir Ray Cooney verður
forsýnt í kvöld klukkan 20 á Stóra
sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri
er Þór Tulinius og þýðandi Árni Ib-
sen. Miðaverð er 1000 krónur á for-
sýningu.
■ HEFND KYNJAFRÆÐIKENNAR-
ANS Rannsóknastofa í kvennafræö-
um stendur fýrir dagskrá í Hlaðvarp-
anum klukkan 20 í kvöld. Bonnie
Morris, doktor I kvennasögu og pró-
fessor við George Washingon há-
skóla í Bandaríkjunum, treður upp
með einleikinn „Hefnd kynjafræði-
kennarans". Leikritiö er skopádeila
á hinar Ijölmörgu klisjur um kvenna-
fræði og femínisma. Ollum opið, aö-
gangur ókeypis.
Fundir
■ KYNNING A NAMI I
HEIMSPEKIDEILD fer fram á 2. og
3. hæð í Nýja Garöi í dag kl. 15-18.
Þar er hægt að fræöast um nám í
íslensku, sagnfræði, heimspeki,
táknmálsfræði málvísindum,
bókmenntafræði, ensku, þýsku,
dönsku, norsku, sænsku, finnsku,
spænsku, ítölsku, frönsku, latínu,
grísku og rússnesku.
■ KYNNING Á NÁMI í
GUÐFRÆÐIDEILD fer fram í stofu V
á 2. hæð í aöalbyggingu Háskóla
Islands milli kl. 15 og 18 í dag. Þeir
^ sem hafa áhuga á guðfræði eða
djáknanámi ættu að skella sér.
Krár
■ ROKK OG ELEkTRÓNIK Það
verður góð blanda af gæðarokki og
úrvals elektrónik á Gauknum í
kvöld. Þar koma fram Noise og
Skurken. Noise er rokktríó úr
Vesturbænum sem keppti í úrslitum
í Músíktilraunum. Skurken er
rafónlistarmaður sem kom fyrst
fram á sjónarsviðið fyrir tveimur
árum. Hann ætlar að frumflytja nýtt
efni í kvöld á Gauknum.
Sýningar
■ MOSÁIK í LISTHUSÍ ÖFEIGS
Hópur kvenna sem kallar sig
Mosaik 2001 er með sýningu á
verkum sínum í Listmunahúsi
Ófeigs viö Skólavörðustíg. Þar eru
myndir og munir skreyttir mósaíki.
■ FANGAR ANDRÚMSLOFT j
LJOSMYND Hoilenska listakonan
Fenki Kuiling er með
Ijósmyndasýningu í Gallerí Geysi,
Hinu húsinu við Ingólfstorg.
Myndirnar hefur Fenki tekiö á íslandi
og í þeim reynir hún að gefa í skyn
tilveru hluta sem eru ekki endilega
til staðar í verkunum.
■ LÍFSINS BRAIIT í GALLERÍ LIST
Ninný sýnir verk, unnin meö olíu og
akrýllitum á striga, í Gallerí List,
Skipholti 50d. Sýningin ber
yfirskriftina Lífsins braut.
■ BÁTASÝNING Öldungurinn Diörik
Jónsson sýnir bátamódel sem hann
hefur smíðað á undanförnum árum
að Dalbraut 27. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 13-16.
Sjá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is
Samnorræni leikhópurinn Fenris frumsýnir Tabú á íslandi í júlí:
Best að nota skand-
Með þróaðri tölvutækni hafa tækni-
brellur í kvikmyndum tekið hröðum
framfórum. Um leið og eitthvað nýtt
lítur dagsins ljós þá fréttist að von sé á
nýrri tækni sem tekur nýrri fram.
Þessi keppni hjá risunum í Hollywood
um að vera alltaf með það nýjasta og
besta í tæknibrellum kemur í veg fyr-
ir að mikið sé lagt i söguna sem verið
er að segja. Það er hvorki tími né pen-
ingar til fyrir slíkt og staðreyndin er
að eftir því sem tæknibrellumar verða
fullkomnari þá kostar meira að nýta
þær til fúllnustu.
The Mummy Returns er dæmigerð
kvikmynd þar sem öllu er kostað í út-
lit og brellur og sagan látin sitja á
hakanum og er því ekki merkileg þeg-
ar kafað er í hana. í myndinni hefur
samt tekist að nýta tæknina á já-
kvæðan hátt svo úr verður fjörug og
spennandi kvikmynd sem rekur ekki
aðeins ættir sínar til forverans, The
Mummy, heldur einnig Indiana Jones
myndirnar, en þær kvikmyndir eru
ágæt viðmiðun þar sem í þeim var
reynt, um leið og tæknin var nýtt til
hins ítrasta, að segja skemmtilega
sögu.
The Mummy varð óvænt ein vin-
sælasta kvikmynd ársins 1999. Það
kom því fáum á óvart að framhald
. yrði gert enda úr nógu að moða og all-
ar aðalpersónurnar í fullu fjöri eftir
að á næstu dögum mun koma upp á
yfirborð jarðar hinn fimm þúsund
ára gamli Sporðdrekakóngur. Er
kraftur hans svo mikill að hann færi
létt með að ná yfirráðum á jörðinni.
Þetta vita Rick og Evelyn ekki í
fyrstu en komast fljótt að raun um
sannleikann þegar reynt er að stela
armbandinu frá þeim. Leikurinn
berst síðan til Egyptalands þar sem
ævintýrið fer að taka á sig mynd.
Það er til lítils að reyna að fá ein-
hvern botn í söguna enda skiptir það
kannski ekki svo miklu máli. Við
erum stödd í ævintýraheimi þar sem
lög og reglur lúta öðrum lögmálum.
Það sem skiptir máli er að það tekst
vel að skapa ævintýraheiminn, allt
keyrt á miklum hraða og engar vand-
ræðalegar uppákomur. Leikarar gera
það sem til af þeim er ætlast. Það er
helst að sá litli húmor sem krydda á
söguna fer fyrir ofan garð og neðan i
öllum látunum. Að öðru leyti er The
Mummy Retums hin skemmtilegasta
afþreying og miðað við vinsældirnar
þá megum við eiga von á þriðju múm-
íumyndinni eftir um það bil tvö ár.
Leikstjóri og handritshöfundur: Stephen
Sommers. Kvikmyndataka: Adrian Biddle.
Tónlist: Alan Silvestri. Aðalleikarar: Brend-
an Fraser, Rachel Weisz, John Hannah,
Arnold Wosloo og Patricia Velasquez.
Leika tónlist
eftir konur
Trio Nordica flytur tónlist eft-
ir þrjár konur á Tíbrár tónleik-
um í Salnum í kvöld sem hefjast
kl. 20.00. Þær eru: Karólína
Eiríksdóttir, Clara Wieck
Scumann og Elfrida Andrée.
Trio Nordica skipa: Auður Haf-
steinsdóttir fiðla, Bryndís Halla
Gylfadóttir selló og Mona Sand-
ström píanó.
Leikhús
inavískt kroppsprog
- segir Agnar Jón Egilsson sem leikstýrir sjö leikhópum í sjö löndum
Fornleifafræðingar og ævintýrafólk
Rachel Weisz, John Hannah og Brendan Fraser í hlutverkum sínum.
mikil ævintýri. Svo er kosturinn við
múmíur að það er alltaf hægt að
vekja þær aftur upp frá dauðum þó
kyrfilega hafi verið frá þeim gengið.
Þessi kostur er nýttur í The Mummy
Retums, sem gerist nokkrum árum
eftir að fyrri myndinni lauk, árið
1933.
Nú eru Rick (Brendan Fraser) og
Evelyn (Rachel Weisz) gift og eiga
soninn Alex (Freddie Boath) sem hef-
ur erft ævintýraþrána frá foreldrum
sinum. Bróðir Evelyn, Jonathan
(John Hannah), er fjórði fjölskyldu-
meðlimurinn og sá sem á að koma
með húmorinn í söguna. Eftir rugl-
ingslega byrjun sem gerist fyrir utan
Kafró er haldið heim á leið með skrín
sem inniheldur armband sem ef því
er beitt rétt mun gera það að verkum